Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐFINNA T. GUÐNADÓTTIR frá Brautartungu, Lundarreykjadal, hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, verður jarðsungin frá Lundakirkju, Lundar- reykjadal, laugardaginn 8. mars kl. 14.00. Eðvarð P. Torfason, Margrét Kristjánsdóttir, Helgi Hannesson, Sveinn Gunnar Eðvarðsson, Anna Rafnsdóttir, Hildur Eðvarðsdóttir, Eiríkur Sveinsson, Guðni Eðvarðsson, Halldóra Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir okkar og amma, KRISTÍN HERMUNDSDÓTTIR frá Strönd, Vestur-Landeyjum, til heimilis í Hjaltabakka 28, Reykjavík, er lést föstudaginn 21. febrúar sl., verður jarðsungin frá Akureyjarkirkju, Vestur-Land- eyjum, á morgun, laugardaginn 8. mars, kl. 14.00. Börn og barnabörn hinnar látnu. Elskulegur sambýlismaður minn, faðir og afi, GUÐMUNDUR KRISTINSSON frá Nýhöfn, sem lést föstudaginn 28. febrúar, verður jarð- sunginn frá Snartarstaðakirkju laugardaginn 8. mars kl. 14.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Sigurbjörg Sveinsdóttir, Anna Jóna Guðmundsdóttir, Halldór Snær Kristjánsson. Okkar ástkæri, SIGURÐUR SIGGEIRSSON frá Læk, Ölfusi, lést miðvikudaginn 5. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fjóla Óskarsdóttir, Aðalheiður Ísleifsdóttir, Kári S. Kristjánsson, Sigurlaug Siggeirsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför BENEDIKTS VALDEMARSSONAR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalaheimilisins Hlíðar, Akureyri. Karl Óskar Tómasson, Valdemar Gunnarsson. ✝ Jóhanna Frið-riksdóttir fæddist á Borgum í Reyðar- firði hinn 18. mars 1921. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 1. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Lovísa Jóhannsdóttir og Friðrik Eyjólfs- son. Jóhanna átti tvo bræður, Karl Frið- riksson, f. 18. ágúst 1922, d. 14. júní 1997, og Kjartan Péturs- son, f. 1. nóvember 1930. Jóhanna giftist hinn 6. nóvem- ber 1943 Georg Helgasyni frá Eski- firði, f. 7. september, d. 14. apríl 1999. Börn þeirra eru: 1) Friðrik, kvæntur Önnu Jónsdóttur, þau eiga fjögur börn, 2) Vilborg, gift Guð- mundi Björnssyni, þau eiga tvö börn, og 3) Lovísa, gift Brynj- ari Hafdal, þau eiga tvo syni. Barnabörn- in eru ellefu. Útför Jóhönnu Friðriksdóttur fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Takk fyrir allt mamma mín. Úr hverju vildir böli bæta, brosið var sem skin af sól. Vildir hugga, verma og kæta, veita hrjáðum líkn og skjól. Göfugt allt og gott þú kenndir, góða elsku mamma mín, – bættir allt og blíðu sendir. Björtust allra er minning þín. (Þuríður Briem.) Þín dóttir Vilborg. Ég minnist móður minnar Jóhönnu Friðriksdóttur sem lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja hinn 1. mars sl. með þakklæti, ást og hlýju. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn göggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason.) Elsku mamma hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir Lovísa. Aldrei fyrir gull sá grætur, sem gefinn var ei auðurinn. En sá hefur nóg er nægja lætur – náðina þína Drottinn minn. (Herdís Andrésdóttir.) Það má segja að hún tengdamóðir mín hafi lifað eftir þessu afmælisversi sínu, sem var í afmælisdagabók er hún átti. Hún myndaði svo sannarlega sinn auð, sem mörgum reynist örðugt í dag. Hún átti nefnilega hjartagæsku, sem margir fengu að reyna, þar á meðal ég. Já, „Margs er að minnast, margt er hér að þakka“. Lífið fór ekki mjúkum höndum um þessa ljúfu konu í bernsku og furða að hún skyldi ekki verða harðneskjuleg af mótunarárun- um. Hún missti föður sinn þegar hún var á fimmta ári og móður sína er hún var fimmtán ára. Þá hafði hún hjúkr- að móður sinni sem var með útvortis berkla, þurft að fara með yngri bróð- ur sinn í fóstur, en áður var eldri bróðir hennar farinn í fóstur. Eftir móðurmissinn fór hún í vinnu- mennsku. Hún sagði mér að hún hafi alltaf verið hjá góðu fólki. Þegar þau hjón, Hanna og Georg, hófu búskap, voru þau flutt suður til Keflavíkur. Stóð þá heimili þeirra vin- um og vandamönnum að austan ætíð opið og oft var mannmargt hjá þeim. Tengdamamma var framúrskar- andi myndarleg húsmóðir, snyrti- mennskan var með eindæmum og bar heimili þeirra hjóna þess glöggt vitni. Hanna gekk til liðs við Verka- kvennafélag Suðurnesja og barðist fyrir betri kjörum með formanninum Vilborgu Auðunsdóttur, einnig starf- aði hún í Austfirðingafélaginu, en fyrsti formaður þess var Georg mað- ur hennar. Þá voru haldin spilakvöld, undirbúin þorrablót með tilheyrandi æfingum og allur matur gerður og eldaður heima. Börnin þeirra minnast þess, að þá hafi verið líflegt á heim- ilinu í undirbúningnum. Hanna starfaði jafnan utan heim- ilis. Fyrstu árin við fiskvinnslu hvers- konar, en lengst af við ræstingar hjá Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli, þar til hún lét af störfum vegna ald- urs. Það var ekki ósjaldan að hún færði „Tollurunum sínum“ rjóma- pönnukökur og nostraði við þá. Hún var boðin og búin til að rétta fram hjálparhönd ef einhver átti bágt. En fyrst og fremst var fjölskylda hennar. Hag og velferð hennar bar hún alla tíð fyrir brjósti. Hún fagnaði hverjum nýjum einstaklingi sem kom í fjölskylduna, allir voru sérstakir, all- ir voru svo góðir og hún gladdi þá alla á sinn hátt, hvenær sem færi gafst. Það var því mikið áfall þegar Hanna varð fyrir því slysi að detta í byrjun desember sl. og brotna svo illa á fæti að gera varð fótinn að staur. Hún var þó svo dugleg og staðföst á því að láta sér batna til að komast heim. Minningarnar eru margar og góðar í gegnum löng kynni okkar Hönnu Mér er sem ég heyri hana segja „Sæl gæskan“ eða „Ert þetta þú, ljósið mitt“ og þess sakna ég nú sárlega og af eigingirni, því hún kaus sér þann dauðdaga sem hún fékk að deyja í svefni. Ástkæra Hanna mín, ég þakka þér af alhug gæsku þína, mér og börn- unum mínu til handa. Ég veit að þú hefur átt góða heimkomu í Paradís. Vertu svo ætíð Guði falin. Þín Anna Jóns. „Ert þetta þú gæskurinn, sestu nú hérna og fáðu þér kaffisopa.“ Og ef það var þegið, sem erfitt var að kom- ast hjá, þá fylgdi með hlaðinn kökud- iskur. Nú mun maður ekki framar heyra álíka ávarp hennar Jóhönnu tengdamóður minnar né setjast hjá henni að kaffi- eða matarborði það hlöðnu kræsingum að ekki sá högg á vatni þótt allir stæðu á blístri. „Svona, fáið ykkur nú meira, þið snertið varla á þessu.“ Af hennar heimili fór enginn svangur, fólk átti að hafa kjöt á bein- unum, engar horgrindur takk. Fréttin um andlát Jóhönnu Frið- riksdóttur snemma að morgni laug- ardagsins 1. mars kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þrátt fyrir að heils- unni hefði hrakað nokkuð síðustu misseri og þrátt fyrir slæmt fótbrot í desember sl. og sjúkrahúslegu frá þeim tíma var ekkert sem benti til að komið væri að skilnaðarstundu. Af þessum sökum verður sorgin og sökn- uðurinn enn meiri og sárari og fjöl- skyldan stóð sem lömuð um sinn. En hennar stund hefur verið komin, eins og séra Ólafur Oddur sagði við okkur á kyrrðar- og sorgarstund við dán- arbeð hennar. Og þá fékk hún að kveðja á kyrrlátan hátt í svefni eins og hún sjálf hafði óskað sér. Yfir henni hvíldi ró og friður. Hún lifði og dó með reisn. Þessi hugsun linar sorgina og ekki síður fjöldi góðra minninga. Ég tengdist fjölskyldunni í árs- byrjun 1976 við kynni okkar Boggu og varð „lögformlegur“ tengdasonur í september sama ár. Að vísu var tengdamamma í byrjun ekki fullviss um að við Bogga værum almennilega gift eftir giftingu hjá fógeta sem henni þótti taka ótrúlega stuttan tíma. Hún lét þó sannfærast. Frá þessum 27 árum er að sjálfsögðu margs að minnast, margra góðra og skemmtilegra samverustunda en þó stendur uppúr minningin um konuna Jóhönnu Friðriksdóttur eða Hönnu eins og hún var iðulega nefnd. Hanna var vissulega skapstór kona, ákveðin og fylgin sér. Þegar hún hafði tekið ákvörðun þá varð henni ekki breytt a.m.k ekki auðveld- lega. Hún vissi hvað hún vildi. Og hlutirnir voru framkvæmdir strax, ekki á morgun eða hinn enda konan með afbrigðum dugleg og kappsöm. Hreinlæti og snyrtimennska voru henni í blóð borin. En fyrst og fremst var tengdamamma umhyggjusöm, góð og gegnheil kona. Hún var hjarta- stór og ástrík, velferð fjölskyldu og vina skipti hana öllu, sennilega meira en eigin, og hún gleymdi engum. Hún hélt vel utanum sína, allt fram á síð- ustu stund. Hún var yfirleitt glaðvær og hláturmild, það var gaman að skemmta sér og hlæja með henni. Þau voru samheldin hjón, Hanna og Georg, og heimili þeirra sérstak- lega notalegt og fallegt. Þangað var gott að koma og þar var oft gest- kvæmt. Þangað sótti fjölskyldan alla tíð og þannig fékk Hanna m.a. end- urgoldið það sem hún gaf frá sér og það var ekki lítið. Þetta kunni hún að meta og hún naut þess ekki síður að hafa nánast alla fjölskylduna búsetta í næsta nágrenni. Hún gat kvatt áhyggjulaus og ánægð vitandi að af- komendum vegnaði vel og að um- hyggja hennar og ástúð hafði borið ríkulegan ávöxt. Blessuð sé minning Jóhönnu Frið- riksdóttur. Guðmundur Björnsson. Elsku Hanna amma. Það er erfitt að setjast niður og skrifa minningar- grein um þig núna. Svona rétt eftir að ég sat hjá þér í heimsókn og spjallaði við þig hressa og káta. Sorgin er mikil og missirinn líka. Ég er yngsta barna- barnið þitt og fyrir mér varst þú full- komin amma. Auk hlýjunnar og kær- leikans sem alltaf skein frá þér var dugnaður þinn og jákvæðni mikil og góð fyrirmynd. Þær eru svo óteljandi minningarnar sem koma upp í huga minn þegar ég hugsa um þig. Allt frá ógleymanlegum ævintýrastundum á Suðurgötunni til dásamlegra stunda þegar við sátum og ræddum saman í matarboðum og heimsóknum. Ást og traust ykkar afa til hvors annars gerði ykkur tvö að enn fastari punkti í lífinu. Eilífur áhugi þinn á mér og því sem ég tók mér fyrir hendur hug- hreysti mig á erfiðum tímum og varð mér frekari hvati þegar vel gekk. Það eru forréttindi að hafa fengið að eiga þig að. Það er ómetanlegt að hafa fengið að njóta nærveru þinnar, ráða- gjafar og stuðnings í æsku. Í tíu ár varst þú eina amma mín og þeim tíma mun ég aldrei gleyma. Samræður okkar í bílnum, yfir matardiskum eða mjólkurglasi voru eins fjölbreyttar og hugsast getur. Við gátum rætt hin al- varlegustu mál og við gátum líka hlegið mikið því húmor okkar var greinilega líkur. Ég veit svo vel að þú fannst að á milli okkar var sérstakt samband og nú veistu að ég fann það líka. Síðustu stund okkar saman geymi ég fast í huga mér. Faðmlag þitt við okkar síðustu kveðjustund var sérstaklega einlægt og mikið. Kannski vissir þú eitthvað meira en ég þá, en fyrir að hafa fengið að eiga þessa stund er ég þér og Guði ætíð þakklátur. Nú hafa englar drottins tekið á móti þér og þar ert þú þeirra jafningi. Nú eru þið afi saman aftur og getið nú verið saman eins og ást ykkar, að eilífu. Þótt ég syrgi þig og gráti nú finn ég sterkt fyrir nærveru þinni. Sú nærvera og allar minning- arnar skipa nú stóran sess í lífi mínu það sem eftir er. Elsku amma mín, þakka þér fyrir allar samverustundirnar, kærleikann og stuðninginn allt mitt líf. Guð blessi þig að eilífu. Georg Brynjarsson. Jóhanna mágkona mín er látin. Hún hafði ríkulega skilað dagsverki sínu til samtíðarinnar. Andlát hennar kom ekki á óvart, en þó, því þegar við hittumst síðast í byrjun þessa árs fannst mér hún vera óvenju brött. Jóhanna var eins og ég Austfirð- ingur og þegar ég man hana fyrst ólst hún upp í Eskifjarðarseli. Hún fór eins og fleiri ekki varhluta af fátækt og erfiðleikum lífsins í æsku. Faðir Jóhönnu lést þegar hún var í frumbernsku en með dugnaði tókst móður hennar að koma börnum sínum áfram og unnust oft ánægju- legir sigrar í lífsins amstri. Ung að ár- um kynntist hún Georg bróður mín- um og reyndust þau samhent alla ævi. Georg var á þessum árum í umsvifa- miklum útgerðarrekstri og í þeirri starfsemi sem og öðru studdi Jó- hanna mann sinn í einu og öllu. Lengst af var heimili þeirra í Kefla- vík. Aðalstarfsvettvangur Jóhönnu var heimilið. Hún lagði þar ríka áherslu á uppeldi barna sinna. Bera JÓHANNA FRIÐRIKSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.