Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 48
DAGBÓK 48 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Olympic Prawn, Ás- björn og Haukur koma í dag. Mánafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Green Fake kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Bingó í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 13– 16.30 opin smíða- og handavinnustofan. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 16 hárgreiðsla, kl. 8.30– 12.30 bað, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 spilað í sal. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað, og opin handa- vinnustofa. Félagsstarfið, Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 applikering, kl. 10–13 opin verslunin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, myndlist, gifs o.fl., kl. 9.30 göngu- hópurinn Gönuhlaup leggur af stað, kaffi á eftir göngunni, kl. 14 brids og almenn spila- mennska. Korpúlfar, Grafarvogi, samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Graf- arvogslaug á föstudög- um kl. 14. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl. 13, brids kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan lokuð. Föstudagur: Forsetinn kemur í heimsókn kl. 14. Hóp- ferð á vegum Úrvals- Útsýnar til Krítar 26. apríl í 23 daga. Nokkur sæti laus, skráning á skrifstofu FEB. S. 588 2111. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. bókband, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14 kóræfing, kl. 20 dansleikur, hljómsveit Hjördísar Geirs. skemmtir, húsið opnað kl. 19.30. Allir velkomnir. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 9.15 vefn- aður, kl. 13 bókband. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 glerlistahópur, kl. 10 ganga. Kl. 14–15 söngur. Hraunbær 105. Kl. 9 bað, handavinna, út- skurður, fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjallað, kl. 14 Bingó. Veislukaffi. Allir velkomnir. Framtals- aðstoð verður veitt 17. mars í Hraunbæ 105. Panta þarf tíma á staðnum. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 og kl. 12.30 postulín. Fótaaðgerð, hár- greiðsla. Allir velkomn- ir. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17, hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrýdans, kl. 11–12 stepp, kl. 13.30–14.30 Sungið við flygilinn við undirleik Sigurbjargar, kl. 14.30–16 dansað í að- alsal, við lagaval Hall- dóru, kaffiveitingar, all- ir velkomnir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bók- band og morgunstund, kl. leikfimi og 10 fót- aðgerð, kl. 12.30 leir- mótun, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laug- ardögum. Félag einhleypra. Fundur á morgun kl. 21 í Konnakoti, Hverf- isgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum með börnin sín á fimmtud. kl. 13–15 á Loftið í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Kvenfélag Grens- ássóknar heldur fund í safnaðarheimilinu mánudaginn 10. mars kl. 20. Upplestur, veit- ingar og fleira, allar konur velkomnar. Borgfirðingafélagið í Reykjavík. Spiluð fé- lagsvist á morgun, laugardag, kl. 14 að Suðurlandsbraut 30. Í dag er föstudagur 7. mars, 66. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Trúin á nafn Jesú gjörði þennan mann, sem þér sjáið og þekkið styrkan. Nafnið hans og trúin, sem hann gefur, veitti honum þennan albata fyrir augum allra. (Post. 3, 16.)     Þjóðin er ekki á einumáli um hvort pólitík- in sé að troða sér inn í við- skiptin eða viðskiptin inn í pólitíkina. Flestir hljóta þó að taka undir að mán- uðina fyrir kosningar treður pólitíkin sér inn í mannlífið og mannlífið sökkvir sér ofan í pólitík- ina.     Dæmi um hvort tveggjamá finna í íslenskum netmiðlum. Í sumum af- kimum Netsins má finna einlæga áhugamenn um pólitík, sem ekki hnýta skóþveng sinn saman við flokkslínuna. Í öðrum skúmaskotum er vafinn bindishnútur á flokkslín- una og þess gætt að hún passi alltaf við skyrtuna og innrætið.     Sumir vefmiðlar gangaóbundnir til leiks, en afstaða annarra er nokk- uð fyrirsjáanleg. Þannig þarf ekki að koma á óvart að í netkönnun á miðlinum Frelsi.is, sem rekinn er af Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, þyki rúmlega helmingi tillaga fram- sóknarmanna um að fella niður virðisaukaskatt af barnafötum vera „algjör popúlismi“.     Frásögn Huldu Þór-isdóttur stingur í stúf á öðrum hægri miðli, Tík- in.is, en hún segir frá því að í febrúar hafi hún tekið þátt í mótmælum hundr- aða þúsunda í New York 18. febrúar sl. gegn stríði í Írak. „Það er vitaskuld ólíklegt að mótmæli á borð við þessi hafi einhver áhrif á gjörðir stjórn- valda. Ég vil þó trúa því að mótmæli af þessari stærð- argráðu beri mannkyninu gott vitni og séu dropinn sem holar steininn. Um allan heim er fólk sem trú- ir að stríð sé ekki lausn á deilum. Þetta fólk tók sig saman um helgina til að sýna andúð sína í verki. Þó að forvitni hafi rekið mig af stað til mótmæla á laug- ardaginn gleðst ég í dag yfir að tilheyra þessum hluta mannkyns.“     Lýðræðið er undir þvíkomið að fólki standi ekki á sama; súrefni lýð- ræðisins er tjáning- arfrelsið og lifandi orð- ræða. Vert er að hafa það í huga þegar Múrinn.is minnist Frjálslynda flokksins frá New York, en baráttumálin ein- kenndust af umhyggju fyrir „velferð litla manns- ins“. „58 ára sögu hans er lokið og hér eftir verður hann varla nema for- vitnileg neðanmálsgrein í ritum sagnfræðinga og stöku vel upplýsts stjórn- málafræðings.“     Sumt dafnar en öðruhnignar. Í þeirri hringrás hefur ungt fólk aldrei átt greiðari aðgang að þjóðfélagsumræðunni. Það sést á Netinu og kannski er það þar sem jarðvegurinn fyrir hug- sjónirnar er frjóastur. STAKSTEINAR Þar sem jarðvegur fyrir hugsjónir er frjóastur Víkverji skrifar... MIKIÐ er Víkverji sammála Sam-tökum verzlunar og þjónustu, sem vilja láta taka krónupeningana úr umferð og létta þær myntir, sem eftir verða. Nema hvað auðvitað er fráleitt að láta þar við sitja; það þarf að losa okkur sem fyrst við þessa fyrirferðarmiklu og subbulegu málm- og pappírspeninga. SVÞ segja litla eftirsjá í krónupen- ingnum, en Víkverja finnst lítil eft- irsjá í hefðbundnum peningum yf- irleitt. Í frétt Morgunblaðsins á miðviku- daginn kemur fram að verðmæti þeirra seðla og myntar, sem er í um- ferð í hagkerfinu, er aðeins 1% af landsframleiðslu og hefur hlutfallið farið minnkandi vegna notkunar greiðslukorta, netbanka, sjálfvirkra millifærslna og annarra rafrænna greiðslna. x x x EITT prósent! Við erum svo ná-lægt því takmarki að verða fyrsta þjóðfélagið til að nota ein- göngu rafræna peninga að það er fráleitt að nota ekki tækifærið og losa okkur við þetta gamla drasl sem þvælist nú aðallega fyrir okkur í daglegum viðskiptum. x x x EÐA hver kannast ekki við vand-ræðin, sem fylgja því að þurfa að borga í stöðumæli eða sjálfsala, eiga ekkert klink, þurfa að fara með nú- tímalega, rafræna peninga (greiðslu- kort) í næsta hraðbanka og fá pen- ingaseðla (sem eru aldagömul, krumpuð uppfinning) og fara svo með seðlana í búð og fá þeim skipt í elztu uppfinninguna af þessum þremur, fyrirferðarmikla og þunga mynt, sem var fundin upp fyrir 2.700 árum! x x x KANNSKI væri þó ástæða til aðhalda áfram að gefa út seðla og mynt í mjög litlu upplagi, en þá að- eins í einum tilgangi; að viðhalda göfugum félagsskap á borð við Myntsafnarafélagið. Greiðslukortin eru þeirrar ónáttúru að þau eru bundin við einstaklinga og það þarf að skila gamla kortinu þegar maður fær nýtt. Þeir, sem safna greiðslu- kortum, komast því ósjaldan í kast við lögregluna, sem hefur sitthvað út á söfnunaráráttu þeirra að setja. Ef þessi hugmynd er ekki framkvæm- anleg verða myntsafnarar hins vegar bara að snúa sér að gostöppum eða derhúfum, því að framþróunin verð- ur ekki stöðvuð, að mati Víkverja. Morgunblaðið/Arnaldur Seðlar og mynt eru úrelt þing. LÁRÉTT 1 nánasarlegt, 8 spjarar, 9 tilfæra, 10 elska, 11 meðvitundin, 13 skynfær- ið, 15 hæðir, 18 meiða, 21 bókstafur, 22 aflagi, 23 skyldmennið, 24 far- angur. LÓÐRÉTT 2 yfirhöfnin, 3 sleifin, 4 ljúka, 5 tigin, 6 í fjósi, 7 vegg, 12 keyra, 14 reyfi, 15 sorg, 16 dána, 17 illu, 18 slappt, 19 karlfugls- ins, 20 kvenmannsnafn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 lasta, 4 hregg, 7 neyða, 8 ósinn, 9 ref, 11 alin, 13 Esja, 14 illri, 15 fant, 17 rjól, 20 ara, 22 liðug, 23 notar, 24 nárar, 25 aurar. Lóðrétt: 1 linka, 2 seyði, 3 apar, 4 hróf, 5 efins, 6 gunga, 10 eflir, 12 nit, 13 eir, 15 fýlan, 16 níðir, 18 játar, 19 lúrir, 20 agar, 21 ansa. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Halaleikhópurinn frum- sýndi leikritið Á fjölum hjá félaginu hinn 8. febr- úar sl. og sýnir það nú á sunnudögum í húsnæði Halans í Hátúni 12. Þetta leikrit er eftir Unni Maríu Sólmundar- dóttur og leikstjórnin er í höndum Eddu V. Guð- mundsdóttur. Það er óhætt að mæla með því við fólk að sækja þessa bráðskemmtilegu sýningu. Efnistök höfund- ar eru hin ágætustu, söngtextar afar liprir og falla vel að ljúfum lögum og myndin sem þarna er brugðið upp af áhugaleik- félagi og starfinu þar afar heildræn og vel samsett, fyndin og raunsæ í senn. Leikstjóranum tekst einkar vel upp, jafnvel svo að ekki er fjarri að þetta sé besta sýning Halans og hafa þó margar verið góð- ar, valinn maður í hverju rúmi og öll tilþrif, bæði í leik og söng einkar góð og reynir þó verulega á í langri og fjölbreyttri sýn- ingu. Tónlistin skipar veg- legan sess og hljómsveitin Sjer á báti á mikið lof skilið ekki síður en leik- endurnir allir með tölu, enda flutningur laganna til fyrirmyndar hjá hljóm- sveit sem söngvurum. Hlýjar þakkir fyrir frá- bæra skemmtan, en við ykkur sem lesið segi ég aðeins, góða skemmtun, sjón er sögu ríkari. Helgi Seljan. Rosalind Franklin og DNA UM þetta leyti eru 50 ár liðin síðan James Watson og Francis Crick settu fram lausn sína á efna- fræðilegri byggingu DNA, sem þeir fengu Nóbelsverðlaunin fyrir árið 1962 ásamt Maurice Wilkins, John Kendrew og Max Perutz. Framlag Rosalind Franklin varð- andi þessa miklu uppgötv- un erfðavísindanna hefur hins vegar legið alltof mikið í láginni, en hún fékkst við röntgengrein- ingu á krystallaðri DNA- aðferð sem má segja að gefi nokkurs konar ljós- mynd af DNA-sameind- inni. Watson og Crick tókst að komast yfir rönt- genmyndir Rosalind af DNA án hennar vitundar með aðstoð Maurice Wilk- ins, sem var yfirmaður hennar í King’s College í London. Watson var líf- fræðingur en Crick eðlis- fræðingur og þekking þeirra í efnafræði var því takmörkuð. Þeirra aðferð byggðist á sameindalíkön- um (molecular models) og þó uppgötvunin á bygg- ingu DNA verði að teljast glæsileg er ólíklegt að þeir hefðu árætt að birta kenningu sína án röntgen- myndar Rosalind. En Rosalind, sem var strang- vísindaleg baráttukona í karlaveldi síns tíma, fékk aldrei nein Nóbelsverð- laun. Hún lézt úr krabba- meini árið 1957 aðeins 36 ára að aldri. Reynir Eyjólfsson, Eyrarholti 6, Hf. Barnabæturnar ÉG er svo hjartanlega sammála einstæðu móður- inni sem skrifaði í Velvak- anda 3. mars sl. Þegar börnin eru orðin 16 ára þurfa þau meiri peninga heldur en yngri börnin. Sjálfræðisaldurinn er 18 ára, því ekki að borga með börnunum til þess aldurs? Barnabæturnar ættu að fylgja sjálfræðis- aldrinum. Nú nálgast óð- fluga kosningar og ættu flokkarnir að taka þetta til athugunar. Laufey E. Sólveigardóttir. Dýrahald Fress vantar heimili GRÁBRÖNDÓTTUR 10 vikna fress fæst gefins á gott heimili. Hann er kassavanur. Upplýsingar gefur Helga í síma 899 5301. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Halaleikhóp- urinn enn að Morgunblaðið/Sverrir Börn á Barónsborg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.