Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Það kemur sér að eiga Hróa hött að þegar frumskógarlögmálið tekur yfir á fjármálamarkaðinum.
Málþing um Ísland og islam
Þarf að auka
skilninginn
AFS á Íslandi stend-ur fyrir opnu mál-þingi í Alþjóðahús-
inu á morgun,
laugardaginn 8. mars.
Málþingið ber yfirskriftina
Islam og Íslendingar, sam-
skipti og skilningur og
stendur milli klukkan
14.30 og 17. Halldóra Guð-
mundsdóttir sem setið hef-
ur í stjórn AFS síðan 1998
er í forsvari fyrir málþing-
ið og svaraði hún nokkrum
spurningum Morgunblaðs-
ins.
– Segðu okkur fyrst
hvað yfirskrift þessa mál-
þings felur í sér …
„Yfirskrift málþingsins
er Islam og Íslendingar,
samskipti og skilningur.
Við ætlum að ræða um
hvernig samskiptin eru á milli
okkar, þ.e. Íslendinga og múslima
og hvort skilningur sé þar á milli
auk þess sem fjallað verður um
það hvernig hægt er að auka
þennan skilning.“
– Hverjir munu tala á mál-
þinginu og hver verða umræðu-
efni þeirra og áherslur?
„Lára V. Júlíusdóttir, formaður
AFS á Íslandi, mun setja málþing-
ið en fyrsti fyrirlesari er séra Þór-
hallur Heimisson með erindi sem
ber yfirskriftina „Islam í sögu og
samtíð“, þar sem hann rekur sögu
Islams. Því næst kemur dr. Irid
Agoes alla leið frá Indónesíu, en
hún er múslimi sem ætlar að tala
um múslimatrú og hvernig skilja
má islamska menningu. Við mun-
um reyna að komast að því hvort
kristnir og múslimar geti virki-
lega talað saman án þess að trúin
flækist fyrir. Yfirskrift innleggs
hennar, sem fram fer á ensku er:
„Understanding Islam Intercult-
urally.“ Síðastur er formaður fé-
lags múslima á Íslandi, Salman
Tamini. Hans erindi ber yfir-
skriftina „Múslimar á Íslandi“, og
ætlar hann að fræða okkur um
það hvernig það er að vera músl-
imi á Íslandi. Á milli fyrirlestra
gefst tími fyrir fyrirspurnir og
umræður og í lokin verða pall-
borðsumræður. Að málþingi
loknu verða léttar veitingar í boði.
Sem sagt mjög spennandi og
fræðandi dagur í Alþjóðahúsinu!“
– Hver, nánar tiltekið, er Irid
Agoes?
„Irid Agoes kemur frá AFS í
Indónesíu, en hún er doktor í al-
þjóðafræðum frá New York State
University í Bandaríkjunum. Hún
kennir alþjóðleg samskipti við
Háskóla Indónesíu, The Univers-
ity of Indonesia. Hún er fram-
kvæmdastjóri alþjóðlegs sjóðs
sem veitir jaðarhópum í Indónesíu
námsstyrki til háskólanáms víða
um heim. Þá er hún forseti SIET-
AR, The International Society of
Intercultural, Educational, Train-
ing and Research, í Indónesíu og
stofnandi ráðgjafarfyrirtækis sem
veitir stjórnvöldum, alþjóðlegum
samtökum og fyrirtækjum þver-
menningarlega þjálfun. Irid hefur
unnið með AFS í fjölda
ára en hún er fyrrver-
andi framkvæmda-
stjóri AFS í Indónesíu
og lauk nýverið þriggja
ára kjörtímabili í al-
þjóðastjórn AFS. Dóttir hennar
var AFS skiptinemi í Þýskalandi
og hún og fjölskylda hennar var
fósturfjölskylda skiptinema frá
Japan 1992.“
– Hver er tilurð þessa málþings
og tilgangur þess?
„AFS stendur fyrir alþjóðleg
fræðsla og samskipti. Samtökin
eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og
fræðslusamtök, óháð stjórnvöld-
um og eru ekki rekin í hagnaðar-
skyni. AFS eru friðarsamtök, þau
eru stofnuð í fyrri heimsstyrjöld-
inni af sjúkraflutningamönnum í
stríðinu sem töldu að skref í átt til
friðar væri að senda menn á milli
landa til þess að kynnast ólíkum
siðum og venjum. Aðalmarkmið
AFS er að gefa fólki tækifæri til
þess að læra um ólíka menningar-
heima í þeim tilgangi að aðstoða
það við að þróa þá þekkingu, hæfi-
leika og skilning sem þarf til að
skapa réttlátari heim. AFS á Ís-
landi vill auka samskipti og skiln-
ing milli Íslands og íslamskra
ríkja og til dæmis veitum við
námsstyrk til þess sem verður
fyrstur til að sækja um dvöl í
Indónesíu í ár. Þess má geta, að
einmitt nú erum við að taka á móti
umsóknum um dvöl erlendis og
einnig erum við nú að leita að fjöl-
skyldum fyrir erlenda nema sem
koma í sumar. Á morgun, 8. mars,
verður aðalfundur AFS og okkur
fannst tilvalið að halda þetta mál-
þing og bjóða þangað öllum sem
vilja. Þetta er okkar innlegg í um-
ræðu dagsins í dag.“
– Skortir að þínum dómi mikið
upp á skilning Íslendinga á islam?
„Já, að mínum dómi er mikið
um fordóma sem stafa af fáfræði.
Við þurfum að kynna okkur menn-
ingu og þar af leiðandi trú hvors
annars til þess að reyna að skilja
hvert annað með opnum huga.“
– Er það ekki talsverður biti
fyrir kristinn norðurhafabúa að
skilja til fullnustu þankagang ísl-
ama sem eru jafnólíkir
innbyrðis í hugsun og
raun ber vitni?
„Það er alltaf erfitt
að skilja þankagang
einhvers til fullnustu
hver sem hann er. En óneitanlega
eru þessir menningarheimar ólík-
ir og þess vegna er málþing sem
þetta mikilvægt til þess að auka
samskipti og auka skilning þess-
ara hópa.“
– Hverjir eiga helst erindi á
málþingið?
„Málþingið er opið fyrir alla
sem hafa áhuga á málefninu svo
lengi sem húsrúm leyfir.“
Halldóra Guðmundsdóttir
Halldóra Guðmundsdóttir er
fædd í Reykjavík 20. júní 1973.
Stúdent frá Menntaskólanum í
Kópavogi og leikskólakennari
frá Kennaraháskólanum 1999 og
starfar sem deildarstjóri á leik-
skólanum Dvergasteini. Var AFS
skiptinemi í Brasilíu 1991–92 og
hefur starfað sem sjálfboðaliði
alla tíð síðan. Í stjórn AFS síðan
1998 og einnig í sjálfboðaliða-
nefnd. Sambýlismaður er Gunn-
ar Reynir Valþórsson og eiga
þau tveggja ára son, Valþór
Reyni.
Að mínum
dómi er mikið
um fordóma