Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
Rauðsmára-
Phytoestrogen
Fyrir konur á
breytingarskeiðinu
PÓSTSENDUM
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Stjörnuljómi
Förðunarmeistarinn Corey Hedström frá ESTÉE LAUDER
verður í snyrtivörudeild Debenhams á morgun laugardag frá
kl. 11.00-18.00 og sýnir nýja og byltingarkennda förðunartækni
með loftúða.
Komdu við eða hringdu og bókaðu tíma í síma 522-8008.
ÁSTRALSKUR
FÖRÐUNARMEISTARI
www.esteelauder.com
ÞRÍR karlakórar á Eyjafjarðar-
svæðinu, samtals á annað hundrað
karlar, munu ásamt tveimur konum
sameina krafta sína á almennri söng-
skemmtun í Glerárkirkju á laugar-
dag, 8. mars, kl. 17.
Þetta eru Karlakór Eyjafjarðar,
stjórandi Petra Björk Pálsdóttir,
Karlakór Dalvíkur, stjórnandi Guð-
mundur Óli Gunnarsson, og Karla-
kór Akureyrar, stjórnandi Erla Þór-
ólfsdóttir. Kórarnir halda uppi
fjölbreyttri dagskrá, þar sem hver
um sig flytur nokkur lög, auk þess
sem þeir syngja sameiginlega nokk-
ur lög. Daníel Þorsteinsson leikur
með á píanó.
Tónleikar
þriggja
karlakóra
TÓNLEIKAR verða haldnir á morg-
un, laugardag, kl. 16 í Laugarborg í
Eyjafjarðarsveit til styrktar minning-
arsjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur, en
Tónlistarskólinn á Akureyri stendur
fyrir þeim. Fram koma nemendur á
efri stigum úr öllum deildum skólans
með mjög fjölbreytta efnisskrá. Að-
gangur er ókeypis en tekið verður á
móti frjálsum framlögum í minning-
arsjóðinn. Fénu er varið til styrktar
efnilegum nemendum skólans til
framhaldsnáms og eru tónleikarnir
helsti vettvangur til að styrkja sjóð-
inn. Í hléi verður happdrætti þar sem
vinningar eru miðar á konsert Krist-
jáns Jóhannssonar og Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands 11. maí nk.
Þorgerður lauk burtfararprófi frá
Tónlistarskólanum á Akureyri og var
nýkomin til London í framhaldsnám,
þegar hún lést af slysförum í febrúar
1972. Aðgangur er ókeypis en tekið er
við frjálsum framlögum. Allir eru vel-
komnir.
Þorgerðar-
tónleikar
í Laugarborg
Á alþjóðadegi kvenna á morgun,
laugardaginn 8. mars frá kl. 14 og 16
bjóða konur á framboðslista Sam-
fylkingarinnar í Norðaust-
urkjördæmi í kaffi og spjall um
stöðu og styrk kvenna á landsbyggð-
inni, á kosningaskrifstofunni
Brekkugötu 1 á Akureyri. Guðrún
Ögmundsdóttir alþingismaður verð-
ur sérstakur gestur fundarins.
Valgerður Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Norðurlandsskóga,
verður gestur á laugardagsfundi VG
á Akureyri, en hann verður á morg-
un, laugardaginn 8. mars, og hefst
kl. 11 í kosningamiðstöðinni við
Hafnarstræti 94.
Valgerður ætlar að ræða um skóg-
rækt og ber fyrirlesturinn yfirskrift-
ina: „Skógrækt ný-búgrein á Ís-
landi“.
Á MORGUN
FYRSTA beina áætlunarflug
Grænlandsflugs frá Akureyri
til Kaupmannahafnar verður
28. apríl næstkomandi, en
flogið verður tvisvar í viku
milli þessara áfangastaða, á
mánudögum og fimmtudög-
um allt árið um kring.
Forsvarsmenn félagsins
kynntu áform þess á fundi á
Akureyri í gær en þar kom
fram að hægt yrði að bóka
ferðir í gegnum Amadeus og
farmiðar verði fáanlegir hjá
öllum IATA-ferðaskrifstofum
en ekki verði hægt að ganga
frá bókunum strax þar sem ís-
lensk flugmálayfirvöld hafa
ekki afgreitt umsókn félags-
ins. Michael Binzer, sölu- og mark-
aðsstjóri Grænlandsflugs, sagði að
nokkrar vikur, 3–4 líklega væru í
að afgreiðsla myndi liggja fyrir á
umsókn félagsins. Hann sagði for-
svarsmenn Flugleiða hafa reynt að
tefja fyrir framgangi málsins, því
vissulega sæju þeir fram á aukna
samkeppni á þessari leið. „Þetta er
leikur,“ sagði hann.
Flogið verður frá Akureyri kl.
12 á hádegi og komið til Kaup-
mannahafnar kl. 16.45, sem Mich-
ael sagði góðan tíma upp á tengi-
flug vítt og breitt um Evrópu. Frá
Kaupmannahöfn er farið kl. 9.45
að morgni og komið til Akureyrar
kl. 10.45. Flogið verður með
Boeing 757-200 vél félagsins með
168 sætum.
Kynningarátak verður í gangi í
maí og er fargjaldið þá 22.500
krónur með sköttum og bók-
unargjaldi, en Ferðaskrifstofa Ak-
ureyrar verður aðalsöluaðili
Grænlandsflugs á Akureyri. Þá er
þegar farið að skipuleggja ýmsar
ferðir í tengslum við áætl-
unarflugið m.a. helgarferð, fjórar
nætur á þriggja stjörnu hótel í
miðbæ Kaupmannahafnar á
49.900. Eins er verið að undirbúa
ferð á Hróarskeldu í sumar og tón-
leikaferð með Paul McCartney í
byrjun maí.
Michael Vinzer sagði Græn-
landsflug ekki lággjaldaflugfélag,
það kysi að bjóða farþegum sínum
góða og örugga þjónustu. Verð á
farseðlum á þessari flugleið verður
að loknu kynningarátaki á bilinu
30–40 þúsund krónur.
Michael sagði að væntingar
forsvarsmanna Grænlands-
flugs væru miklar, en stefnt
er því að ná 12 þúsund farþeg-
um í ár, þ.e. á 8 mánaða tíma-
bili frá apríllokum til ára-
móta. Hann sagði félagið hafa
lagt mikið undir og þeir gerðu
sér grein fyrir að með því að
bjóða upp á þetta beina áætl-
unarflug tækju þeir áhættu.
Fyrirvarinn væri skammur og
því hefði félagið ekki náð inn í
ferðabæklinga fyrir komandi
sumar. Kynningarstarf myndi
miðast við haust- og vetr-
arferðir sem og kynningu fyr-
ir sumarið 2004. Mikið traust
væri því lagt á heimamenn á
Norður- og Austurlandi að nýta
sér þennan valkost á ferðalögum
til útlanda í sumar. Hagur heima-
manna fælist t.d. í skemmri tíma til
ferðalaga þar sem farið væri frá
heimabyggð. „Við bjóðum Norð-
lendingum upp á þennan valkost
og höfum lagt í þetta verkefni mik-
ið fé þannig að við vonum að vel
muni ganga,“ sagði Michael og
benti á að menn hefðu fundið fyrir
velvilja og stuðningi heimamanna
þannig að nokkur bjartsýni ríkti.
Grænlandsflug var stofnað árið
1960 og eru starfsmenn þess tæp-
lega 500 talsins. Félagið hefur yfir
að ráða góðum flugvélakosti og
flytur um 630 þúsund farþega ár-
lega á ýmsum leiðum. Höf-
uðstöðvar þess eru í Nuuk, en flug-
vélar eru skráðar í Danmörku.
Beint flug milli Akureyrar og
Kaupmannahafnar í næsta mánuði
Stefnt að því að ná 12
þúsund farþegum á árinu
Morgunblaðið/Kristján
Michael Binzer, sölu- og markaðsstjóri Græn-
landsflugs, kynnti áætlanir félagsins varðandi
flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar.
BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að ganga til samn-
inga við Félagsstofnun stúdenta
á Akureyri, FÉSTA, um leigu
bæjarins á húsnæði fyrir 90
rýma leikskóla í fyrirhugaðri ný-
byggingu við Tröllagil, á grund-
velli tillagna starfshóps og sam-
þykktar skólanefndar.
Starfshópurinn bendir þó á að
samfara þessari ákvörðun verði
að taka ákvörðun um byggingu
leikskóla á Neðri-Brekkunni.
Hugmyndir FÉSTA ganga út
á að á umræddri lóð við Tröllagil
verði byggt 9 hæða hús, þar sem
leikskóli verði á tveimur neðstu
hæðunum og 36 íbúðir í húsinu
til viðbótar, 14 tveggja herbergja
og 22 þriggja herbergja. Hér er
um töluverða viðbót að ræða en
fyrir á FÉSTA 83 íbúðaeiningar
í bænum, frá einstaklingsher-
bergjum og upp í þriggja her-
bergja íbúðir.
Bjarni Hjarðar, formaður
stjórnar FÉSTA, sagði að full
þörf væri fyrir nýjan leikskóla og
fleiri stúdentaíbúðir og að hér
væri um að ræða framkvæmd
sem væri til hagsbóta fyrir bæði
háskólastúdenta og hinn almenna
bæjarbúa. Bjarni benti m.a. á að
ný deild, félagsvísinda- og laga-
deild, tæki til starfa við háskól-
ann næsta haust og væri von á
um 100 nýnemum í hana. Hann
sagði að næsta skref í málinu
væri að ganga til samninga við P.
Alfreðsson ehf. sem á bygginga-
rétt á lóðinni. Bjarni sagði að
FÉSTA vildi kaupa allt húsið,
sem verður alls um 3.700 fer-
metrar að stærð. Stofnunin hefur
m.a. fengið lánsloforð frá Íbúða-
lánasjóði upp á 350 milljónir
króna, sem kemur til afgreiðslu á
næsta ári.
Leikskólinn verður rekinn af
Akureyrarbæ en Bjarni sagði að
börn stúdenta yrðu væntanlega
fyrirferðarmikil þar en fyrir á
FÉSTA 29 íbúðir í næsta húsi
við væntanlega byggingu. Bjarni
sagði stefnt að því hefja bygg-
ingaframkvæmdir í næsta mán-
uði og ljúka framkvæmdum í
ágúst á næsta ári.
Bygging stúdentaíbúða
í fjölbýlishúsi við Tröllagil
Bærinn vill reka
leikskóla í húsinu