Morgunblaðið - 13.03.2003, Page 11

Morgunblaðið - 13.03.2003, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 11 GUÐLAUGSSUNDIÐ var þreytt í 19. sinn í sundlaug Vestmanna- eyja í gærmorgun en það er synt til minningar um afrek Guðlaugs Friðþórssonar sem synti í land eftir að togbáturinn Hellisey sökk um sex kílómetrum austur af Heimaey rétt fyrir miðnætti 11. mars árið 1984. Guðlaugur komst við illan leik til byggða um klukk- an 7 morguninn eftir. Nemendur í Stýrimannaskól- anum í Vestmannaeyjum minntust afreksins með því að efna til Guð- laugssunds en eftir að skólinn var aflagður hefur Friðrik Ásmunds- son, fyrrverandi skólastjóri, boð- að til sundsins og fengið hóp fólks með sér. Upphaflega syntu þátt- takendur í jafnlangan tíma og Guðlaugur eða rúmar sex klukku- stundir. Nú syndir hver þátttak- andi 6.000 metra en talið er að Guðlaugur hafi synt nákvæmlega 5.940 metra. Sundið hófst klukk- an 4 í gærmorgun og tóku fimm krakkar úr sunddeild ÍBV þátt og synti hver um sig 240 ferðir í lauginni. Ein þrettán ára stúlka var eina klukkustund og 39 mín- útur að því. Þá starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar í Eyjum, sex konur og einn karl. Skiptu konurnar einu sundi á milli sín og synti hver því 40 ferðir en karlinn synti fullt sund. Magnús Kristinsson, útgerðar- maður í Vestmannaeyjum, hefur tekið þátt í fimm Guðlaugs- sundum en hann setti persónulegt met í morgun og fór sundið á tveim klukkustundum og 27 mín- útum, sem telst gott af manni á hans aldri. Jóhann Halldórsson útgerðarmaður, sem nýlega varð 60 ára, tók þátt í fyrsta sinn og þreytti sundið á 2 klukkustundum og 33 mínútum sem er mjög gott. Kristján Gíslason, stjórnar- formaður Eykis, kom frá Reykja- vík gagngert til að taka þátt í sundinu en hann hóf sundið klukkan 9 í gærmorgun og lauk sundinu á vel innan við tveimur tímum, en þess ber að geta að hann notaði ekki fæturna til að knýja sig áfram í lauginni. Allir þátttakendur fá við- urkenningarskjöl fyrir þátttök- una. Guð- laugs- sundið þreytt í 19. sinn Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Hluti af þátttakendum sem þreyttu 19. Guðlaugssundið í sundlaug Vestmannaeyja í gær. Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. BÚNAÐARBANKI Íslands ákvað í gær að falla frá ákvörðun um gjald- fellingu á 350 milljóna króna láni til Norðurljósa samskiptafélags hf. Búnaðarbanki og Norðurljós hafa farið yfir skilmála lánsins og rekstr- arstöðu og segir í sameiginlegri yf- irlýsingu frá þeim að í ljósi verulegs afkomubata félagsins og að sam- bankalán Norðurljósa sé í fullum skilum telji bankinn að þær forsend- ur sem lágu til grundvallar gjaldfell- ingunni á sínum tíma séu ekki lengur fyrir hendi. Norðurljós mun greiða vaxtagreiðslur og afborganir af lán- inu í samræmi við skilmála þess. Þá segir að samhliða þessu hafi orðið að samkomulagi milli beggja aðila að falla frá öllum málarekstri fyrirtækjanna hvors á hendur öðru sem rætur eigi að rekja til umræddr- ar gjaldfellingar. Í tilkynningunni segist Árni Tóm- asson, bankastjóri Búnaðarbanka, vera ánægður með að þessu máli skuli lokið: „Fyrir bankanum vakti frá upphafi að tryggja hagsmuni sína sem lánveitanda. Við teljum að með þeim umskiptum sem orðið hafa í rekstri Norðurljósa og bættri rekstrarstöðu félagsins séu allar horfur á að það nái að standa í skilum með umrætt lán.“ Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, segist fagna því að nið- urstaða skuli komin í málið: „Norð- urljós hafa ávallt verið reiðubúin til að standa við skilmála umrædds láns og fagna því að fá nú tækifæri til þess. Með þessu má segja að endi sé bundinn á það erfiðleikatímabil sem fyrirtækið gekk í gegnum á síðasta ári og öll skuldamál félagsins komin í betra horf.“ Búnaðarbankinn og Norðurljós semja Sambanka- lán verður ekki gjaldfellt HÓPUR þekktra Íslendinga hefur bundist samtökum um að mótmæla spillingu, sérhyggju og óhæfilegri skattheimtu hér á landi og hvetja fleiri til að ganga í lið með sér. Að sögn Guðmundar G. Þórarinssonar, verkfræðings og fyrrverandi alþing- ismanns, er ekki um nýtt framboð til alþingiskosninga að ræða á þessu stigi, hvað sem síðar kann að verða. „Þetta er fólk sem stendur upp og segir nei. Það er að mótmæla þeirri þjóðfélagsþróun sem við höf- um verið að horfa upp á á síðustu misserum þar sem verðmæti þjóð- arinnar eru að safnast á örfárra hendur, annars vegar beinlínis fyrir tilstilli stjórnvalda með gjafakvóta, og hins vegar vegna þess að þau hafa ekki megnað að setja lög og reglur á fjármálamarkaði,“ segir Guðmundur. Í ávarpi undirritaðra segir m.a.: Að stjórnvöld hafi látið hjá líða að gæta hagsmuna almennings og stuðlað þannig að því að fámennir sérhópar sölsi undir sig verðmæti sem þjóðin á. Að stjórnvöld sinni ekki skyldu sinni að móta löggjöf til að tryggja réttlátar leikreglur á fjármálamark- aði með þeim afleiðingum að fá- mennir hópar afli sér valda og áhrifa í skjóli almannafjár og sér- aðstöðu. Að verð á nauðsynjum og lánsfé sé hér of hátt vegna þess að stjórn- völd móti ekki eðlilegt samkeppn- isumhverfi. Að stjórnvöld hafi vanrækt þá skyldu sína að stuðla að sátt meðal þjóðarinnar um jafnvægi milli land- nýtingar og landverndar. Að það hafi verið hrapalleg mis- tök að afhenda fámennum hópi út- valinna aðganginn að fiskimiðunum, sem metinn er á að minnsta kosti 300 milljarða króna. Að við úthlutun veiðiréttar hafi ekki verið gætt ákvæða stjórnar- skrár um jafnræði og atvinnufrelsi. Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur. Ingi Björn Albertsson, fyrrv. alþingismaður. Jón Magnússon hrl. Lúðvík Emil Kaaber hdl. Sigurður Kristjánsson, fyrrv. kaupfélagsstjóri. Tryggvi Agnarsson hdl. Valdimar H. Jóhannesson framkvæmdastjóri. Flosi Ólafsson leikari. Kristín Björg Knútsdóttir kennari. Hilmar Viktorsson viðskiptafræðingur. Kristjana Samper myndlistarmaður. Bárður G. Halldórsson. Konráð Adolphsson viðskiptafræðingur. Stefán Benediktsson, fyrrv. alþingismaður. Sveinn Tryggvason, fyrrv. fiskverkandi. Jón Kristjánsson fiskifræðingur. Ólafur Flosason tónlistarkennari. Halldór Bjarnason framkvæmdastjóri. Baltasar Samper myndlistarmaður. Sigrún Hv. Magnúsdóttir félagsráðgjafi. Albert Tómasson, fyrrv. flugstjóri. Sigurður Runólfsson vélvirkjameistari. Bubbi Morthens tónlistarmaður. Guðmundur Ingólfsson framkvæmdastjóri. Hlöðver Ólafsson framkvæmdastjóri. Kristján Örn Jónsson rafvirkjameistari. Ólafur Stephensen verslunarmaður. Guðbjartur Halldórsson sölustjóri. Gísli G. Jóhannsson sölumaður. Guðmundur R. Jóhannsson skrifstofumaður. Einar Axelsson tæknifræðingur. Sigurður Konráðsson kerfisfræðingur. Sigríður Guðmundsdóttir ferðafræðingur. Guðmundur G. Halldórsson, Húsavík. Magnús Theódór Magnússon, Teddi, myndlistarmaður. Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri. Guðmundur Jón Guðjónsson, grafískur hönnuður. Ríkharður Örn Pálsson tónlistarmaður. Hjálmar Diego Harðarson kerfisfræðingur. Sigurður A. Magnússon rithöfundur. Mótmæla spill- ingu og óhæfi- legri skattheimtu ÞRÍR bílar fóru út af veginum um Hálfdán í gær á kafla þar sem veg- urinn liggur hæst. Þar hafði safnast töluverður krapi í slæmu veðri, sem gerði seinni part nætur og um morguninn. Enginn slasaðist. Fyrst fór út af lögreglubíll frá Patreksfirði, sem lenti á hvolfi og er töluvert skemmdur. Bifreið frá Vegagerðinni var næst til að renna til í krapanum og fara á hliðina. Skemmdir á þeim bíl eru ekki mikl- ar. Loks náði ökumaður sendibíls með snarræði að bjarga því að ferð hans endaði á hliðinni úti í snjó- skafli. Ljósmynd/SVG Út af vegi um Hálfdán Patreksfirði. Morgunblaðið. ÁGÚST Ásgeirsson, formaður hnefa- leikanefndar ÍSÍ, hefur sagt af sér sem formaður nefndarinnar. Ástæðuna segir hann vera ákvörðun forsvarsmanna Hnefaleikafélags Reykjavíkur í nefndinni að hunsa eigin samþykktir og marggefin lof- orð um að efna ekki til keppni í tveim- ur greinum bardagaíþrótta, Muay Thai og frjálsum bardaga, á móti sem fram fór í Laugardalshöll sl. laugar- dag. Í bréfi sem Ágúst ritar formanni ÍSÍ segir að hnefaleikanefndin hafi rætt málið á tveimur fundum í febr- úar en á þeim báðum hafi komið fram mikil andstaða við keppni í þessum greinum og því lýst yfir að leyfi til mótshaldsins væri bundið af því að einungis væri keppt í ólympískum hnefaleikum á mótinu. Á seinni fund- inum hafi nefndin samþykkt einróma að ekki yrði keppt í öðrum greinum 8. mars. „Það er síðan persónuleg skoðun mín að keppni í Muay Thai varði við landslög nr. 92 frá 1956 um bann við keppni og sýningum á hnefaleik,“ segir Ágúst m.a. í bréfi til forseta ÍSÍ. Ágúst segir að nefndarmaður og formaður HR hafi gert tilraun til að sverja bardagana umdeildu af sér í tölvupósti. Óumdeilt sé hins vegar að hann leigði Höllina til þessarar kvöldstundar í nafni HR. Að sögn Stefáns Snæs Konráðs- sonar, framkvæmdastjóra ÍSÍ, verð- ur málið rætt á stjórnarfundi á ÍSÍ á morgun. Hann bendir á að ÍSÍ hafi stutt frumvarp um að leyfa ólymp- íska hnefaleika á þeim rökum að þeir væru öruggari en hefðbundnir hnefa- leikar. Erum leiðir „Við teljum í framkvæmdastjórn- inni, og meirihluti hnefaleikanefndar, að með því að vera að blanda svona greinum saman sé verið að skemma hugsanlega fyrir framtíðaruppbygg- ingu hnefaleikaíþróttarinnar. Við er- um leiðir yfir þessu og skiljum vel ákvörðun Ágústar,“ segir Stefán. Formaður hnefaleikanefndar ÍSÍ tilkynnir um afsögn sína Efnt til keppni í Muay Thai þvert á gefin loforð ♦ ♦ ♦ UNGUR ökumaður ók bifreið sinni á 160 km hraða eftir Sæbrautinni í fyrrinótt en hámarkshraði á þessum slóðum er 60 km/klst. Lögreglan í Reykjavík stöðvaði hann og má hann búast við að verða sviptur ökurétt- indum og að þurfa að greiða dágóða sekt fyrir hraðaksturinn og fyrir að vera með útrunnið ökuskírteini. Í reglugerð um sektir vegna um- ferðarlagabrota er ekki gert ráð fyr- ir slíkum ofsaakstri. Sektarviðmið nær aðeins upp í 140 km hraða á veg- um þar sem hámarkshraði er 60 km/ klst. Sekt við slíku er 70.000 krónur og svipting í þrjá mánuði. 100 km yfir hámarkshraða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.