Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 50
ÍÞRÓTTIR 50 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ AÐSÓKN að leikjum í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu hefur aldrei verið meiri en í vetur og er sú besta að leikjum í efstu deild í Englandi í 50 ár en keppni í úrvalsdeildinni hófst fyrir ellefu árum. Þar áður léku bestu knattspyrnulið Englands í 1. deild. Forráðamenn ensku úr- valsdeildarinnar eru í sjöunda himni yfir þessari staðreynd en alls hefur 35.151 áhorfandi keypt sig inn á hvern leik deildarinnar á keppnistíðinni. Segja þeir að þetta undirstriki þá spennu og skemmtun sem almenningur hafi af leikjum úrvalsdeildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn í 50 ár sem meðalfjöldi áhorfenda á leikjum í efstu deild í Englandi fer yfir 35.000. Þessar staðreyndir staðfesta vin- sældir ensku knattspyrnunnar og gera hana að vinsælustu knatt- spyrnudeild Evrópu. Þess má geta að jafnaði eru um 33.000 áhorf- endur á hverjum leik efstu deildar í Þýskalandi, 29.000 kaupa sig að meðaltali inn á hvern leik í spænsku 1. deildinni og um þrjú þúsund færri kaupa sig að jafnaði inn á leiki í ítölsku 1. deildinni. Metaðsókn að ensku úrvalsdeildinni Unglingalandsmót UMFÍ varfyrst haldið á Dalvík árið 1992 og hefur það vaxið mikið síðan. Eftir síðasta mót var ákveðið að halda það árlega og að þessu sinni bárust fimm umsóknir um að halda mótið. UMFÍ ákvað að það yrði haldið á Ísafirði og eins og í fyrra verður það um versl- unarmannahelgina. „Með þessu er- um við auðvitað að segja sukki og svínaríi stríð á hendur,“ sagði Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, í gær þegar mótið var kynnt og vísaði þar í hinar hefðbundnu útiskemmtanir sem haldnar eru um þessa helgi. Formaðurinn sagði að nóg væri um að vera á næstunni hjá hreyfingunni. „Skagfirðingar halda Landsmótið á næsta ári og árið 2007 eru 100 ár lið- in frá stofnun UMFÍ og þá verður Landsmót og annað tveimur árum síðar þegar 100 ár verða liðin frá því fyrsta Landsmótið var haldið á Ak- ureyri 1909,“ sagði formaðurinn. Jón Pétur Róbertsson, fram- kvæmdastjóri Unglingalandsmóts- ins sagði að undirbúningsnefndin hefði markað þá stefnu að skora á og hvetja fjölskyldurnar í landinu til að koma á mótið á Ísafirði og nýta ferð- ina vestur til að kynnast Vestfjörð- um og þeirri stórbrotnu náttúrufeg- urð sem þar er að finna og láta Unglingalandsmótið verða hápunkt ferðarinnar. „Svona mót er ekki bara íþrótta- keppni barna og unglinga frá 11 ára aldri til 18 ára, heldur verður margt annað gert. Hæfileikakeppni verður fyrir krakkana og hljómsveitin Á móti sól mun skemmta auk þess sem við höfum fengið þá Gumma og Hjört, sem sigruðu í hæfileika- keppni Samfés í vetur, til að skemmta. Við gerum ráð fyrir um 2.000 keppendum og teljum okkur geta tekið á móti allt að 10.000 gestum,“ sagði Jón Pétur. Ingi Þór Ágústsson, formaður undirbúningsnefndarinnar og bæj- arfulltrúi á Ísafirði, sagði bæjarbúa ánægða með að fá að halda mótið og að mikill hugur væri í þeim. Hann sagði íþróttaaðstöðu góða og það sem upp á vantaði yrði lagað fyrir mótið. „Það er fyrirhugað að leggja gervigras á knattspyrnuvöll bæjar- ins og laga áhorfendasvæðið þar í kring og nauðsynlegt er að bæta að- stöðu til keppni í frjálsíþróttum og vinna við það er komið á fullt skrið þannig að öll aðstaða mun verða til fyrirmyndar,“ sagði Ingi Þór sem segir mótið mikla lyftistöng fyrir all- ar íþróttir þar vestra. Sjötta Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands verður á Ísafirði um verslunarmannahelgina Segjum sukki og svínaríi stríð á hendur SJÖTTA Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands verður haldið á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Í fyrra var það í Stykkishólmi og þá voru keppendur um 1.300 en vestfirðingar vonast eftir að þátttakan verði enn betri í ár og búa sig undir að taka við 2.000 keppendum og allt að 10.000 gestum. Þar vitnar hann í reglur UEFA um sæti í Evrópukeppni sem út- hlutað er til þjóða álfunnar eftir því hvernig lið þeirra hafa staðið sig fimm undanfarin ár. Þjóðverjar eiga sem stendur tvö örugg sæti í meistaradeildinni og tvö til viðbót- ar í forkeppni hennar, en nú er annað þeirra komið í mikla hættu. „Það eru 19 ár síðan við höfum staðið okkur svona illa. Við verðum að styrkja félagsliðin okkar á ný því við erum að hrapa ískyggilega á styrkleikalistanum,“ sagði Ger- hard Mayer-Vorfelder, forseti þýska knattspyrnusambandsins. Rudi Völler landsliðsþjálfari er líka áhyggjufullur. „Þetta er slæm þróun. Ég vil frekar að álagið sé mikið því það skilar árangri. Áður en landsliðið fór í lokakeppni HM 2002 voru bæði Leverkusen og Dortmund í úrslitaleikjum í Evr- ópukeppni og það gaf leikmönnum liðanna aukið sjálfstraust,“ sagði Völler. Borussia Dortmund er eina von-in sem Þýskaland á eftir en til þess að fara áfram úr riðlakeppni meistaradeildarinnar þarf Dort- mund að skáka stjörnuliði Real Madrid í tveimur síðustu umferð- unum. Bayern München, helsta stolt þýskrar knattspyrnu og Evrópu- meistari árið 2001, komst ekki áfram úr fyrri riðlakeppni meist- aradeildarinnar. Þjóðverjar eiga ekkert lið eftir í UEFA-bikarnum eftir að Stuttgart og Hertha Berlín voru slegin út í 16-liða úrslitunum af liðum frá Skotlandi og Portúgal. „Walter Straten, knattspyrnu- sérfræðingur hjá þýska dagblaðinu Bild, skrifaði í gær að þýsk knatt- spyrna ætti í miklum erfiðleikum. „Fótboltinn okkar er í frjálsu falli. Við höfum tapað dýrmætum stig- um sem þýðir að við föllum á styrkleikalista UEFA og verðum þar með búnir að missa eitt Evr- ópusæti í síðasta lagi árið 2005.“ Reuters Leikmenn Dortmund fagna marki sem Jan Koller skoraði gegn Real Madrid – Thorsten Frings, Ev- anilson (uppi), Ewerthon og Koller. Þeir urðu síðan að sætta sig við að fá jöfnunarmark á sig rétt fyrir leikslok, sem getur orðið þeim dýrkeypt þegar upp verður staðið í Meistaradeild Evrópu. Þýskur fótbolti í frjálsu falli ÞJÓÐVERJAR hafa miklar áhyggjur af slæmu gengi knattspyrnuliða sinna í Evrópumótum félagsliða á yfirstandandi keppnistímabili. Útlit er fyrir að ekkert þýskt lið komist í átta liða úrslit á Evrópumót- unum í ár og það yrði í fyrsta skipti í 19 ár sem það myndi gerast. Morgunblaðið/Kristinn Íslandsmeistarar Víkings í 1. deild karla í borðtennis árið 2003 – Markús Árnason, Kristján Jónsson, Sigurður Jónsson og Bjarni Bjarnason. Þeir fengu fullt hús stiga – unnu alla sína leiki, en félagar þeirra í B-sveit Víkings urðu í öðru sæti. Vík- ingar urðu meistarar tíunda árið í röð að þessu sinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.