Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 18
ERLENT 18 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ SONUR Nizars al- Khazraji, fyrrverandi yf- irmanns íraska hersins, sem hvarf úr stofufang- elsi í Danmörku, hélt því í gær fram að faðir sinn hefði verið numinn á brott af útsendurum Íraksstjórnar. „Ég held að (íraskir) leyniþjónustumenn hafi tekið hann, allt bendir til þess,“ sagði sonurinn, Ahmed al- Khazraji, í Kaupmannahöfn í gær, án þess að framvísa nokkrum sönnunum fyrir þessari fullyrð- ingu sinni. Danski ríkissaksóknarinn Birg- itte Vestberg sagðist ekki vita hvort hershöfðinginn hefði reynt að flýja land eða hvort hann hefði verið numinn á brott. „Hafi hann farið sjálfviljugur úr landi á honum mjög sennilega eftir að skjóta fljótlega upp í fjöl- miðlum, þar sem hann kann vel við sig í kastljósi þeirra,“ tjáði Vestberg AP-fréttastofunni. Al-Khazraji hafði verið í stofu- fangelsi á heimili sínu í Sorø, um 100 km suður af Kaupmanna- höfn, frá því í nóvember í fyrra, en hann hafði dvalið í Danmörku frá því árið 1999. Hann hvarf á mánudagsmorg- un, eftir að hafa farið út á stétt til að reykja. Interpol gaf út alþjóð- lega handtökuskipun á hendur honum. Vestberg er að rann- saka ásakanir um að al- Khazraji, sem var yfirmaður herráðs íraska landhersins þeg- ar eiturgasárásir voru gerðar á Kúrda í Norður-Írak árið 1988, hafi átt þátt í þessum árásum. Hann neitaði því staðfastlega að hafa komið nálægt þeim. „Mér líður eins og ljóni í búri,“ sagði hann í síðasta mánuði, þeg- ar stofufangelsisúrskurðurinn yfir honum var framlengdur. „Ég ætti að vera í Írak og taka forystu um að leiða þjóðina og herinn í uppreisn gegn Saddam Hussein,“ sagði hann. Al-Khazraji var álitinn stríðs- hetja í Írak fyrir þátt sinn í stríð- inu við Íran 1980-1988, en Sadd- am Hussein rak hann árið 1990. Numinn á brott eða á flótta? Kaupmannahöfn. AP. Fyrrverandi íraskur hershöfðingi horfinn úr stofufangelsi í Danmörku Birgitte Vestberg saksóknari. ÞING Palestínumanna samþykkti í gær frumvarp þar sem kveðið er á um hlutverk væntanlegs forsætis- ráðherra og hafnaði um leið tilraun- um Yassers Arafats, leiðtoga Palest- ínumanna, til að takmarka valdsvið þessa nýja embættis. Arafat hefur verið mjög tregur til að afsala sér miklu af völdum til væntanlegs forsætisráðherra en þingmenn hafa á hinn bóginn sýnt af sér æ meira sjálfstæði gagnvart hon- um. Í fyrradag neyddist til dæmis Arafat til að falla frá kröfu um rétt til að hafa áhrif á skipan ráðherra. Á Vesturlöndum hefur verið fylgst vel með baráttunni milli Arafats og þingsins en flestir, og líka Palestínu- menn sjálfir, telja tíma til kominn, að hann fari að draga sig í hlé. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í síðustu viku, að skipan forsætisráð- herra með raunveruleg völd væri forsenda fyrir því, að Bandaríkja- stjórn legði fram svokallaðan „veg- vísi“ að friði í Miðausturlöndum. Þingið samþykkti skipan forsætis- ráðherra með 69 atkvæðum en einn sat hjá. Verður Arafat nú að undirrita samþykktina og mun síðan bjóða Mahmoud Abbas, öðrum æðsta manni innan PLO, Frelsisfylkingar Palestínumanna, embættið. Skipan forsætisráð- herra samþykkt Ramallah. AFP, AP. EITT af því sem skýrt hefur komið í ljós í þeim óvenju hörðu deilum milli bandamanna í Atl- antshafsbandalaginu, sem ágreiningurinn um Íraksmálið hefur valdið, er að Evrópuþjóð- irnar í NATO hafa of lengi látið sér nægja að hvíla undir hernaðarlegum verndarvæng Bandaríkjanna. Ekki verði umflúið að þau leggi meira af mörkum til eigin varna. Þetta kom fram í máli Erics Povel, sem er hollenzki fulltrúinn á upplýsingaskrifstofu að- alstöðva Atlantshafsbandalagsins í Brussel, en hann hélt erindi um stöðu og stefnu NATO á fundi Samtaka um vestræna samvinnu, Varð- bergs, á Hótel Sögu í fyrrakvöld og í Háskóla Íslands í gær. Povel minnti á, að Bandaríkin leggja nú meira til varnarmála en þau 20 ríki sem næst eru á lista yfir útgjöld til þessa málaflokks. Povel leggur áherzlu á, að ekki beri að gera of mikið úr þeirri misklíð sem þessa stundina einkenni samskiptin milli sumra evrópsku NATO-ríkjanna annars vegar, með Frakka í broddi fylkingar, og Bandaríkjamanna hins vegar. Hafa beri í huga, að þetta sé ekki í fyrsta sinn í áratuga langri sögu bandalagsins sem ágreiningur komi upp innan þess um ein- stök mál. Ekki megi láta ástandið eins og það er í augnablikinu, sem mótast af aðstæðum og þeim sem eru nú við völd í hlutaðeigandi lönd- um, byrgja sér sýn á hina breiðu samstöðu sem eftir sem áður ríki milli bandalagsþjóð- anna þegar til lengri tíma sé litið. Evrópumenn megi heldur ekki gleyma því, hve hryðjuverkaárásirnar í New York og Washington D.C. hinn 9. september 2001 breyttu miklu fyrir Bandaríkjamenn. Þeir líti hættur heimsins öðrum augum eftir þetta en áður. Og þeir hafi pólitískan vilja og hernaðar- lega getu til að gera það sem þeim þykir rétt- ast til að mæta þessum hættum, og það einir síns liðs ef aðrir vilja ekki fylgja þeim. „Það var óumdeilt að aðgerðirnar í Afganist- an voru með réttu byggðar á 51. grein stofn- sáttmála SÞ um sjálfsvarnarrétt ríkja. Annað gildir um Írak,“ segir Povel. Gagnrýnendur stjórnvalda í Washington segi Bandaríkja- menn vera þar að grípa til „fyrirbyggjandi árásar“, eins og getið er um í endurnýjaðri varnarstefnu Bandaríkjanna sem birt var í fyrrahaust. Aðrir segi að í Íraksmálinu séu Bandaríkjamenn aðeins að hjálpa Sameinuðu þjóðunum að knýja Íraka til að hlíta álykt- unum samtakanna. Blessun SÞ sótt eftir á líkt og í Kosovo-deilunni? Mestu vonina til að fljótt takist að berja í bresti samstarfsins yfir Atlantshafið segir Povel felast í því að hernaðaraðgerðir í Írak taki fljótt af og menn snúi sér sameiginlega að uppbyggingarstarfi – og sæki hugsanlega blessun SÞ eftir á, eins og gert var eftir loft- árásir NATO á Serbíu í Kosovo-deilunni. Spurður hvort hann sjái fyrir sér að NATO gegni hlutverki við enduruppbyggingu í Írak segir hann að sumir hafi vissulega velt vöngum yfir þessu. NATO gegni veigamiklu hlutverki við stjórnun friðargæzluverkefnisins í Afgan- istan. Því sé eðlilegt að spurt sé: þar sem sömu þjóðir og hvort eð er munu leggja mest af mörkum við þetta starf hafa þetta sameigin- lega verkfæri – NATO – sem hefur reynslu af svona verkefnum, hvers vegna ekki að nota það? Hann tekur þó skýrt fram að þetta sé ekki opinber stefna NATO, „þetta er pólitísk ákvörðun sem á þessu stigi er aðeins velt vöng- um yfir hvort fýsilegt sé að taka“. En er sú stefna Bandaríkjamanna, að fara sínar eigin leiðir til lausnar vandamála á al- þjóðavettvangi (á ensku „unilateralism“), að grafa undan fjölþjóðlegum samstarfsstofn- unum eins og NATO? Povel segist engan tilgang sjá í því að bera ásakanir um slíkt á Bandaríkjamenn. „Banda- ríkjastjórn hefur mánuðum saman leitazt við að leysa málin í gegn um stofnanir SÞ. Afgan- istan-herförin var gerð á grundvelli alþjóða- laga. Og jafnvel í Íraksmálinu nýtur herská stefna Bandaríkjamanna stuðnings Breta, Spánverja og fleiri ríkja. Að mínu mati er því þetta tal um einhliða stefnu Bandaríkjamanna að minnsta kosti stórlega ýkt,“ segir Povel. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott Povel segir það gríðarmikilvægt fyrir NATO að nýta þann styr sem staðið hefur um Íraksmálið sem tækifæri til að eiga í framhald- inu hreinskilnisleg skoðanaskipti um hlutverk og tilgang varnarsamstarfsins yfir Atlantshaf. „Kannski verðum við að semja nýja grund- vallarherfræðiáætlun fyrir bandalagið (...) til að auka á skilning beggja vegna Atlantsála,“ segir Povel. „Ef við erum á einu máli um að við verðum að snúa bökum saman, látum við ekki svona misklíð eins og nú gætir spilla varanlega fyrir; þá fer allt vel.“ Segja má að máltækið „fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott“ eigi hér við. „Kannski þurftum við einmitt á svona rifrildi að halda til að skerpa vitund okkar fyrir því hve mikilvægar hinar fjöl- og alþjóðlegu sam- starfsstofnanir eru til að tryggja öryggi okk- ar,“ segir Povel. „Það skaðlegasta væri ef svo færi að hver og einn reyndi að finna sínar eigin lausnir upp á sitt einsdæmi, eða þessi og hinn mynduðu tækifærisbandalög allt eftir að- stæðum hverju sinni – þá færu bandalögin að kýta sín í milli og niðurstaðan yrði hrikaleg. Við þekkjum allt of vel hvað slíkt fyrirkomulag á alþjóðamálum hafði í för með sér í Evrópu á 20. öld. Þá skelfilegu reynslu viljum við ekki endurtaka, við viljum hindra sundrungu sam- starfsstofnananna sem við höfum byggt upp,“ segir Povel. En hann segir þetta jafnframt vera áminn- ingu til þeirrar kynslóðar í okkar heimshluta, sem er alin upp við frið og stöðugleika. „Raun- in er sú að við lítum á öryggið sem of sjálfsagð- an hlut,“ segir Povel. „Öryggi er ekki sjálf- sagður hlutur lengur. Við stöndum frammi fyrir ýmis konar nýjum ógnum við öryggi okk- ar, ekki sízt við Evrópumenn. Sem ábyrg þjóð- félög verðum við að vera reiðubúin að greiða það sem öryggið kostar. Nú kemur þetta atriði ef til vill betur fram; að við verðum að „verða fullorðin“ og gera okkur grein fyrir að við lif- um ekki í öruggum heimi. Ógnirnar eru marg- ar og hvert samfélag verður að vera reiðubúið að gera það sem þarf til að verja eigið sam- félag og gildi þess.“ Því sé að minnsta kosti hægt að slá föstu, hvað sem líði öllum ágreiningi, að Evrópu- menn og Bandaríkjamenn hafa að mjög miklu leyti sömu gildi. Minna má á að það er aðeins eitt og hálft ár síðan franska blaðið Le Monde skrifaði í risaforsíðufyrirsögn: „Við erum öll Bandaríkjamenn.“ NATO-þjóðir verða að snúa bökum saman Morgunblaðið/Golli Eric Povel á fundi SVS/Varðbergs. ’ Mesta vonin til að fljótttakist að berja í bresti samstarfsins yfir Atlants- hafið felst í því að hern- aðaraðgerðir í Írak taki fljótt af og menn snúi sér sameiginlega að uppbygg- ingarstarfi. ‘ auar@mbl.is Eric Povel, upplýsingafulltrúi í höfuðstöðvum NATO, segir að þær deilur sem blossað hafi upp milli banda- lagsþjóða báðum megin Atlantshafsins beri að nýta sem tækifæri til að efla samstarfið á ný. Í samtali við Auðun Arnórsson segir hann allar Evrópuþjóðir þurfa að leggja meira af mörkum til að tryggja eigið öryggi. MEÐLIMIR í alþjóðlegum sam- stöðusamtökum með málstað Pal- estínumanna hlaupa undan jarðýtu Ísraelshers í Rafah-flóttamanna- búðunum á Gazasvæðinu í gær. Ung bandarísk kona, sem tók þátt í mótmælaaðgerðum gegn nið- urrifi Ísraela á húsum Palestínu- manna í Rafah-búðunum, varð á sunnudag undir slíkri jarðýtu. Sam- herjar konunnar, sem hét Rachel Corrie, héldu því fram að dauði hennar hefði ekki verið neitt slys. Ýtustjórinn hefði séð hana mæta- vel, þar sem hún sat fyrir framan hús sem stóð til að rífa. Að sögn talsmanna bandaríska utanríkisráðuneytisins bíða banda- rísk stjórnvöld eftir niðurstöðum rannsóknar á því hvernig dauða Corrie bar að áður en þau taka af- stöðu til málsins. Reuters Mótmæli á Gaza
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.