Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 64. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Ólafur Jóhann vinnur við hlið Richard Parson 14 Dagur Önnu Stuttmynd eftir Árna Ó. Ásgeirsson í Háskólabíói Fólk 55         Í vélinni voru 97 farþegar og sex manna áhöfn. Maðurinn sem komst lífs af var alsírskur hermað- ur. Hann slasaðist lífshættulega. För þotunnar var heitið til Algeirsborgar með millilendingu í borginni Ghardaia, en þangað var för flestra far- þeganna heitið. Áhöfnin var alsírsk, sem og 91 far- þegi, en sex farþeganna voru franskir. Innan- og utanríkisráðherrar Alsír héldu til Tamanrasset í kjölfar slyssins, og hefur rannsóknarnefnd verið skipuð til að kanna orsakir þess. Tamanrasset er við rætur Hoggar-fjalla í Sah- ara-eyðimörkinni og er nokkuð vinsæll ferða- mannastaður, auk þess að vera viðskiptamiðstöð Tuareg-ættbálkanna sem búa í eyðimörkinni. Borgarastríðsins, er geisað hefur í Alsír síðan 1992 og kostað um 150.000 mannslíf, hefur lítt orð- ið vart í þessum landshluta, og sagði fulltrúi Air Algerie að útilokað væri að um hryðjuverk hefði verið að ræða. EITT hundrað og tveir fórust og einn komst lífs af er Boeing 737-200 farþegaþota fórst í flugtaki við borgina Tamanrasset í suðurhluta Alsír síðdegis í gær. Þotan var í eigu alsírska flugfélagsins Air Algerie, og sagði talsmaður félagsins að svo virtist sem bilun hefði orðið í vélinni með þessum hörmu- legu afleiðingum. Hann fullyrti að viðhaldi vél- arinnar hefði í engu verið ábótavant. Veður var gott er slysið varð. Þotan fórst um klukkan 15.45 að staðartíma, um klukkan 14.45 að íslenskum tíma. Alsírsk útvarps- stöð hafði eftir sjónarvotti að þotan hefði verið komin á fulla ferð í flugtaki er eldur hafi komið upp í öðrum hreyflinum. Hafi vélin þá farið út af flugbrautinni og brotlent. Slökkviðliðsmenn, lög- regla og hermenn hófu þegar björgunaraðgerðir. Er þetta mannskæðasta flugslys sem orðið hefur í Alsír, og talið það fyrsta í sögu Air Algerie, sem var stofnað 1962. Bilun talin orsök flugslyss er varð 102 að bana í Alsír Algeirsborg. AFP. BRETAR eru reiðubúnir til að gera breyt- ingar á drögum að ályktun um afvopnun Íraka sem þeir hafa ásamt Bandaríkja- mönnum lagt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, gegn því að ráðið beiti Íraka full- um þrýstingi. Þetta sagði Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bretlands, í gær. En Straw tók allt aðra afstöðu en George W. Bush Bandaríkjaforseti, að því leyti að Straw sagði Breta ekki telja algerlega nauðsynlegt að Saddam Hussein Íraksfor- seti yrði hrakinn frá völdum. „Við myndum vilja að önnur stjórn tæki við völdum í Írak. En tilgangurinn með ályktun 1441 er ein- ungis að tryggja að gereyðingarvopn Íraka verði tekin af þeim,“ sagði Straw. Kínverjar sammála Frökkum Rússar og Frakkar, sem hafa fastafull- trúa – og þar með neitunarvald – í örygg- isráðinu, hafa sagst myndu koma í veg fyrir samþykkt ályktunar er heimilaði að vopna- valdi yrði beitt til að afvopna Íraka, og í gær tóku Kínverjar, sem einnig hafa fastafull- trúa og neitunarvald í ráðinu, í sama streng, er þeir sögðust ekki telja að þörf væri á nýrri ályktun. Þeir sögðu þó ekki beint að þeir myndu nota neitunarvaldið til að stöðva samþykkt nýrrar ályktunar. Bush hélt blaðamannafund í gærkvöldi, í nótt að íslenskum tíma, en í gær sögðu fulltrúar hans að þess væri ekki að vænta að hann myndi þar lýsa yfir stríði. Reuters Jack Straw ræðir við fréttamenn í gær. Bretar bjóða til- slakanir Sameinuðu þjóðunum, Washington. AFP. Í UMRÆÐUM um skattaskjól Ís- lendinga í útlöndum utan dagskrár á Alþingi í gær kallaði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, eftir aðgerðum stjórn- valda til þess m.a. að fyrirbyggja undanskot undan skatti með fjár- magnsflutningum milli landa. Sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra spurningar vakna um möguleika til að flytja fé úr íslenskri skattalög- sögu til annarra landa án þess að gefa upplýsingar og greiða eðlileg gjöld. Ögmundur, sem var málshefj- andi, sagðist hafa óskað eftir um- ræðunni þegar upplýst hefði verið að skattrannsóknarstjóra, sem rannsakað hefði skattamál Jóns Ólafssonar, reiknaðist til að hann hefði vantalið tekjur sínar um rúma tvo milljarða á árunum 1996 til 2001. „Þessi skýrsla [skattrannsóknar- stjóra] veitir heilmikla innsýn í þann heim sem hér hefur verið skapaður á síðustu árum, í ferli sem kölluð hefur verið braskvæðing samfélagsins.“ Ögmundur sagði í skýrslunni m.a. koma fram að Jón hefði selt eignir og eignarhluta til fyrirtækis sem ætti höfuðstöðvar á Bresku jómfrúreyjunum með þeim hætti að söluverð eignanna úr landi væri einungis lítið brot af söluverð- inu inn í landið aftur. Geir sagði að hann hygðist ekki ræða skattamál einstakra manna á Alþingi – allra síst meðan slík mál væru til umfjöllunar hjá réttum yf- irvöldum. „Og það er leitt ef í ljós kemur að einhverjir hafa misnotað það frelsi og þann trúnað sem þeim hefur verið sýndur að þessu leyti. Slíkt framferði er að sjálfsögðu ekki líðandi og það verður ekki liðið. Ef breyta þarf lögum til að uppræta slíkt, munum við að sjálfsögðu beita okkur fyrir því.“ Ögmundur krefst aðgerða stjórnvalda Verðum að vera á varðbergi segir Geir H. Haarde fjármálaráðherra  Vísar málflutningi/10 Utandagskrárumræður um skattamál Jóns Ólafssonar á Alþingi SLÖKKVILIÐSMENN reyna að hugga unga konu á flugvellinum í Algeirsborg, en systir kon- unnar fórst með þotunni í Tamanrasset. Reuters Sorg í Alsír Spænska skáldið José Hierro er látið í Madrid Listir 29 Að minnast og dreyma HEYRNARLAUSIR og aðstand- endur þeirra, samtals á annað hundrað manns, fjölmenntu á Austurvelli í gær og kröfðust þess að ríkisstjórnin viðurkenni íslenska táknmálið formlega í lögum og tryggi rétt heyrn- arlausra til túlkaþjónustu. Davíð Oddsson forsætisráð- herra sagði að málið yrði rætt á ríkisstjórnarfundi í dag. Að sögn Hafdísar Gísladóttur, framkvæmdastjóra félagsins, hefur neyðarástand ríkt í túlka- þjónustu frá byrjun febrúar. Ell- efu stjórnsýslukærur hafa borist til menntamálaráðuneytisins vegna synjunar á túlkaþjónustu. Morgunblaðið/Jim Smart Táknmál verði viðurkennt Tímabundið áhlaup
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.