Morgunblaðið - 13.03.2003, Síða 23
STJÓRN Fasteigna Akureyr-
arbæjar ræddi áhorfenda-
svæði í væntanlegu íþrótta-
húsi við Síðuskóla á síðasta
fundi sínum. Komið hafa fram
áhyggjur um að áhorfenda-
svæðið verði of lítið, m.a. í
viðtalstíma bæjarfulltrúa ný-
lega. Framkvæmdastjóra var
falið að svara erindinu og
gera grein fyrir þeim for-
sendum sem lagðar voru til
grundvallar, þegar ákvarðan-
ir voru teknar um byggingu
íþróttahúss við Síðuskóla og
einnig því rými fyrir áhorf-
endur, sem gert er ráð fyrir í
byggingunni.
Í bókun Odds Helga Hall-
dórssonar, bæjarfulltrúa
L-lista, á fundi bæjarráðs í
síðasta mánuði kom m.a. fram
að hann hefði áhyggjur af
stærð hússins og óttaðist að
skammsýni við stærðar-
ákvörðun eigi eftir að koma
niður á notkun hússins í
framtíðinni. Marsibil F. Snæ-
bjarnardóttir, bæjarfulltrúi
L-lista í stjórn Fasteigna Ak-
ureyrarbæjar, lét bóka á
fundinum að hún tæki undir
áhyggjur um að aðstaða fyrir
áhorfendur sé of lítil og komi
til með að hamla þeim mögu-
leika að hægt verði að full-
nýta húsið í framtíðinni.
Bæjarfulltrúar
L-lista
Áhorfenda-
svæði í nýju
íþróttahúsi
of lítið
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 23
Laugavegi 87
Sími 511 2004
www.dunogfidur.is
Útsölumarkaður
Verðlistans
opnar í dag kl. 12
á Suðurlandsbraut 8 (Fálkahúsið)
Opið: mán.-föstud. kl. 12-18,
laugardag kl. 11-17,
sunnudag kl. 11-16.
BRÆÐURNIR Skúli, Vilhelm og Birgir Ágústs-
synir hafa selt fyrirtæki sitt, Höldur ehf., og
gengið var frá kaupum á félaginu í gær. Hluta-
félag í eigu nokkurra lykilstjórnenda Hölds, und-
ir forystu Steingríms Birgissonar framkvæmda-
stjóra keypti fyrirtækið, en auk hans eru þeir
Bergþór Karlsson, Baldvin Birgisson og Þor-
steinn Kjartansson stærstu hluthafarnir. Fleiri
starfsmenn fyrirtækisins taka einnig þátt í kaup-
unum en með minni hlut.
Í hópi stærstu
fyrirtækja í bænum
Bræðurnir stofnuðu félagið 1. apríl 1974 þann-
ig að það er rétt að verða 29 ára, en Höldur er í
hópi stærri fyrirtækja á Akureyri. Starfsfólk
þess er að jafnaði um 150 til 180 talsins. Höldur
rekur m.a. Bílaleigu Akureyrar sem er ein
stærsta bílaleiga landsins. Þá rekur félagið hjól-
barðaverkstæði, bílasölu nýrra og notaðra bíla,
bifreiðaverkstæði, er söluaðili Olíufélagsins og
rekur þrjár bensín- og þjónustustöðvar, og er í
veitingasölu. Höldur hefur umboð fyrir Heklu á
Norðurlandi eystra sem og einnig fyrir Bern-
hard hf. á sama sviði.
Stefnum að því að efla
fyrirtækið enn frekar
„Þetta er stór dagur og við hlökkum til að tak-
ast á við þetta verkefni,“ sagði Steingrímur Birg-
isson. „Það leggst vel í okkur að taka við þessum
rekstri.“ Hann sagði stórra breytinga ekki að
vænta, en vitanlega fylgdu nýjum eigendum nýj-
ar áherslur. „Það er markmið okkar að efla og
styrkja fyrirtækið enn frekar,“ sagði Steingrím-
ur. Hann sagði fyrirtækið hafa á að skipa mikið
af góðu og hæfu starfsfólki sem ætti sinn þátt í
velgengni þess. „Við erum ánægðir með þessa
niðurstöðu og að fyrirtækið verður áfram í full-
um rekstri hér á Akureyri,“ sagði Steingrímur,
en fleiri aðilar sýndu áhuga á að kaupa þegar til
tals kom að bræðurnir ætluðu að draga sig í hlé
eftir annasama starfsævi. Saga fyrirtækisins nær
í raun allt aftur til ársins 1966 þegar Skúli hóf að
leigja út bíla í smáum stíl en starfsemin hefur
síðan vaxið og dafnað. Skúli kvaðst ánægður með
söluna og að fyrirtækið fari í hendur starfsfólks
sem unnið hefði hjá þeim bræðrum í fjöldamörg
ár. Eins lýsti hann ánægju sinni með að að-
alstöðvar félagsins yrðu áfram á Akureyri. Hann
sagði að tími hefði verið kominn til að þeir bræð-
ur hyrfu frá borði og yngri menn tækju við
rekstrinum. Skúli mun sitja í stjórn áfram fyrst
um sinn ásamt þeim Steingrími, Bergþóri, Bald-
vini og Þorsteini.
„Við bræðurnir erum afskaplega þakklátir öllu
okkar ágæta starfsfólki fyrir ára og áratuga
langt samstarf og eins þökkum við viðskiptavin-
um okkar fyrir tryggð og ánægjuleg viðskipti og
vonum að þeir muni fylgja fyrirtækinu áfram um
ókomin ár,“ sagði Skúli.
Íslandsbanki sá um fjármögnun kaupanna, en
kaupverð er trúnaðarmál.
Bræðurnir Skúli, Vilhelm og Birgir selja fyrirtæki sitt, Höldur
Hlutafélag í eigu nokkurra
lykilstjórnenda kaupir FJÓRAR umsóknir bárust umstöðu skólastjóra Brekkuskóla,
en frestur til að sækja um rann
út nú í vikunni. Þeir sem sóttu
um stöðuna eru Eva S. Ólafs-
dóttir, Danmörku, Sigfús Aðal-
steinsson, Noregi, Snorri Ósk-
arsson, Akureyri, og Karl
Erlendsson, Þelamörk.
Staða aðstoðarskólastjóra
Oddeyrarskóla var einnig aug-
lýst laus til umsóknar og sóttu
þau Eva og Sigfús einnig um
hana en aðrir umsækjendur
voru Svanhildur Daníelsdóttir,
Akureyri, Hrafnhildur Sigur-
geirsdóttir, Akureyri, og Katrín
Guðmundsdóttir, Dalvíkur-
byggð.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá skóladeild Akureyr-
arbæjar verður gengið frá ráðn-
ingu í stöðurnar síðar í þessum
mánuði eða í byrjun þess næsta.
Staða skólastjóra
Brekkuskóla
Fjórir
sóttu um
LOÐNUVERTÍÐINNI fer nú senn
að ljúka og eru mörg skip búin með
kvóta sinn og farin til hafnar. Þor-
steinn EA, fjölveiðiskip Samherja,
kom til heimahafnar á Akureyri og
var loðnunótin hífð þar í land og
tekin til viðhalds og viðgerðar hjá
Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar.
Morgunblaðið/Kristján
Loðnunótin hífð inn á netaverkstæði til viðgerðar.
Loðnunótin í viðgerð
KENNARAR í félagsgreinum og
sögu við Menntaskólann á Akureyri
samþykktu á fundi mótmæli við boð-
aðri fækkun eininga í kjarna sam-
félagsgreina á félagsfræðibraut, svo
sem fram kemur í drögum mennta-
málaráðuneytis að breytingum á
aðalnámskrá framhaldsskóla.
„Svo er að sjá sem fyrir ráðuneyt-
inu vaki að fækka fyrirhuguðum
samræmdum prófum í ensku. Slík
kerfisnauð á ekki að móta nám í
framhaldsskóla. Með þessu eru
námsbrautir gerðar einsleitari, sem
er ekki í samræmi við yfirlýst mark-
mið námskrárinnar,“ segir í ályktun
fundarins. Kennararnir telja að end-
urskoðun aðalnámskrár eigi að fara
fram í samráði við kennara.
Mótmæla boð-
aðri fækkun
eininga sam-
félagsgreina
GUÐMUNDUR Gíslason vann
glæstan sigur á Hraðskákmóti Ak-
ureyrar, hlaut 14,5 vinninga af 15
mögulegum og er því Hraðskák-
meistari Akureyrar 2003. Alls
mættu 16 skákmenn til leiks. Í öðru
sæti varð Jón Björgvinsson með 12,5
vinninga og Björn Ívar Karlsson
varð í þriðja sæti með 12 vinninga.
Stefán Bergsson hlaut 10,5 vinninga
og Þór Valtýsson 10.
Næsta mót hjá Skákfélaginu er 15
mínútna mót sem fram fer í kvöld,
fimmtudagskvöld kl. 20.
Hraðskákmeistari
Akureyrar
Guðmundur
vann
♦ ♦ ♦