Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 46
46 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÁGÆTU stjórnarmenn.
Ég get ekki orða bundist eftir fjöl-
miðlaumræður um gott gengi Kaup-
þings að senda ykkur örfáar línur.
Það er vissulega gott ef rekstur
gengur vel en ég lít talsvert öðrum
augum á velgengni fyrirtækisins en
þið.
Mín viðskiptasaga við ykkur er
allt annað en falleg. Og nú skal ég
segja ykkur hana. Sparisjóður Kópa-
vogs lagði inn fyrir mína hönd þann
uppsafnaða lífeyrisrétt sem ég átti
þar sem starfsmaður Sparisjóðsins í
ágúst 1999. Leitað var ráða hjá ráð-
gjöfum Kaupþings um bestu hugs-
anlegu ávöxtun. Því miður reyndust
þá ráð harla lítils virði og skárri kost-
ur hefði verið að hafa upphæðina á
almennri sparisjóðsbók en í ykkar
vörslu – já, ekki er þetta gott til af-
spurnar. Stuttu síðar varð ég að láta
af störfum sökum alvarlegs sjúk-
dóms og er orðin 75% öryrki í dag.
Já, það væri nú ekki slæmt að eiga
þá upphæð óskerta sem lögð var inn í
sjóði Kaupþings – en því miður er
það nú ekki svo. Og nú skal ég sýna
ykkur hvernig fór fyrir mínun pen-
ingum hjá ykkur:
Innborganir frá 1999 til 2002 voru
samtals 11.596.604 en inneign mín í
lok þessa tímabils er samtals kr.
8.150.625 eða tap upp á kr. 3.445.979,
þetta er um 30% rýrnun. Á höfuðstól.
Samkvæmt þessum tölum get ég
ekki séð að Kaupþing sé nú sérstak-
lega vel rekið eða hvað finnst ykkur?
Finnst ykkur það vera góður árang-
ur og þess virði að greiða forstjóra
ykkar bónus upp á 58 milljónir króna
þegar höfuðstóll viðskiptavina Kaup-
þings rýrnar um 30% og þá er eftir
að reikna vexti af upphæðinni?
Ef vextir væru reiknaðir af þess-
ari upphæð í 2 ár væri sú upphæð
ekki undir 1.000.000 kr. ef hún hefði
legið í banka á sæmilegum reikningi
og þá er rýrnunin orðin um 40%. Í
reynd lít ég svo á að það sé verið að
færa fé úr vasa þeirra sem hafa
treyst ykkur fyrir lífeyrissjóði sínum
og afhenda það fé á silfurfati sem
bónusgreiðslur til forstjóra ykkar.
Sem sagt, þið eruð að verðlauna
mann fyrir að fara illa með viðskipta-
vini ykkar.
Ég fer fram á að þið endurskoðið
þessar aðgerðir ykkar og það sem
væri rétt að gera að mínu mati er að
draga til baka allar bónusgreiðslur
til starfsmanna Kaupþings hverju
nafni sem þær nefnast þar til þið haf-
ið leiðrétt hlut viðskiptavina ykkar
þannig að þeir standi á sléttu að
minnsta kosti, annað tel ég vera
stuld af viðskiptavinum ykkar.
Það er ekki gott fyrir fjármálafyr-
irtæki að liggja undir þeim ámælum
að rýra fé viðskiptamanna sinna til
þess að færa það í hendur starfs-
mönnum sem verðlaunafé fyrir vel
unnin störf. Einhvern tíma hefði sú
aðgerð verið flokkuð undir þjófnað
svo ekki sé nú harðar kveðið að.
Með von um svör og leiðréttingu.
ÓLÍNA SVEINSDÓTTIR,
Funalind 13,
Kópavogi.
Opið bréf til stjórn-
ar Kaupþings
Frá Ólínu Sveinsdóttur:
„miðja vegu milli malbiksins og regnbog-
ans“
– Stuðmenn, Ofboðslega frægur
Skelmar ganga lausir um sam-
félagið. Það sem verra er, þá gang-
ast fjölmiðlarn-
ir, hvorttveggja
reknir af ríki og
einstaklingum,
upp í endalausu
og rakalausu
dekri við þenn-
an hóp. Hóp
sem leitar allra
leiða til að valda
tjóni. Tekur
steininn úr nú þegar formaður
Náttúruverndarsamtaka Íslands
mælir því bót að áróður sé rekinn
fyrir því að fé verði ekki lánað til
virkjunarframkvæmda við Kára-
hnjúka. Kemur þessi niðurrifs-
starfsemi í ljós eftir að Elísabet
Jökulsdóttir hefur lýst því yfir, í
hálfkæringi, að virkjunin verði rifin
niður. Öllum mega því vera augljós
markmið þessa fólks; að valda
skaða á afkomu óbreyttra Íslend-
inga. Því að við þau rúmlega 4.000
ársverk sem nú eru unnin á Mið-
Austurlandi er gert ráð fyrir að um
750 ársverk bætist til frambúðar
þegar álver Alcoa tekur til starfa.
Hópur þessi samanstendur af
fólki sem er á móti breytingum,
andvígt þróun. Þegar sýnt hefur
verið fram á mögulegar breytingar
í byggðaþróun í kjölfar virkjana-
framkvæmda opinberar hópurinn
sig. Stendur berskjaldaður fyrir
raunveruleikanum og sjá allir hve
andstæður mannlegu eðli hann er.
Manninum og konunni er eðlislægt
að þróast og þróa með sér nýja
tækni, ný tæki og tól. En fyrir
hópnum skal allt vera eins og það
er, ekkert skal hreyft, engu skal
breytt. Ólíkt Faust er þessi hópur
reiðubúinn að afhenda kölska sál
sína. Hópurinn vill að tíminn standi
kyrr, sem leiðir til hnignunar.
Felli tveir einstaklingar hugi
saman hefst ný þróun, breyting
sem sennilega þyrfti að fara í um-
hverfismat, að maður tali ekki um
ef þau hygðu á barneignir.
ARNLJÓTUR BJARKI
BERGSSON,
17. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins
í Norðausturkjördæmi.
Skelmir
Frá Arnljóti Bjarka Bergssyni: