Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR Haukar – KR 80:64 Ásvellir, Hafnarfirði, úrvalsdeild karla, Intersport-deildin, fimmtud. 6. mars 2003. Gangur leiksins: 0:2, 4:4, 9:11, 15:11, 19:15, 21:18, 33:18, 37:27, 43:37, 43:41, 45:46, 53:48, 57:50, 67:50, 70:56, 74:60, 80:64.Stig Hauka: Stevie Johnson 42, Halldór Krist- mannsson 10, Predrag Bojovic 10, Ingvar Guðjónsson 8, Sævar Haraldsson 4, Þórður Gunnþórsson 4, Marel Guðlaugsson 2. Fráköst: 26 í vörn, 15 í sókn. Stig KR: Darrel Flake 22, Baldur Ólafsson 13, Herbert Arnarson 8, Jóhannes Árnason 6, Steinar Kaldal 6, Arnar Kárason 5, Magnús Helgason 3. Fráköst: 23 í vörn, 11 í sókn. Villur: Haukar 13 – KR 18. Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Georg Andersen, ágætir. Áhorfendur: 200. Keflavík – Snæfell 108:83 Íþróttahúsið Keflavík: Gangur leiksins: 2:6, 9:13, 24:15, 24:23, 29:24, 31:30, 36:36, 43:41, 51:41, 55:49, 58:54, 65:60, 72:62, 74:68, 80:68, 82:75, 93:75, 100:77, 106:80, 108:83. Stig Keflavíkur: Magnús Gunnarsson 28, Edmund Saunders 19, Gunnar Einarsson 15, Damon Johnson 14, Arnar F. Jónsson 12, Guðjón Skúlason 10, Jón N. Hafsteins- son 5, Falur Harðarson 3, Sverrir Sverr- isson 2. Fráköst: 24 í vörn – 11 í sókn. Stig Snæfells: Clifton Bush 27, Lýður Vignisson 15, Helgi R. Guðmundsson 14, Hlynur Bæringsson 13, Sigurbjörn Þórð- arson 9, Jón Ólafur Jónsson 5. Fráköst: 19 í vörn – 12 í sókn. Villur: Keflavík 21 – Snæfell 15. Dómarar: Bjarni G. Þórmundsson og Björgvin Rúnarsson. Áhorfendur: 143. Hamar – Grindavík 87:74 Íþróttahúsið í Hveragerði: Gangur leiksins: 2:3, 10:8, 17:10, 23:12, 25:14, 29:16, 32:20, 43:31, 47:36, 54:36, 58:41, 62:47, 66:49, 79:66, 81:68, 87:74. Stig Hamars: Keith Vassel 24, Marvin Valdimarsson 18, Pétur Ingvarsson 18, Lárus Jónsson 14, Svavar Páll Pálsson 8, Hallgrímur Brynjólfsson 3, Sveinn R. Júl- íusson 2. Fráköst: 20 í vörn – 19 í sókn. Stig Grindavíkur: Corey Dickersson 14, Pedrag Pramenko 14, Guðmundur Braga- son 12, Páll A.Vilbergsson 12, Jóhann Þór- ólfsson 9, Guðmundur Ásgeirsson 6, Guð- laugur Eyjólfsson 5, Nökkvi Jónsson 2. Fráköst: 20 í vörn – 10 í sókn. Villur: Hamar 20 – Grindavík 15. Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Al- bertsson. Áhorfendur: Um 350. Njarðvík – Breiðablik 80:72 Íþróttahúsið Njarðvík: Gangur leiksins: 2:0, 8:4, 11:9, 11:15, 14:15, 24:16, 29:24, 34:28, 34:32, 40:34, 50:46, 53:46, 61:48, 64:55, 73:64, 78:69, 80:72. Stig Njarðvíkur: Páll Kristinsson 27, Ólaf- ur A. Ingvarsson 8, Teitur Örlygsson 8, Friðrik Stefánsson 7, Sigurður Einarsson 6, Gregory Harris 5, Halldór Karlsson 5, Þorsteinn Húnfjörð 5, Ragnar Ragnarsson 4, Guðmundur Jónsson 3. Fráköst: 28 í vörn – 8 í sókn. Stig Breiðabliks: Kenneth Tate 19, Pálmi Sigurgeirsson 18, Mirko Virijevic 14, Ísak Einarsson 8, Friðrik Hreinsson 7, Loftur Þ. Einarsson 4, Þórarinn Ö. Andrésson 2. Fráköst: 25 í vörn – 15 í sókn. Villur: Njarðvík 17 – Breiðablik 19. Dómarar: Einar Einarsson og Rúnar Gíslason. Áhorfendur: Tæplega 100. ÍR – Tindastóll 76:86 Íþróttahús Seljaskóla: Gangur leiksins: 0:4, 8:12, 16:15, 18:26, 22:32, 30:36, 30:48, 31:50, 35:50, 39:50, 39:56, 51:58, 57:60, 58:63, 61:63, 63:73, 70:76, 74:80, 76:86. Stig ÍR: Sigurður Þorvaldsson 23, Hregg- viður Magnússon 21, Eiríkur Önundarson 19, Ómar Örn Sævarsson 8, Eugene Christ- opher 4, Fannar F. Helgason 1. Fráköst: 22 í vörn – 9 í sókn. Stig Tindastóls: Clifton Cook 36, Kristinn Friðriksson 14, Michail Antropov 12, Helgi R. Viggósson 10, Óli Bardal 8, Axel Kára- son 5, Einar Ö. Aðalsteinsson 1. Fráköst: 21 í vörn – 13 í sókn. Villur: ÍR 24 – Tindastóll 21. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögn- valdur Hreiðarsson. Áhorfendur: Tæplega 100. Valur – Skallagrímur 99:94 Hlíðarendi, Reykjavík: Gangur leiksins: 2:0, 5:2, 8:12, 14:25, 17:21, 23:35, 25:43, 28:45, 40:48, 50:51, 52:63, 57:67, 62:73, 67:78, 92:92, 94:94, 99:94. Stig Vals: Jason Pryor 45, Bjarki Gústafs- son 19, B. Craddock 10, Gylfi Geirsson 8, Hjörtur Hjartarsson 7, Ólafur M. Ægisson 5, Ernst Gíslason 3, Ægir Jónsson 2. Fráköst: 32 í vörn – 18 í sókn. Stig Skallagríms: JoVann Johnson 29, Eg- ill Egilsson 25, Hafþór Gunnarsson 10, Val- ur Ingimundarsson 10, Pétur Sigurðsson 9, Ari Gunnarsson 7, Pálmi Þór Sævarsson 4. Fráköst: 24 í vörn – 13 í sókn. Villur: Valur 13 – Skallagrímur 16. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Þröstur Ástþórsson. Áhorfendur: Um 50. LOKASTAÐAN: Grindavík 22 17 5 2034:1858 34 Keflavík 22 17 5 2213:1843 34 Haukar 22 15 7 1972:1880 30 KR 22 15 7 1937:1801 30 Njarðvík 22 13 9 1822:1827 26 Tindastóll 22 12 10 1957:1944 24 ÍR 22 11 11 1907:1969 22 Hamar 22 8 14 1984:2120 16 Snæfell 22 8 14 1772:1814 16 Breiðablik 22 7 15 1962:2054 14 Valur 22 5 17 1796:2042 10 Skallagrímur 22 4 18 1819:2023 8 NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Boston – New York .............................. 97:95 Orlando – Milwaukee ......................... 111:99 Toronto – Houston ............................... 95:97 Phoenix – Portland............................... 98:92 Utah – Seattle ....................................... 94:83 Cleveland – Atlanta.......................... 105:111 Washington – LA Clippers.................. 99:80 Memphis – Denver ............................... 96:86 Sacramento – Minnesota ..................... 96:95 LA Lakers – Indiana............................ 97:95 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót kvenna NEÐRI DEILD: FH – HK/Víkingur....................................4:3 Skotland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Hibernian – Dunfermline .........................0:2  Dunfermline mætir Rangers í 8-liða úr- slitum. HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Essodeild: Framhús: Fram - KA.................................20 Varmá: UMFA - ÍBV.................................20 1. deild kvenna, Essodeild: Vestmannaeyjar: ÍBV - Grótta/KR ..........20 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla: Egilshöll: Fram - Afturelding ..............18.30 Fífan: ÍBV - Fylkir................................20.30 Egilshöll: Valur - Haukar .....................20.30 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Sandgerði: Reynir - Fjölnir..................19.15 Þorlákshöfn: Þór Þ. - Stjarnan .................20 BLAK 1.deild kvenna: Kársnesskóli: HK - KA..............................18 Neskaupstaður: Þróttur N. - Þróttur R...20 Í KVÖLD Aðalfundur knattspyrnudeildar FH verður haldinn í Kaplasal mánudaginn 10. mars klukkan 18. FÉLAGSLÍF EYJÓLFUR Sverrisson gefur ekki kost á sér í landsleikinn á móti Skotum á Hampden Park hinn 29. mars næstkomandi. Atli Eðvalds- son landsliðsþjálfari sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að hann hefði sett sig í samband við gamla landsliðsfyrirliðann og kannað hug hans hvað varðar að snúa til baka í landsliðið en Eyjólf- ur ákvað sem kunnugt er að leggja landsliðsskóna eftir leikinn við Dani á Parken í fyrra þar sem Íslendingar voru rassskeltir og töpuðu, 6:0. „Ég kannaði hvort möguleiki væri á að fá Eyjólf inn aftur en hann sagði mér að þó svo að hann langaði að spila þá fyndist honum ekki rétt að koma inn í þetta aftur á þessum tímapunkti. Hann hefði tekið ákvörðun um að hætta og sú ákvörðun stæði. Ég virði þessa skoðun hans,“ sagði Atli við Morg- unblaðið. Atli sagði að mynd væri komin á landsliðshópinn sem hann hyggst velja í Skotaleikinn og bjóst hann við að geta tilkynnt liðið í næstu viku. Spurður út í ástand atvinnu- mannanna sagði Atli það vera upp til hópa gott en ánægjuleg þróun hafi átt sér stað hvað þá varðar. „Mjög margir þeirra hafa spilað mikið á tímabilinu, meira en und- anfarin ár, og hafa verið fastir í sínum liðum og þar af leiðandi mæta þeir til leiks í góðu leik- formi og lausir við meiðsli. Eina óvissan í dag er Árni Gautur. Ég hef svo sem ekki útilokað að hann geti verið með en það verður bara að koma í ljós á næstu dögum hvernig honum reiðir af eftir að- gerðina. Ég mun ekki tefla í neina tvísýnu. Ef Árni Gautur verður ekki 100% klár þá verður hann ekki með á móti Skotunum.“ Eyjólfur gaf ekki kost á sér Um leið og ég hitti úr nokkrum varmér sagt að halda áfram að skjóta – það var þá reynt að koma til mín boltanum og ég skaut,“ sagði Magn- ús eftir leikinn. „Þessi leikur skipti okkur eiginlega engu máli svo að þá róast maður nið- ur og mætir afslappaður til leiks, jafnvel um of, en við náðum að bæta í eftir hlé. Mér líst vel á að fá ÍR en það skiptir samt engu máli hvaða lið við fáum, við verðum að mæta og spila eins og við gerum best.“ Sem fyrr segir var Magnús í ham þegar hann skoraði 28 stig, þar af fóru sjö þriggja stiga skotum hans í körfuna og þrjú af fjórum úr teignum. Edmund Sa- unders skoraði úr báðum þriggja stiga skotum sínum og tók tíu frá- köst. Minna fór fyrir Damon Johnson enda þurfti hann ekki í þetta sinnið að taka leikinn í sínar hendur. Allir tíu leikmenn Keflvíkinga komu inná í ekki minna en tíu mínútur og skor- uðu allir stig. Hólmarar sýndu oft á tíðum ágæt- an körfuknattleik og létu Keflvíkinga vita að þeir væru ekki auðveld bráð. Sex leikmenn léku að mestu allan leikinn og það tók sinn toll er leið að lokum en það vantaði engu að síður neistann til að geta gert sér vonir um sigur og sæti í úrslitakeppninni.. „Ég gat ekki séð að mínir menn hafi mætt tilbúnir í þennan leik þrátt fyrir mik- ilvægi hans fyrir okkur, enginn vilji og ég skil ekki af hverju,“ sagði Bárð- ur Eyþórsson, þjálfari Snæfellinga, eftir leikinn. „Við höfum verið í ströggli og töpuðum í framlengingu síðast og á móti neðsta liðinu þar áð- ur. Svo hafa verið mikil meiðsli í lið- inu og fyrir svona lítinn hóp eins og okkar er það of mikið. Við erum því komnir í frí og förum að undirbúa næsta tímabil. Það hefur ekki verið rætt um hvort ég verði áfram, á líka eftir að koma í ljós hvort liðið vilji hafa mig áfram.“ Helgi R. Guð- mundsson fór á kostum í byrjun með þremur þriggja stiga körfum og Clifton Bush tók duglega við sér eftir hlé með þrettán fráköstum en Hlyn- ur Birgisson tók níu. Lýður Vignis- son skoraði 15 stig, öllu úr þriggja stiga skotum. Gerðum ekki meira en þurfti Blikar höfðu möguleika á að kom-ast í 8-liða úrslitin er þeir sóttu Njarðvíkinga heim en Njarðvíkingar hafa verið á góðu skriði og voru ekki tilbúnir til að gefa eftir, höfðu forystu allan leikinn og unnu með 8 stigum, 80:72. „Ég er ánægður með sigurinn en þetta var ekki fallegur leikur,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð- víkinga, eftir leikinn. „Hann var nán- ast skylduverkefni og mínir menn gerðum það sem þurfti að gera en ekki neitt umfram það. Sóknin var lé- leg og við unnum á góðri vörn,“ bætti Friðrik við og sagði þegar hann fékk fréttir um að KR yrðu mótherjar þeirra í 8-liða úrslitunum. „Mér var nokk sama hvort við fengjum Hauka því ef maður vinnur þá ekki á maður ekkert erindi í úrslitin. Ég hræðist ekkert lið, leikurinn er ákveðið verk- efni sem þarf að ljúka til að halda áfram. Það er athyglisvert að stórlið skuli detta út í 8-liða úrslitum og synd og skömm en um leið áskorun fyrir okkur að verða ekki það lið.“ Gregory Harris átti níu stoðsending- ar og jafnmörg fráköst en Friðrik Stefánsson tók 12 auk þess að verja fimm skot. Það var samt Páll Krist- insson sem sá að mestu um að skora, gerði 27 af 80 stigum liðsins. Mest fór fyrir Kenneth Tate hjá Blikum, skoraði 19 stig og tók 16 frá- köst en Pálmi Freyr Sigurgeirsson var skammt undan með 18 stig og Mirko Virijevic með 14. Þriggja stiga skotin rötuðu sjaldan hjá Blikum, að- eins 5 af 24 rötuðu í körfuna, þar af átti Pálmi tvö en notaði til þess níu tilraunir. Sætin héldust í Seljaskóla ÍR tók á móti Tindastóli, heima-menn í sjöunda sæti og gestirnir í því fimmta. Tindastóll vann 86:76 þannig að sætin haldast óbreytt. ÍR-ingar léku án Eugene Christoph- er, eða svo gott sem því hann hefur verið meiddur en var í leikmannahópnum en var greinilega ekki tilbúinn í slaginn og munar um minna. Gestirnir voru ákveðnari og náðu undirtökunum en misstu ÍR stigi fram úr sér þegar tvær mínútur voru eftir af fyrsta fjórðungi. Það lík- aði þeim ekki og gerðu 11 stig gegn tveimur það sem eftir var fjórðungs- ins. Heimamenn léku afskaplega illa í þessum leikhluta, reyndu allt of mik- ið að komast alveg undir körfuna þar sem þeir hittu Michail Antropov sem réð ríkjum í vítateignum þeim megin. Hinum megin lék Ómar Sævarsson hins vegar fína vörn gegn honum. Vörn gestanna var ekkert sérstök en heimamenn hittu illa og gerðu mikið af mistökum. Annar leikhluti var ekki betri af hálfu heimamanna en gestirnir léku hins vegar við hvurn sinn fingur og þá sérstaklega Clifton Cook og Óli Barðdal, sem átti fínan fyrri hálfleik. Tíu stig Tindastóls í röð rétt fyrir lok hálfleiksins kom liðinu í 30:48 en ÍR átti ágætan lokasprett þannig að munurinn var 15 stig í leikhléi, 35:50. Heimamenn vöknuðu eftir hlé, bæði leikmenn og stuðningsmenn og með baráttu, sem örlaði ekki á í fyrri hálfleik, og fínni vörn minnkuðu þeir muninn í þrjú stig, 57:60 og höfðu þá gert 18 stig gegn fjórum gestanna. Tindastólsmenn léku af mikilli skynsemi í síðasta hlutanum, héldu boltanum vel og biðu eftir góðum færum. ÍR-ingum lá mun meira á og talsverðs flumbrugangs gætti í sókn- inni en vörnin var allt í lagi. Fjörugur botnslagur Leikur Vals og Skallagríms aðHlíðarenda var fjörugur og spennandi en svo fór að Valur hafði betur, 99:94. Gestirn- ir náðu undirtökun- um fljótlega í fyrsta leikhluta, á nokkurra mínútna kafla skoruðu þeir átta stig á móti engu stigi Valsmanna og fóru með þægilega forystu í annan leik- hluta. Sá skiptist sanngjarnt á milli liðanna. Fyrri fimm mínúturnar áttu Borgnesingar – spiluðu geysivel og náðu 20 stiga forystu áður en heima- menn gátu svarað. Valsmenn tóku þá leikhlé og blésu til sóknar – skoruðu 14 stig á móti tveimur hjá gestunum á seinni fimm mínútunum – og náðu forskotinu niður í átta stig fyrir leikhlé, 40:48. Á fyrstu mínútum síðari hálfleiks spiluðu Valsmenn mun betur og minnkuðu þeir muninn niður í aðeins eitt stig áður en gestirnir komust í gang á ný. JoVann Johnson tók þá til sinna ráða og um miðbik fjórðungs- ins voru Skallagrímsmenn skyndi- lega komnir tíu stigum yfir og ellefu fyrir síðasta leikhlutann. Talsverð spenna var í lokafjórð- ungnum. Valsmenn jöfnuðu leikinn, 82:82, þegar sjö mínútur voru eftir á klukkunni og jafnræði hélst með lið- unum fram á lokamínúturnar. Þá urðu Skallagrímsmenn að játa sig sigraða fyrir Jason Pryor, en hann lauk tímabilinu fyrir Val með fínni þriggja stiga körfu um leið og flautan gall og sigur heimamanna var í höfn. Magnús gerði út um vonir Snæfells KEFLVÍKINGAR virtust jafnvissir um að vinna leikinn og Snæfell- ingar um að tapa honum þegar liðin mættust í Keflavík í gærkvöldi. Heimamenn mættu mjög afslappaðir til leiks og dunduðu sér við að reyna skora glæsilega körfur svo að gestirnir voru lengi vel inni í leiknum. Það var ekki fyrr en Magnús Gunnarsson tók sig til með 20 stig næstum því í röð að leiðir skildi og Keflavík vann 108:83 og þar með urðu vonir Snæfells um sæti í úrslitum að engu. Stefán Stefánsson skrifar Skúli Unnar Sveinsson skrifar Andri Karl skrifar LIÐIN átta sem mætast í úr- slitakeppninni um Íslandsmeist- aratitilinn, eru: Grindavík – Hamar Keflavík – ÍR Haukar – Tindastóll KR – Njarðvík Úrslitakeppnin hefst á fimmtu- daginn í næstu viku með tveimur leikjum og jafnmörgum leikjum daginn eftir. Ekki var ljóst í gær- kvöldi hvaða leikir verða háður hvort kvöld en frá því verður geng- ið í dag. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í hverju einvígi kemst í undan- úrslit. Þau mætast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.