Morgunblaðið - 13.03.2003, Síða 51

Morgunblaðið - 13.03.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 51 DAGBÓK Hallveigarstíg 1 (Iðnaðarmannahúsið), sími 588 4848 Opið mán.-fös. kl. 11-18, laugard. kl. 11-16 MIÐBÆJARKAST Bolir frá.........kr. 1.900 Buxur frá.......kr. 3.900 Ítölsk barnafataverslun fyrir krakka frá 0-12 ára Laugavegi 53, s. 552 3737 NÝJAR VÖRUR FLOTT STRÁKA- OG STELPUFÖT Sængurgjafir Mikið úrval Útlendingastofnun Lokað verður föstudaginn 14. mars vegna flutninga. Opnun aftur í Skógarhlíð 6, mánudaginn 17. mars kl. 9.00. KYRRÐARDAGAR Í SKÁLHOLTI 12.–16. mars Kyrrðardagar kvenna á vegum systrasamfélagsins, fullbókaðir. 21.–23. mars Kyrrðardagar ætlaðir göngu- og útivistarfólki. Umhugsunarefni: Ævivegurinn. Leiðsögn: Sr. Halldór Reynisson og Sr. Sigurður Árni Þórðarson. Skráning hafin. 16.–19. apríl Kyrrðardagar í dymbilviku. Leiðsögn: Karl Sigurbjörnsson biskup. Fullbókað en biðlisti er opinn. Upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla, sími 486 8870, netfang: skoli@skalholt.is STJÖRNUSPÁ Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú hefur auðugt ímyndunar- afl, ert mikið fyrir mann- fagnaði og jafnan hrókur alls fagnaðar þar sem þú kemur. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur ákveðnar hug- myndir en vinir þínir vilja draga úr framkvæmdagleði þinni. Undir slíkum kring- umstæðum er betra að sitja hjá og bíða næsta dags. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú hefur á tilfinningunni að yfirmenn þínir haldi aft- ur af þér og veiti þér ekki það svigrúm sem þú telur þig þarfnast. Reyndu að líta í eigin barm. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Kröfuharka þín við sjálfan þig getur gengið út í öfgar. Þolinmæði er lykilorðið. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Mörgum finnst þeir vera einmana og einangraðir í dag, en öll él birtir upp um síðir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Persóna þín er niðurbrotin eftir samskipti við fjöl- skylduna. Reyndu engu að síður að horfa björtum augum á framtíðina. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Samskipti við fjölskylduna, yfirmenn eða vini ganga ekki vel í dag. Sýndu öðr- um þolinmæði og láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Persónur í þessu merki eru fremur órólegar í dag, því fólk langar að gera eitt- hvað allt annað en verkefni dagsins segja til um. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Samstarfsmenn sýna þér mikinn stuðning í dag. Þú munt sjá að kurteisi borgar sig í samskiptum við aðra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn í dag mun skipta miklu máli hvað varðar frama þinn og viðhorf fólks til þín. Þú átt auðvelt með að kynna þig fyrir fólki sem þú telur að sé mik- ilvægt. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Öll fjármál og viðskiptamál ganga mjög vel í dag. Raðaðu hlutunum svo eftir mikilvægi þeirra. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér finnst allt ganga upp hjá þér í dag og þú óttast ekkert. Þú hefur mikið sjálfstraust og heilbrigt viðhorf til lífsins. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það getur komið sér vel að vera gæddur hæfilegum skammti af þrjósku þegar allir vilja kasta ábyrgðinni yfir á þig. Mundu að taka sjálfstæða ákvörðun. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÁST OG ÓTTI Gagntekinn, hrifinn, utan við mig enn af æsku þinnar fyrstu munarkossum ég finn í hjarta ást og ótta senn slá undarlega saman heitum blossum. Þú ert svo björt, svo ung og blíð og góð, önd þín er gljúp, sem mjúk er höndin ljúfa. En ég á dökkt og órótt ólgublóð, og ungur sló ég sigg á mína hnúa. Það stingur mig í hjartað eins og ör: Felst, ef til vill, í bylgjum sálar minnar eitthvað, sem kynni að setja fingraför á fagurhreinan spegil sálar þinnar? Hannes Hafstein LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 13. mars, er fimmtug frú Andr- ea Steinarsdóttir, Spóahól- um 8, Reykjavík. Andrea er að heiman í dag. LESANDINN er beð- inn um að taka sér sæti í austur í vörn gegn fjórum hjörtum. Mótherjarnir í NS eru Pólverjarnir Mart- ens og Lesniewski og þeir hafa í fórum sínum óvenju- lega sagnvenju, sem þarf að útskýra: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ 7 ♥ K762 ♦ DG3 ♣KG1072 Austur ♠ DG93 ♥ 1085 ♦ ÁK10 ♣954 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 hjarta Pass 3 tíglar * Pass 3 hjörtu Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Stökk norðurs í þrjá tígla sagði frá fjórlitarstuðningi við hjartað og einspili til hliðar. Sögnin er krafa í geim, en þó ekki sterk í há- spilapunktum. Suður leit- ar að einspilinu með þrem- ur hjörtum og norður segir það vera í spaða með svari sínu á þremur gröndum. Við það missir suður áhuga á frekari slemmu- rannsóknum og lýkur sögnum í fjórum hjörtum. Makker er á skotskón- um og kemur út með smá- an tígul – fimmuna, sem virðist vera þriðja hæsta frá 3–4 spilum. Þú drepur drottningu blinds með kóng, en hvað svo? Líklega fer þetta spil aldrei niður nema makker eigi ás og þar með inn- komu til að spila aftur tígli í gegnum blindan. En hvar er ás makkers – ef hann er þá til? Ekkert er öruggt, en þó er vitað að suður missti áhuga á frekari slemmuleit þegar hann frétti af ein- spili í spaða, svo kannski er hann feitur fyrir þar og sér að einspilið fer til spillis: Norður ♠ 7 ♥ K762 ♦ DG3 ♣KG1072 Vestur Austur ♠ 10862 ♠ DG93 ♥ 4 ♥ 1085 ♦ 8654 ♦ ÁK10 ♣ÁD83 ♣954 Suður ♠ ÁK54 ♥ ÁDG93 ♦ 972 ♣6 Spilið er frá síðustu lot- unni í úrslitaleik Englend- inga og Pólverja um NEC- bikarinn og Brian Challag- han í austur skipti yfir í spaðadrottningu. Þar með gat sagnhafi hent tígli nið- ur í spaða og tryggt sér tíu slagi. Sama vörnin var endurtekin á hinu borðinu, en þar eftir sagnirnar: eitt hjarta – fjögur hjörtu. Vissulega er erfitt að spila laufi upp í þennan ógnandi lit, en þó virðist það nokkuð rökrétt eftir sagnir Pólverjanna. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 Rf6 2. Rf3 b6 3. g3 Bb7 4. Bg2 e6 5. c4 c5 6. O-O d5 7. cxd5 exd5 8. Rc3 Be7 9. Re5 O-O 10. dxc5 Bxc5 11. Bg5 Ra6 12. Bxf6 gxf6 13. Rg4 Rc7 Staðan kom upp í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Menntaskólan- um í Hamra- hlíð. Þór Val- týsson (2085) hafði hvítt gegn Sigurði Páli Steindórssyni (2175). 14. Rxd5! Rxd5 15. Bxd5 Bxd5 16. Dxd5! De7 16...Dxd5 17. Rxf6+ og hvít- ur verður tveim peðum yfir og með yfirburða- tafl. Í framhald- inu teflir hvítur af fítonskrafti. 17. e3 De6 18. Df3 Be7 19. Rh6+ Kh8 20. Rf5 Bc5 21. a3 a5 22. b4! axb4 23. axb4 Hxa1 24. Hxa1 Bxb4 25. Dg4 og svartur gafst upp þar sem 25...Hg8 er svar- að með 26. Ha8! gg hvít- ur vinnur. 2. umferð Meistaramóts Taflfélags- ins Hellis hefst kl. 19.30 í kvöld. Teflt verður í húsakynnum félagsins, Álfabakka 14a. Hvítur á leik. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hlutavelta Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 1.772 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Elín Fríða, Karen og Berglind. Morgunblaðið/Kristinn MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Kokkabókastatíf Verð 3.990 kr. Klapparstíg 44 Sími 562 3614 Litir: Svart, blátt, grænt, grátt Nýtt! drapplitur Hvað hefurðu eigin- lega verið lengi hérna á eyðieyjunni?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.