Morgunblaðið - 13.03.2003, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 13.03.2003, Qupperneq 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 55 Meistaraflokkur HK/Víkings í kvennaknattspyrnu óskar að ráða spilandi aðstoðarþjálfara, markmann eða útileikmann. Upplýsingar veitir Ólafur Ólafsson þjálfari í síma 553 2415 eða 824 7419. Meistaraflokksráð HK/Víkings í kvennaknattspyrnu. Aðstoðarþjálfari óskast ÓLÖF María Jónsdóttir, atvinnu- kylfingur úr Keili, verður ekki með á fyrsta mótinu í Futures- mótaröðinni í Bandaríkjunum sem hefst í dag. Ólöf ætlaði að vera með en í síð- ustu viku fékk hún boð frá McGreg- or kylfuframleiðendunum um að koma til Georgíu og láta mæla sig alla og í kjölfarið ætlar fyrirtækið að sjá henni fyrir kylfum. Fyrsta mótið í mótaröðinni er á Flórída og næstu tvö einnig og ætl- ar Ólöf María að vera með í þeim báðum, fyrra mótið er 25. til 28. mars á Sun ’N Lake Golf and Coutry Clup og hitt á Rogers Park- vellinum í Tampa og er það 3. til 6. apríl. Ólöf María ekki með  STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson, milliríkjadómarar í handknattleik, dæma leik spánska liðsins Ciudad Real og Celje Pivov- arna Lasko frá Slóveníu í Evr- ópukeppni bikarhafa á Spáni 30. mars. Rúnar Sigtryggsson leikur með Ciudad Real.  GUNNAR Gunnarsson verður eftirlitsmaður á leik Sävehof og danska liðsins Skjern í áskorenda- keppninni sem fram fer í Gauta- borg 30. mars.  HJÁLMAR Jónsson lagði upp annað marka sænska knattspyrnu- liðsins Gautaborg sem sigraði 1. deildarliðið Falkenberg, 2:1, í æf- ingaleik í gær.  SKANDINAVAR sáu um að dæma helming þeirra fjögurra leikja sem voru í meistaradeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Kim Milt- on Nielsen frá Danmörku dæmdi leik Real Madrid og AC Milan og Claus Bo Larsen frá Svíþjóð var með flautuna á Old Trafford þar sem United tók á móti Basel.  GUÐFINNUR Kristmannsson skoraði 2 mörk fyrir Wasaiterna þegar lið hans vann góðan sigur, 28:20, á Djurgården í sænsku 1. deildinni í handknattleik í gær- kvöld. Wasaiterna styrkti með sigr- inum stöðu sína í 7. sæti deild- arinnar en liðið þarf að ná sjötta sæti til að komast aftur í úrvals- deildina eftir að hafa fallið þaðan um áramót.  KRISTJÁN Andrésson skoraði 3 mörk fyrir GUIF sem vann stór- sigur á Lugi, 30:20, í sömu deild en þau lið eru í 2. og 3. sæti og berjast um að komast í úrslitakeppnina um sænska meistaratitilinn. Kristján er sonur Andrésar Kristjánssonar, fyrrum leikmanns með Haukum, GUIF og íslenska landsliðinu.  JOACHIM Boldsen hefur verið settur af sem fyrirliði danska lands- liðsins í handknattleik. Torben Winther, landsliðsþjálfari, var ekki sáttur við opinská ummæli Bold- sens í fjölmiðlum eftir leiki á HM í Portúgal á dögunum. Samkvæmt dönskum fjölmiðlum er líklegast að markvörðurinn Kasper Hvidt taki við fyrirliðastöðunni. FÓLK Þreytan sat greinilega í gestunumeftir erfiðan Evrópuleik á sunnudaginn. Það sást ekki síst á slökum sóknarleik þegar boltinn gekk lengi vel á milli manna án þess að til- raun væri gerð til að skjóta á markið. Garðbæingar áttu því ekki í miklum vandræðum með gestina í vörninni en markvarslan brást og því varð ekki mikill marka- munur. Á tólftu mínútu var staðan 8:5 fyrir Stjörnuna og þá tók þjálfari Gróttu/KR leikhlé. Í kjölfarið spiluðu menn hans vörnina framar og þegar við bættist að Páll Þórólfsson kom inn á óx mönnum kjarkur. Breytingin í vörninni var hins vegar lengi að skila sér en með þremur síðustu mörkum hálfleiksins tókst Gróttu/KR að kom- ast yfir í fyrsta sinn, 15:14. Fyrstu mínútur síðari hálfleiks var leikurinn í járnum en þá small vörn Gróttu/KR saman svo um mun- aði – áður en tíu mínútur voru liðnar voru gestirnir komnir með fimm marka forskot. Eitthvert kæruleysi hljóp þá í leikmenn Gróttu/KR og Stjörnumenn gengu strax á lagið og minnkuðu muninn en eftir annað leikhlé gestanna tókst þeim að ná aftur tökum á leiknum. Forystan varð mest 6 mörk og sigur Gróttu/ KR aldrei í hættu. Garðbæingar voru ágætir framan af, vel á verði í vörninni og liprir í sókninni þar sem margir létu ljós sitt skína. Hins vegar virtust þeir missa aðeins móðinn þegar mótspyrnan var mikil. David Kekelia var góður og Þórólfur Nielsen, Arnar Agnarsson, Kristján Kristjánsson og Vilhjálmur Halldórson áttu góða spretti. „Ég er himinlifandi með þennan sigur því við vorum logandi hræddir við þennan leik – það er alltaf hættu- legt að fara í næsta leik á eftir Evr- ópuleik,“ sagði Páll eftir leikinn. „Það fór mikil orka í þann leik og við vissum að þetta yrði nokkurs konar próf fyrir okkur að ná upp baráttu. Við ræddum fyrir leikinn um að við yrðum að byrja af fullum krafti en gerðum það ekki og við erum ekki betri en þetta þegar við náum ekki okkar besta leik. Þetta var enginn stjörnuleikur hjá okkur en stigin jafn mikilvæg. Við stilltum þannig upp fyrir Evrópuleikinn að við ætt- um eftir sex úrslitaleiki. Nú erum við búnir með tvo og megum ekki mis- stíga okkur ef við ætlum að komast í úrslitakeppnina. Við yrðum gríðar- lega ósáttir ef það gengur ekki upp.“ Sem fyrr segir átti Kári góðan leik í markinu og Páll og Aleksandrs Pet- ersons voru góðir. Sverrir Pálmason skilaði sínu úr horninu. DANNY Cullip, fyrirliði enska 1. deildarliðsins Brighton, segir að með tilkomu Ívars Ingimarssonar í vörn liðsins hafi varnarleikur Brighton tekið stakkaskiptum, en Ívar er sem kunnugt er í láni frá Wolves. Cullip segir að Ívar eigi stóran þátt í gengi liðsins í und- anförnum leikjum en í þeim fimm leikjum sem hann hefur leikið með liðinu hefur Brighton haldið marki sínu hreinu í þremur þeirra. „Ívar hefur staðið sig sérlega vel og það hefur verið mjög gott að leika við hlið hans í vörninni. Við höfum náð miklu betri tökum á varnarleiknum og með sama áfram- haldi eigum við góða möguleika á að halda okkur í deildinni,“ segir fyrirliði Brighton. Brighton er í fjórða neðsta sæti 1. deildarinnar með 32 stig, jafnmörg og Stoke sem er í fallsætinu. Fyrirliði Brighton hrósar Ívari Reuters Juventus hafði ástæðu til að fagna 3:2-sigri á Deportivo með marki á síðustu sekúndunum. Grótta/KR yfir- vann þreytuna MARKVARSLA skipti sköpum í Garðabænum í gærkvöld þegar Grótta/KR sótti Stjörnuna heim í efstu deild karla. Markverðir Stjörnunnar fundu sig engan veginn enda færi mótherja oft opin en í marki Gróttu/KR fór Kári Garðarsson á kostum með 21 skot varið þegar hann leysti Hlyn Morthens af hólmi. Kári hélt gestunum á floti því það var ekki fyrr en er leið á leikinn að þeir höktu í gang og unnu 35:30. Stjarnan á ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni og hafði því aðeins heiður að verja en sigurinn var Gróttu/KR mikilvægur í baráttu um síðustu sætin í úrslitakeppninni. Stefán Stefánsson skrifar Gunnar Berg hættir hjá París SG GUNNAR Berg Viktorsson, landsliðsmaður í handknatt- leik, segist nær örugglega yf- irgefa franska liðið París St. Germain í vor en tveggja ára samningi hans við lið- ið lýkur eftir tímabilið. Forráðamenn Parísarliðsins hafa ekki rætt við Gunnar um nýjan samning en hann hefur lítið fengið að spreyta sig með liðinu á yfirstand- andi leiktíð. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um hvað ég geri í framhaldinu eða hvort ég komi heim. Það getur svo sem alveg verið að ég spili áfram erlendis en það eru nokkur mál sem ég er að skoða,“ sagði Gunnar við Morgunblaðið. Gunnar hefur ekki verið sáttur við sitt hlutskipti hjá Parísarliðinu. Hann hefur lít- ið fengið að spreyta sig í sóknarleik liðsins og hefur aðeins skorað 25 mörk í þeim 17 leikjum sem hann hefur leikið á leiktíðinni. MAGNÚS Magnússon, keilari í sveit KR-a, setti á þriðjudagskvöldið glæsilegt Íslandsmet þegar hann fékk 563 í tveimur leikjum. Magnús bætti þar með níu ára gamalt met Valgeirs Guðbjartssonar, sem er núverandi formaður Keilu- sambandins, en Valgeir fékk 544 stig í tveimur leikjum 10. október 1994. Í fyrrakvöld fékk Magnús 298 fyrir fyrsta leikinn sem þýðir að hann fékk 11 fellur og síðan lágu átta keilur í síðasta skotinu. Í næsta leik fékk hann 265 og því alls 563 stig í tveimur leikjum. Ekki gekk eins vel í þriðja og síðasta leiknum en þá fékk hann 182 og því 745 stig í leiknum, sem er mjög gott. Met hjá Magnúsi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.