Morgunblaðið - 13.03.2003, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
milljóna
starfslokasamning
vi› sjálfa(n) flig
Ger›u
Vi›bótarlífeyrissparna›ur
VÍSITALA neysluverðs hækkaði
um 1,08% frá fyrra mánuði sem er
töluvert meiri hækkun en fjár-
málafyrirtækin höfðu spáð, en
spár þeirra voru á bilinu 0,4–0,6%.
Síðastliðna 12 mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 2,2%.
Mest munar um hækkun á verði
á fötum og skóm eftir vetrar-
útsölulok. Hækkunin nam 12,9%
milli mánaða eða sem svarar til
0,63% af heildarhækkun vísitöl-
unnar í mars. Verð á bensíni og
dísilolíu hækkaði um 5,1%, sem
gerir 0,19% af hækkun vísitöl-
unnar. Markaðsverð á húsnæði og
húsaleiga hækkaði um 1,2% eða
sem svarar til 0,15% af heild-
arhækkun.
Að sögn Birgis Ísleifs Gunn-
arssonar seðlabankastjóra er
hækkunin meiri en Seðlabankinn
gerði ráð fyrir. Hann segir að út-
sölulok skýri ríflega helming
hækkunarinnar en eins haldi hús-
næðisliðurinn áfram að hækka.
Segir hann að að þessu sinni virð-
ist það vera vegna nýs mats á
húsaleigu, sem fram fer á þriggja
mánaða fresti. Þar vegi mjög
þungt hækkun á leigu Félags-
bústaða í Reykjavík en leigan þar
hækkaði um 8%.
Vísitala neysluverðs
hækkar um 1,08%
Útsölulok aðalskýring hækkunar
Skörp hækkun/B1
NEMENDUR í Grunnskóla Reyðarfjarðar æfðu í gær fyrir árshátíð
skólans sem verður haldin annað kvöld. Flest skemmtiatriðin á árshá-
tíðinni eru samin af nemendum og kennurum og að sjálfsögðu kemur
stóriðjan þar við sögu, eins og í flestum þáttum mannlífsins á Austur-
landi þessa dagana. Gylfi Frímannsson, nemandi í 10. bekk, og Ásta Ás-
geirsdóttir aðstoðarskólastjóri roguðust með eitt stykki álver á milli sín
þegar ljósmyndari rakst á þau. Nota á álverið í einu atriðanna á árshá-
tíðinni.
Morgunblaðið/RAX
Með álver í höndum á leið í skólann
FULLTRÚAR olíufélaganna þriggja hafa um
skeið átt í viðræðum við fulltrúa Samkeppnis-
stofnunar um að sátt verði gerð um þau mál-
efni olíufélaganna, sem stofnunin hefur haft til
rannsóknar á annað ár í kjölfar húsleitar hjá
þeim hinn 18. desember árið 2001, að sögn
Gísla Baldurs Garðarssonar, stjórnarformanns
Olíuverzlunar Íslands. Engin niðurstaða liggur
fyrir í þeim viðræðum.
Á aðalfundi Olíuverzlunar Íslands í gær
gerði Gísli Baldur Garðarsson rannsókn Sam-
keppnisstofnunar að umræðuefni og sagði
m.a.:
„Þessi rannsókn hefur leitt í ljós að félögin
hafa gerzt brotleg við samkeppnislög. Menn
greinir að sjálfsögðu á um hversu alvarleg
þessi brot eru, en málið er enn á rannsókn-
arstigi og ég tel því ekki ástæðu til þess að
greina frá efnisatriðum. Hitt virðist nokkuð
ljóst, að félagið þurfi að greiða sektir, jafn-
framt því, sem settar verða skýrar línur um
það hvað telst heimilt í samneyti félaganna.
Slíkum leiðbeiningum munum við fagna enda
löngu tímabært að Samkeppnisstofnun gefi
leiðbeiningar.“
Of langur tími til að aðlagast
Stjórnarformaður Olís sagði að stjórnendur
Samkeppnisstofnunar hefðu áður verið hjá
Verðlagsstofnun og vissu því gjörla hvernig
málum var háttað hjá olíufélögunum og að yf-
irvöld hefðu beinlínis ætlast til þess að félögin
hefðu meira eða minna samráð. Félögin hefðu
hins vegar tekið sér of langan tíma í að aðlag-
ast breytingum.
Olíufélagið hf. ákvað fyrir rúmu ári að taka
upp samvinnu við Samkeppnisstofnun um að
upplýsa meint brot félagsins á samkeppnislög-
um. Í tilkynningu frá Olíufélaginu á þeim tíma
kom fram, að vísbendingar væru um að
ákveðnir þættir í starfsemi félagsins hefðu að
einhverju leyti stangast á við samkeppnislög.
Á aðalfundi Olís fyrir ári sagði Gísli Baldur
Garðarsson, að „olíufélögin vita, að sumt í
starfsemi félaganna kann að teljast brot á
samkeppnislögum“.
Rannsókn Samkeppnisstofnunar á viðskiptaháttum olíufélaganna
Olíufélögin ræða við Sam-
keppnisstofnun um sátt
Besta rekstrarárið/B16
SAMSKIP eru að opna skrifstofur í Suður-
Kóreu og Kína. Þarlendir starfsmenn hafa
verið ráðnir til starfa á hinar nýju skrif-
stofur sem eru í Pusan í Suður-Kóreu og
Qingdao og Dalian í Kína. Þá er stefnt að
því að fyrirtækið opni skrifstofu í Bangkok í
Taílandi síðar á þessu ári.
Starfsemi Samskipa erlendis hefur mest
beinst að löndunum sem liggja að Norð-
ursjó og Eystrasalti en fyrirtækið hefur til
þessa verið með 25 skrifstofur í 11 löndum.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, seg-
ir að útrás fyrirtækisins í austurátt sé eðli-
legt framhald á þeirri uppbyggingu sem
orðið hefur í Evrópu á undanförnum árum.
Hann segir að Samskip hafi ávallt farið þá
leið að opna skrifstofur til að þjóna við-
skiptavinum fyrirtækisins á viðskiptasvæði
þeirra. Í mjög auknum mæli sé verið að
flytja þessar vörur til Asíulanda. Asía hafi
verið og muni verða mjög mikilvægur
heimshluti fyrir neyslu á ákveðnum teg-
undum af fiski.
Samskip opna
skrifstofur
í Kína og
Suður-Kóreu
Samskip/B6
Í FYRRA horfði hver
Íslendingur að með-
altali á sjónvarp í tvo
klukkutíma og 41
mínútu daglega,
samkvæmt könnun
Gallup. Þetta er hátt
í 40 mínútum lengri
tími en meðal-
Íslendingurinn varði
fyrir framan sjón-
varpið árið 1998. Ef
leitað er enn lengra aftur í tímann má bú-
ast við að áhorfið hafi verið talsvert minna,
a.m.k. á fimmtudögum og í júlí, enda var þá
ekki annað í sjónvarpinu en stillimyndin.
Um leið og sjónvarpsáhorf hefur aukist
hefur orðið mikill vöxtur í útleigu á mynd-
böndum og DVD-diskum. Samt sem áður
hafa kvikmyndahúsin og leikhúsin að
mestu haldið sínum hlut. Íslendingar virð-
ast því hafa meiri tíma aflögu fyrir hvers
kyns afþreyingu, a.m.k. gegnir hún æ
stærra hlutverki í lífi fólks og umfangs-
mikil fyrirtæki keppast um að stytta fólki
stundir. Úr nógu er að velja. Á höfuðborg-
arsvæðinu er hægt að velja úr um 20 mis-
munandi leiksýningum á hverri viku. Kvik-
myndasölum hefur fjölgað og eru orðnir
glæsilegri og þægilegri en nokkru sinni
fyrr. Sjónvarpið, Stöð 2, Skjár einn og Sýn
auk fjölda erlendra sjónvarpsstöðva berj-
ast um sjónvarpsáhorfendur og á þétt-
býlisstöðum er sjaldnast langt í næstu
myndbandaleigu. Hafi menn ekki áhuga á
þessu má líka alltaf setjast niður með bók.
Keppt um
tíma og athygli
Viðskipti/miðopna
♦ ♦ ♦