Morgunblaðið - 19.03.2003, Side 1
Grafarvogs-
skáldin
Umfjöllun um þau í veftímarit-
inu Transcript Listir 23
Framtíðarsýnin hjá Volvo-
verksmiðjunum Bílar B1
Lifað á
Kókópöppsi
Heimsendatónleikar hjá Ókindinni
í kvöld á Grandrokk Fólk 52
VCC-hug-
myndabíllinn
STOFNAÐ 1913 76. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
NEÐRI deild breska þingsins sam-
þykkti í gærkvöldi tillögu Tonys
Blair forsætisráðherra um að heim-
ila ríkisstjórninni að „beita öllum
nauðsynlegum aðferðum“ til að af-
vopna Saddam Hussein Íraksfor-
seta. Fjögur hundruð og tólf þing-
menn samþykktu tillöguna, 149
voru á móti henni, þ. á m. stjórn-
arþingmenn. Stjórnarandstaðan
studdi Blair í málinu, en sá stuðn-
ingur réð þó ekki úrslitum.
Fréttaskýrendur sögðu að jafn-
vel þótt Blair hefði fengið tillöguna
samþykkta væri niðurstaðan nokk-
urt áfall fyrir hann, og ekki gott
veganesti fyrir yfirvofandi átök.
Áður en tillaga forsætisráðherrans
var borin upp voru greidd atkvæði
um breytingartillögu, sem nokkrir
þingmenn í flokki Blairs, Verka-
mannaflokknum, báru upp, þess
efnis að ekki hefðu enn verið færð
sannfærandi rök fyrir því að herför
til Íraks væri nauðsynleg. Sú til-
laga var felld með 396 atkvæðum
gegn 217, þ. á m. 135 atkvæðum
stjórnarþingmanna, að því er
hermt var.
Saddam fer hvergi
Ríkisstjórn Íraks hafnaði í gær
formlega tveggja sólarhringa loka-
fresti sem George W. Bush Banda-
ríkjaforseti gaf Saddam Hussein og
sonum hans í fyrrakvöld til að fara í
útlegð, ella yrði látið sverfa til stáls.
Í yfirlýsingu frá stjórninni sagði að
Írakar létu ekki útlendinga stjórna
sér og veldu sér ekki leiðtoga „sam-
kvæmt skipunum frá Washington,
London eða Tel Aviv“.
Ari Fleischer, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, útilokaði ekki í gær að
Bandaríkjamenn myndu láta til
skarar skríða áður en fresturinn
rynni út, ef Saddam hafnaði kröf-
unni um að fara í útlegð. „Saddam
Hussein verður að ráða fram úr því
hvað þetta þýðir,“ sagði Fleischer.
Bandaríkjastjórn segir að her-
sveitir sínar muni halda inn í Írak
til að leita þar að gereyðingarvopn-
um, jafnvel þótt Saddam fari að
kröfu Bush og yfirgefi landið. Þetta
kom einnig fram í gær í máli
Fleischers sem sagði bandaríska
herinn fara inn í Írak „hvað svo sem
gerist“. En Fleischer varaði Íraks-
forseta við því að ef hann færi ekki í
útlegð hefði hann „gert sín síðustu
mistök“.
Breska þingið lýsir
stuðningi við Blair
Írakar hafna
formlega loka-
fresti Banda-
ríkjamanna
Reuters
Íraksdeilan/15, 16, 17
London, Bagdad, Washington. AP.
FRAKKAR gætu kú-
vent í afstöðu sinni til
Íraksdeilunnar ef Sadd-
am Hussein Íraksfor-
seti fyrirskipaði beit-
ingu efna- eða lífefna-
vopna gegn banda-
rískum hermönnum,
sagði Jean-Daniel
Levitte, sendiherra
Frakklands í Banda-
ríkjunum, í gær.
„Ef Saddam Hussein beitir efna- eða líf-
efnavopnum myndi það gerbreyta stöð-
unni í augum Jacques Chiracs forseta
[Frakklands] og frönsku stjórnarinnar,“
sagði Levitte í samtali við sjónvarpsstöð-
ina CNN. „Chirac forseti yrði að ákveða
hvað við myndum gera til að hjálpa banda-
rísku hermönnunum, en ég get staðfest að
[beiting efnavopna] myndi gerbreyta af-
stöðu okkar til málsins.“
Frakkar hafa staðið afdráttarlaust gegn
því að ráðist verði á Írak til að afvopna
Saddam og hrekja hann frá völdum, og
hafa lagt til að áfram verði haldið vopna-
eftirliti á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
og leitað leiða til að afvopna Íraka með
friðsamlegum hætti.
Chirac sagði í gær að afarkostir þeir,
sem George W. Bush setti Saddam á
mánudagskvöldið, væru með öllu óréttlæt-
anleg, einhliða aðgerð sem stangaðist á við
vilja alþjóðasamfélagsins. Öryggisráð SÞ
kemur saman í dag að kröfu Frakka, Þjóð-
verja og Rússa, sem enn eru að reyna að
fá vopnaeftirlitinu haldið áfram.
Frakkar
gætu
kúvent
Washington. AFP.
Jacques Chirac
ÍSLAND er meðal þeirra
þrjátíu landa sem utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna
lýsti yfir í gær að vildu op-
inberlega taka þátt í tafar-
lausri afvopnun Íraka. Fimm-
tán þjóðir til viðbótar styðja
aðgerðirnar en vilja ekki að
það komi fram.
Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, segir fernt felast í
þátttöku Íslands í þessari
samfylkingu þjóða. „Í þessu felst í fyrsta lagi
heimild til yfirflugs yfir íslenska flugumsjónar-
svæðið. Í öðru lagi heimilum við afnot af Kefla-
víkurflugvelli ef þurfa þykir. Í þriðja lagi tökum
við þátt í uppbyggingu í Írak eftir að ófriði lýkur.
Í fjórða lagi tökum við pólitíska afstöðu með því
að ályktun 1441 verði fylgt eftir, að loknu fjög-
urra mánaða þófi,“ sagði Davíð.
Löndin 30 eru: Afganistan, Albanía, Ástralía,
Aserbaidsjan, Bretland, Danmörk, El Salvador,
Erítrea, Eistland, Eþíópía, Filippseyjar,
Georgía, Holland, Ísland, Ítalía, Japan, Kól-
umbía, S-Kórea, Lettland, Litháen, Makedónía,
Níkaragúa, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Spánn,
Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland og Úsbekist-
an.
Richard Boucher, talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, sagði í gær að hvert land legði
sitt af mörkum, á þann hátt sem því þætti viðeig-
andi. Til viðbótar við þessi þrjátíu lönd hefðu
a.m.k. fimmtán önnur boðið aðstoð sína, gripi
Saddam Hussein til gjöreyðingarvopna. Þau
vildu ekki að stuðnings þeirra yrði getið enn sem
komið er, en þau mundu senda hersveitir á vett-
vang, t.d. sérfræðinga í kjarnorku-, lífefna- og
efnavopnum gripi Íraksstjórn til slíkra vopna. Þá
eru líkur til þess að fleiri þjóðir muni heimila
Bandaríkjamönnum aðgang um flughelgi, að-
gang að bækistöðvum eða lýsa yfir vilja til frið-
argæslu og uppbyggingar að átökum loknum.
Ísland tekur þátt í uppbygg-
ingu í Írak að stríði loknu
Davíð Oddsson
forsætisráðherra.
ÞÚSUNDIR manna mótmæltu á
götum Bagdad í gær stefnu
Bandaríkjamanna og yfirvofandi
árás þeirra á Írak. Sjónvarps- og
útvarpsstöðvar hvöttu fólk til að
láta í ljósi stuðning við leiðtoga
sinn. Veifuðu margir myndum af
Saddam Husssein forseta og lof-
uðu að fórna „sál sinni og blóði“
fyrir hann.
Í Alabama í Bandaríkjunum
(t.v.) faðmaði Ashley Morse, sem
er átta ára, föður sinn, Curtis
Morse, áður en hann hélt af stað
með herdeild sinni til Mið-Austur-
landa. Nú eru um 300.000 banda-
rískir hermenn og um 45.000
breskir komnir til Persaflóasvæð-
isins.
AP
Átökin vofa yfir
YFIRVOFANDI stríð í Írak kann að
leiða til „mikilla hörmunga,“ sagði
Ramiro da Silva, yfirmaður neyðarað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í
Írak, í gær, eftir að hann hafði yfirgef-
ið landið. Hann var í hópi síðustu
starfsmanna SÞ sem héldu frá Írak
eftir að Bandaríkjamenn gerðu Sadd-
am Hussein að fara í útlegð en sæta
árás ella.
Da Silva sagðist búast við að mat-
vælaskorturinn í landinu muni aukast,
komi til stríðs, „og svo myndast auð-
vitað allar aðstæður til að farsóttir
komi upp“.
Fréttamaður breska ríkisútvarps-
ins, BBC, í Bagdad, sagði í gær að íbú-
ar borgarinnar væru að búa sig undir
stríð, einkum með því að sanka að sér
matvælum og eldsneyti. Örtröð mynd-
aðist í bakaríum og við bensínstöðvar,
en hillur margra verslana voru tómar
þar eð kaupmenn hafa komið vörum
sínum undan af ótta við eyðileggingu
yfirvofandi stríðs.
Þá hafa einnig borist fréttir af mikl-
um fjölda á flótta frá Bagdad og öðrum
borgum landsins.
Óttast
farsóttir
Larnaca á Kýpur. AP.