Morgunblaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINHVERJAR vikur á síðasta
hausti sofnaði ég alltaf út frá þýð-
ingum Péturs Gunnarssonar á
Marcel Proust. Ekki það að bæk-
urnar væru svo leiðinlegar, ég er
bara svo kvöldsvæf. Sömu meðferð
hljóta fleiri uppáhaldshöfundar eins
og Flaubert og W.G. Sebald, en bók
hans Hringir Satúrnusar hefur lengi
verið kvöldsvæfing hjá mér.
Þessir höfundar eiga það allir
sameiginlegt að hafa hæfileika til að
bregða upp ljóslifandi myndum af
raunveruleika síns tíma og fortíðar,
hver á sinn hátt. Öllum tekst þeim
líka að ljá raunveruleikanum sterk-
an andblæ, aldrei er neinn grár
hversdagsleiki á ferð. Gluggi á
sjúkrastofu í Hringjum Satúrnusar
eftir W.G. Sebald er greiptur í minn-
ið, kjólar Emmu Bovary, kostuleg
uppátæki þeirra félaga Bouvards og
Pécuchet í bókum Flaubert, rósa-
runnar bernsku Marcel Prousts, allt
þetta stígur lifandi, litríkt og ilmandi
fram í huga lesandans.
Raunveruleikinn og hversdags-
legt umhverfi okkar er oft viðfangs-
efni listamanna, myndlistarmanna,
rithöfunda og ekki síst ljósmyndara,
enda eiginleikar ljósmyndavélarinn-
ar að hluta til þeir að fastleggja ein-
hverskonar raunveruleika.
Sagt var um nýjustu skáldsögu
Braga Ólafssonar, Gæludýrin, að
hún fjallaði á tæpum tvöhundruð
síðum um mann sem felur sig undir
rúmi. Það þarf hæfileikaríkan höf-
und til að halda athygli lesandans án
þess að styðjast við þrælspennandi
og viðburðaríka atburðarás. Eins
þurfa listamenn og ljósmyndarar að
hafa margt til brunns að bera til að
birta okkur hinum hversdagslegt
umhverfi okkar í lifandi og nýju
ljósi. Það er sagt að ein mynd segi
meira en þúsund orð og margar
myndir gera það, ekki síst eftir-
minnilegar ljósmyndir. Skemmst er
að minnast ljósmyndasýningar í
Listasafni Íslands, Þrá augans, sl.
haust þar sem margar perlur ljós-
myndasögunnar bar fyrir augu og
nánast mátti lesa sögu, þróun og
breytingar í viðhorfi til hlutverks
ljósmynda af veggjum safnsins.
Ljósmyndin sem í upphafi var bann-
færð sem afsprengi djöfullegs tækis,
eins og segir í grein Hönnu Guð-
laugar Guðmundsdóttur sem birt
var í Lesbók í tengslum við sýn-
inguna Þrá augans, hlaut að lokum
listræna viðurkenningu.
Ljós-hraði
Fjórir íslenskir samtímaljós-
myndarar sýna nú ljósmyndir í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Verk
þeirra eru fyrst og fremst af list-
rænum toga. Myndirnar eru langt
frá því að vera hlutlaus skráning á
viðfangsefninu, rétt eins og lýsingar
Proust á smáatriðum umhverfis
bernskunnar eru fjarri því að vera
líflausar skrásetningar.
Ljósmyndararnir á sýningunni
Ljós-hraði í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur freista þess þó að ein-
hverju leyti að fanga hversdagslega
atburði, staði, aðstæður eða hluti á
filmu og miðla þar með einhverju til
áhorfenda um okkur sjálf og um-
hverfi okkar.
Vinnubrögð alla vega tveggja
þeirra einkennast af þeirri einlægni
sem oft má sjá í verkum listamanna
af yngri kynslóðinni í dag, til að
mynda er fátt í verkum þeirra sem
endurspeglar margræddar hug-
myndir til dæmis Jean Baudrillard
um ofurraunveruleikann og hvernig
búið er að fanga veruleikann í eft-
irmynd sinni. Ég hef á tilfinningunni
að þær hugmyndir hafi aldrei náð
fótfestu hjá þeim sem nú eru innan
við þrítugt, kaldhæðnin og ofurraun-
veruleikinn sem heltók mína kynslóð
(nú í kringum fertugt) hafi vikið fyr-
ir einhverri hjartans einlægni og
fegurðarþrá með fókusinn á einstak-
linginn og sjálfið. Það er einmitt ein-
staklingurinn og sjálfsmyndin sem
eru í fyrirrúmi í verkum þeirra Orra
og Sigríðar Kristínar Birnudóttur.
Þegar horft er á myndir þeirra kem-
ur staðhæfingin um að ein mynd
segi meira en þúsund orð aftur upp
en nú kannski með spurn í huga.
Ljósmyndamiðillinn ljær sig vel
fyrir portrettmyndir eins og dæmin
sýna allt frá nítjándu öld. Stórar
andlitsmyndir hefur líka ótal sinnum
borið fyrir sjónir okkar á síðastliðn-
um áratugum, t.d. vakti Þjóðverjinn
Thomas Struth athygli fyrir risa-
vaxnar andlitsmyndir af bólugröfn-
um þýskum unglingum fyrir tæpum
tveimur áratugum. Eins og Baudrill-
ard og fleiri tóku eftir á sínum tíma
er gífurlegt offramboð á myndum í
umhverfi okkar og þetta gerir e.t.v.
það að verkum að erfitt reynist að
lesa í portrettmyndir þeirra Orra og
Sigríðar, svo opnar og almennar eru
þær. Mér er hugsað til rithöfund-
anna sem ég nefndi áðan og mögu-
leikum tungumálsins til að bregða
upp ljóslifandi myndum, muninum á
því að bregða kannski upp mynd í
fáum orðum eða sýna mynd sem get-
ur sagt ótal hluti en ekki er ljóst
hverjir þeir eru.
Ofannefnd kynslóð virðist oft hafa
sjálfa sig að miðpunkti, leit hennar
að sjálfinu virðist að mestu fara
fram hið innra en ekki í hinum ytra
heimi sem umlykur okkur eða í for-
tíðinni. Það má hugsa um orð R. M.
Rilke í þessu samhengi en hann
sagði, hér í minni mjög svo lauslegu
þýðingu: „Allur efi og ranghug-
myndir eru til komin af því að fólk
leitar að hinu sammannlega innra
með sér í stað þess að leita þess í
sögunni, í birtunni, í landslaginu, í
upphafinu og dauðanum.“
Það er sérstaklega í myndröð
Katrínar Elvarsdóttur sem síðan má
sjá tengsl við hugmyndir Baudrill-
ard og fleiri um það hvernig um-
hverfi okkar skapar ímyndir og
hvernig stundum er illgreinanlegt á
milli þess sem er lifandi og tilbúið.
Eins eru myndir Kristínar Hauks-
dóttur á mörkum þess persónulega
annars vegar og almennra staðlaðra
Hvað segja myndirnar?
MYNDLIST/LJÓSMYNDUN
Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Grófarhúsi.
Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga frá 11–17. Til 30. mars.
LJÓS-HRAÐI, FJÓRIR ÍSLENSKIR
SAMTÍMALJÓSMYNDARAR
Meðferð á Falun Gong-iðkendum mótmælt 2002. Mynd eftir Júlíus Sigurjónsson í Gerðarsafni.
Sjálfsmynd eftir Sigríði Kristínu Birnudóttur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
FYRSTU 20 ÁRIN Á MORGUNBLAÐINU,
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON,
MYND ÁRSINS 2002, BLAÐALJÓS-
MYNDARAFÉLAG ÍSLANDS
Opið virka daga kl. 12-19, 13 -17
um helgar. Til 4. maí.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Noah s/l 2.490 990
Wex bolur 1.990 990
Calypso bolur 2.990 1.490
Massive buxur 3.990 1.990
Epsilon frakki 6.990 3.990
o.fl. tilboð
KRINGLUKAST
Uni ungbsængurfatn. 2.490 1.290
Apple jr bolur 1.990 1.290
Cargo buxur 3.490 1.990
Cargo peysa 2.990 1.990
Blues bam peysa 2.990 1.990
o.fl. tilboð
Kringlunni - Smáralind Smáralind