Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 26
SUÐURNES
26 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fermingar
Laugardagur 15. mars
Blaðauki um fermingar fylgir
Morgunblaðinu laugardaginn 15. mars.
Auglýsendur pantið fyrir kl. 16
þriðjudaginn 11. mars!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 569 1111
eða augl@mbl.is
gjafir - skreytingar - veislan föt - hár - förðun
ALLAR lóðirnar sem auglýstar
voru í nýju Lautarhverfi í Grinda-
vík á dögunum gengu út utan ein
einbýlishúsalóð. Frá því á árinu
2000 hefur verið úthlutað lóðum
undir 137 íbúðir í Grindavík.
Hið nýja Lautarhverfi er á
svæði sem að mestu er óbyggt inni
í gamla bænum í Grindavík. Þar er
þó leikskólinn við Dalbraut. Hann
er orðinn gamall og lúinn og mun
víkja en áform eru uppi um að
byggja nýjan leikskóla á öðrum
stað í Lautarhverfi.
Á þessu svæði verða byggð ein-
býlishús og raðhús, fyrir alls 38
íbúðir. Húsin verða á tveimur
hæðum.
Í vetur hefur verktaki unnið að
gatnagerð, lögnum og öðrum und-
irbúningi fyrir uppbyggingu hverf-
isins. Verkinu á að vera að fullu
lokið í júní og þá eiga húsbyggj-
endur að geta hafist handa.
Á dögunum voru auglýstar 11
lóðir fyrir einbýlishús og tvö fimm
íbúða raðhús. Gengu allar lóðirnar
út, utan ein einbýlishúsalóðin, að
sögn Ólafs Arnar Ólafssonar bæj-
arstjóra. Á þessum lóðum verða
byggðar 20 íbúðir. Lóðarhafar eru
flestir byggingaverktakar en þó
gengu nokkrar einbýlishúsalóð-
anna til einstaklinga. Búast má við
að þarna verði mikið framkvæmt í
sumar en Ólafur segir að það fari
þó að einhverju leyti eftir því
hvernig verktökunum gengur að
selja húsin.
Þeim lóðum sem eftir eru í
hverfinu verður ekki hægt að út-
hluta fyrr en hús núverandi leik-
skóla verður rifið, eftir að nýr hef-
ur verið byggður.
Búið er að úthluta flestum laus-
um lóðum í Grindavík, að sögn
Ólafs, meðal annars er nýjasta
hverfið, svokallað Vallahverfi, að
verða fullbyggt. Ólafur segir að
frá árinu 2000 hafi verið úthlutað
137 lóðum. Er þá átt við úthlutanir
sem leitt hafa til byggingafram-
kvæmda og hver lóð aðeins talin
einu sinni. Flestar eru lóðirnar í
Vallahverfi og nú Lautarhverfi.
Unnið að deiliskipulagi
tveggja nýrra byggingasvæða
Ólafur Örn segir að nú sé unnið
að deiliskipulagi tveggja nýrra
íbúðarhverfa. Bæði eru á svoköll-
uðu norðursvæði, annars vegar
hverfi með einbýlishúsum og rað-
húsum norðan íþróttasvæðis og
hins vegar raðhús- eða parhús
með íbúðum fyrir aldraða í ná-
grenni hjúkrunarheimilisins Víði-
hlíðar.
Ólafur segir að nýja bygginga-
svæðið norðan íþróttasvæðis sé
enn í mótun en unnið sé að deili-
skipulagi þess með það fyrir aug-
um að hægt verði að auglýsa þar
lóðir næsta vetur, ef menn telji að
eftirspurn verði þá eftir lóðum í
bæjarfélaginu.
Segir bæjarstjórinn að jafn-
framt sé unnið að skipulagi hverf-
isins við Víðihlíð og býst við að það
verði á undan enda hafi bæjar-
stjórn ákveðið að byggja þar íbúð-
ir. Það mál er komin í þann farveg
að viðræður eru hafnar við hús-
næðissamvinnufélagið Búmenn um
að taka að sér uppbyggingu þjón-
ustuíbúða fyrir aldraða á þessu
svæði. Yrðu það bæði íbúðir í hefð-
bundu úthlutunarkerfi Búmanna
og íbúðir sem Grindavíkurbær
gæti ráðstafað. Eins kæmi til
greina að úthluta lóðum til ein-
staklinga á þessu svæði.
Hafa úthlutað lóðum undir 137 íbúðir á rúmum þremur árum
Lóðir í nýju Laut-
arhverfi runnu út
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Verktaki vinnur að lagningu gatna og holræsa í Lautarhverfi. Leikskólinn
við Dalbraut er í baksýn. Hann mun þurfa að víkja fyrir íbúðarhúsum.
Búið er að úthluta einbýlishúsunum sem sýnd eru á grænu lóðunum vinstra
megin á myndinni og tveimur raðhúsum þar fyrir ofan. Þeim þremur rað-
húsalóðum sem eftir eru verður úthlutað þegar leikskólinn sem þar stendur
nú verður rifinn en nýr byggður inni í miðju hverfinu eins og sýnt er á teikn-
ingunni. Í framhaldi af leikskólalóðinni er gert ráð fyrir skólagörðum.
Grindavík
SÉRFRAMBOÐ Kristjáns Pálsson-
ar alþingismanns hefur fengið nafnið
Listi óháðra í Suðurkjördæmi. Jón
Einarsson, sem var kosningastjóri
D-listans í Reykjanesbæ fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar á síðasta
ári, er kosningastjóri listans.
Framboðið boðar til rabbfundar í
Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík í kvöld,
föstudag, klukkan 20. Stuðnings-
menn framboðsins hittast og fara
m.a. yfir stefnuskrá framboðsins og
starfið í komandi kosningum, að því
er segir í fréttatilkynningu. Allir eru
velkomnir.
Rabbfundur
óháðra
Njarðvík
ÞRJÁTÍU og eitt barn er á biðlista
eftir leikskólaplássi á Gefnarborg í
Garði. Verið er að kanna möguleika á
stækkun leikskólans.
Í hópi þeirra liðlega 30 barna sem
eru á biðlista er óskað eftir heils-
dagsplássi fyrir 24.
Hreppsnefnd Gerðahrepps tók
málið fyrir á síðasta fundi sínum.
Samþykkt var samhljóða tillaga F-
listans um að láta skoða möguleika á
stækkun leikskólans og hvað það
kostaði.
31 barn
á biðlista
Garður
NÍNA Ósk Kristinsdóttir knatt-
spyrnukona hefur verið útnefnd
Íþróttamaður Sandgerðis 2002. Út-
nefningin var kynnt á hátíðarsam-
komu sem fram fór í golfskála Golf-
klúbbs Sandgerðis 5. mars, en þá
voru liðin 100 ár frá fæðingu Magn-
úsar Þórðarsonar stofnanda íþrótta-
félagsins Reynis.
Nína Ósk stundar íþrótt sína með
RKV, sem er sameiginlegt lið Reyn-
is, Keflavíkur og Víðis í Garði í
kvennaknattspyrnu. Hún skoraði 18
mörk í 13 leikjum síðasta sumar og
var markahæsti leikmaður liðsins.
Nína var valin í 17 ára landslið Ís-
lands sem tók þátt í Norðurlanda-
mótinu sem var haldið hér á landi
síðasta sumar. Fram kom þegar út-
nefningin var kynnt að Nína er
metnaðarfull og tilbúin til að leggja
það á sig sem þarf til að ná árangri.
Hún er einnig góður félagi sem hefur
jákvæð áhrif á félaga sína í liðinu.
Einnig var Sigurður Jónsson í
Golfklúbbi Sandgerðis heiðraður af
Sandgerðisbæ fyrir góðan árangur á
árinu 2002 en hann er talinn einn
efnilegasti kylfingur landsins.
Aldarminning Magnúsar
Þórðarsonar
Það er hefð fyrir því í Sandgerði
að útnefna íþróttamann ársins 5.
mars sem er fæðingardagur Magn-
úsar Þórðarsonar. Hann var einn
stofnenda Knattspyrnufélagsins
Reynis og má segja að hann hafi ver-
ið hjarta og sál íþróttalífs í Sand-
gerði allt sitt líf. Í ár er haldið upp á
aldarminningu Magnúsar, en hann
fæddist 5. mars 1903. Af því tilefni
hefur bæjarstjórn Sandgerðis
ákveðið að veita 300.000 krónur til að
heiðra minningu hans. Féð verður
m.a. nýtt til að stofna minningarsjóð
um Magnús.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Efnilegir íþróttamenn, Nína Ósk Kristinsdóttir og Sigurður Jónsson.
Ung knattspyrnukona
íþróttamaður ársins
Sandgerði
SIGURÐUR Jónsson, sveitarstjóri í
Garði, var kosinn formaður fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Gull-
bringusýslu á nýlegum aðalfundi.
Sjálfstæðisfélögin í Garði og
Sandgerði mynda fulltrúaráðið. Með
Sigurði í stjórn eru Hólmfríður
Skarphéðinsdóttir, Ingimundur Þ.
Guðnason, Gunnar H. Häsler og
Finnbogi Björnsson.
Sigurður kjörinn
formaður
Gullbringusýsla