Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
101 SKUGGAHVERFI og Lands-
banki Íslands undirrita í dag
samning um fjármögnun fyrsta
áfanga byggingarframkvæmda við
nýja íbúðaþyrpingu í Skuggahverf-
inu. Byggingarreiturinn afmarkast
af Skúlagötu, Frakkastíg, Lindar-
götu og Klapparstíg.
Áætlað er að heildarkostnaður
við framkvæmdina verði yfir fimm
milljarðar króna. Landsbankinn
verður fjármögnunaraðili verkefn-
isins og mun jafnframt veita vænt-
anlegum kaupendum í Skugga-
hverfinu sérstaka þjónustu í
tengslum við viðskiptin. 101
Skuggahverfi, hlutafélagið sem
stendur að verkinu, er í eigu Fjár-
festingarfélagsins Stoða og Burð-
aráss, sem er fjárfestingarfélag í
eigu Eimskipafélags Íslands.
Framkvæmdir munu hefjast í
lok næstu viku en ráðgert er að
fyrstu íbúðirnar verði afhentar í
júlí á næsta ári. Ákveðið hefur ver-
ið að ganga til samstarfs við verk-
takafyrirtækið Eykt um uppsteypu
fyrsta áfanga framkvæmdanna og
mun þeirri vinnu væntanlega ljúka
á þessu ári.
Í reitnum verða reistar átján
byggingar sem í verða 250 íbúðir
af ýmsum stærðum. Hæstu húsin
verða 16 hæðir. Íbúðirnar eru frá
54 til rúmlega 200 fermetrar að
stærð. Grunníbúðargerðirnar eru
tólf talsins.
Sá áfangi sem nú er samið um
nær til byggingar á tæplega
hundrað íbúðum. Heildarkostnaður
vegna framkvæmdanna er áætlað-
ur rúmir fimm milljarðrar króna
og samkvæmt upplýsingum Einars
Inga Halldórssonar, framkvæmda-
stjóra 101 Skuggahverfis, er gert
ráð fyrir að um 150–200 manns fái
vinnu við framkvæmdirnar þegar
mest verður.
Byrjað er að selja íbúðir í þyrp-
ingunni, en verð þeirra er á bilinu
11,3–40 milljónir króna.
Kostir staðsetning-
arinnar nýttir
Samkvæmt upplýsingum Einars
Inga eru markmiðin með skipulagi
nýja hverfisins að byggja vandað
nýtísku húsnæði sem nýtir vel
kosti staðsetningarinnar. Því eru
margar íbúðanna með útsýni í
þrjár áttir. Þá munu íbúðirnar
mæta skorti á húsnæði í miðbæn-
um.
Byggingarnar munu breyta
ásýnd miðbæjarins mikið að sögn
Einars Inga. „Tilgangurinn var
líka að hleypa nýju lífi í Skugga-
hverfið og tengja það betur við
verslunarkjarnann við Laugaveg-
inn og mannlífið í miðbænum.
Þessar nýju byggingar verða
heimili 700 íbúa og munu vafalítið
gera sitt til að lífga upp á miðbæ-
inn, gera mannlífið þar fjölbreytt-
ara, auka verslun og hvetja til fjár-
festinga í nágrenninu.“
Hönnun hverfisins var í höndum
dönsku arkitektanna Schmidt,
Hammer & Lassen í samvinnu við
arkitektastofuna Hornsteina.
Yfir 100 íbúðir verða afhentar í fyrsta áfanga íbúðaþyrpingar 101 Skuggahverfis hf.
Nýju lífi blásið í
miðborgina
Loftmynd af nýja Skuggahverfinu eins og það kemur til með að líta út.
Reiturinn afmarkast af Skúlagötu, Frakkastíg, Lindargötu og Klapparstíg.
Íbúðaþyrpingin nýja, sem er fyrir miðri mynd, mun samanstanda af 18 byggingum. Þær hæstu verða 16 hæða. Um
250 íbúðir af ýmsum stærðum og gerðum verða í húsunum. Þær verða væntanlega afhentar í júlí á næsta ári.
Skuggahverfi
BORGARRÁÐ hefur heimilað borg-
arstjóra að ljúka frágangi samninga
við íslenska ríkið um stofnun einka-
hlutafélags um byggingu og rekstur
á tónlistarhúsi og ráðstefnumiðstöð í
Reykjavík. Var tillaga borgarstjóra
þess efnis samþykkt á fundi borg-
arráðs fyrr í vikunni.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
sagði á fundi borgarstjórnar í gær að
framkvæmdir við tónlistarhús gætu
þá hafist á árunum 2007–2008 og að
þriggja manna nefnd hefði verið
skipuð til að sjá um málið.
Hlutafélag
um tón-
listarhús
Miðborg
HREPPSNEFND Bessastaða-
hrepps hefur samþykkt að skipa
nefnd til þess að ræða við stjórnvöld,
þingmenn, ráðuneyti og aðra opin-
bera aðila um að veitt verði fé til und-
irbúnings og byggingar menningar-
húss í sveitarfélaginu.
Fulltrúar í nefndinni verða Guð-
mundur G. Gunnarsson oddviti, sem
verður formaður nefndarinnar, Sig-
urður Magnússon, oddviti Álftanes-
hreyfingarinnar, og Gunnar Valur
Gíslason sveitarstjóri auk tveggja
annarra fulltrúa. Að sögn Sigurðar
hefur verið ákveðið að Hilmar Örn
Hilmarsson tónlistarmaður og Svein-
björn I. Baldvinsson rithöfundur
skipi þau sæti.
Þá var samþykkt að fela skipulags-
nefnd að finna menningarhúsinu stað
í hreppnum í tengslum við endurskoð-
un aðalskipulags sveitarinnar.
Nefnd
um menn-
ingarhús
Bessastaðahreppur
♦ ♦ ♦