Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 57
Bæjarleikhúsið Mosfellsbæ
Sunnud. 9 mars kl:14 og 17
Fimmtud. 13 mars kl: 20
Laugard. 22 mars kl:14 og 17
Sunnud. 23 mars kl:14 og 17
Laugard. 8 mars kl: 20 Föstud. 14 mars kl:20
Laugard. 8 mars kl: 23 Laugard. 15 mars kl:20
Laugard. 29 mars kl:14
Sunnud. 30 mars kl: 14
Laugard. 5. apríl kl:14
Laugard. 12 apríl kl:14
Frumsýning í dag 7 mars kl:20
Það sem engin veit
Revía um fólkið í Mosó
Miðasala allan sólarhringinn
í s í m a 5 6 6 - 7 7 8 8
Lovísa Vattnes - sími 821 6500
www.hamingja.is - hamingja@hamingja.is
Léttu þér undirbúninginn
og Hamingju njóttu
Sérhæfi mig í undirbúningsvinnu fyrir brúðkaup
í samvinnu við verðandi brúðhjón
Innilega til hamingju
með væntanlegan brúðkaupsdag
og megi gæfan fylgja ykkur
ÖLL dýrin í skóginum eiga að vera
vinir en þau þurfa ekki að vera
sammála. Eitthvað á þá leið gæti
boðskapur The Viking Hillbilly
Apocalypse Revue verið. Að
minnsta kosti veit hópurinn að
samstarf Íslendinga og Banda-
ríkjamanna getur verið gjöfult en
hann fór í tveggja mánaða ferðalag
um Bandaríkin á síðasta ári. For-
sprakkarnir Michael Pollock tón-
listarmaður og Ron Whitehead
skáld hófu samstarf árið 1998 og
hafa síðan unnið saman að ýmsum
verkefnum.
Hópinn, sem kemur fram í Ný-
listasafninu í kvöld og annað kvöld,
mynda Ron Whitehead, Frank
Messina, Pollock-bræður, Sarah
Elizabeth, Bragi Ólafsson, In-
spector 99, L.B.H. Krew, Thordeez
og Megas. Þarna sameinast skáld
og tónlistarmenn af ólíkum kyn-
slóðum og þjóðerni og er uppá-
koman því kölluð fjölþjóðakyn-
slóða hljómorðasjónleikar.
Lífrænn hópur
Í kjarnann mynda Íslendingar og
Bandaríkjamenn frá Kentucky
hópinn en hugmyndin er sú að
hann sé opinn og breytilegur, út-
skýrir Whitehead.
„Sarah er ný í hópnum. Hún er
ótrúleg söngkona, sem syngur
hefðbundna fjallatónlist frá Ken-
tucky, kennda við Appalachean-
fjöllin. Tónlistin hennar hljómar
eins og hún komi beint úr fjöll-
unum. Andy [Inspector 99] hefur
verið með frá upphafi. Hann spilar
á didgeridoo og er myndlistamað-
ur og skáld,“ segir Whitehead en
hann hefur einnig starfað náið með
fyrrnefndum Frank Messina.
„Frank og ég höfum ferðast
saman í níu ár, bæði um Evrópu og
Bandaríkin,“ segir Whitehead en
þeir eru einnig á leiðinni til Bret-
lands. Ferðalagið er kennt við
skáld á stríðstímum, útskýrir
Whitehead. „Það ríkir mikil andúð
á Bandaríkjamönnum í Evrópu og
víðar. Eitt sem við viljum koma á
framfæri er að fólk getur verið
ósammála um stríð en samt haldið
vinskap. Við Frank deilum ekki
stjórnmálaskoðunum. Við getum
deilt ákaft en í lokin föðmumst við
og engin vinslit verða,“ segir
Whitehead, sem vill ekki láta bug-
ast, og berst fyrir friði.
Hann liggur ekki á skoðunum
sínum frekar en aðrir í hópnum.
„Þetta er aðgerðastefna með ljóð-
um,“ segir Messina.
Ögrandi heiðarleiki
Whitehead vonar að í kvöld og
annað kvöld eigi hljómorðasjón-
leikar Viking Hillbilly Apocalypse
Revue eftir að hreyfa við við-
stöddum. „Það sem við deilum með
áhorfendum er ögrandi í eðli sínu.
Við eigum eftir að deila með þeim
lögum og ljóðum um óréttlæti, fá-
tækt og stríð. Ég trúi ekki á póli-
tíska réttsýni, heiðarleikinn er
mikilvægastur. Við þurfum að tjá
okkur.“
Pollock segir að hlutverk ljóð-
skálda sé mikilvægt á þessum síð-
ustu og verstu tímum. Hann segir
fréttir í fjölmiðlum í Bandaríkj-
unum vera síaðar. „Upprunalegt
hlutverk ljóðskáldsins er að segja
fólki fréttir af heiminum og að
segja sannleikann. Ljóðskáldin eru
rödd fólksins.“
Messina er sammála: „Þetta er
bókmenntabylting. Fólk er sífellt
að verða meðvitaðra um aðra
menningaheima, ekki endilega í
gegnum fjölmiðla heldur vegna
hins ritaða og talaða orðs. Við fær-
um fólk nær hvort öðru.“
Fjölþjóðakynslóða hljómorðasjónleikar í Nýlistasafninu
Ljóðið er
beittara
en byssan
TENGLAR
.....................................................
www.tappingmyownphone.net
www.spokeface.com
Hluti hópsins sem fram kemur í
kvöld og á morgun: Inspector 99,
Mike Pollock, Ron Whitehead,
Frank Messina og Sarah Elizabeth.
Morgunblaðið/Kristinn
The Viking Hillbilly Apocalypse
Revue í Nýlistasafninu föstudags- og
laugardagskvöld kl. 21. Myndin Who
Owns Jack Kerouac? sýnd kl. 19.
Miðaverð 500 kr.