Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ L ipponen gæti misst völdin í hendur konu“. Þannig leit fyrirsögn erlendra frétta í DV út um helgina. Sjálf fréttin hófst síðan á þessum orðum: „Svo kann að fara að kona verði forsætisráðherra Finnlands eftir þingkosningarnar á sunnudag.“ Í mínum huga segir þessi fyrirsögn og þessi frétt meira en mörg orð um það hvar við erum stödd í jafnréttisbaráttu kynjanna. Það er enn fréttaefni að kona skyldi verða forsætisráð- herra. Gott og vel. En það var þó annað sem vakti athygli mína við fyrrgreinda fyrirsögn og frétt; ekki þótti nefnilega ástæða til að nafngreina umrædda konu fyrr en síðar í fréttinni, þ.e. eftir að búið var að koma þeim skila- boðum á framfæri að Lipponen gæti misst völdin í hendur konu. Konan umrædda heitir hins vegar Anneli Jäätt- eenmäki og er leiðtogi Miðflokks- ins í Finnlandi. Og til að forðast allan misskilning er Lipponen, leiðtogi jafnaðarmanna og for- sætisráðherra Finnlands – enn sem komið er. Lipponen gæti nefnilega misst völdin til Jäätt- eenmäki. Ég spurði nokkra kunningja mína hvort þeir sæju eitthvað at- hugavert við fyrrnefnda fyr- irsögn. Það sáu þeir ekki. En þegar ég sneri dæminu við kom annað hljóð í strokkinn. Eða hvað finnst þér lesandi góður um fyr- irsögnina: „Jäätteenmäki gæti misst völdin í hendur karls“? Það er nefnilega oft eitthvað bogið við umfjöllun fjölmiðla um konur. Mér er t.d. minnisstætt þegar Mo Mowlam, sem var Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni á árunum 1997 til 2000, ákvað að draga sig í hlé á vettvangi stjórnmálanna. Í Morgunblaðsfrétt um þessa ákvörðun hennar stóð m.a.: „Mowlan þótti litrík á ráðherra- ferli sínum […]. Hún þótti einnig hirða lítið um útlit sitt.“ Ég man eftir sams konar „kommenti“ um útlit hennar þegar fjallað var um mál ráðherrans í fréttum Sjón- varpsins. Gott ef ekki var bætt um betur og tekið fram að hár hennar hafi jafnan þótt afar úfið og tætingslegt. Mér finnst afar ólíklegt að það yrði fjallað um karlkynsráðherra á þennan hátt. Siv Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra hefur oft talað um það að konur í stjórnmálum fengju stundum öðruvísi umfjöllun í fjöl- miðlum en karlar. Þær væru gjarnan dæmdar eftir útliti sínu og orð viðhöfð um þær sem aldrei tíðkuðust þegar karlar ættu í hlut. Siv hefur tekið dæmi af sjálfri sér og m.a. nefnt frétt í DV frá 1999 þar sem segir: „Það er útbreidd skoðun innan Fram- sóknarflokksins að eftir á að hyggja hafi hin fagra [feitletrun blaðamanns] Siv Friðleifsdóttir sem féll fyrir Finni í formanns- kjöri því trúlega verið betri kost- ur fyrir flokkinn.“ Siv hefur einnig nefnt aðra frétt í DV sem birtist sama ár: „Nú segir sagan að annar vandi steðji að Halldóri Ásgrímssyni, en hann er sá að halda hinni syk- ursætu [feitletrun blaðamanns] Siv Friðleifsdóttur utan rík- isstjórnarinnar en hún lætur að sögn illa að stjórn.“ Siv hefur sagt að hún hafi séð fleiri slík lýs- ingarorð í umfjöllun um sig. T.d. „hin glæsilega,“ „hið álitlega adamsrif,“ og „hin unga ferska meðvitaða kona.“ Hún hefur hins vegar spurt hvernig fólki þætti að sjá eftirfarandi lýsingar á karlkynsráðherrum: „Hinn syk- ursæti Guðni Ágústsson“ eða „hið álitlega adamsrif Árni M. Mathiesen.“ Sennilega er umræddur frétta- flutningur af stjórnmálakonum lýsandi fyrir viðhorf almennings til kvenna, sérstaklega stjórn- málakvenna; meira er t.d. tekið eftir útliti og klæðnaði kvenna al- mennt en útliti og klæðnaði karla. Það er hins vegar spurning hvort fjölmiðlamenn, þeir sem skrifa fréttirnar, eigi að taka þátt í þeim leik. Er ekki betra að láta málefnin ráða og það sem um- rædd stjórnmálakona stendur fyrir ráða för fremur en álit við- komandi fréttamanns eða al- mennings á útliti hennar? Svo ég vitni aftur í Siv Frið- leifsdóttur þá hefur hún líka vitn- að í önnur ummæli sem höfð voru eftir karlmanni í DV, en ummæli karlsins voru á þá leið að það væri afar erfitt að stunda at- vinnurekstur í landinu þegar Siv Friðleifsdóttir trítlaði um á rauð- um pinnahælum og væri áskrif- andi að launum sínum [feitletrun blaðamanns]. Myndi einhver láta hafa eftir sér að Geir H. Haarde fjármálaráðherra trítlaði um í gráa rykfrakkanum sínum? Karlinn sem talaði um rauðu pinnahælana var því að reyna að gera lítið úr Siv með því að vitna í skó og göngulag. En slík ummæli um konur eru því miður ekki óal- geng. Ekki er t.d. langt síðan fjallað var um þingkonurnar í Sjálfstæðisflokknum sem slæðu- konur. Ein leið til að gera lítið úr konum? Eða hvað? Þegar á heildina er litið finnst mér jafnrétti ekki vera náð fyrr en fjallað sé um konur af sömu virðingu og karla; það sé horft til þess hvað þær segja en ekki hvernig þær líta út, hvernig þær ganga eða í hvernig skóm þær eru. Með fyrirsögninni sem ég vitn- aði til í upphafi fannst mér lítið gert úr Jäätteenmäki og þeim ár- angri sem hún hefði náð í stjórn- málum; að hún væri leiðtogi stjórnmálaflokks og hefði sem slíkur náð þeim árangri sem raun bæri vitni. Með fyrirsögninni var ekki verið að vísa til þess að hún væri einstaklingur, sem hefði áorkað einhverju, heldur var ver- ið að vísa til þess að hún væri kona; það var aðalatriðið. Með fullkomnu jafnrétti, eins og ég sé það, er fyrst og fremst litið á konur og karla sem ein- staklinga sem hafa áorkað ýmsu óháð því hvort þeir séu konur, karlar eða eitthvað annað. Lipp- onen var því skv. því að missa völdin til Jäätteenmäki! Gæti misst völdin í hendur karls „Þegar á heildina er litið finnst mér jafnrétti ekki vera náð fyrr en fjallað sé um konur af sömu virðingu og karla.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ✝ Pétur Magnús-son fæddist í Reykjavík 10. októ- ber 1915. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Jóhanna Pétursdótt- ir húsfrú, f. á Pat- reksfirði 25. septem- ber 1890, d. í Reykjavík 19. janúar 1920, og Magnús Sveinsson, stýrimað- ur, frá Hvilft í Ön- undarfirði, f. á Flat- eyri 20. júní 1888, d. í Reykjavík 16. janúar 1947. Nokkru eftir að móðir Péturs deyr sendir faðir hans hann í fóstur til hjónanna Ólafar Össurardóttur, f. á Hval- látrum 1872, og Jóhanns Magnús- sonar, f. á Siglunesi á Barðaströnd 1866. Þau bjuggu þá í Árborg, smábæ við Íslendingafljótið, í Manitoba í Kanada. Systir Péturs var Sigríður Magnúsdóttir f. í Reykjavík 30. ágúst 1917, d. 16. júní 1919. Hinn 21. júní 1944 kvæntist Pét- ur, f. 28. september 1946. Hann er kvæntur Kristínu Guðmundsdótt- ur leiðbeinanda og eiga þau tvö börn, Margréti Kristínu, f. 1966, sálfræðing, sem er gift Bjarna Ein- arssyni, iðnaðarmanni, og Pétur, f. 1968, iðnrekstrarfræðing, sem er giftur Selmu Unnsteinsdóttur, iðn- rekstrarfræðingi. Margrét og Bjarni eiga soninn Benjamín, f. 1993. Pétur og Selma eiga dæturn- ar Kristínu, f. 1997, og Berglindi, f. 1999. 3) Ólöf Guðrún hjúkrunar- fræðingur og myndlistarmaður, f. 29. apríl 1957, gift Þorsteini Njáls- syni lækni og eiga þau sex börn, Tómas Davíð, f. 1977, sálfræði- nema við HÍ, Matthías Guðmund, f. 1980, nema, Lovísu Margréti, f. 1986, nema í MH, Njál Pétur, f. 1991, Ísabellu Ólöfu, f. 1996, og Al- exander Símon, f. 1999. Pétur lauk námi frá Árdal High School Manitoba 1932 og árið 1937 til 1938 var hann í námi við Lond- on School of Economics and Polit- ical Science. Frá árinu 1943 rak hann eigin kjöt- og nýlenduvöru- verslun, en frá árinu 1963 til 1985 vann hann við endurskoðun í Seðlabanka Íslands. Pétur var fé- lagi í Guðspekifélagi Íslands og í Sam-Frímúrarareglunni á Íslandi frá árinu 1948. Útför Péturs verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ur Guðmundu Jó- hönnu Dagbjartsdótt- ur, f. 8. október 1922 í Neðri-Hvestu í Arnar- firði. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þórunn Bogadóttir, f. í Hringsdal 27. febrúar 1894, d. 5. mars 1944, og Dagbjartur Elías- son, útvegsbóndi í Neðri-Hvestu, f. að Uppsölum í Selárdal 27. júlí 1890, d. í 31. ágúst 1978. Pétur og Guðmunda eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Jóhanna Sigríður kennari (f. 1. febrúar 1945), gift Ingimar Heiðari Þorkelssyni viðskipta- fræðingi og eiga þau tvo syni, Pét- ur Guðmund, f. 1982, og Heiðar Örn, f. 1984, nemendur í MR. Af fyrra hjónabandi á Jóhanna Sig- ríður dótturina Þorgerði Jörunds- dóttur, f. 1969, B.A. í heimspeki og myndlistarmann. Hún er gift Ósk- ari Sturlusyni tölvunarfræðingi og eiga þau börnin Solveigu, f. 1993, Jörund, f. 1999, og Eirík, f. 2002. 2) Magnús Þórir fluggagnafræðing- Elsku faðir. Undirmeðvitund mín er greypt stolti og þakklæti fyrir það líf og aðbúnað, sem þú veittir fjöl- skyldu þinni, sem var þér allt og aldr- ei bar skugga á. Þú varst hávaxinn, fríður sýnum, góðviljaður en staðfast- ur. Það var alltaf hægt að leita til þín í námi á æskuárum, t.d. í stærðfræði, efna-, eðlisfræði og ensku, en þessar greinar voru þér eðlislægar. Þér var tamt að hugsa rökrétt og skilja hismið frá kjarnanum. Þú hafðir ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum en jafnframt varst þú nærgætinn og hlé- drægur. Þú varst viðkvæmur, dulur en jafnframt stórhuga og fórst eigin leiðir. Allt var af heilindum gjört, óheilindi þoldir þú ekki. Þú gerðir kröfur en varst jafnframt mildur. Þú kenndir mér að ávaxta pund mitt í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Vinna fyrst fyrir því, sem keypt var og skulda engum neitt. Þú komst til dyranna eins og þú varst klæddur. Þú varst mikill náttúruunnandi og best þótti þér að vera við fagurt vatn með tignarlegum fjallahring og ekki spillti að sjá til sólar, t.d. við sólsetur þegar sólin litaði himin og vatn og fegurðin tók völdin. Að klæða landið trjágróðri var þér hugleikið og unun var að sjá þig gróðursetja og sjá hversu umhug- að þér var að fara rétt að. Það var ekki bara náttúran, sem þú hreifst af heldur einnig fagrir hlutir gerðir af manna höndum, enda sóttuð þið for- eldrar mínir mörg söfnin heim er þið dvölduð erlendis, t.d. á Ítalíu, Frakk- landi og Bretlandi. Þegar fögur stytta, eða annar hlutur fannst á forn- sölu var hann keyptur og fluttur heim til að fegra heimilið. Ritlistin og tón- listin voru þér hugleikin. Þú hafðir þekkingarþrá, varst víðlesinn og oft settist þú við píanóið til að leika lítið lag. Þú hafðir unun af smíðum, varst handlaginn og vílaðir ekki fyrir þér að byggja jafnvel sumarbústað og húsið ykkar, að Sörlaskjóli 9, skipulagðir þú sjálfur. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn nutu gjafa ykkar móður minnar í ríkum mæli. Faðir minn, þú varst mér allt, ásamt móður minni, langt fram á full- orðinsár, vinur, fyrirmynd og mátt- arstólpi. Ég þakka uppeldið, lífsvið- horfin og lífsgildin, sem hafa verið mér leiðarljós til dagsins í dag. Móður minni þakka ég hennar kærleiksríka og fórnfúsa starf við stuðning og umönnun föður míns eftir að hann fékk blóðtappa og til dauða- dags. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín dóttir, Jóhanna Sigríður. Elsku pabbi. Nú þegar þú hefur kvatt eftir erfið veikindi þakka ég þér fyrir allt það sem þú hefur verið okk- ur öllum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Sofðu rótt, elsku pabbi. Þinn sonur Magnús. Hærra, minn guð, til þín, hærra til þín, enda þótt öll sé kross upphefðin mín. Hljóma skal harpan mín: :,:Hærra, minn guð, til þín,:,: hærra til þín. (Þýð. M. Joch.) Elsku pabbi, þar sem ég sit hér við kertaljós og reykelsi og hugsa um þig, þá kemur alltaf þessi sálmur, Hærra minn guð til þín, upp í huga mér, og er það sjálfsagt vegna þess að þessi sálmur er mér svo minnisstæður frá kirkjuferðum okkar hér áður fyrr. Við fórum ekki einungis í Nes- kirkju, heldur líka í Dómkirkjuna og kaþólsku kirkjuna við Landakot. Þetta varð til þess að ég sótti mikið barnamessur og seinna meir KFUM og K. Þú ræddir mikið um trúarbrögð og þú kenndir mér að bera virðingu fyrir annarra manna trúarbrögðum, öll trúarbrögð væru eitt, „All is One“. Þú varst dulrænn, hæverskur og hæglátur maður. Það var einmitt í einni slíkri kirkju- ferð á sólbjörtum degi að ég fann fjögurra blaða smára í túninu við Neskirkju. Ég hafði nýlega glatað hjólinu mínu og var fljót að segja þér pabbi að ég ætlaði að óska mér að ég fengi nýtt hjól. Og viti menn, örfáum dögum seinna var nýtt hjól komið, fagurblátt. Eftir að þú missir Siggu litlu systur þína úr barnaveiki tveggja ára verður þú einn, og fimm ára gamall ertu sendur til Vesturheims þegar Jó- hanna móðir þín deyr, en hún hafði gengið frá þessu öllu áður en hún dó, því hún vissi að hverju stefndi. Þú fórst til frænd- og vinafólks hennar, Ólafar og Jóhanns í Árborg, ekki langt frá Winnipeg. Mér var alltaf minnisstætt þegar ég fékk að fara með ykkur mömmu til Kanada þegar ég var 16 ára gömul, en þá fórum við um allar Íslendingabyggðirnar og skoðuðum þínar æskuslóðir í Árborg. Ég klifraði upp í stóru trén sem voru í garðinum þar sem þú bjóst og við skoðuðum gamla skólahúsið, þar sem þú hafðir gengið í skóla. Í Kanada áttir þú fjórar uppeldis- systur, þær Fanney Stefansson, Þóru Árnason, Guðrúnu Johnson og Ernu Hakonsen. Við heimsóttum þær allar og var greinilegt að þú varst í miklu uppáhaldi hjá þeim. Einna tignarleg- ast fannst mér að heimsækja Ernu í Klettafjöllunum, en hjá henni dvöld- umst við um tíma. Ég var alveg heill- uð af Kanada og seinna höguðu for- lögin því þannig til að ég fór með börn og mann í framhaldsnám til Kanada. Þið mamma komuð til okkar til Hamilton og áttum við yndislegar stundir saman, þar sem þú naust þín við vatnið á árabátnum og að vera með barnabörnunum. Ég hef oft hugsað um það með gleði að afi Magnús sendi eftir þér til Kanada og þú komst heim aftur, þá átján ára gamall, fórst vestur í Arn- arfjörð, hittir mömmu og þið giftust, því annars væri ég ekki hér. Þið bjugguð fyrst á Laugavegi 167, en fljótlega byrjaðir þú að byggja Sörla- skjól 9, en þar er ég fædd og uppalin. Nálægð við sjóinn og fjöruna var þér kær og varst þú jafnan duglegur að ganga og hjóla og seinna meir að fara á rafmagnshjólastólnum með sjónum í Skjólunum og við Ægisíðuna. Ég hef oft hugsað um þau forrétt- indi sem ég bjó við heima í Sörla- skjóli. Mamma rak verslun heima, Verslunina Vör, var alltaf til staðar og alltaf heitt kakó til þegar maður kom heim úr skólanum. Alltaf passaðir þú upp á það pabbi minn að ég lærði heima og fékk ég ekki að fara út með krökkunum í götunni í Fallin spýta eða Brennibolta fyrr en ég var örugg- lega búin að læra allt, enda var ég fljót að læra þá reglu; læra fyrst og leika svo. Þú fórst með mig í fyrsta píanótím- ann hjá Katrínu Viðar á Laufásvegi. Þú hvattir mig alltaf áfram og talaðir um gildi menntunar og kom aldrei annað til greina en ég færi í mennta- skóla og síðan framhaldsskóla. Þú skildir svo vel gildi menntunar, hafðir sjálfur byrjað í hagfræði í London en aðstæður höguðu því þannig til að þú varðst frá að hverfa. Alltaf varstu tilbúinn að hjálpa mér við heimanám ef á þurfti að halda. Þú varst góður í stærðfræði og fær með tölur, enda varst þú í ein 25 ár í endurskoðunar- deild Seðlabankans, alveg þar til þú hættir að vinna sjötugur. Næstu tíu ár áttuð þið mamma mjög góðan tíma saman, ferðuðust mikið, oftar á eigin vegum, þar sem þú skipulagðir ferðirnar. Þú varst mikill fagurkeri og komst gjarnan heim með fallega hluti. Fyrir sjö ár- um lamaðist þú öðrum megin en náðir PÉTUR MAGNÚSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.