Morgunblaðið - 13.03.2003, Page 18
ERLENT
18 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ZORAN Djindjic, sem í gær var
ráðinn af dögum í Belgrad, lék lyk-
ilhlutverk í mótmælaaðgerðunum
sem urðu til þess að Slobodan Mil-
osevic, þáverandi forseti Júgóslav-
íu, hrökklaðist frá völdum í októ-
ber 2000. Það var jafnframt
Djindjic sem framseldi Milosevic
til stríðsglæpadómstólsins í Haag í
Hollandi snemma árs 2001 en
Djindjic vissi sem var að með því
að framselja Milosevic yrði líklegra
að Vesturveldin veittu Serbíu þá
efnahagsaðstoð, sem svo sárlega
vantaði.
Djindjic, sem hafði verið for-
sætisráðherra Serbíu frá því í
janúar 2001, var skotinn tvisvar
sinnum í brjóstið fyrir framan
stjórnarráðið serbneska um hádeg-
isbilið að ísl. tíma. Fullyrt er að
tveir menn hafi verið handteknir
vegna tilræðisins. Grunur lék á því
í febrúar að Djindjic, sem var
fimmtugur að aldri, hefði verið
sýnt banatilræði þegar flutninga-
bíll beygði skyndilega í veg fyrir
bílalest forsætisráðherrans í Bel-
grad. Naumlega tókst að afstýra
árekstri og Djindjic gerði lítið úr
málinu síðar og sagði að ekkert
myndi stöðva lýðræðisumbætur í
landinu.
Baráttumaður fyrir lýðræði
„Ef einhver heldur að hægt sé
að stöðva umbótaþróunina með því
að ryðja mér úr vegi, þá er það
mikill misskilningur,“ sagði Djindj-
ic þá.
Taldi hann líklegt að málið
tengdist tilraunum stjórnvalda til
að uppræta skipulagða glæpastarf-
semi.
Djindjic fæddist í Bosanski Sam-
ac, sem nú tilheyrir serbneska
hlutanum í Bosníu. Strax á áttunda
áratugnum, þegar Tító var enn á
lífi og réð ríkjum í gömlu Júgó-
slavíu, tók Djindjic þátt í baráttu
lýðræðisafla í landinu. Mátti hann
fyrir vikið dúsa í fangaklefa um
nokkurra mánaða skeið. Síðar fór
hann í útlegð, bjó um árabil í
Þýskalandi og náði sér þar í dokt-
orsgráðu í heimspeki. Hann sneri
síðan aftur til Júgóslavíu, kenndi
heimspeki í Belgrad og hóf afskipti
af stjórnmálum á nýjan leik 1989
þegar hann átti hlut að stofnun
Demókrataflokksins svonefnda.
Frá 1990 átti hann sæti á serb-
neska þinginu og varð leiðtogi
Demókrataflokksins skömmu síðar.
Djindjic varð hins vegar fyrst
þekktur svo um munaði árið 1996
þegar hann var í forystu þeirra
sem um þriggja mánaða skeið
stóðu fyrir fjöldamótmælum gegn
stjórn Milosevics. Milosevic sat
hins vegar sem fastast og mótmæl-
in fjöruðu út.
Djindjic var borgarstjóri í Bel-
grad um skeið 1996 og var áfram í
forystusveit stjórnarandstæðinga
undir lok valdatíma Milosevics. Í
forsetakosningunum í Júgóslavíu
árið 2000 studdi hann annan bar-
áttumann fyrir lýðræði, Vojislav
Kostunica, og í sameiningu tókst
þeim að koma Milosevic frá völd-
um.
Þá Djindjic og Kostunica greindi
hins vegar mjög á um hvernig best
skyldi haldið á málum Serbíu og
Júgóslavíu og olli ágreiningur
þeirra því að umbætur í efnahags-
og félagsmálum hafa gengið hægt.
Naut ekki alþýðuhylli
Margir í Júgóslavíu höfðu horn í
síðu Djindjic en hann var ákafur
talsmaður umbóta og samstarfs við
Vesturlönd. Hann leit svo á að
Serbía yrði að taka upp náin tengsl
við vestræn ríki og vildi sýna
stríðsglæpadómstóli Sameinuðu
þjóðanna samvinnu. Hann beitti
sér m.a. fyrir því að Milosevic var
handtekinn og síðan framseldur til
Haag þar sem hann er nú fyrir
rétti ákærður um stríðsglæpi og
þjóðarmorð í Bosníu-stríðinu 1992–
1995. Margir urðu til að gagnrýna
Djindjic fyrir þetta, þ.á m. Kost-
unica.
Djindjic naut ekki heldur mikilla
vinsælda meðal almennings enda
fannst mörgum hann of hallur und-
ir Vesturveldin, einkum eftir loft-
árásir Atlantshafsbandalagsins á
Júgóslavíu 1999. Erfitt efnahags-
ástand olli því jafnframt að margir
efuðust um umbótaáætlanir for-
sætisráðherrans.
Zoran Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, skotinn til bana fyrir framan stjórnarráðið í Belgrad
Baráttumaður
fyrir lýðræðis-
umbótum
Bar ábyrgð á því að Slobodan
Milosevic var framseldur til Haag
Belgrad. AFP, AP.
AP
Zoran Djindjic (t.v.) ásamt Vuk Draskovic árið 1997 en þá stóðu þeir fyrir
mótmælaaðgerðum gegn Slobodan Milosevic í Belgrad.
SPRENGJAN sem bandaríski flugherinn sprengdi í tilrauna-
skyni í fyrradag er manna í millum kölluð „móðir allra
sprengna“. Hún er tíu þúsund kg á þyngd – þ.e. 10 tonn –
stærsta hefðbundna sprengjan sem Bandaríkjamenn hafa fram-
leitt og eiga nú í vopnabúri sínu.
„Þetta er engin smásprengja,“ sagði Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, á fundi með fréttamönnum í
fyrrakvöld.
Richard Myers hershöfðingi, yfirmaður bandaríska herráðs-
ins, vildi ekki fullyrða að sprengjan yrði notuð í þeim hernaðar-
aðgerðum í Írak, sem líklegt er að Bandaríkjamenn hefji innan
skamms. „Þó er auðvitað ljóst að öll vopn, sem við höfum yfir að
ráða, kunna að verða notuð, jafnvel þó að enn sé verið að prófa
þau,“ bætti Myers við.
Rumsfeld vildi ekki gera mikið úr því að sprengjan hefði verið
sprengd í tilraunaskyni en viðurkenndi þó fúslega að hún hefði
verið prófuð til að auka enn þrýstinginn á Íraka um að afvopnast.
Íbúar í Flórída varaðir við
Sprengjan var sprengd um kl. 18 að ísl. tíma í fyrradag á
svæði sem flugher Bandaríkjanna hefur yfir að ráða í Flórída.
Olli sprengingin því að mikið reykský, svokallað sveppaský,
steig til himins og jörðin hristist líkt og ef jarðskjálfti hefði orðið.
Íbúar nágrannabyggða höfðu áður verið varaðir við að gera ætti
tilraunir með sprengjuna.
Hafist var handa við þróun sprengjunnar á síðasta ári en gert
er ráð fyrir að hún verði fullbúin síðar á þessu ári. Sprengjunni,
MOAB, er stýrt á tiltekin skotmörk með gervihnattabúnaði, auk
þess að búnaður á henni aðstoðar við að tryggja að sprengjan
lendir ekki fjær en 13 metra frá skotmarkinu. Er sprengjan svo
stór að ýta þurfti henni á sleða út úr C-130-flutningaflugvélinni,
sem notuð var við tilraunasprenginguna á þriðjudag.
„Þetta er engin smásprengja“
Bandaríkjamenn hafa smíðað „móður allra sprengna“
– þeir vilja ekki fullyrða að hún yrði notuð í stríði við Írak
Sprengjan er næstum 10 tonn á þyngd og er stærsta hefðbundna sprengjan sem Bandaríkjamenn hafa smíðað og eiga í vopnabúri sínu.
Reuters
Sprengjunni er sleppt og ský stígur upp eftir að hún hafði sprungið á jörðu niðri.
Washington. AFP.
TORE Forsberg, fyrrverandi
yfirmaður Säpo, sænsku leyni-
þjónustunnar, segir í nýrri bók,
að Christer
Pettersson
hafi skotið Olof
Palme, for-
sætisráðherra
Svíþjóðar, fyr-
ir mistök.
Forsberg
segist hafa
þessar upplýs-
ingar frá sex-
tugum manni,
sem hlotið hafi marga dóma
fyrir gróft ofbeldi og afbrot. Er
hann aðeins kallaður „Marcus“
og er sagður hafa lifað og
hrærst í sama umhverfi og
Pettersson. Sagði Aftonbladet
sænska frá þessu í gær.
Forsberg hefur það eftir
„Marcus“, að Pettersson hafi
skuldað kráar- og leiktækjasal-
areiganda, Sigge Cedergren,
preninga og hafi auk þess brot-
ist inn í íbúð hans og stolið það-
an peningum, amfetamíni og
skammbyssu. Hafi Cedergren
þá farið að óttast um líf sitt og
fengið tvo Rússa til að drepa
Pettersson. Átti þriðji maður-
inn að benda þeim á hann en
þess í stað varaði hann Petters-
son við og sagði honum, að
hann væri á dauðalista Ceder-
grens.
Ætlaði að hræða,
ekki drepa
Pettersson ætlaði þá að jafna
um Cedergren en „Marcus“
segir, að hann hafi þó ekki ætl-
að að drepa hann, kvöldið ör-
lagaríka, 28. febrúar 1986, held-
ur hræða. Hann villtist hins
vegar á Cedergren og Palme og
endaði með því að skjóta hann.
Var Pettersson þá undir áhrif-
um fíkniefna og mjög ruglaður.
Lisbet, eiginkona Palmes,
bar kennsl á Pettersson við
sakbendingu en það var ekki
tekið gilt fyrir hæstarétti.
Forsberg segist hafa talað
margsinnis við „Marcus“ og
telji hann mjög trúverðugan.
Palme skot-
inn fyrir
mistök?
Christer
Pettersson