Morgunblaðið - 29.01.2003, Síða 29
arsviðs, verður framkvæmda-
stjóri Fyrirtækjasviðs.
Þá verður Þróunarsvið bank-
ans lagt niður í núverandi mynd
og þeim verkefnum sem nú eru í
umsjón sviðsins skipt á afko-
musvið bankans og Fjárhagssvið
(áður Reikningshald, áætlanir
og rekstur). Markmiðið er að
þróunarverkefni og vöxtur
bankans séu í höndum einstakra
afkomusviða, auk yfirstjórnar.
Markmið að auka slagkraft
innanlands sem utan
„Markmið þessara breytinga
er að auka slagkraft, skerpa sýn
á einstaka þætti starfseminnar,
jafnt innanlands sem utan. Mik-
ill vöxtur hefur orðið í starfsemi
bankans á erlendum vettvangi
og allt bendir til að framhald
verði þar á. Skipulag bankans
þarf að fylgja slíkum breyt-
ingum. Síst af öllu má slík sókn
þó bitna á innlendum við-
skiptamönnum bankans. Þessi
skipulagsbreyting miðar því
einnig að frekari sókn á inn-
lendan markað,“ segir í frétt Ís-
landsbanka.
og áhættunefnd bankans. Björn
er jafnframt staðgengill for-
stjóra.
Breytingar á
skipulagi
Þá voru á fundinum sam-
þykktar tvær breytingar sem
lúta að stjórnskipulagi bankans.
Stofnað verður nýtt svið, Al-
þjóðasvið (e. International
Corporate Finance). Undir það
mun falla starfsemi bankans er-
lendis sem áður var hluti Fyr-
irtækjasviðs; lánveitingar, ráð-
gjöf og þjónusta við erlenda
aðila, útrás innlendra aðila, fyr-
irtækjaþróun og starfsemi bank-
ans í London, sem stefnt er að
því að breyta í útibú. Erlendur
Magnússon, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Fyr-
irtækjasviðs, mun verða fram-
kvæmdastjóri Alþjóðasviðs.
Þjónusta bankans við með-
alstór og stærri fyrirtæki verð-
ur áfram innan Fyrirtækjasviðs,
sem mun nú sérhæfa sig í starf-
semi innanlands. Guðmundur
Kr. Tómasson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Þróun-
BANKARÁÐ Íslandsbanka féllst
á fundi sínum í gær á ósk Vals
Valssonar, forstjóra bankans,
um að láta af störfum 15. mars.
Valur á 30 ára starfsafmæli um
þessar mundir, en hann hóf
störf hjá Iðnaðarbanka Íslands
og hefur samfleytt í 20 ár
stjórnað bankastarfsemi hjá Ís-
landsbanka og fyrirrennurum
hans. „Bankaráð Íslandsbanka
þakkar Vali Valssyni af hlýhug
afar farsæl störf hans í þágu fé-
lagsins, viðskiptamanna, starfs-
manna og hluthafa,“ segir í
frétt frá Íslandsbanka.
Bjarni Ármannsson, sem verið
hefur forstjóri Íslandsbanka
ásamt Vali frá sameiningu Ís-
landsbanka og FBA, verður því
einn forstjóri bankans. Sú breyt-
ing tekur gildi 15. mars.
Jafnframt réð bankaráðið
Björn Björnsson sem aðstoð-
arforstjóra og tekur sú breyting
gildi frá og með sama tíma.
Björn hefur verið fram-
kvæmdastjóri lánaeftirlits og
starfsmannamála bankans. Hann
mun sinna þeim starfssviðum
áfram, auk þess að stýra lána-
Nýtt skipurit hjá bankanum
Morgunblaðið/Ásdís
Hagnaður bankans var í samræmi við spár, en bæði vaxtatekjur og vaxtagjöld drógust saman milli ára.
!
!""
!
# $
%
&%
%'
($!
$("
!!!
!!(
$
!
#)"
! (
$
*+ ,
&%
% ,-./0
%%
%
%
% +
!1$2
)12
1 2
12
$
!12
))1$2
12
1)2
"
!"#
$%&'&(#
!
%%)"*+#
hins veg-
. Eignir
man um
um ára-
na.
um 2,7%
53 millj-
amdrátt-
m styrk-
erlendri
a jukust
króna á
vextinum
% á síð-
plega 86
k.
l
3,3% á
i króna í
utfall á
g hækk-
i, en lög-
kki vera
ur A var
ður.
ykkt að
róna af
estingar-
þar með
na í fjár-
tandandi
ar króna
eiginfjár-
fjárþátt-
sta aðal-
ð gera
erði fært
er að
% hagn-
ankaráð-
di leggja
30 millj-
ónir króna í arð, eða um 45% af
hagnaði síðasta árs.
Gengi bréfa Íslandsbanka var
óbreytt í gær og endaði í 4,71
krónu. Miðað við útistandandi
hlutafé er markaðsverð bankans
nú rúmir 42 milljarðar króna.
Stefnt að meiri
hagnaði í ár
„Þetta var gott ár og góð af-
koma,“ segir Valur Valsson for-
stjóri Íslandsbanka. „Arðsemin er
vel umfram markmið bankans og
eiginfjárstaðan er afar sterk. Í
raun hefur bankinn aldrei staðið
betur. Árið einkenndist öðru
fremur af stöðugleika og traustum
rekstri. Kostnaðarstýring var góð
og kostnaðarhlutfall bankans eins
og best gerist hjá alhliða bönkum
á Norðurlöndum. Þetta er sérlega
ánægjulegt fyrir mig persónulega
þegar ég er að hætta, að skila
svona góðri afkomu.“
Spurður um horfur fyrir þetta
ár segir Valur að bankinn reikni
með því að hagvöxtur verði hóf-
legur á þessu ári. Sé miðað við að
verðlag og gengi haldist tiltölu-
lega stöðugt búist bankinn við að
innlend eftirspurn aukist á ný,
sem muni gera honum kleift að
stefna að eitthvað meiri hagnaði á
þessu ári en því síðasta.
ur
nka
rðar
a kaupauki vegna góðr-
nan bankans. Bjarni
Valsson hættir 15. mars.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2003 29
BJÖRN Björnsson, semtekur við stöðu að-stoðarforstjóra Ís-
landsbanka 15. mars, segist
ekki sjá breytinguna sem
mikla byltingu á störfum sín-
um innan bankans. „Þunginn í
starfi mínu hefur verið á sviði
lánamála og formennska í
áhættunefnd breytir engu þar
um,“ segir hann.
Björn segir að einn aðal-
tilgangur skipulagsbreyting-
anna sé að skerpa sýn á starf-
semi bankans á erlendum
vettvangi. „Þar er vöxturinn á
útlánahliðinni og þar höfum við verið að ná góðum ár-
angri síðustu ár,“ segir hann.
Björn er sonur Björns Jónssonar, sem var forseti ASÍ,
alþingismaður og ráðherra, og Þórgunnar Kristbjargar
Sveinsdóttur. Hann er stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1969 og útskrifaðist sem cand. oecon. frá Há-
skóla Íslands 1973. Björn var starfsmaður Kjararann-
sóknarnefndar 1973–1974 og 1976–1981. Hann gegndi
stöðu framkvæmdastjóra Rydenskaffis hf. 1975–1976 og
var hagfræðingur ASÍ 1981–1987.
Aðstoðarmaður Jóns Baldvins
Björn var aðstoðarmaður Jóns Baldvins Hannibals-
sonar fjármálaráðherra 1987–1988 og bankastjóri Al-
þýðubankans 1988–1989. Hann var bankastjóri Íslands-
banka hf. 1. janúar 1990 til 27. apríl 1993 og hefur verið
framkvæmdastjóri hjá bankanum síðan.
Björn er kvæntur Guðnýju Irene Aðalsteinsdóttur og
eiga þau tvær dætur.
„Ekki bylting
á störfum
mínum“
KRISTJÁN Ragnarsson, for-maður bankaráðs Íslands-banka, segir að tilgangur
skipulagsbreytinganna sé bæði að
styrkja starfsemi bankans erlendis
og innanlands. „Já, þær lúta að því að
skipta Fyrirtækjasviði í Alþjóðasvið
og innlent svið. Nú eru 13% heildar-
útlána erlendis og þar hefur orðið
mikill vöxtur,“ segir hann.
Aðspurður segir Kristján að engar
sérstakar fyrirætlanir um útrás liggi
fyrir. „Það stendur til að gera skrif-
stofu Íslandsbanka í London að
útibúi. Bankinn sem við eigum í Bret-
landi, Raphael, hefur verið til sölu.
Við erum ekki í sérstökum útrásarhugleiðingum. Við leggjum
megináherslu á innlenda markaðinn og svo á þekkingu okkar í
sjávarútvegi, þegar kemur að lánastarfsemi erlendis, sér-
staklega í Kanada,“ segir Kristján.
Kristján segir að hinn nýi aðstoðarforstjóri sé ráðinn af
bankaráði og hafi verið falin forsjá ákveðinna verkefna, en sé um
leið undirmaður forstjóra. „Meginhugsunin er að hafa einn for-
stjóra. Reynslan úr sjávarútveginum sýnir að það sé æskilegt
fyrirkomulag að hafa einn skipstjóra,“ segir Kristján.
Eftirsjá í Vali
Hann segir mikla eftirsjá vera í Vali Valssyni. „Já, ég tel að
hann sé sá bankamaður sem njóti mests trausts á Íslandi. Hann
hefur reynst bankanum alveg einstakur starfsmaður,“ segir
Kristján. Aðspurður segir hann að ekki hafi verið gerður sér-
stakur starfslokasamningur við Val. „Í starfssamningnum er
kveðið á um lífeyrismál hans og hann á sér svigrúm samkvæmt
samningum til að ákveða hvenær hann lætur af störfum,“ segir
Kristján.
„Æskilegt
að hafa einn
skipstjóra“
BJARNI Ármannsson, semverður einn forstjóri Ís-landsbanka eftir 15. mars,
segist vera mjög ánægður með af-
komuna á síðasta ári. „Ég tel að
hún sé góð, miðað við þróun ytri að-
stæðna. Við viljum leggja áherslu á
stöðugleika í afkomunni, þrátt fyrir
mikla sveiflu í hagkerfinu. Við þess-
ar aðstæður hefur reynt mikið á
áhættustýringu og viðskiptalíkan
bankans,“ segir hann.
„Raunarðsemin í ár var 15,9% og
var 14,6% árið 2001. Þetta sýnir að
gæði hagnaðarins eru mikil og að
bankinn á að geta skilað góðum af-
rakstri, til skamms og langs tíma,“ segir hann. Bjarni segir
að búist sé við að afkoman verði ívið betri í ár. „Við byggjum
þá spá á því að umhverfið verði stöðugra og að það fari að
blása byrlegar hvað varðar innlenda eftirspurn á árinu,“ seg-
ir Bjarni.
Tryggt að útrás verði ekki á kostnað
innlendra viðskiptavina
Bjarni segir að með breytingunum sé verið að skjóta
styrkari stoðum undir alþjóðlegan vöxt bankans. „Stofnsetn-
ing þessa nýja sviðs, Alþjóðasviðs, miðar að því, en jafnframt
erum við að tryggja að sú útrás sé ekki á kostnað innlendra
viðskiptamanna bankans. Fyrirtækjasvið mun sérhæfa sig í
starfsemi innanlands,“ segir hann.
Bjarni segir að mikill missir verði að Vali Valssyni í stöðu
forstjóra. „Samstarf okkar hefur gengið mjög vel og hann
hefur meiri reynslu í þessari starfsgrein en aðrir menn. Því
hefur verið mikils virði fyrir mig að hafa hann mér við hlið,“
segir Bjarni.
„Styrkari stoðir
undir alþjóð-
legan vöxt“
á sæluna“
því að
Segja
núna
taki ég forskot á sæluna. Ég hef
verið í starfi undanfarna ára-
tugi sem hefur stjórnað tíma
mínum að mestu leyti. Nú ætla
ég að taka völdin og stjórna
tíma mínum sjálfur. Fyrst og
fremst hyggst ég nota tímann
til að njóta lífsins,“ segir hann.
Miklar breytingar
á 30 árum
Valur segir að umbreytingar
á bankamálum hafi verið æv-
intýri líkastar á þessum 30 ár-
um. „Þegar ég byrjaði í bank-
anum ríkti haftatími. Nú erum
við samkeppnishæf í alþjóð-
legum samanburði. Mér hefur
verið mikið ánægjuefni að taka
þátt í öllum þessum umbreyt-
ingum og starfa með öllu því
góða fólki sem þar hefur komið
að máli.“ Aðspurður segist hann
vera bjartsýnn fyrir hönd Ís-
landsbanka. „Bankinn er í hönd-
um afburða starfsfólks og mér
finnst framtíðin mjög björt,“
segir Valur Valsson.