Morgunblaðið - 13.03.2003, Side 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAFNARFJARÐARBÆR hefur
tilkynnt þátttöku sína í samkeppni
um evrópsk umhverfisverðlaun,
sem veitt verða þeim sveitarfélög-
um sem þykja hafa staðið sig best í
viðleitninni að koma á sjálfbærri
þróun. Bærinn er eina sveitarfélag-
ið á landinu sem tekur þátt í keppn-
inni.
Á næstu dögum verður tilkynnt
um þau tíu sveitarfélög sem tekin
verða til sérstakrar skoðunar í
keppninni en eitt þeirra mun svo
hreppa verðlaunin eftirsóttu. Verð-
launaveitingin tengist átaksverkefni
um sjálfbærar borgir og bæi í Evr-
ópu, (The European Sustainable
Cities & Towns Campaign), sem á
rætur í Álaborgarsáttmálanum frá
árinu 1994.
Að sögn Huldu Steingrímsdóttur,
verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 í
Hafnarfirði, var ákaflega lærdóms-
ríkt að taka þátt í keppninni en hún
krefst þess að skilað sé inn sér-
stökum gátlista auk þess sem þátt-
tökuumsókn þarf að fylgja ítarleg
skýrsla um ástand umhverfismála
og áherslur í umhverfisstarfi við-
komandi sveitarfélags.
Góð staða varðandi félagslegt
jafnrétti og fátækt
„Við fórum ekki endilega í þetta
vegna þess að við héldum að við
myndum hampa fyrstu verðlaunun-
um heldur fékkst þarna gott yfirlit
yfir stöðuna eins og hún er í dag
þar sem sérstök áhersla er lögð á
félagslegt jafnrétti og fátækt, heilsu
og sorpmál,“ segir Hulda. „Það
endurspeglar að í sjálfbærri þróun
er ekki einungis verið að tala um
sorp og mikilvægi þess að skola
fernur heldur er hugmyndin að
flétta saman fólki, umhverfi og pen-
ingum.“
Hún segir það hafa verið heil-
mikla vinnu að fara í gegnum þessi
mál. „Satt best að segja hélt ég að
ég yrði svona tvo daga að þessu en
ég var þrjár vikur því það leyndist
ritgerðarspurning hér og þar.
Þarna gafst líka gott tækifæri til að
skoða nýja málaflokka í ljósi Stað-
ardagskrárinnar. T.d. kom mér á
óvart hvað málaflokkurinn fé-
lagslegt jafnrétti og fátækt kom vel
út hjá okkur en það er málaflokkur
sem ekki hefur tengst Staðardag-
skrárstarfinu hérna. En það kom í
ljós að við höfum þéttriðið örygg-
isnet og í raun og veru eru ótrúlega
mörg verkefni og úrræði fyrir fólk.
Hið sama má segja um önnur verk-
efni tengd heilsunni.“
Hún segir að vissulega hafi ým-
islegt komið í ljós þar sem betur
má gera og þannig séu mörg sveit-
arfélög, t.a.m. í Svíþjóð og Noregi
komin mun lengra á veg í þessum
málum.. „Þarna er þó reynt að
meta ferlið innan sveitarfélagsins
og stöðuna hvað varðar eftirfylgni
við það sem búið er að samþykkja.
Við erum búin að vera tiltölulega
stutt að vinna í þessum málum hér
á Íslandi og ég veit ekki hvort það
verður metið sérstaklega. Auðvitað
tekur tíma að fræða fólk á því að
umhverfismál eru ekki bara að
flokka sorp. Það er svo margt ann-
að sem maður getur gert, t.d. varð-
andi orkunotkun, samgöngur, inn-
kaup og fleira.“
Bærinn tekur þátt í alþjóðlegri umhverfissamkeppni
Morgunblaðið/Kristinn
Það er fleira sem skiptir máli en að skola fernur þegar hugað er að um-
hverfismálum. Til að mynda eru atriði á borð við innkaup og samgöngur
mikilvæg. Myndin er tekin fyrir utan Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
Ákaflega
lærdóms-
rík vinna
Hafnarfjörður
ÞEIR sem hafa átt leið hjá Vífils-
staðavatni að undanförnu hafa sjálf-
sagt rekið upp stór augu við að sjá
þar skilti sem á stendur að bannað sé
að veiða í vatninu fyrr en eftir 1. apríl
næstkomandi. Það er þó ekki lífríkið
sem verið er að passa upp á með
banninu heldur hefur ekki fundist
lausn á því hvernig veiðileyfasölu í
vatnið verður háttað í vor og í sumar.
Erla Bil Bjarnadóttir, garðyrkju-
stjóri í Garðabæ, segir að undanfarið
hafi orðið vart við veiðimenn við vatn-
ið. „Þetta byrjaði þegar þessi góða tíð
kom um daginn. Ráðsmaðurinn á Víf-
ilsstöðum sagði mér að það hefði ekki
gerst áður því það hefur yfirleitt ver-
ið klaki á vatninu á þessum tíma.“
Hún segir að ástæða þess að
ákveðið var að banna veiðar í vatninu
enn um sinn sé að ekki sé búið að
ákveða fyrirkomulag á veiðileyfasölu
í vatnið en hingað til hefur hún heyrt
undir Vífilsstaði. „Þar hafa verið seld
veiðileyfi sem runnu til kaupa á bún-
aði fyrir Vífilsstaði, s.s. sjónvarps-
tækjum í setustofu sjúklinga o.s.frv. Í
fyrra datt starfsemin á Vífilsstöðum
upp fyrir og þá var þetta flutt aftur til
bæjarins enda hefur svæðið verið í
eigu bæjarins síðan 1997.“
Að sögn Erlu er nú unnið að því að
finna lausn á afgreiðslu veiðileyf-
anna. „Þess vegna var ákveðið til
bráðabirgða að opna ekki fyrir veiði
fyrr en fyrsta apríl en þá vonast ég til
að við verðum búin að finna út úr
þessu.“
Hún segir enda enga ástæðu til að
fólk veiði ókeypis í vatninu á meðan
lokað er á öðrum stöðum, t.a.m. í
Elliðavatni. „Það gengur ekki að vera
ekki með neina stjórn á slíku í þessari
perlu sem Vífilsstaðavatn er.“
Það virðist þó ekki vanta áhuga á
því að hefja veiðar í vatninu sem
fyrst. „Það er fjöldi fólks búinn að
hringja í mig undanfarna daga,“ seg-
ir Erla og bætir því við að upplýs-
ingar um opnun verði settar inn á
heimasíðu Garðabæjar um leið og bú-
ið er að ganga frá því með hvaða
hætti veiðileyfasölu verður háttað.
Morgunblaðið/Kristinn
Veiðimenn klæjar í lófana eftir því að geta farið að fiska enda árferðið með
eindæmum gott. Þeir þurfa þó að bíða eftir því til 1. apríl næstkomandi.
Veiðibann til 1. apríl
Garðabær
KRAKKARNIR í Funaborg voru
ekkert hræddir við að skrýtnu fisk-
arnir í Fiskbúðinni Vör myndu bíta
þá í fingurna, enda voru fiskarnir
greinilega steindauðir og sumir
hverjir meira að segja á leiðinni á
grillið.
Í gær hélt fiskbúðin upp á 14 ára
afmæli sitt með því að bjóða fjölda
leikskólabarna á Funaborg í heim-
sókn. Gestir og gangandi gátu valið
sér sjávarfang beint upp úr fiskikör-
unum og boðið var upp á grillað
fiskmeti auk þess sem smáfólkið
fékk gos og nammi. Þá var hopp-
kastali reistur utan við búðina og
spilað var á harmónikku í fimm
tonna fiskitrukk. Það er því óhætt
að segja að það hafi verið fjör og
furðufiskar í afmælisveislunni í gær.
Morgunblaðið/Golli
Furðufiskar í
afmælisveislu
Ártúnshöfði
NÆGUR snjór er enn í Bláfjöllum
og hefur hann ekki verið meiri í
þrjú ár að sögn framkvæmdastjóra
skíðasvæðanna. Veður hefur þó ver-
ið gloppótt og valdið því að loka
hefur þurft einn og einn dag í fjöll-
unum vegna veðurs.
„Það er allt á kafi í snjó, sér-
staklega í Bláfjöllum en þar hefur
ekki verið jafnmikill snjór í þrjú
ár,“ segir Logi Sigurfinnsson, fram-
kvæmdastjóri skíðasvæða höfuð-
borgarsvæðisins. „Aðsóknin hefur
verið ágæt en engu að síður heyrir
maður mikið af því að fólk trúi ekki
að það sé svona mikill snjór. Við
getum tekið á móti miklu fleira
fólki.“ Hann segir að ekki hafi verið
stöðugt opnið í fjöllunum þar sem
inn á milli hafi þurft að loka vegna
hvassviðris. Þannig var t.d. lokað í
fjöllunum í gær en Logi segir að
opnað verði um leið og veður gefst.
Þá verði tíminn lengdur til kl. 22 á
kvöldin til að nýta tímann betur eft-
ir því sem daginn lengir.
Þá sé einnig opið í Skálafelli og á
Hengilssvæðinu en Bláfjöllin séu þó
best búin að snjó. „Þar er þetta
nánast orðið eins og jökull og það
þarf mikið að gerast til að við förum
að missa eitthvað snjóinn þarna.
Skálafellið stendur hins vegar tæp-
ara,“ segir hann.
Mesti snjór í þrjú ár
Bláfjöll
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að Kleppsvegur 52–58 verði ein-
stefna en þessi götukafli liggur á
milli Dalbrautar og lóðar DAS.
Segir í bréfi yfirverkfræðings
borgarinnar að einstefna hafi
aldrei verið formlega samþykkt
á þessum vegakafla. Þá hafi ekki
verið sett upp einstefnumerki
þrátt fyrir að í götunni séu ská-
bílastæði auk þess sem hún sé
aðeins um 10 metra breið, sem
ekki leyfi tvístefnu. Hins vegar
hafi slíkt verið gert fyrir kaflann
frá Laugarnesvegi að Dalbraut,
sem einnig sé 10 metra breiður.
Einstefna
milli Dal-
brautar og
lóðar DAS
Laugarneshverfi
Tekið verður á móti gestum
með portúgölskum fordrykk
og suðrænni sveiflu
Portúgölsk veisla
Heppinn gestur fær
vikuferð fyrir tvo á
vegum Úrvals●Útsýnar
til Portúgals að
andvirði kr.
140.800,-
við Tjörnina dagana 13.-17. mars.