Morgunblaðið - 07.03.2003, Síða 30

Morgunblaðið - 07.03.2003, Síða 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þjóðarbókhlaða Kristveig Hall- dórsdóttir opnar sýninguna Sjón- rænn veruleiki. Á 2. hæð er mynd- verk unnið úr plöntum bananatrésins og hjá Kvenna- sögusafni á 4. hæð eru til sýnis verk sem gerð eru úr grænmeti og ávöxtum. Sýningin stendur fram í apríl. Borgarleikhúsið Síðasta sýning á leikritinu Jón og Hólmfríður kl. 20. Sara Vilbergsdóttir opnar mál- verkasýningu á Kaffi Sólon kl. 17 á vef Gallerís Landsbanka Ís- lands, lands- banki.is. Fram til 26. mars mun Sara standa fyrir uppboði á mál- verkinu Hjörð ’03 og rennur upphæðin til Sam- hjálpar. Uppboðsverk og fleiri verk eftir Söru verða til sýnis í húsa- kynnum Landsbankans á Lauga- vegi 77 á meðan uppboðið fer fram. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Verk eftir Söru Vilbergsdóttur. Opinn fundur um menningarmál MENNINGARMÁLANEFND Hornafjarðar stendur fyrir opnum fundi um menningarmál í Nýheim- um á Höfn á morgun kl. 13–16. Fjallað verður annars vegar um menningartengda ferðaþjónustu og möguleika á uppbyggingu hennar í Austur-Skaftafellssýslu og verður Þorbjörg Arnórsdóttir frummælandi um hana. Hins vegar verður rætt um félags- heimilið Sindrabæ og framtíðarhlut- verk þess í tengslum við umræðu um menningarhús og fjárveitingar menntamálaráðuneytisins til menn- ingarmiðstöðva á Austurlandi. Frummælendur eru Gísli Sverrir Árnason, Helgi Már Pálsson og Guð- laug Hestnes. Að loknum framsögu- erindum verða pallborðsumræður með þátttöku ýmissa einstaklinga sem starfa að menningar- og sveit- arstjórnarmálum á Hornafirði. Stjórnandi fundarins verður Her- mann Hansson, formaður menning- armálanefndar Hornafjarðar. DR. KIRSTEN Thisted heldur mál- stofu í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101, kl. 10–13 á morgun, laug- ardag. Málstofan kallast „Um munn- lega frásagnar- hefð á Grænlandi fyrr og síðar“. Kirsten fjallar m.a. um hvaða augum heima- menn á Græn- landi litu land- nám Íslendinga og Norðmanna en sögur þeirra voru fyrst skráðar um miðja 19. öldina. Einnig verða sýnd myndbrot úr nýrri heimildamynd um munnlega frásagnarhefð á Grænlandi. Málstof- an fer að mestu fram á dönsku. Kirsten Thisted er lektor við Stofnun norrænna fræða í Hafn- arháskóla. Málstofan er liður í fyr- irlestraröð um grænlenskt mál og menningu sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í samvinnu við Nor- ræna húsið og Vestnorræna menn- ingarsetrið stendur fyrir. Málstofa um frásagnarhefð á Grænlandi Kirsten Thisted ÞAÐ er á miðvikudögumsem skiptir um bíó-myndir í sölum Par-ísarborgar, en góð bíó- mynd hleypur ekki svo glatt frá manni hér, því oft er hún sýnd samfellt árin út og inn, eða þá að hún dúkkar upp aftur þegar minnst varir. Ein af þeim sígildu myndum sem er næstum alltaf hægt að sjá er Fórnin, eða Le Sacrifice eftir Tarkovski. Þar leikur Guðrún S. Gísladóttir eitt aðalhlutverkið og er hún því fastagestur í Pariscope, vikurit- inu yfir það sem er að gerast í borginni, og kemur út á mið- vikudögum. Alltaf gleður slík landkynning íslenskt hjarta. Í bíóvikunni sem nú fer í hönd er meðal annars haldið áfram að sýna Hitchcock-myndir í Action Écoles á 23 rue des Écoles, metróstöð Maubert-Mutualité. Myndirnar hans eru á skjánum í París meira og minna allan árs- ins hring. Það voru líka Frakkar, og þá sérstaklega Truffaut, sem fundu það út hvílíkur snillingur fer þar. Í myndum Hitchcocks, sem eiga að heita spennumyndir, og eru það reyndar líka, eru svo margar víddir og skírskotanir að það er hægt að skoða þær enda- laust. Nú er meðal annars verið að sýna þá mynd hans sem ég held einna mest upp á, Vertigo. En gætið ykkar, hún heitir á frönsku Sueurs Froids! Skiptir ekki máli, sama hvar borið er niður hjá þessum leikstjóra, allt er það áhugavert, nýtt og gam- alt, þekkt og minna þekkt. Hér er skylt að geta þess að Le Monde, besta eða næstbesta dag- blað í heimi segir að LE bíómynd vikunnar sé Djöflatangó, Satant- ango, eftir Ungverjann Béla Tarr, frá 1993. Þar eru gerð skil síðustu tímum kommúnismans í Ungverjalandi, á sjö klukkutím- um, með tveimur hléum. Hér er búið á yfirgefnu samyrkjubúi og lífið hefur hvorki gildi né til- gang. Frásögnin er leyst upp í mynd sem er sögð ljóðræn og dulúðug og eitthvað í áttina að Tarkovski. Hún er sýnd á sunnudag í Saint- André-des-Arts, rétt við St. Michel. Ég ætla að segja nánarfrá mynd sem hefurgengið þétt og lengi íParís, Ivre de femmes et de peinture, eftir kóreska leik- stjórann Im Kwon-taek, sem fékk leikstjóraverðlaunin í Can- nes í fyrra. Þetta er fyrsta kór- eska bíómyndin sem ég hef séð, þótt skömm sé frá að segja, en þessi tiltekni leikstjóri hefur gert hundrað myndir. Japanir eru mun betur þekktir al- þjóðlega fyrir sína kvikmynda- gerð. Það er athyglisvert að svo mikil fjandvinátta ríkir milli þessara nágranna að það er til- tölulega stutt síðan leyft var að sýna japanskar myndir í Kóreu. Það var þó nokkurt kúlt- úrsjokk fyrir mig að sjá myndina um málarann sem elskaði konur og vín, því mér fannst hún svo nálægt japanskri kvikmynda- gerð, sem ég þekki nokkrar glefsur úr en um leið svo ólík. Þetta er umhugsunarefnisem ég sé ekki fyrirendann á. Víst er aðmyndin um þennan til- tekna málara sem var uppi fyrir aldamótin 1900, og að einhverju leyti byggð á heimildum, er mjög vel þess virði að sjá hana. Efni myndarinnar er líf listamannins, sem hefur náðargáfu og berst gegn fjandsamlegum aðstæðum til þess að sinna listinni. Það er gaman að sjá að málið er ekki einfaldað í þessari mynd heldur flækt. Um leið og málarinn með náðargáfuna er á stöðugu varð- bergi fyrir því að staðna og lætur allar píslir yfir sig ganga frekar en það, þá gengur hann í lið með fjandsamlegum aðstæðum með því að fara illa með sig. Þegar hann gæti svo talist kominn í örugga höfn þolir hann það ekki, hvort sem það er með konu sem hann elskar eða gæti elskað, eða hjá kónginum – og brýtur sér leið í burtu. Þessari mynd lýkur svo fallega og stórkostlega að vel hefði verið þess virði að sjá hana þó ekki væri nema fyrir það. Að öðru leyti er líka yfir henni mikil fegurð og sérstök form- festa og litadýrð, en kannski út í væmni eða „kitsch“ í þeim efn- um. Það er altént gleðiefni að þessi mynd kemur fyrir augu svo margra, meðal annars vegna þess að hér er innlit inn í allt annan heim en okkar, sögu Kór- eu með meiru, en heim sem er samt svo þekkjanlegur. Efnið skilst á öllum tímum og alls stað- ar, um listamanninn sem er til á eigin forsendum og berst gegn öllum öðrum forsendum. Hér hefði legið beint við að borða á kóreska barbekjústaðn- um á Rue du Dragon, og ekki langt undan, sem ég má segja að Friðrik Þór hafi mælt snarplega með, en ekki varð nú af því. Að þessu sinni var sveltir þangað til komið var langleiðina heim í átj- ánda hverfi og ekki eitt orð í við- bót hér um ómerkileg efni eins og mat þegar listin er annars vegar! B í ó k v ö l d í P a r í s Málverkinu til dýrðar Úr kvikmyndinni Ivre de femmes et de peinture eftir kóreska leik- stjórann Im Kwon-taek. Eftir Steinunni Sigurðardóttur MYNDLISTARVOR Íslandsbanka í Vestmannaeyjum hófst með sýning- unni „170 x hringinn“ í gær og verð- ur hún opin þessa helgi og þá næstu í Vélasal Listaskóla Vestmannaeyja. Sýningar á þessu Myndlistarvori verða fjórar. Í lok mars sýnir Húbert Nói, þá tekur við Hekla Dögg og í lok maí verður sýning á verkum Errós, en sýningin kemur frá Listasafni Reykjavíkur. „170 x hringinn“ er samsýning fjögurra starfandi myndlistamanna sem allir eru búsettir í Reykjavík. Þetta eru þau Björg Örvar, Gunnar Karlsson, Jón Axel Björnsson og Valgarður Gunnarsson. Sýning þessi var fyrst sýnd í Slunkaríki og er fyrsta samsýning listamannanna. Á sýningunni eru olíumálverk í stærð- inni 170 cm x 170 cm, eitt frá hverj- um listamanni. Að auki verða á sýn- ingunni minni verk eftir listamennina. Morgunblaðið/Jón B.K. Ransu „Fallinn engill“ eftir Gunnar Karls- son og málverk án titils eftir Jón Axel Björnsson á „170 x hringinn“. Myndlistarvor í Eyjum hefst með samsýningu ♦ ♦ ♦ $% &                     '    !"# $$% "# $&   ()#  !) '$  $( )&   *  + , *#" $    -  +   ) $" . # #)/0 &),    '$    -   %  +#) - +#-$$"   !)# ## * *# ""$$*-' $"&   12)#% .  + $&   *&  $&& /               12)#% .  + $&   3   ,%.  + $&   4 ) .  + $&   5 .  + $&   / % +  6   788  $      .  + $&   . )++.$"   )# ) 01&   9      $ 2$"    # 2!! &3$ $ $                      '$    -   %  +#) - +#-$$"   !)# ## * *# ""$$*-' $"&   3  4   &  "$ $$"   # '$    -   # !#)5$ - 5$ $$" ()#    6-0" $" :    # ;7$$ 8$ $."6-9&   3  ! ! $$ )  $: 4  #% ;     ) ,               '    !"# $$% "# $&   ()#  !) '$  $( )&   *  + , *#" $  . # #)/0 &),   # # % * $ < =$  <<   # #+<   $ 0$ > $   ? $ & 6)+##  +#  2 )$-  $  6 #  , ." )      +,)   ; * $" !"#$%& '( )!"* +,)) - ".//*/// "&=@- $     )& A#" #BCCD#E 9  $  +F =@ & )&  $=@)& $  - #*&&  "GH H& "   - " &  "<"&$ G  "F& H& FH& "&&  "      0      123                   -  +   ) $"  !)#+## # & $  =     $&   >+    " @ $$" 3   ?6)@% 4   & ! $- >  6)+   ) $" A5)  * &   ) # )  " $ >  6) &)  3  3)"% " $$" >  B+ 5 6$%$$                  6  #88%9 %        6  #8%9 %    (%  C (  D ' #   6#; " #   & +     + * ) %  *$."#)& @   # E,E6-(          )& ; - & F; - & )&-  ) 3)"$ F,    )&-F-    H.& 9   *9" $F%  $ F.& 9     )& F    )& $" F& H )& $" F0 - )& $" F "" )& $" F  " )& $" F )& $" F " $  *9" $F;   F;    *9" $F.   H  *9" $F       

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.