Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. SPILLING og mútur voru meðal þeirra orða sem féllu í umræðum í borgarstjórn í gærkvöld um kaup Reykjavíkurborgar á Stjörnubíós- reitnum svokallaða fyrir 140 millj- ónir króna. Sjálfstæðismenn sögðu annarlegar ástæður liggja að baki kaupunum og lóðin væri of dýr. Meirihlutinn sagðist með kaupun- um vilja stuðla að uppbyggingu í miðbænum. Óháður fasteignasali hefði talið verðið á lóðinni eðlilegt. „Hvort heldur rætt er um efni málsins, kaupin á þessum reit, sem kenndur er við Stjörnubíó, áformin um bílastæðakjallara á honum eða útleggingu formanns skipulags- og byggingarnefndar á málinu endum við alltaf á sama reitnum. Það er reynt að skjóta sér undan ábyrgð,“ sagði Björn Bjarnason, oddviti Sjálfstæðisflokks. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar, sagði Björn fara með dylgjur. Verðið væri ekki úr takti við það sem greitt hefði ver- ið fyrir aðrar eignir sem keyptar hefðu verið í sama tilgangi. Nýja bíó, sem keypt var árið 1998, hefði verið keypt á 138 milljónir á þávirði. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, sagði umræðuna ógeðfellda. „Sjálfstæðisflokkurinn er, í þessari pólitísku kosningabar- áttu sem nú fer fram fyrir þing- kosningar, kominn ofan í drullu- svað […] Ég frábið mér að umræðan hér sé dregin niður á þetta plan, þetta bílaplan og niður í þessa bílakjallara,“ sagði Árni Þór. Kjartan Magnússon, Sjálfstæðis- flokki, sagði kaupin gerð á annar- legum forsendum. Allir vissu að lóðareigandinn, Jón Ólafsson, væri fjárhagslegur bakhjarl R-listans. „Hér virðist í þessu máli ákveðin spilling fráfarandi borgarstjóra op- inberast, eða R-listans. Maður er undrandi að sjá viðtakandi borgar- stjóra og forseta borgarstjórnar koma hér upp og taka þátt í þessu. Þeim væri miklu meiri sæmd að því að vinda ofan af spillingunni, neita að taka þátt í henni og snúa við blaðinu,“ sagði Kjartan. Stefán Jón Hafstein, R-lista, spurði Kjartan hvort hann ætti við að eigandi lóðarinnar hefði mútað R-listanum. Kjartan sagði að hann hefði aldrei nefnt orðið mútur en Stefán Jón mætti auðvitað velja þessari gjörð það heiti. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sjálfstæðisflokki, sagði offramboð á verslunarhúsnæði í dag. „Þá er borgin að kaupa reit til að byggja þriggja hæða verslunarhús. Þetta er alveg nýtt, þetta kalla ég ekki skýrar forsendur,“ sagði hann og spurði hvort borgin ætlaði að fara að byggja verslunarhúsnæði. Stef- án Jón sagði að borgin vildi gera lóðina byggingarhæfa fyrir fjár- festa til að fara þar í miklar fram- kvæmdir, borgin ætlaði ekki sjálf að byggja þar. Lóðarkaup sögð opin- bera spillingu R-listans Hart deilt um kaup borgarinnar á Stjörnubíósreit í borgarstjórn TOPPAR verða enn meira áberandi í hári í vor, þungir eða skakkir, og svo- nefndir öskutónar njóta vaxandi vin- sælda í stað kopars og gylltra tóna. Áberandi strípur eru að detta út og síðar línur eru dá- lítið að koma inn. Þannig er í stórum dráttum lýsing þriggja ungra hárgreiðslumanna; Fannars Leóssonar hjá Space, Heimis Þórs Guðjónssonar hjá Rauðhettu og úlfinum og Nonna Quest á hár- greiðslustofunni Kristu, á hártísku vorsins 2003. Allir fara þeir reglulega utan til að fræðast um stefnur og strauma í hártísku, auk þess sem götutískan og umhverfið hér heima og í útlöndum verður þeim innblástur. Þungir og skakkir toppar SAMBÝLI fyrir fatlað fólk voru á sínum tíma mikið framfaraskref frá sólarhringsstofnunum en núorðið er samstaða um að fatlað fólk eigi rétt á eigin heimili og einkalífi á sama hátt og aðrir. Samkvæmt drögum að búsetuáætlun Akureyrarbæjar fyrir fatlaða munu íbúðakjarnar með einkaíbúðum og misstóru sameig- inlegu rými hafa leyst hefðbundin sambýli af hólmi árið 2013. Kristín Sigursveinsdóttir, deild- arstjóri búsetudeildar, segir að bær- inn sé framarlega meðal sveitarfé- laga hvað varðar búsetumál fatlaðra og óvenjulegt sé að gera búsetuáætl- un sem nær svo langt fram í tímann. Hefðbundin sam- býli leyst af hólmi  Daglegt líf/1/6 NETABÁTURINN Brynjólfur ÁR bar sér- kennilegan feng að landi í Vestmanna- eyjum í gær, svokallaðan gráháf, en slík skepna hefur aðeins veiðst fjórum sinnum áður hér við land svo vitað sé. Gráháfurinn var 1,5 metra langur og kom í net í Kantinum svokallaða út af Vík í Mýrdal, á 80 til 200 faðma dýpi. Nátt- úrugripasafnið í Vestmannaeyjum fékk gráháfinn að gjöf. Gráháfur veiddist fyrst hér við land árið 1911 svo vitað sé en ári síðar gekk gráháfur í grásleppunet við Akurey hjá Reykjavík. Næst sást til grá- háfs hér við land árið 1997, þegar veiddist einn slíkur á Síðugrunni. Þá veiddist grá- háfur suðaustur af Grindavík árið 1998. Gunnar Jónsson, fiskifræðingur á Haf- rannsóknastofnuninni, segir óvenjumikið um það á undanförnum árum að hingað hafi slæðst fiskitegundir sem jafnan haldi sig á suðlægari slóðum. Eins veiðist orðið fiskar norður af landinu sem fram til þessa hafi aðallega haldið sig við Suður- land. Líklega sé skýringin óvenju hlýr sjór við landið á undanförnum árum. Morgunblaðið/Sigurgeir Kristján Egilsson með gráháfinn. Fimmti gráháfurinn „ÞAÐ var nákvæmlega ekkert skyggni og það sást ekki milli veggja,“ sagði Jón Valgeir Júl- íusson flutningabílstjóri um gríðarlegan reyk úr bifreiðinni sem fyllti Hvalfjarðargöngin um klukkan 22 í gærkvöldi. Mikill viðbúnaður var vegna atviksins af hálfu lögreglu og slökkviliðs á Akranesi og höfuðborgarsvæðinu. Ennfremur var þyrla Landhelgisgæslunnar í viðbragðs- stöðu vegna óhappsins. Reykurinn myndaðist vegna hráolíu sem lak niður í sveifarhús vélar bifreiðarinnar þegar spíss í vélinni gaf sig. Við það varð sprenging og þykkur reykjarmökkur fyllti göngin svo ekki sást handa skil, að sögn Jóns Valgeirs. Hann var inni í bifreiðinni ásamt farþega sínum og sakaði hvorugan. Nokkur um- ferð var um göngin þegar óhappið varð en allir bílar komust upp úr göngunum vandræðalaust. Slökkvilið Akraness fór niður í göngin norð- anmegin og setti blásara af stað til að reykræsta á undan sér. Vaktmenn hjá Speli, sem fóru nokkru á undan slökkviliðinu, urðu að hörfa vegna reykjarkófsins áður en slökkviliðið hóf reykræstinguna. Þá urðu liðsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins að hörfa sunnanmegin vegna reykjarkófsins og komust ekki á vettvang fyrr en að lokinni reykræstingu. Ekki var þó neitt fyrir slökkviliðið að gera við flutningabif- reiðina þar sem ekki hafði kviknað í henni og reykurinn horfinn. Ugg setti að lögreglunni Að sögn varðstjóra SHS var vitað í upphafi að ekki hefðu orðið slys á fólki. Bogi Sigvaldason, varðstjóri í lögreglunni í Reykjavík, sagði á vettvangi við Morgunblaðið að mikill mökkur hefði stigið upp úr göngunum sunnanmegin vegna áhrifa frá blásurum og stífrar norðanátt- arinnar sem hefði hjálpað til. Hann sagði að ugg hefði sett að lögreglunni við tilkynninguna og hefði mikill viðbúnaður verið settur af stað vegna óhappsins. Gunnar Örn Pétursson, varðstjóri hjá SHS, sagði sig og fjóra félaga sína hafa farið ofan í göngin á slökkviliðsbíl og þeim hefði í fyrstu mætt örlítil reykjarslæða. Hefðu þeir haldið að hugsanlegur eldur væri að kulna og því héldu þeir áfram niður eftir göngunum. „Eftir á að hyggja hefðum við gert aðrar ráðstafanir en miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, að bílar væru fastir í göngunum, gerðum við þetta. Það var mjög erfitt að þurfa að snúa við og mun ekki líða okkur úr minni. Við töldum að við myndum ekki þurfa að lenda í svona löguðu, þar sem 20 mínútur voru liðnar frá útkalli og reykurinn lítill sem mætti okkur í fyrstu. En hann hefur verið kröftugur blásturinn sem feykti þykka reyknum á móti okkur.“ Morgunblaðið/Júlíus Lögreglan í Reykjavík ásamt slökkviliði við flutningabifreiðina að lokinni reykræstingu í göngunum í gærkvöldi. Sást ekki handa skil vegna reykjarmökks Mikill viðbúnaður í Hvalfjarðargöngum vegna olíuleka úr flutningabíl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.