Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 39
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 39 Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI AÐALFUNDUR Fáks var haldinn í gærkvöldi og þar bar það til tíðinda í fyrsta skipti í fjölda ára að félagið skilaði hagnaði af rekstri án þess að gengið væri á eignir þess. Er þar um að ræða hagnað upp á rétt tæpar tvær milljónir króna. Að sögn gjaldkera félagsins Ólafar Guðmundsdóttur var hagnaður fyrir tveimur árum vegna sölu á hesthúsi. Meðal þess sem skilaði hagnaði má nefna að ársþing Landssam- bands hestmannafélaga skilaði félaginu 337 þúsundum króna, reiðhallarsýning skilaði 812 þúsund krónum og Íslands- mótið skilaði 36 þúsund krón- um. Þótti Ólöfu síðasttalda dæmið mjög gott því stjórn fé- lagsins hugðist greiða einkaað- ilum 200 þúsund krónur fyrir að halda mótið en því var hafn- að. Endirinn varð því sá að fé- lagið sá um mótshaldið sjálft og sparaði sér þessa peninga og fékk þar á ofan smá bónus. Sagði Ólöf að stjórn félags- ins hefði þar með náð þeim markmiðum sem hún hafði sett sér fyrir tæpum tveimur árum. Búið væri að greiða svo til allar skuldir og væri fjár- hagsstaða félagsins komin í gott jafnvægi. Félagið hefði verið mjög skuldsett um langa tíð og hlyti þessi nýja staða að skapa þessu stærsta hesta- mannafélagi landsins góð sóknarfæri. Aðalfundur Fáks Fjárhags- staða Fáks komin í gott jafnvægi HESTSNAFN vikunnar hefur að þessu sinni verið valið Sigur, það er Sigur frá Húsavík sem Vignir Sigurólason dýralæknir á Húsavík reið til sigurs á Mý- vatni. Sigur er fæddur Vigni og sagðist hann alltaf reyna að velja sigurnöfn á afkvæmi móð- ur hans Miskunnar frá Keldu- nesi. Systur hans heita til dæm- is Sigurósk og Sigurgyða sem reyndar var rangnefnd Sigur- gyðja í Morgunblaðinu fyrr í vetur. Hann sagðist alltaf reyna að nefna hross sín nöfn- um sem fá hross í Worldfeng bera og helst engin. Gott dæmi þar um er Miskunn en hún er einnig fædd Vigni. Hann segist velja íslensk nöfn sem beygjast vel en reynir að forðast lýsing- arorð sem geta verið mjög varasöm hvað beygingar í föll- um varðar. Vignir kveðst stefna með Sigur í stjörnutöltið í skauta- höllinni á Akureyri um næstu helgi og þar kæmi ekkert til greina annað en sigur – nema hvað. Hestsnafn vikunnar Sigur stendur undir nafni HESTAMANNAFÉLAGIÐ þjálfi í Þingeyjarsýslu blés hraustlega til leiks á Mývatni á laugardag þar sem boðið var sérstaklega nokkrum út- völdum snillingum til leiks auk þess sem minni spámenn spreyttu sig og fáka sína á vatninu. Það verður að telja þetta uppátæki nokkuð djarft hjá þeim Þjálfafélögum en vissulega höfðu þeir vaðið fyrir neðan sig með stuðningi sterkra aðila eins og Flug- leiða. Þetta mótahald mun vera við- leitni í þá átt að markaðssetja Ísland að vetrarlagi sem girnilegan kost til ferðalaga. Mótið tókst í alla staði vel. Þrátt fyrir hlýindi undanfarið var góður ís á vatninu og veðrið lék við alla viðstadda. Skráningar voru ríf- lega sjötíu talsins og til leiks mætti mikill fjöldi mjög góðra hrossa og keppnin því vel í þeim gæðaflokki sem þarf að vera þegar svo mikið er lagt undir. Keppt var í tölti og skeiði. Ekki þó farið eftir stífustu reglum í töltinu heldur lögð áhersla á að allt gengi fljótt vel fyrir sig. Enn á ný kvaddi hin kynngimagn- aða hryssa Hrauna frá Húsavík sér eftirminnilega hljóðs en hún vakti verskuldaða athygli þegar Þórður Þorgeirsson sýndi hana í kynbóta- dómi á síðasta ári. Þórður var einnig knapi nú og var frammistaða þeirra á ísnum hreint frábær. Þau sigruðu í opnum flokki í tölti en næstur kom Hafliði Halldórsson með HM-kandí- dat sinn Ásdísi frá Lækjarbotnum. Í flokki áhugamanna sigraði nokkuð örugglega Vignir Sigurólason á Sigri frá Húsavík sem er aðeins fimm vetra gamall hestur en strax farinn að láta verulega að sér kveða. Þar er á ferð- inni mjög hágengur hestur sem virð- ist enn sem komið er bera nafn með rentu og þarf áreiðanlega mikla fram- sýni, já og áræði til að nefna hesta slíku nafni. Það mætti ætla samkvæmt þessu að hrossarækt þeirra Þingeyinga og ekki síst Húsvíkinga sé að skila afar athyglisverðum hrossum þótt ekki sé hún mikil að vöxtum. Þórður sigraði einnig í skeiðinu sem var hundrað metrar með fljúg- andi starti á hryssunni Ýr frá Jarðbrú og hlaut hann því tvo farmiða á Evr- ópuleiðum Flugleiða í verðlaun en Vignir hirti þann þriðja. Þá gaf Sel- hótel á Mývatni gistingu í verðlaun en auk þess voru veitt ýmis önnur auka- verðlaun. Gustur í Kópavogi hélt sína aðra vetrarleika á laugardag og tókust þeir mun betur en hraðmótið sem félagið hélt í síðasta mánuði í vitlausu veðri eða því sem næst. Ættartengsl voru mikil meðal verðlaunahafa á mótinu án þess þó að verið sé að ýja að hlut- drægni ágæts dómara Guðmars Þór Péturssonar. Þessi niðurstaða sýnir kannski betur en margt hversu mikil fjölskylduíþrótt hestamennskan er í dag. Formaður félagsins, Þóra Ás- geirsdóttir, gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppni kvenna en eiginmað- ur hennar Þorvaldur Gíslason varð fjórði meðal karla. Tvær systur Rúna og Elka Halldórsdætur sigruðu í sín- um flokkum og afi þeirra hestamað- urinn góðkunni Svanur Halldórsson stóð þeim ekki að baki og sigraði í flokki heldri manna og kvenna. Að síðustu voru það svo mæðgur Oddný Jónsdóttir og dóttir hennar Guðný Birna sem unnu silfurverðlaunin í sín- um flokkum. Mývatn open Tölt opinn flokkur 1. Þórður Þorgeirsson og Hrauna frá Húsa- vík, 7,90 2. Hafliði Halldórsson og Ásdís frá Lækjabotnum, 7,68 3. Hinrik Bragason og Höfgi frá Ártúnum, 7,43 4. Páll Bjarki Pálsson og Smella frá Flugumýri, 7,33 5. Mette Mannseth og Stígandi frá Leysingjastöðum, 7,18 Tölt áhugamenn 1. Vignir Sigurólason og Sigur frá Húsavík, 6,75 2. Gestur Júlíusson og Skelfir frá Skriðu, 6,60 3. Gísli Haraldsson og Flói frá Húsavík, 6,38 4. Kristján Sigtryggsson og Kyndill frá Hellulandi, 6,38 5. Oddný L. Guðnadóttir og Kleópatra frá Dalvík, 6,15 100 m flugskeið 1. Þórður Þorgeirsson og Ýr frá Jarðbrú, 9,56 sek. 2. Hinrik Bragason og Skemill frá Sel- fossi, 9,62 sek. 3. Magnús Skúlason og Arður frá Brún, 9,78 sek. Aðrir vetrarleikar Gusts Karlar 1. Bjarni Sigurðsson og Eldur frá Hóli, 12v. rauðstjörnóttur. 2. Ríkharður F. Jensen og Jökull frá Litlu- Tungu, 8v. hvítur. 3. Magnús Matthíasson og Dynur frá Haf- steinsstöðum, 7v. rauðblesóttur. 4. Þorvaldur Gíslason og Faxi frá Súluholti, 7v. rauður. 5. Sigurjón Gylfason og Eldjárn frá Ingólfs- hvoli, 6v. rauður. Heldri menn og konur 1. Svanur Halldórsson og Gúndi frá Kópavogi, 10v. móálóttur. 2. Sæmundur Guðmundsson og Punktur frá Ölvaldsstöðum 2 3. Viktor Ágústsson og Kyndill frá Bjarnar- nesi, 8v. jarpur. 4. Þór Vigfússon og Vordís frá Reykjavík, 10v. rauð. 5. Ármann Stefánsson og Goði frá Ytra- Hólmi, 7v. rauður. Konur 1. Þóra Ásgeirsdóttir og Vaskur frá Vallanesi, 11v. brúnn 2. Oddný M. Jónsdóttir og Sjöstjarna frá Svignaskarði, 12v. brúnstjörnótt 3. Ragnhildur Benediktsdóttir og Röst frá Krossanesi, 10v. rauðblesótt 4. Helga R. Júlíusdóttir og Hrannar frá Skeiðháholti, 12v. jarpur 5. Hulda G. Geirsdóttir og Dimma frá Skaga- strönd, 13v. brún Unglingar/ungmenni 1. Elka Halldórsdóttir og Sproti frá Kópavogi 9v. rauður. 2. Tryggvi Þ. Tryggvason og Skrekkur frá Sandfelli, 11v. jarpur 3. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson og Vængur frá Köldukinn, 9v. brúnskjóttur 4. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Amor frá Hellu, Árskógsstr., 7v. móálóttur 5. Jana R. Reynisdóttir og Hrönn frá Tóftum, 11v. brún. Börn 1. Sigrún Ý. Sigurðardóttir og Sörli frá Kálf- holti, 12v. rauðblesóttur. 2. Guðný B. Guðmundsdóttir og Fjöður frá Svignaskarði, 17v. jarpvindótt. 3. Berta M. Waagfjörð og Gorbi frá Huga, 6v. mósóttur. 4. Guðlaug R. Þórsdóttir og Snjóalda frá Múlakoti, 7v. leirljós, bles. 5. Sólveig Ó. Guðmundsdóttir og Griffill frá Ölvaldsstöðum, 6v. rauðstjörn. Pollar 1. Rúna Halldórsdóttir og Barón frá Kópa- vogi 9v rauðblesótt. 2. Helena Ríkey Leifsdóttir og Skröggur frá Tjörn 9v. rauðskjóttur. 3. Karen Ívarsdóttir og Logi úr Landeyjum 13v. rauður. 4. Sigrún Gyða Sveinsdóttir og Huginn frá Hörgshóli 6v. moldóttur. 5. Freyja Rut Magnúsdóttir og Flís frá Feti 5v. brún. 6.-7. Valdís Björk Guðmundsd. og Litli- Rauður frá Svignaskarði, 14v. rauður 6.-7. Auður Á. Waagfjörð og Gæsla frá Huga, 6v. rauðblesótt Árshátíðarmót Mána haldið á Mánagrund Opinn flokkur 1. Jón B. Olsen á Hljóm frá Kálfholti, 12 vetra 2. Jóhann Jónsson á Fjarka frá Hafsteins- stöðum, 11 vetra 3. Sveinbörn Bragason á Ritu frá Litlu- Tungu, 6 vetra 4. Hannes Ragnarsson á Ljóma frá Kílhrauni, 6 vetra 5. Arnar D. Hannesson á Blæ frá Hlíð, 14 v. Konur 1. Svala R. Jónsdóttir á Glampa frá Fjalli, 9 v. 2. Helena Guðjónsdóttir á Hrafni frá Hala, 10 vetra 3. Ásdís Adolfsdóttir á Bliku frá Bakkakoti, 7 vetra 4. Eygló Einarsdóttir á Drottningu frá Vatnsleysu, 11 vetra 5. Sigrún Valdimarsdóttir á Fjöður frá Heið- arbrún, 7 vetra Ungmenni 1. Sveinbjörn Bragason á Sleipni frá Litlu Tungu, 7 vetra 2. Hermann R. Unnarsson á Braga frá Sperli, 9 vetra 3. Elva B. Margeirsdóttir á Stiku frá Kirkjubæ, 9 vetra 4. Camila P. Sigurðardóttir á Krás frá Mið- sitju, 8 vetra 5. Auður S. Ólafsdóttir á Tenor frá Rifshala- koti, 9 vetra Börn 1. Sunna Guðmundsdóttir á Halifax frá Breiðabólstað, 12 vetra 2. Soffía R. Skúladóttir á Klerk frá Enni, 11 vetra 3. Ólöf R. Guðmundsdóttir á Vin frá Hoffelli, 15 vetra 4. Margrét L. Margeirsdóttir á Hyl frá Sand- gerði, 8 vetra 5. Kristján Hlynsson á Vafa frá Kirkjubæ, 8 vetra Pollar 1. Jóhanna M. Snorradóttir á Glóð frá Kefla- vík, 13 vetra 2. Rúnar Þ. Sigurðsson á Svörtu-Blesu frá Eyri, 9 vetra 3. Guðbjörg Gunnarsdóttir á Hulu frá Bakka, 7 vetra 4. Marsibil Sveinsdóttir á Pamelu frá Indr- iðastöðum, 14 vetra 5. Brynjar Guðnason á Rauð frá Njarðvík, 12 vetra Annað vetrarmót Sleipnis á Sel- fossi Opinn flokkur 1. Sigursteinn Sumarliðason, Þota, 7v., frá Úthlíð, f.: Gustur, Grund, m.: Litla-Dokka, Skálholti 2. Christina Lund, Trymbill frá Glóru Stefna frá Eyrarbakka, f.: Dagur, Kjarnholtum 3. Hugrún Jóhannsdóttir, Brimir 6v., frá Austurkoti, f.: Ísak, Egilsst. m.: Hrafn- tinna, Reykjavík 4. Brynjar J. Stefánsson, Stikla 6v., frá Voð- múlastöðum, Logi, Voðmúlast. 5. Sigurður Ó. Kristinsson, Kólga 5v., frá Há- holti, f.: Víkingur, Voðmúlastöðum, m.: Kilja f. Háholti Áhugamenn 1. Grímur Sigurðsson, Hilma 8v., frá Aust- urkoti, f.: Austri, Austurkoti, m.: Ólína, Hoftúnum 2. Haukur Baldvinsson, Glitnir 6v., frá Sel- fossi, f.: Hrannar, Skarði, m.: Gýgja, Skarði 3. Sigríður Harðardóttir, Hemja 6v., frá Dalbæ, f.: Hamur, Þóroddstöðum, m.: Þrá, Dalbæ 4. Kristján Larsen, Arnar 9v., frá Herríðar- hóli, f.: Safír, Viðvík, m.: Bleik, Kópavogi 5. Linda Lundkvist, Iðja 6v., frá. Glóru, f.: Hrynjandi, Hrepphólum, m.: Djörfung, Glóru Ungmenni 1. Emil Þ. Guðjónsson, Gunndís 6v., frá. Strönd, f.: Hljómur, Selfossi, m.: Tröð, Strönd 2. Sandra Hróbjartsdóttir, Hekla 5v., frá Oddgeirshólum, f.: Kveikur f. Miðsitju, m.: Barónessa, Oddgeirshólum Unglingar 1. Jóhanna Magnúsdóttir, Goði 7v., frá Strönd, f.: Alskær, m.: Hnota, Strönd 2. Sigrún A. Brynjarsdóttir, Orka 13 v., frá. Selfossi, f.: Piltur, Sperðli, m.: Ögn, Hólma- hjáleigu 3. Helga B. Helgadóttir, Askja 8v., frá Súlu- holti, f.: Eldur f. Súluholti, m.: Gjóska, Súluholti 4. Ástgeir R. Sigmarsson, Skjóni 13v., frá Hárlaugsstöðum, f.: Baldur, Bakka, m.: Rauðhetta, Hárlaugsstöðum Börn 1. Hildur Ö. Einarsdóttir, Óskadís 6v., frá Halakoti, f.: Óður, Brún, m.: Freyja, Þór- eyjarnúpi 2. Sigurður O. Karlsson, Ingi Hrafn 14v., frá Stokkseyri 3. Bjarni Sveinsson, Þór 12v., frá Borgarhóli, f.: Smári, Borgarhóli, Hrísla, Borgarhóli 4. Kristrún Steinþórsdóttir, Stjarni 11v., frá Oddgeirshólum, f.: Baldur, Bakka 5. Hjalti B. Hrafnkelsson, Leiknir 10v., frá Glóru, f.: Hrafn f. Holtsmúla, m.: Sunna, Holti Líflegt mótahald víða um land í veðurblíðu um helgina Morgunblaðið/Birkir Fanndal Mótið var haldið á Stakhólstjörn í góðu veðri þótt lítið færi fyrir sólinni. Verðlaunahafar í áhugamannaflokki, frá vinstri: Oddný Guðnadóttir á Kleopötru, Kristján Sigtryggsson á Kyndli, Gísli Haraldsson á Flóa, Gestur Júlíusson á Skelfi og sigurvegarinn Vignir Sigurólason á Sigri frá Húsavík. Mývatnsævintýrið gekk upp eins og best varð á kosið Það var líf og fjör í mótahaldi um helgina þar sem hæst bar mót sem ber nafnið Mývatn open og haldið er á ís á Mývatni. Valdimar Kristinsson fer hér í gegnum mótin og úrslit þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.