Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 53
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stang-
arstökkvari úr FH, stökk yfir
4,50 m á alþjóðlegu frjáls-
íþróttamóti í Aþenu í gærkvöldi
og varð í þriðja sæti. Þetta er
besti árangur Þóreyjar Eddu í
stangarstökki í tvö ár eða allt frá
því að hún setti Norðurlandamet
sitt innanhúss 4,51 á bandaríska
háskólameistaramótinu hvar hún
vann til gullverðlauna.
Rússinn Elena Isinbayena stökk
kvenna hæst í Grikklandi, 4,65. Í
öðru sæti varð fyrrverandi
heimsmethafi, Svetlana Feof-
anova frá Rússlandi, lyfti sér yfir
4,60.
Þórey stökk yfir 4,30, 4,40 og
4,50 í fyrstu tilraun í gær og
gerði síðan tilraun til þess að
bæta eigið Norðurlandamet um
fjóra sentímetra, en lánaðist það
ekki.
Árangur Þóreyjar í gær skipar
henni í 9. sætið á afrekslista Al-
þjóða frjálsíþróttasambandsins á
þessu ári, en var í fjórtánda sæti
með 4,40.
Besti árangur
Þóreyjar Eddu í tvö ár
HALLDÓR Sigfússon skoraði 3
mörk fyrir Friesenheim sem tapaði
fyrir Kronau/Östringen, 25:20, á
heimavelli í suðurriðli þýsku 2.
deildarinnar í handknattleik í fyrra-
kvöld. Lærisveinar Atla Hilmars-
sonar eru í fimmta sæti með 29 stig
en Kronau/Östringen, sem er á
höttunum eftir Guðmundi Hrafn-
kelssyni landsliðsmarkverði, er í
efsta sæti með 43 stig, fjórum stig-
um meira en Düsseldorf.
ALFREÐ Gíslason, þjálfari
Magdeburg, ætlar að tefla fram
hornamanninum Stefan Kretzschm-
ar í síðari leik Magdeburg og Port-
land San Antonio í 8-liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í hand-
knattleik sem fram fer í Pamplona á
Spáni nk. sunnudag.
KRETZSCHMAR hefur ekkert
leikið síðan hann fingurbrotnaði í
undanúrslitaleik Þjóðverja og
Frakka á HM í Portúgal fyrir rúm-
um mánuði. Alfreð og félagar verða
að leggja allt í sölurnar í leiknum í
Pamplona því þeir töpuðu heima-
leiknum um síðustu helgi með fjög-
urra marka mun, 26:22. Takist
Magdeburg ekki að vinna upp mun-
inn er liðið úr leik í keppninni sem
það vann sl. vor.
NENAD Perunicic getur hins
vegar ekki leikið með Magdeburg í
leiknum á Spáni vegna meiðsla og er
þar skarð fyrir skildi í liði Evrópu-
meistaranna.
LÍNUMAÐURINN sterki Róbert
Gunnarsson er í úrvalsliði febr-
úarmánaðar sem blaðamenn danska
dagblaðsins Ekstra Bladet tóku
saman. Róbert hefur farið á kostum
með Aarhus GF í dönsku úrvals-
deildinni í handknattleik í vetur, en
hann gekk til liðs við félagið sl. sum-
ar frá Fram.
HREINN Hringsson lék með KA-
mönnum þegar þeir töpuðu fyrir
Þórsurum, 1:0, í Boganum í fyrra-
kvöld. Þetta var fyrsti leikur Hreins
á undirbúningstímabilinu en hann
hefur ekkert æft með KA-liðinu í
vetur. Hreinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann væri ekki bú-
inn að ákveða ennþá hvort hann ætl-
aði sér að vera með í sumar en
samningur hans við KA er útrunn-
inn.
GRETA Mjöll Samúelsdóttir
skoraði eitt marka Breiðabliks gegn
Þrótti/Haukum í Reykjavíkurmóti
kvenna í knattspyrnu í fyrrakvöld
en nafn hennar misritaðist í blaðinu
í gær. Greta er aðeins 15 ára gömul.
BJARKI Gústafsson, fyrirliði
körfuknattleiksliðs Vals, lék í gær-
kvöld kveðjuleik sinn með liðinu, um
sinn að minnsta kosti, þegar það
mætti Skallagrími í úrvalsdeildinni.
Bjarki er á förum til náms í Dan-
mörku.
EYÞÓR Guðnason lék ólöglegur
með Stjörnunni gegn Fram í deilda-
bikarnum í knattspyrnu á dögunum.
Það hefur þó ekki áhrif á lokatölur
leiksins, Fram sigraði 4:0 og þau úr-
slit standa, en hefðu að öðrum kosti
verið 3:0 fyrir Fram.
FÓLK
KR-ingar byrjuðu betur á Ásvöll-um í gær og sérstaklega var
Darrel Flake heitur á upphafskafl-
anum. Hann skoraði
16 af fyrstu stigum
KR en um leið og
Haukunum tókst að
halda aftur af Flake
náðu þeir undirtökunum. KR-ingum
voru mjög mislagðar hendur í sókn-
inni og aðeins Flake og Arnar Kára-
son komust á blað í fyrsta leikhlut-
anum og sá annar var hálfnaður
þegar Baldri Ólafssyni tókst að
blanda sér á stigalista KR-inga.
Haukunum gekk allt í mót í byrj-
un þriðja leikhluta og tókst ekki að
skora eitt einasta stig fyrstu fimm
mínúturnar. KR-ingar efldust að
sama skapi, náðu að komast yfir,
46:45, og allt virtist stefna í spenn-
andi leik. En þá sagði Stevie John-
son hingað og ekki lengra. Þessi frá-
bæri leikmaður tók af skarið,
skoraði 12 stig á skömmum tíma og
kom sínum mönnum í forystu á nýj-
an leik. Sjö stig skildu liðin að þegar
þriðji leikhluti var að baki en Hauk-
unum héldu engin bönd í upphafi
þess fjórða. Þeir skoruðu 14 stig í
röð og gerðu út um leikinn á þeim
kafla. Munurinn var mestur 17 stig
og leikmenn Hafnarfjarðarliðsins
gátu leyft sér að bregða á leik í létt-
um sirkusatriðum til að mynda þeg-
ar Stevie Johnson tróð í körfu KR-
inga með tilþrifum eftir glæsisend-
ingu Sævars Haraldssonar.
„Ég var ákaflega ánægður með
leik liðsins. Varnarleikurinn var frá-
bær og við náðum að halda þeim al-
gjörlega í skefjum. Við undirbjugg-
um okkur vel fyrir leikinn. Í stað
þess að sleikja sárin eftir tapið í
Grindavík stöppuðu menn stálinu
hver í annan og sýndu hversu megn-
ugir þeir voru,“ sagði Reynir Krist-
jánsson, þjálfari Hauka. Um an-
stæðinga Hauka í úrslitakeppninni,
Tindastól, sagði Reynir; „Ég ber
virðingu fyrir Tindastólsmönnum.
Við töpuðum fyrir þeim á heimavelli
með þremur stigum en unnum þá á
útivelli með sama mun. Þeir eru með
gott lið og við verðum að spila af
sama krafti og við gerðum í þessum
leik til að eiga möguleika á að slá þá
út.“ Það er ekki hægt að segja ann-
að en Haukarnir mæti til leiks í úr-
slitakeppnina með gott veganesti og
eru til alls líklegir á þeim vígstöðv-
um.
KR-ingar náðu sér aldrei á strik
og voru bæði hálfáhugalausir og
baráttulitlir. Flake var öflugur á
fyrstu mínútum leiksins en hvarf
síðan algjörlega.
Morgunblaðið/Kristinn
Stevie Johnson, leikmaður Hauka, fór á kostum gegn KR í gær og gerði rúmlega helming stiga
liðsins í 16 stiga sigri, 80:64 og þar tryggðu Haukar sér þriðja sætið á kostnað KR-inga.
Haukar
hirtu þriðja
sætið af KR
HAUKAR tryggðu sér þriðja
sætið í úrvalsdeildinni á kostn-
að KR-inga með því að leggja
vesturbæjarliðið á sannfærandi
hátt, 80:64, á Ásvöllum. Haukar
mæta Tindastóli í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar en KR-ingar
þurfa að glíma við Íslandsmeist-
ara Njarðvíkur.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Hamar sýndi mikla baráttu íleiknum í gærkvöldi, og fór þar
fremstur í flokki Keith Vassel sem
gerði 24 stig og tók
16 fráköst, hvorki
meira né minna. Í
raun væri illa gert að
taka einstakan leik-
mann út úr hópnum, en þó ásamt
Keith, voru Marvin Valdimarsson,
Pétur Ingvarsson og Lárus Jónsson
bestir sinna manna.
Grindvíkingar, sem voru án Darr-
el Lewis og Helga Jónasar Guðfinns-
sonar í gær, áttu mjög erfitt upp-
dráttar framan af leik. Corey
Dickersson, sem kom í gærmorgun
til landsins og hafði varla séð suma
samherja sinna fyrir leikinn, reyndi
þó hvað hann gat og á eftir að vera
Grindvíkingum styrkur þegar hann
kemst inn í leik liðsins.
„Við komum grimmir til leiks og
ætluðum að vinna þennan leik, hvað
svo sem úrslitakeppninni leið, þá
ætluðum við að leggja deildarmeist-
arana. Síðast þegar við spiluðum í
Grindavík fengum við á okkur 71
stig í fyrri hálfleik en þeir skoruðu
aðeins 74 stig á okkur í öllum leikn-
um í kvöld,“ sagði Pétur Ingvarsson,
spilandi þjálfari Hamars, eftir leik-
inn.
Hann bætti því við að þetta hefði
kannski ekki verið staða sem hann
bjóst við. „Ég var búinn að gefa úr-
slitakeppnissæti upp á bátinn en eft-
ir að við unnum Skallagrím, trúði ég
ekki öðru en að við kæmumst áfram.
Við erum búnir að vinna þrjá leiki í
röð og eigum eftir að spila að
minnsta kosti tvo,“ sagði Pétur enn-
fremur.
Hamar byrjaði leikinn á góðri
vörn og börðust heimamenn vel í frá-
köstunum. Grindvíkingum gekk illa
að finna leiðina að körfunni, enda fór
svo að staðan eftir fyrsta leikhluta
var 25:14. Pétur fór þar á kostum, en
hann varð svo fyrir því að litlifingur
vinstri handar fór úr lið. Honum var
einfaldlega kippt í liðinn aftur og
mætti Pétur aftur tvíefldur til leiks.
Í öðrum leikhluta hélst sami mun-
ur og var staðan í hálfleik 47:36.
Fyrstu stig Grindvíkinga komu síð-
an ekki fyrr en þrjár og hálf mínúta
var liðin af þriðja leikhluta. Þá fór
Corey fljótlega út af með fjórar vill-
ur en eftir leikhlutann var staðan
62:47.
Gestirnir gerðu harða atlögu að
heimamönnum undir lokin en svo fór
að þeir unnu öruggan sigur á deild-
armeisturunum og fögnuðu ákaft í
lokin.
„Mér líst vel á að fá Hamar í úr-
slitakeppninni en þetta er eins og að
fá hvert annað lið. Við verðum að
leggja alla að velli sem við mætum
og fyrst mætum við Hamarsmönn-
um. Við förum í alla leiki til að vinna
þá en við þurftum að gíra okkur vel
upp fyrir síðasta leik. Mér fannst
vanta ákveðinn neista í okkar leik,
en við megum heldur ekki taka það
frá Hamri að þeir spiluðu vel. Það
voru mörg spurningamerki innan
hópsins, m.a. vegna nýs leikmanns
og annars sem skapað einnig
ákveðna erfiðleika,“ sagði Friðrik
Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavík-
ur, í leikslok.
Hamar í úrslitakeppn-
ina á elleftu stundu
HAMAR vann frækinn sigur á deildarmeisturum Grindavíkur í gær-
kvöldi, 87:74. Með sigrinum komust Hamarsmenn á elleftu stundu í
úrslitakeppnina, en til þess þurftu bæði Breiðablik og Snæfell að
tapa sínum leikjum. Það gekk eftir og braust út mikill fögnuður í
Hveragerði þegar niðurstaðan lá fyrir. Þetta sýnir vel að stutt er á
milli hláturs og gráts í þessari deild, en fyrir nokkrum dögum var
Hamar í fallbaráttunni.
Helgi
Valberg
skrifar