Morgunblaðið - 13.03.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þvílík undur og ósköp.
Kynningardagur í Flensborg
Húsið verður
iðandi af lífi
SÉRSTAKUR kynn-ingardagur Flens-borgarskólans í
Hafnarfirði verður næst-
komandi laugardag, 15.
mars, og verður húsið opn-
að klukkan 12.30. Magnús
Þorkelsson, aðstoðar-
skólameistari í Flensborg,
er ásamt fleirum í forsvari
fyrir kynningardaginn og
svaraði hann nokkrum
spurningum.
– Fitjið þið upp á þessu
árlega?
„Svona kynningardagar
hafa verið haldnir áður, en
ekki síðustu árin. Ástæðan
fyrir því að við tökum upp
á því að halda kynningar-
dag í skólanum núna er sú,
að skólinn átti 120 ára af-
mæli síðastliðið haust og
töldum við að í tilefni af því væri
nauðsynlegt að gera eitt og annað
til hátíðarbrigða. Við vorum hins
vegar nokkuð heft síðasta haust
vegna þess að þá stóð hér yfir
margvísleg viðhalds- og viðgerð-
arvinna og ekki þverfótandi fyrir
iðnaðarmönnum í húsinu. Við
héldum því dálitla hátíð fyrir okk-
ur sjálf, nemendur og kennara og
frestuðum öllum stærri uppákom-
um. Núna hefur hins vegar hægst
um í húsinu og því tilvalið að hafa
þennan kynningardag.“
– Sem er þá fyrir fleiri heldur
en bara ykkur nemendur og kenn-
ara?
„Já, einmitt. Núna viljum við
aðallega kynna skólann okkar fyr-
ir foreldrum og nemendum í skól-
um bæjarins, í raun fyrir bæj-
arbúum almennt og það væri líka
gaman að sjá eitthvað af fólki úr
nærliggjandi sveitarfélögum. Það
eru allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.“
– Hvað er það sem þið eruð að
kynna, fyrir utan að þið eruð
framhaldsskóli?
„Hér er afar öflug og fjölbreytt
starfsemi og m.a. munum við sýna
og kynna ýmsar nýjungar í starfi
okkar. Sem dæmi um það er upp-
lýsinga- og fjölmiðlunarbraut og
tæknibraut. Ýmsar merkilegar
breytingar til batnaðar hafa auk
þess verið gerðar á ýmsum öðrum
brautum. Þá hefur aðstaða til allr-
ar kennslu verið að stórbætast á
síðustu misserum t.d. á sviði
tölvuvæðingar. Varðandi fyrr-
greinda upplýsinga- og fjölmiðla-
braut má geta þess að í skólanum
er nú sérhannað stúdíó fyrir út-
varps- og sjónvarpsútsendingar
svo og öll aðstaða til vinnslu með
vefmiðlum. Hópur nemenda við
skólann er nú á fullri ferð við nám
á þessu sviði. Það má geta þess, að
á dagskrá okkar á laugardaginn
er heimsókn menntamálaráð-
herra Tómasar Inga Olrich sem
ætlar að opna fjölmiðladeildina
formlega. Af því tilefni verður
kynntur samstarfssamningur
skólans og bæjaryfirvalda um út-
varpsútsendingar frá bæjar-
stjórnarfundum og hugsanlega
fleiri atburðum í fram-
tíðinni.“
– Og fleira?
„Já, mun fleira. Að
auki verður skólinn ið-
andi af lífi, en einstakar
kennslugreinar verða með kynn-
ingar og uppákomur á eigin veg-
um í skólastofum, en endurbætur
á tækjabúnaði eru ekki hvað síst í
stofunum. Kynningar verða á
námsgreinum og námsleiðum,
ráðgjafar verða til staðar og fleira
mætti nefna. Félagslífið í skólan-
um verður kynnt. Í því skini mun
til dæmis leiklistarfélag skólans
verða með kynningu á starfsemi
sinni og kór skólans verður með
dagskrá.“
– Það er sum sé af mörgu að
taka?
„Heldur betur. Í Flensborgar-
skóla hefur margt verið að gerast
á umliðnum árum, bæði hvað
varðar uppbyggingu skólastarfs
og innihald þess, sem og tækja-
búnað eins og ég gat um áðan.
Skólinn er nú frábærlega búinn
hvað varðar allan tölvubúnað,
raungreinaaðstöðu, fjölmiðlaað-
stöðu og margt fleira auk þess
sem kennarar margir hverjir nýta
sér netið kerfisbundið með eigin
kennsluvefjum. Þá er í skólanum
þráðlaust netkerfi og nemendum
er tryggður aðgangur að gögnum
sínum, vefsvæðum og pósti með
opnum tölvuverum. Kennarar
hafa einnig góða aðstöðu til að
stunda fjarvinnslu.“
– Svo verður kynntur þarna nýr
bæklingur?
„Við höfum nýlega lokið við
gerð nýs kynningarbæklings sem
unninn var í samvinnu við auglýs-
ingastofu hér í bæ. Í bæklingnum
er starfsemi skólans kynnt ýtar-
lega, en ekki aðeins með hefð-
bundnum hætti. Uppsetning efnis
var með augum tíundu bekkinga
sem myndu vilja sjá heildarmynd-
ina, þ.e. ekki aðeins að þeir væru
að eyða hér nokkrum árum, held-
ur jafnframt hvað tæki við. Í
bæklingnum eru á myndrænan og
skemmtilegan hátt dregnar upp
dæmisögur og einstökum nem-
endum fylgt sem fara í gegnum
skólann og áfram í há-
skólanám.“
– Erum við að
gleyma einhverju?
„Ég vil endilega
koma því að að við
þetta tækifæri fer fram tilnefning
sigurvegara í stærðfræðikeppni í
skólum Hafnarfjarðar og afhend-
ing verðlauna. Hátt í 300 krakkar
tóku þátt í keppninni sem er liður í
stærri keppni þar sem þátt taka
skólar á Selfossi, á Akranesi, í
Keflavík, Kópavogi og nokkrum
skólum í Reykjavík. Flensborgar-
skóli sá um skipulagningu keppn-
innar í Hafnarfirði.“
Magnús Þorkelsson
Magnús Þorkelsson er fæddur
í Reykjavík 10.október 1957.
Hann er menntaður í forn-
leifafræði og sögu frá Háskóla
Íslands og Háskólanum í Nott-
ingham. Kenndi við Flensborg-
arskóla 1981–84 og við Mennta-
skólann við Sund 1984–98. Var
þá ráðinn á ný til Flensborg-
arskóla sem aðstoðarskólameist-
ari. Maki er Sigríður Gunnlaugs-
dóttir aðstoðarskólastjóri
Setbergsskóla og eiga þau þrjú
börn, Gunnlaug, Ástu Sigrúnu og
Þorkel.
…þá er í skól-
anum þráð-
laust netkerfi