Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 21
Laugardagskaffi
í Valhöll
Fylgist með
næstu
fundum
á xd.is
Allir
velkomnir
Upplýsinga- og fræðslunefnd
Sjálfstæðisflokksins heldur
opna spjallfundi í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, á laugardags -
morgnum fram að kosningum.
Annar fundurinn verður
á morgun, laugardaginn
8. mars, kl. 11.00.
Gestur fundarins verður
Davíð Oddsson,
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Sími 515 1700
Upplýsinga- og fræðslunefnd
FREGNIR þess efnis að Khalid
Sheikh Mohammed, þriðji æðsti
maður al-Qaeda sem handsamaður
var um síðustu helgi, hefði hitt
Osama bin Laden í febrúarmánuði
eru eintómar vangaveltur, eftir því
sem háttsettur pakistanskur leyni-
þjónustumaður fullyrti í gær.
„Þetta er hrein ágizkun,“ sagði
fulltrúinn, sem var í þeim hópi
manna sem yfirheyrðu Mohammed
þá þrjá daga sem hann var í haldi í
Pakistan. Fanginn kvað svo hafa
verið fluttur í herbúðir Bandaríkja-
hers norðan við Kabúl í Afganistan.
Dagblaðið The New York Times
birti í gær frétt um að Mohammed
hefði hitt bin Laden í febrúar, hugs-
anlega í Rawalpindi, pakistönsku
borginni þar sem Mohammed var
handtekinn.
Þessu vísaði pakistanski leyni-
þjónustumaðurinn á bug. „Þetta eru
hreinar ágizkanir og vangaveltur.
Það er ekkert í gögnunum sem við
höfum undir höndum sem gefur
ástæðu til að ætla að hann hafi hitt
bin Laden í Rawalpindi eða neins
staðar annars staðar í Pakistan í
febrúar,“ sagði hann.
Fulltrúinn sagði að Mohammed
hefði verið nýkominn til Rawalpindi,
sem er samvaxin höfuðborginni Isl-
amabad og hýsir margar herbúðir
pakistanska hersins er hann var
handsamaður við þriðja mann í
áhlaupi aðfaranótt laugardagsins sl.
Í frétt New York Times segir
reyndar að fulltrúar Bandaríkja-
stjórnar hefðu ekki yfir neinum
upplýsingum að ráða sem sönnuðu
að al-Qaeda-foringjarnir tveir hefðu
hitzt nýlega.
Pakistanski fulltrúinn tjáði AFP
að í febrúarmánuði hefði Moham-
med haldið sig í héraðinu Baluk-
istan í Suðvestur-Pakistan og að á
meðan dvöl hans þar stóð hefði
hann naumlega sloppið undan hand-
töku er haft var upp á eftirlýstum
egypzkum al-Qaeda-liða á felustað
hans þar.
Hitti Mohammed
bin Laden í febrúar?
Pakistanar vísa
á bug frétt um
að al-Qaeda-
foringjarnir hafi
hitzt í síðasta
mánuði
Islamabad. AFP.
BANDARÍKJAMENN og Pakistan-
ar telja sig vera að þrengja hringinn
um hryðjuverkaleiðtogann Osama bin
Laden, að því er bandaríska sjón-
varpsstöðin ABC greindi frá í gær og
hafði eftir leyniþjónustumönnum.
Samkvæmt frétt stöðvarinnar er
talið að bin Laden sé í Baluchistan-
héraði í Pakistan, skammt frá landa-
mærunum að Íran og Afganistan.
Bandaríska forsetaembættið vildi þó
engu játa né neita um meinta leit að
bin Laden. En ABC greindi frá því að
óstaðfestar fregnir hefðu borist af því
að sést hefði til bin Ladens öðrum
hvorum megin við landamæri Pakist-
ans og Írans. Teldu Bandaríkjamenn
og Pakistanar að handtaka þriðja
æðsta manns al-Qaeda-samtakanna,
Khalids Sheikhs Mohammeds, um
síðustu helgi hefði auðveldað mjög
leitina að bin Laden.
Segjast á hælum
bin Ladens
Washington. AFP.
Alltaf á þriðjudögum