Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 56
KVIKMYNDIR 56 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hringadróttinssaga: Tveggja turna tal (Lord of the Rings: The Twin Towers) Millikafli stórvirkis Tolkiens og Jacksons gnæfir yfir aðrar myndir ársins, mikilfengleg sagnagáfa þeirra skapar eitt magnaðasta ævintýri kvikmyndasögunnar. Ósvikin epík um hugrekki, vináttu og drenglyndi. (S.V.) Smárabíó. Chicago Kynngimögnuð og kynþokkafull söng- og dansamynd þar sem Zellweger, Zeta-Jones og síðast en ekki síst Richard Gere fara hamförum í svellandi kvikmyndagerð leikhúss- verksins. (S.V.) ½ Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó, Akureyri. Nói albínói Frumleg og vel gerð mynd í alla staði sem gerist í einangr- uðu sjávarþorpi þar sem óvenjulegur uppreisnarmaður á í stríði við menn og máttarvöld. Magnað byrjendaverk. (S.V.) ½ Háskólabíó. Gengi New York borgar (Gangs of New York) Þessi afrakstur draumaverkefnis Martins Scorsese er þeysireið um sögusvið sem er heillandi og grimmúðlegt í senn – New York-borg á róstusömum tímum. Metnaðurinn og hæfileikarnir hefðu tvímælalaust notið sín betur hefði leikstjórinn farið styrkari höndum um hina áhugaverðari þræði sögunnar, en á heildina litið er þetta mögnuð kvik- mynd.(H.J.)  Laugarásbíó, Smárabíó. Varðandi Schmidt (About Schmidt) Harla óvenjuleg og athyglisverð umfjöllun um lífsviðhorf manns sem er að hefja eftirlaunaárin og verður að horfast í augu við erfið vandamál tengd þeim aldri. Vitræn, drama- tísk, kaldhæðin, vel skrifuð og leikin. (S.V.) Laugarásbíó. Gríptu mig ef þú getur (Catch Me If You Can) Þeir eru allir í toppformi; Di Caprio sem barnungur svika- hrappur; Hanks sem FBI-maðurinn á hælum hans og Walken sem lánleysinginn faðir pilts. Frábær endursköpun sjöunda áratugarins og myndin sú fyndnasta frá Spiel- berg. (S.V.)  Sambíóin, Háskólabíó. Hringurinn (The Ring) Þéttur, óvenjulegur hrollur, blessunarlega laus við blóðslabb og ódýrar brellur en virkjar ímyndunarafl áhorf- enda. (S.V.)  Háskólabíó, Sambíóin. Gullplánetan (Treasure Island) Skemmtilegar og frumlegar persónur í geggjuðu umhverfi þeysast um himingeiminn í spennandi og dramtískri leit að gulli. Fyrir alla fjölskylduna. (H.L.)  Sambíóin. Tveggja vikna uppsagnarfrestur (Two Weeks Notice) Samleikur þeirra Hugh Grants og Söndru Bullock er frábær í þessari velheppnuðu rómantísku gamanmynd, sem nær að mörgu leyti þeim sjarma sem einkenndi „screwball“- gamanmyndirnar á 4. og 5. áratugnum. Myndin er ferskt innlegg í annars þreytta kvikmyndagrein. (H.J.)  Sambíóin, Reykjavík, Keflavík, Akureyri. Ofurhugi (Daredevil) Affleck er borginmannlegur í titilhlutverki ófrumlegs of- urmennis en brellur og útlit vandað og skemmtanagildið vel yfir meðalmennskunni. (S.V.)  Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó. Didda og dauði kötturinn Didda er níu ára gömul Keflavíkurmær sem gengur á milli bols og höfuðs á glæpalýð í Bítlabænum. Góður leikur, hollt, gott og gamaldags barnagaman. (S.V.)  Háskólabíó, Sambíóin. Frida Á heildina litið kraftmikil og litrík kvikmynd sem veitir æv- intýrakennt yfirlit yfir ævi Fridu Kahlo, en áhuginn á að kafa nægilega djúpt í list- eða hugmyndaheim listakonunnar víkur fyrir áherslu á dramatík og holdlegar ástríður, og það- an er stuttur vegur yfir í söluvænlega melódramatík. (H.J.)  Regnboginn. Njósnakrakkarnir 2 (Spy Kids 2) Njósnakrakkarnir, foreldrar þeirra, afar og ömmur í miklum Bond-hasar og laufléttri fjölskylduskemmtun. (S.V.) ½ Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó, Akureyri. Ég, njósnarinn (I Spy) Wilson og Murphy leika skemmtilegar andhetjur í þessari grín-njósnamynd. Myndin sjálf hefði hins vegar mátt vera mun frumlegri og fyndnari þótt hún læði fram á manni ein- staka brosi. (H.L.) Smárabíó, Borgarbíó, Akureyri. Ingiríður Eygló (Juwanna Mann) Körfuboltakappi klæðist kvenfötum og heldur áfram í kvennaliði þegar hann er rekinn úr NBA. Mun skárra en það hljómar. (S.V.) Sambíóin. Kalli á þakinu Ágætis smábarnamynd gerð eftir sögu Astrid Lindgren, um skemmtilegan karl sem kann að fljúga. Handbragðið er ágætt en myndin er ekki jafn góð og bækurnar. (H.L.) Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó, Akureyri. Öldugangur (Blue Crush) Hér ríkir brimbrettarómantík með raunsæislegum undirtóni þó. Öldugangur er dæmigerð keppnismynd, dálítið klaufa- leg í framvindu, en hefur þó sinn sjarma, ekki síst vegna þeirrar tilveru sem hún gefur innsýn í og tilkomumikilla brimbrettaatriða.(H.J.) Sambíóin. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Nói albínói eftir Dag Kára Pétursson er „magnað byrjendaverk“ að mati Sæbjörns Valdimarssonar. BRESKI leikstjórinn Stephen Daldry sló ræki- lega í gegn með fyrstu kvikmynd sinni Billy Ell- iot. Hann hefur nú flogið yfir Atlantshafið til að gera næstu mynd, sem er allt öðruvísi. Stund- irnar er saga af þremur ólíkum konum á þrem- ur ólíkum tímabilum. Sögur þeirra tvinnast saman og það sem þær eiga sameiginlegt er að allar hafa þær orðið fyrir miklum áhrifum frá rithöfundinum Virginiu Woolf. Reyndar er ein þeirra Virgina sjálf og fylgst er með henni á þriðja áratugnum þegar hún var að fást við skriftir fyrsta tímamótaverks síns Frú Dallo- way. Nicole Kidman er næstum óþekkjanleg í gervi sínu, en þykir standa sig frábærlega í hlutverkinu. Árið 1951 er Laura Brown, sem Julianne Moore leikur, ólétt og lífsleið húsmóðir að reyna að skipuleggja partí fyrir bónda sinn, en getur ekki hætt að lesa bókina Frú Dalloway, þar sem bókin leiðir hana í sannleikann um hana sjálfa og lífið sem hún lifir. Sú þriðja er leikin af Meryl Streep og er það nútímakonan Clarissa Vaughn, hálfgerð nútímaútgáfa af frú Dalloway. Hún er bókaútgefandi og er líka að fara að halda partí, en fyrir besta vin sinn og fyrrverandi eiginmann Richard, sem er virtur rithöfundur að deyja úr eyðni. Auk herskara stjörnuleikara sem prýðir myndina, er það einvalalið sem stendur að baki Stundunum. Aðalkonurnar þrjár þykja standa sig frábærlega í ólíkum hlutverkum kvennanna þriggja. Þótt Kidman komi eflaust mest á óvart og sé mest áberandi, tekst henni víst ekki að varpa skugga á Moore og Streep. Þær eru einn- ig umvafðar fínum leikurum í aukahlutverkum og þykir Ed Harris einna bestur. Handritið ger- ir hið virta leikskáld David Hare, eftir sam- nefndri skáldsögu Michaels Cunningham sem gerði sér lítið fyrir og fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir þetta skáldverk sitt. Það fjallar um tilveru og tilvistarkreppu kvennanna þar sem sjálfs- morð og kynhverfa koma fyrir hjá þeim öllum, þegar þær reyna að svara hinni einföldu og ill- svaranlegu spurningu: til hvers lifi ég? Tilvera þriggja kvenna Regnboginn frumsýnir kvikmyndina Stundirnar (The Hours). Leikstjóri: Stephen Daldry. Aðal- hlutverk: Nicole Kidman, Julianne Moore, Meryl Streep, John C. Reilly, Ed Harris, Jeff Daniels, Mir- anda Richardson, Claire Daines, Stephen Dillane, Miranda Richardson og Toni Collette. Nicole Kidman sem Virginia Woolf. ÞAÐ er skemmtileg tilbreyting í bíómynda- flóruna þegar furðufuglar skjóta upp kollinum og bera á borð fyrir okkur skrítnari myndir er aðrir. Flestir sem sáu Að vera John Malkovich ættu að vera sammála um að tvíeykið á bakvið hana, leikstjórinn Spike Jonze og handritshöf- undurinn Charlie Kaufman, tilheyra þeim hópi. Og nú eru þeir, blessaðir, komnir með nýja mynd, sem einnig þykir furðuleg en um leið hin fínasta. Nicolas Cage leikur tvö aðalhlutverk mynd- arinnar. Hann leikur hina eineggja tvíbura Charlie og Donald Kaufman sem báðir fást við skriftir. Charlie er að breyta bók Susan Or- leans Orkedíuþjófinn í kvikmyndahandrit, þar sem fjallað er um líf sérvitringsins John La- roche, sem safnar framandi plöntum á Flórída. Á meðan tvíburabróðurnum Donald reynist ekkert auðveldara en að framleiða kvikmynda- handrit, á aumingja Charlie í endalausri bar- áttu við aðlögunina sína. Þannig er að fyrir nokkrum árum fékk Kaufman í alvöru það verkefni að aðlaga Orkedíuþjófinn lögum hvíta tjaldsins. Þótt honum hefði fundist John Laroche fínn kar- akter í kvikmynd átti hann í vandræðum með að skrifa áhrifaríkt kvikmyndahandrit upp úr bókinni. Hann ákvað því að fara inn á óhefð- bundnari brautir í skrifum sínum, og hér er ár- angur erfiðisins. Sem sagt kvikmynd sem að einhverju leyti er upplifun hans á því að kljást við þetta verkefni. Myndin er séð út frá Charlie, og við sjáum bæði raunverulegt líf hans og hvernig hann sér fyrir sér það sem hann er að skrifa. Meryl Streep leikur höfundinn Susan Orlean og leik- stjórinn Curtis Hanson er eiginmaður hennar, Chris Cooper er sérvitringurinn Laroche og Brian Cox leikur Robert McKee sem í alvöru er þekktur handritsráðgjafi. John Malkovich og Catherine Keener sjást einnig, enda gerist hluti myndarinnar á tökustað Að vera John Malkovich. Einnig er farið fram og aftur í tíma, m.a.s aftur til forntíma! Spike Jonze hlaut Silfurbjörninn í Berlín fyrir þetta furðuverk sitt, og myndin er til- nefnd til fernra Óskarsverðlauna. Hugarheimur höfundar Sambíóin og Háskólabíó frumsýna kvikmyndina Aðlögun (Adaptation). Leikstjóri: Spike Jonze. Aðal- hlutverk: Nicolas Cage, Tilda Swinton, Meryl Streep og Chris Cooper. Nicolas Cage sem Donald og Charlie. LEIKSTJÓRINN Paul Thomas Anderson þykir með þeim allra frumlegustu og ferskustu í Hollywood. Aðdáendur hans bíða spenntir eftir hverri nýrri mynd hans, enda vekja myndir hans alltaf umtal og umræður hvort sem áhorfendum líkar þær vel eða illa. Í nýjustu mynd sinni Örvita af ást fær And- erson til sín gamanleikarann Adam Sandler. Urðu margir hissa á þessu vali leikstjórans, enda Sandler, sem alinn er upp í bandaríksa grínsjónvarpþættinum Saturday Night Live, þekktur fyrir allt annað en að leika drama- tískar persónur í „listrænum“ myndum. Leik- stjórinn segir hins vegar Örvita af ást vera rómantíska gamanmynd og því hefði honum aldrei fundist annað koma til greina en að fá uppáhaldsgrínleikarann sinn, Adam Sandler, til að leika aðalhlutverkið. Og Sandler var meira en til í að túlka hinn ástfangna Barry Egan, enda hafði hann alltaf langað að prófa eitthvað alveg nýtt og allt öðruvísi en það sem hann væri vanur að gera. Og Barry Egan verður ekki bara ástfanginn í myndinni, heldur verður hann örvita af ást. Hann er einfari og sérvitringur sem rekur litla heildsölu með nokkrum starfsmönnum. Hann er bróðir sjö systra sem bera litla sem enga virðingu fyrir honum og hans tilfinningum, sem gerir að verkum að hann hefur einangrað sig og ekki getað orðið ástfanginn. Hann kynn- ist þó frábærri samstarfskonu systur sinnar, Lenu sem Emily Watson leikur, og verður loksins ástfanginn. En ástin er ekki eintóm sæla, því bæði á Barry greyið erfitt með að tjá tilfinningar sínar, og svo er hann með óprúttna glæpamenn á hælunum. Örvingla af ást hefur hlotið framúrskarandi dóma, auk þess sem Paul Thomas Andersen hlaut Gullpálmann í Cannes sem besti leik- stjórinn, en myndin var sú mest umtalaðasta á hátíðinni. Handritið hefur einnig fengið við- urkenningar, sem og auðvitað leikparið ómót- stæðilega Adam Sandler og Emily Watson. Ást á hlaupum Smárabíó frumsýnir kvikmyndina Örvita af ást (Punch Drunk Love). Leikstjóri: Paul Thomas And- erson. Aðalhlutverk: Adam Sandler, Emily Watson, Philip Seymour Hoffman og Luis Guzmán. Ástin vofir yfir Lenu og Barry. EF þú fílar spennumyndir með grípandi sögu, mörgum taugatrekkjandi atriðum hlöðnum innilokunarkennd, góðum leikurum, áhuga- verðum persónum og skemmtilegum óvæntum beygjum gæti verið að þér myndi líka kvik- myndin Allar bjargir bannaðar en hún fjallar um reynda barnaræningja sem láta til skarar skríða en mæta þá óvenjulegum foreldrum. Það er Kevin Bacon sem leikur barnaræn- ingjann Joe Hickley sem heldur sig heldur betur vera í góðum málum. Sko, hann ætlar að ræna dóttur ríkra foreldra, halda henni í sólar- hring og hafa taumhald á mömmunni á meðan vitorðsmaður fær lausnargjaldið frá pabb- anum sem er á ferðalagi. En hins vegar fara hlutirnir allir úr skorðum hjá honum þar sem litla stelpan er asmaveik en líka þar sem Jenn- ings-hjónin komast að ýmsu um Hickerey sem hann kærir sig ekkert um að þau viti. Þannig snúast vopnin í höndum hans. Leikararnir eru alls ekki af verri endanum. Kevin Bacon hefur margoft sannað sig í margs konar hlutverkum og hér er vitorðsmaður hans leikinn af Courtney Love sem þótti standa sig frábærlega í hlutverki eiginkonu Larry Flynt í kvikmyndinni um þann ágæta mann. Fáum kæmi sjálfsagt á óvart ef hún stæði sig vel í hlutverki glæpakvendis. Jenn- ings-hjónin leika Charlize Theron og Stuart Townsend. Charlize þykir taka sig sérlega vel út og vera trúverðug í hlutverki móðurinnar. Enda er varla að ástæðulausu að Woody Allen og aðrir toppleikstjórar fá hana til liðs við sig. Stuart er Íri sem er eflaust minna þekktur en hinir leikararnir í myndinni. En hann hefur leikið í mörgum eftirminnilegum breskum mynduum eins og Fiskahrap (Shooting Fish), Undraland (Wonderland) og Um Adam (About Adam). Hann er nú á hraðri uppleið í Holly- wood. Og rúsínan í pylsuendanum er kannksi yngsti leikarinn, hún Dakota Fanning, sem leikur fórnarlamb ræningjanna. Hún leikur dóttur Sean Penn í myndinni Ég er Sam og stóð sig stórkostlega. Ef stelpan er jafnfrábær í þessari mynd ætti að vera meira en auðvelt að fá samúð með henni og fjölskyldu hennar. Barnaræningi í klandri Sambíóin frumsýna kvikmyndina Allar bjargir bann- aðar (Trapped). Leikstjóri: Luis Mandoki. Aðal- hlutverk: Charlize Theron, Courtney Love, Hickey Stuart Townsend, Kevin Bacon, Pruitt Taylor Vince og Dakota Fanning. Charlize Theron í hlutverki móðurinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.