Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 45
Hallgrímskirkja. Eldri borgarastarf í dag
kl. 13. Leikfimi, æfingar við allra hæfi,
undir stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi
og spjall. Allir velkomnir.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu í
anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10.
Kaffispjall fyrir mæður. Góð upplifun fyrir
börn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Breiðholtskirkja. Mömmumorgnar kl. 10–
12.
Digraneskirkja. Laugardagur: Stefnumót-
un kirkjunnar. Sóknarbörn Digraneskirkju
geta tekið þátt í stefnumótun þjóðkirkj-
unnar með þátttöku sinni. Unnið er í hóp-
um og allir geta lagt sitt lóð á vogarskál-
arnar. Stefnumótavinnan fer fram kl.
10–16. (Sjá nánar www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10 ára
drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir
11–12 ára drengi á laugardögum kl.
12.30.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15. LLL –
KFUM&K í safnaðarheimilinu.
Keflavíkurkirkja. Alþjóðlegur bænadagur
kvenna. Samkirkjuleg bænastund í Kefla-
víkurkirkju kl. 20.
Þema: Frá sólarupprás á eyjunum í Kyrra-
hafi þar til dagurinn sem Guð gaf okkur er
að kvöldi kominn á ísiþöktum ströndum
Alaska. Sr. Jóna Þorvarðardóttir talar. All-
ar konur velkomnar
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 13
Litlir lærisveinar, æfing hjá eldri hóp.
Kirkjudagur kvenna kl. 18. Bænaganga
hefst við Ráðhúsið í umsjón
Aglow-kvenna. Hún endar með helgistund
í Landakirkju kl. 20. Föstudag 7. mars til
sunnudags 9. mars er heimsókn Æsku-
lýðsfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Æskulýðsstarf 16–20 ára unglinga. Leið-
togar og unglingar úr æskulýðsstarfi
Landakirkju munu eiga kvöldvöku með
hópnum.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Létt hressing eftir samkom-
una. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla
virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5.
Akureyrarkirkja. Alþjóðlegur bænadagur
kvenna. Kl. 20.30 sameinast konur úr öll-
um kristnum söfnuðum á Akureyri um að
halda daginn hátíðlegan. Allir velkomnir.
Léttar veitingar í safnaðarheimili að lok-
inni helgistund.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamarkað-
ur kl. 10–18 í dag. Alþjóðlegur bænadagur
kvenna kl. 20.30. Allar konur velkomnar.
Hvítasunnukirkjan, Akureyri. kl. 21 ung-
lingasamkoma.
Hveragerðiskirkja. Kl. 20 bænastund í
Hveragerðiskirkju á alþjóðlegum bæna-
degi kvenna. Konur í þorpinu taka virkan
þátt í stundinni.
Fríkirkjan Kefas. Kl. 19.30 er 11–13 ára
starf. Allir 11–13 ára velkomnir.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi.
Samkomur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Einar
Valgeir Arason.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Biblíu-
rannsókn og bænastund á fimmtud. kl.
20.
Safnaðarheimili Aðventista, Blikabraut
2, Keflavík. Biblíufræðsla kl. 10.15.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Gavin
Anthony.
Biblíurannsókn og bænastund á föstud.
kl. 20.
Safnaðarheimili Aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10, guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður: Sigríður
Kristjánsdóttir. Biblíurannsókn og bæna-
stund að Breiðabólstað í Ölfusi á miðvi-
kud. kl. 20.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla/guðsþjón-
usta kl. 10.30.
ALÞJÓÐLEGUR bænadagur
kvenna er haldinn hátíðlegur
föstudaginn 7. mars nk. um all-
an heim. Hann var fyrst hald-
inn árið 1887.
Árið 1936 tóku konur í 50
löndum þátt í bænadeginum en
árið 1972 voru þátttökulöndin
orðin 150 talsins.
Á Akureyri standa að bæna-
deginum konur úr Aðventkirkj-
unni, Akureyrarkirkju, Gler-
árkirkju, Hjálpræðishernum,
Hvítasunnukirkjunni, Kaþólska
söfnuðinum, KFUK og Kristni-
boðsfélagi kvenna. Alþjóðlegi
bænadagurinn er að þessu
sinni haldinn hátíðlegur í Ak-
ureyrarkirkju og hefst kl.
20.30. Áherslan er á bæn og
lofgjörðarsöng. Léttar veit-
ingar verða í boði í Safn-
aðarheimili að helgistundinni
lokinni.
Alþjóðlegur
bænadagur
kvenna
Safnaðarstarf
Alþjóðlegur baráttudagur
kvenna. Á alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna fyrir friði og jafn-
rétti verður opinn fundur á morg-
un, laugardaginn 8. mars, kl.14 í sal
Miðbæjarskólans, Fríkirkjuvegi 1,
Reykjavík.
Erindi halda: Jóhanna K. Eyjólfs-
dóttir, mannfræðingur og fram-
kvæmdastjóri Íslandsdeildar Am-
nesty International, og Kristín
Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og
framkvæmdastjóri Mannréttinda-
skrifstofu Íslands. Bryndís Halla
Gylfadóttir leikur á selló og Ingi-
björg Haraldsdóttir les úr verkum
sínum. Fundarstjóri er Elna Katrín
Jónsdóttir.
Bríet á baráttudegi. Í tilefni af al-
þjóðlegum baráttudegi kvenna á
morgun, laugardaginn 8. mars,
mun ungfeministafélagið Bríet
standa fyrir skemmtun á veit-
ingastaðnum 22, kl. 20–24. Þemað
verður „Vantar fleiri konur á þing
eða fleiri feminista?“ Erindi halda:
Herdís Þorgeirsdóttir þjóðrétt-
arfræðingur og Svanfríður Jón-
asdóttir alþingiskona og Hugrún
Hjaltadóttir flytur erindi fyrir
hönd Bríetar. Rokkslæðan tekur
nokkur lög og plötusnældan (plötu-
snúðurinn) Kvennarokk sér um
tónlistina. Aðgangur er ókeypis.
Formlegur stofnfundur Lögréttu,
félags laganema við Háskólann í
Reykjavík verður haldinn á morg-
un, laugardaginn 8. mars, kl. 13.30 í
Háskóla Reykjavíkur. Erindi
halda: Sólveig Pétursdóttir, dóms-
og kirkjumálaráðherra, Guðfinna S.
Bjarnadóttir rektor, Þórður S.
Gunnarsson, forseti lagadeildar, og
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, for-
maður Lögréttu.
Islam og Íslendingar; samskipti
– skilningur er yfirskrift opins
málþings sem AFS á Íslandi heldur
laugardaginn 8. mars kl. 14.30–17, í
Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18,
Reykjavík. Lára V. Júlíusdóttir,
formaður AFS á Íslandi, setur
þingið. Frummælendur eru Þór-
hallur Heimisson, Irid Agoes frá
ÁFS í Indónesíu og Salmann Ta-
mimi, formaður félags múslima á
Íslandi. Elín Eiríksdóttir stýrir
pallborðsumræðum. Fundarstjóri
er Petrína Ásgeirsdóttir. Að mál-
þingi loknu verða veitingar í boði
að arabískum hætti. Arabískir dag-
ar verða haldnir í Alþjóðahúsinu
7.–9. mars þar sem arabískur mat-
ur og menning verða kynnt.
Ferðaklúbburinn 4x4 stendur fyr-
ir uppákomu sem kallast 1.000 bíla
ferð. Tilefnið er 20 ára afmæli
klúbbsins og ætlað til að minna á
félagið og starfsemi þess. 15 mis-
munandi ferðir eru í boði frá ýms-
um stöðum í höfuðborginni, þar á
meðal Heklu, B & L, Bílabúð
Benna, Ingvari Helgasyni og
Kringlunni. Allar nánari upplýs-
ingar eru í Setrinu, félagsriti
klúbbsins, sem hægt er að nálgast
á næstu Shell stöð á höfuðborg-
arsvæðinu.
Rósasýning í Garðheimum laug-
ardaginn 8. og sunnudaginn 9.
mars. Rósaræktendur munu sýna
úrval af framleiðslu sinni. Þá verða
einnig sýnd ný rósaafbrigði sem
verða á markaðnum á næsta ári og
fólki gefinn kostur á að velja þau
afbrigði sem þykja fallegust.
Lomberdagur verður á Skriðu-
klaustri á morgun, laugardaginn 8.
mars, og hefst kl. 14. Byrjendur
jafnt sem þrautreyndir spilamenn
eru boðnir velkomnir. Þátttöku-
gjald er kr. 3.300 en innifalið í því
eru kaffiveitingar og kvöldverður.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Gunnarsstofnunar,
www.skriduklaustur.is.
Mótmælastaða við bandaríska
sendiráðið verður á morgun, laug-
ardaginn 8. mars, kl. 14. Frið-
arsinnar munu safnast saman til að
minna á andstöðu sína á yfirvofandi
stríðsrekstri Bandaríkjamanna og
Breta í Írak. Flutt verður stutt
ávarp, Birgitta Jónsdóttir skáld
mun lesa ljóð og trumbuslag-
arasveitin „Ekkert blóð fyrir olíu“
leikur. Kaffi og kakó verður á boð-
stólum.
Íslandsmót barnaskóla í skák Ís-
landsmót barnaskóla hefst á morg-
un, laugardaginn 8. mars, kl. 13, í
skákmiðstöðinni, Faxafeni 12.
Mótinu lýkur sunnudaginn 9. mars
og hefst taflið þá einnig klukkan 13.
Mótið er sveitakeppni og er teflt á
fjórum borðum. Hver skóli skip-
aður nemendum 1.–7. bekkjar á
rétt á að senda eina eða fleiri sveit-
ir til leiks. Sigursveitin hlýtur rétt
til þátttöku á Norðurlandamóti
barnaskóla sem fram fer í sept-
ember nk. Einnig eru veitt verð-
laun fyrir þrjú efstu sætin auk
bókaverðlauna. Þátttöku er hægt
að tilkynna í netfangið siks-
@simnet.is eða á skákstað frá kl.
12.30 á laugardaginn.
Á MORGUN
Aðstandendur sósíalíska frétta-
blaðsins Militant halda málfund í
dag, föstudaginn 7. mars, kl. 17.30 í
Pathfinder-bóksölunni, Skólavörðu-
stíg 6b. Efni fundarins er Rétt-
indabarátta kvenna í dag.
Í DAG
Kvennakaffi Samfylkingarinnar
Samfylkingin í Suðvesturkjördæmi
boðar til kvennafundar í Garðabæ í
tilefni af alþjóðlegum baráttudegi
kvenna laugardaginn 8. mars kl. 14–
16, í Stjörnuheimilinu við Ásgarð.
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöf-
undur flytur hugleiðingu um stöðu
kvenna, Kvennakór Garðabæjar
syngur nokkur lög. Rannveig Guð-
mundsdóttir, Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir og Katrín Júlíusdóttir taka
á móti gestum. Kaffi og meðlæti á
boðstólum.
STJÓRNMÁL
FRUMSÝND verður 7. kynslóðin af
Honda Accord hjá Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24–26 í Reykjavík,
helgina 8.–9. mars. Á morgun, laug-
ardag, er opið kl. 10–16 en sunnu-
daginn 9. mars kl. 12–16.
Accord er endurhannaður frá
grunni. Áhersla er lögð á öryggis-
mál og er Accord meðal annars
með 6 loftpúða sem staðalbúnað.
„Vélarnar eru kraftmiklar en samt
mjög sparneytnar og uppfylla alla
mengunarstaðla Evrópusambands-
ins 2005. Í boði eru tvær vél-
arstærðir, 2.0i VTEC 155 hestöfl og
2.4i VTEC 190 hestöfl. Verð Honda
Accord er frá kr. 2.140.000,“ segir
m.a. í fréttatilkynningu.
Nýr Honda Accord
sýndur um helgina
Sýningarskrá er til
Í myndlistargagnrýni um sýn-
inguna Handritin í Þjóðmenningar-
húsinu er ranglega sagt að engin
sýningarskrá fylgi sýningunni. Fyrir
mistök var gagnrýnanda ekki greint
frá veglegri 200 blaðsíðna litprent-
aðri skrá sem gefin var út í tengslum
við handritasýninguna og seld er í
anddyri Þjóðmenningarhúss. Leið-
réttist þetta hér með um leið og beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
Rangt nafn
Í Velvakanda 6. mars birtist pistill
um systurnar í Klaustrinu og var
rangt nafn undir pistlinum. Höfund-
ur pistilsins er Hafliði Helgason og
er beðist velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT