Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 24
SUÐURNES 24 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Höfum til sölu mjög vönduð og vel byggð 201 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt 30 fm innbyggðum bílskúr, alls 231 fm. 4 stór svefnherbergi, 2 alvöru baðherbergi, sjónvarpshol, gott eldhús og góðar stofur. Frá stórum suðursvölum er þetta óviðjafnanlega útsýni en húsin liggja undir klöppinni sem veitir skjól frá norðanáttinni. Til afhendingar nú þegar fullfrágengin að utan múruð með marmarasalla og fokheld að innan. Verð 14,4-14,9 millj. sem gerir 62-64 þúsund kr. pr. fm. Vilt þú þetta útsýni úr þínu húsi? Upplýsingar á skrifstofu eða Brynjar í GSM 896 2299 og Sigrún í GSM 896 3672. sími: 530 1500 heimasíða: www.husakaup.is Frá Keili að Snæfellsjökli! HREPPSNEFND Vatns- leysustrandarhrepps hefur samþykkt að fella niður fast- eignagjöld vegna lóðar Skóg- ræktar- og landgræðslufélags- ins Skógfells við Háabjalla. Félagið fór þess skriflega jafn- framt á leit við sveitarfélagið að það kæmi að því að bæta aðkomu á svæðinu og óskaði eftir vinnuframlagi vinnuskól- ans. Á fundi hreppsnefndar á þriðjudag var því fagnað að umrætt svæði væri komið í umsjón heimamanna. Ætlar nefndin að taka upp viðræður við Vegagerðina um betra að- gengi að svæðinu í tengslum við tvöföldun Reykjanesbraut- ar. Þá tók nefndin einnig já- kvætt í vinnuframlag vinnu- skólans. Bætt að- gengi að Háabjalla Vogar NÝ HEIMASÍÐA Gerða- hrepps, www.gerdahrepp- ur.is, verður opnuð á morgun, föstudag. Að sögn Sigurðar Jónssonar, sveitarstjóra, mun helsta breytingin á síðunni fel- ast í því að nú verða settar reglulega inn nýjar fréttir á forsíðunni um það helsta sem er að gerast í sveitarfélaginu. „Ætlunin er að síðan verði þannig lifandi upplýsingamið- ill fyrir íbúana og aðra þá sem fylgjast vilja með málefnum Gerðahrepps,“ sagði Sig- urður. „Einnig verður nú gert ráð fyrir að fundargerðir fleiri nefnda en hreppsnefnd- ar fari á síðuna.“ Ný heimasíða Garður „EFTIR því sem ég best veit er þetta frumkvöðlastarf hér á landi,“ sagði Eiríkur Her- mannsson fræðslustjóri við Morg- unblaðið um verkefnið Lestrarmenn- ing í Reykja- nesbæ sem verið er að hleypa af stokkunum. Framkvæmd verkefnisins er áætluð til árs- ins 2006 og miðar að því að breyta lestrar- menningu í Reykjanesbæ til fram- búðar. „Verkefnið á að hafa for- gang næstu þrjú árin en að þeim tíma liðnum verða lestrarvenjur og þau góðu markmið sem við setjum vonandi orðin sjálfsögð og eðlileg, bæði í skólum og á heim- ilum og þá gerum við allt sem við getum til að viðhalda þeim venj- um,“ sagði Eiríkur. Lestur og lestrarkunnátta er nánast undirstaða alls annars náms, eins og Eiríkur benti á og þó margt af því sem lærist kunni að gleymast standi lestrarkunn- áttan ávallt eftir. „Þannig hefur það í það minnsta verið, en nú segja ýmsar kannanir okkur og niðurstöður samræmdra prófa undanfarinna ára að staða læsis, málþroska og lestrarkennslu á Suðurnesjum sé ekki eins góð og hún þyrfti að vera. Þá á bóklestur í harðri samkeppni við afþreying- armiðla, sem keppa um tíma al- mennings, þannig að iðulega skortir börn fyrirmyndir hvað lestrarvenjur og lestrarlöngun varðar. Lestrarmenning í Reykjanesbæ er tilraun til að vinna gegn þeirri þróun og minna rækilega á mikilvægi lestrar fyrir fólk á öllum aldri, ekki síst börn og unglinga.“ Samfélagslegt umbótaverkefni Verkefnið er mjög umfangs- mikið og margir koma að undir- búningi þess. Í raun er hér um samfélagslegt umbótaverkefni að ræða og því nauðsynlegt að allt samfélagið komi að því. Skipurit verkefnisins gerir ráð fyrir stýri- hópi bæjaryfirvalda, skólastjóra leik- og grunnskóla og fræðslu- stjóra. Unnið er að því að fá verk- efnisstjóra til að halda utan um daglega framkvæmd. Þrír starfs- hópar munu sjá um tiltekið ald- ursstig: 0–6 ára, 6–10 ára og 10–16 ára og hver þeirra verður í sam- starfi við verkefnisstjóra. „Hver starfshópur er skipaður fagfólki í uppeldisstéttum, hjúkrunarfræð- ingi, talmeinafræðingi og bóka- safnsfræðingi og síðan mun hver starfshópur tengjast inn á alla leik- og grunnskóla, flestar stofn- anir bæjarins, félagasamtök og stofnanir í bænum, Miðstöð sí- menntunar á Suðurnesjum, for- eldrasamtök, heimili o.s.frv,“ sagði Eiríkur. Frumkvæði að verkefninu á starfsfólk Skólaskrifstofu Reykja- nesbæjar en áætlun þess var unn- in í nánu samstarfi við kennara í leik- og grunnskólum bæjarins. Slíkt verkefni hefur ekki áður ver- ið framkvæmt hér á landi og er því um frumkvöðlastarf að ræða. Við undirbúning var þó horft til ann- arra landa þar sem svipuð verk- efni höfðu verið framkvæmd, m.a. í Danmörku og Bandaríkjunum. Lestrarmenningu í Reykja- nesbæ verður formlega hleypt af stokkunum í viku bókarinnar í aprílmánuði næstkomandi með því að leikskólabörnum verður færð bókagjöf með leiðbeiningum til foreldra um hvernig stuðla megi að örari málþroska og temja sér góðar lestrarvenjur. „Það er gæðastund að lesa góða bók með barni, ekki bara fyrir barnið held- ur ekki síður þann fullorðna. Við megum ekki gleyma því að eiga slíka stund, þrátt fyrir annir hversdagsins, langan vinnudag og offramboð af afþreyingu,“ sagði Eiríkur að lokum. Verkefnið Lestrarmenning í Reykjanesbæ að hefjast „Mikilvægt að sem flestir komi að verkinu“ Reykjanesbær Eiríkur Hermannsson segir bækur eiga í harðri samkeppni við afþrey- ingarmiðla. Þessar hnátur eru þó bókhneigðar þrátt fyrir ungan aldur. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Eiríkur Hermannsson ÞROSKAHJÁLP á Suðurnesjum var á dög- unum færður veglegur styrkur frá Starfs- mannafélagi Íslenskra Aðalverktaka. Styrk- urinn kemur úr minningarsjóði Margrétar Haraldsdóttur og er að upphæð kr. 400.000. Margrét Haraldsdóttir var starfsmaður bók- haldsdeildar Íslenskra Aðalverktaka hf. Hún lést fyrir aldur fram 31. desember 1996 að- eins 52 ára gömul. Þetta er í annað skiptið sem veitt er úr sjóðnum, en í fyrra var Krabbameinssjúkum börnum veittur styrkur úr honum. Í fréttatilkynningu frá Þroskahjálp segir að það sé mjög ánægjulegt að samtök á Suð- urnesjum fái styrkveitingu úr sjóðnum „Þroskahjálp á Suðurnesjum þakkar kærlega fyrir þetta framlag og mun það koma sér vel í verkefni félagsins, sem eru mikil og mörg.“ Þórður Þorbjörnsson, formaður starfs- mannafélags ÍAV, og Árni Ingi Stefánsson, starfsmannastjóri ÍAV, afhenda formanni Þroskahjálpar á Suðurnesjum, Halldóri Leví Björnssyni, styrkinn. ÍAV styrkir Þroskahjálp Suðurnes júdódeild voru það Einar Jón Sveinsson og Óskar Vignisson sem voru tilnefndir. Frá Golfklúbbi Grindavíkur voru tilnefndir Sigur- geir Guðjónsson og Ingvar Guð- jónsson. Frá Íþróttafélagi Grinda- víkur var tilnefndur Ólafur Már Guðmundsson. Gunnlaugur Hreinsson, formaður UMFG bauð gesti velkomna og stýrði athöfninni. Að hans mati er þetta ár eitt hið besta hvað varðar árangur grindvískra íþróttamanna. Gunnlaugur sagði einnig að senni- lega hefði aldrei verið jafn erfitt að velja í þrjú efstu sætin vegna hins mikla fjölda góðra íþróttamanna. Hlutskarpastur í þessu kjöri var Sinisa Kekic knattspyrnumaður en hann var einmitt kjörin knatt- spyrnumaður ársins hjá knatt- spyrnudeildinni og bætir nú titl- inum íþróttamaður Grindavíkur í safnið. ÞAÐ VAR fríður flokkur karla og kvenna sem mætti í hús Slysavarnadeildarinnar Þorbjarnar. Tilefnið var kjör íþróttamanns Grindavíkur fyrir árið 2002. Knatt- spyrnudeildin tilnefndi þrjá ein- staklinga en það voru þeir Paul McShane, Grétar Ólafur Hjartarson og Sinisa Kekic. Frá körfuknatt- leiksdeild voru þau Páll Axel Vil- bergsson, Helgi Jónas Guðfinnsson og Sólveig Gunnlaugsdóttir. Frá Sinisa Kekic er íþróttamaður Grindavíkur Grindavík Morgunblaðið/Garðar Vignir Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri afhendir Sinisa Kekic viðurkenninguna. Lengst til vinstri er Grétar Ólafur Hjartarson sem hafnaði í þriðja sæti og við hlið hans Páll Axel Vilbergsson sem var í öðru sæti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.