Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ HREIN raunávöxtun eigna Söfnun- arsjóðs lífeyrisréttinda var jákvæð um 0,5% á árinu 2002. Eignir sjóðs- ins námu tæpum 24 milljörðum króna í árslok 2002 og var heildar- skuldbinding sjóðsins umfram eignir rúmir tveir og hálfur milljarður kr. eða 5,9%. Hins vegar voru eignir umfram áfallnar skuldbindingar 21,2%. Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að nafnávöxtun samtrygginga- deildar sjóðsins var 2,7% á árinu 2002. Það jafngildir 0,6% raunávöxt- un og 0,5% hreinni raunávöxtun að frádregnum kostnaði. Fimm ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar sjóðsins var 3,2 % í árlok 2002 og tíu ára meðaltal hreinnar raunávöxtun- ar var 5,3%. Fram kemur að miklar lækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum skýra lága ávöxtun sjóðsins 2002, meðan innlendar eignir gáfu góða ávöxtun. Iðgjöld ársins námu 1.356 millj.,kr. sem er 7,8% aukning frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur námu 275 millj.kr. og uxu um 29,8% frá árinu á undan. Fjöldi rétthafa tífaldaðist Þá kemur fram að ávöxtun eigna séreignardeildar sjóðsins var 0,8% á árinu 2002 og hrein raunávöxtun var neikvæð um 1,2%. Eignir séreignar- deildar sjóðsins nánast tvöfölduðust milli ára og fjöldi rétthafa tífaldaðist. Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyris- réttinda verður haldinn þriðjudag- inn 6. maí. Raunávöxtun jákvæð um hálft prósentustig Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda ÚTVARPSLEIKÞÁTTUR eftir Jón Gnarr, sem fluttur var nýlega á út- varpsstöðinni Múzik 88,5, hefur sært blygðunarkennd útvarpshlustanda vegna meints barnakláms og hefur hann vakið athygli yfirvalda á mál- inu. Það er nú til meðhöndlunar hjá ríkislögreglustjóra og ennfremur hefur Umboðsmaður barna beðið út- varpsréttarnefnd að gera grein fyrir afstöðu sinni vegna málsins. Hlust- andinn tilkynnti ennfremur félags- málaráðuneytinu og Barnaverndar- stofu um málið. Útvarpshlustandinn telur athæfi Jóns Gnarr brjóta gegn almennum hegningarlögum, en í texta þáttarins krefst karlmaður þess að 12 ára son- ur sinn afklæði sig og láti taka af sér nektarljósmyndir fyrir ís. Útvarps- þáttur talinn fela í sér barnaklám TÆPLEGA þrítugur karlmað- ur, sem ákærður er fyrir til- raun til tryggingasvika með því að setja á svið umferð- arslys í Vattarnesskriðum í ágúst í fyrra, neitaði sök þegar málið gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Austurlands í gær. Ríkissaksóknari ákærir manninn fyrir að setja á svið umferðarslys með því láta bíl- inn renna út af þjóðveginum og niður fjallshlíðina svo hún lenti í fjöru og gjöreyðilagðist. Bíllinn var kaskó-tryggður og óskaði maðurinn eftir því að tryggingafélag hans bætti tjónið. Sýslumaðurinn á Eski- firði mun flytja málið f.h. ríkis- saksóknara. Ákærður fyrir að sviðsetja um- ferðarslys UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur í nýju áliti að synjun dómsmálaráðu- neytisins á gjafsókn til handa konu vegna skaðabótamáls fyrir héraðs- dómi hafi í þrígang ekki verið reist á réttum lagagrundvelli. Beinir um- boðsmaður því til ráðuneytisins að það taki mál konunnar fyrir að nýju, óski hún þess. Konan kvartaði til umboðsmanns fyrir rúmu ári yfir synjun dómsmála- ráðuneytisins á umsókn hennar um gjafsókn í skaðabótamáli sem hún höfðaði á hendur geðlækni og lög- reglustjóranum í Reykjavík vegna ólögmætrar frelsisskerðingar. Til- efni málshöfðunarinnar var að lög- reglumenn höfðu, að beiðni geðlækn- isins, fært konuna á geðdeild Landspítalans í þeim tilgangi að láta kanna hvort hún skyldi nauðungar- vistuð á sjúkrahúsi. Eftir að hafa verið skoðuð af öðrum geðlækni á spítalanum var konunni leyft að fara frjáls ferða sinna þar sem læknirinn taldi ekki ástæðu til að nauðungar- vista hana. Lagði konan fjórum sinn- um fram beiðni um gjafsókn í mál- inu. Þremur var synjað á meðan málið var fyrir héraðsdómi en ein var samþykkt þegar málið fór fyrir Hæstarétt. Tapaði konan á báðum dómsstigum. Fyrstu þremur beiðnunum vísaði gjafsóknarnefnd frá þar sem hún taldi konuna ekki hafa lagt fram nægjanleg gögn til að hægt væri að meta tilefni málshöfðunar. Í skýring- um stjórnvalda til umboðsmanns kom einnig fram að lagaskilyrði fyrir gjafsókn hefðu ekki verið til staðar þar sem héraðsdómur hefði þegar gengið í málinu. Þegar héraðsdómi hafði verið áfrýjað til Hæstaréttar sótti lögmaður konunnar um gjaf- sókn í fjórða sinn og var sú beiðni samþykkt. Umboðsmaður telur að með hlið- sjón af gögnum málsins hafi hvílt sú skylda á stjórnvöldum að taka rök- studda afstöðu til þess hvort gjaf- sókn skyldi veitt í málinu á grund- velli 178. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Mælist um- boðsmaður til þess að dómsmála- ráðuneytið taki málið fyrir að nýju og tekur sérstaklega fram í niður- stöðum sínum að þess séu dæmi að ráðuneytið hafi rétt hlut umsækj- anda um gjafsókn eftir að umsókn hafði verið hafnað og héraðsdómur fallið. Umboðsmaður Alþingis um dómsmálaráðuneytið Synjun gjaf- sóknar ekki lög- um samkvæmt ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir op- inbera heimsókn til Ungverjalands, sem lauk í gær- kvöldi, hafa verið árangursríkari í viðskiptalegu tilliti en hann hafi búist við. Þegar hafi myndast grundvöllur til viðræðna milli íslenskra orkufyrirtækja og borgaryf- irvalda í Búdapest um tæknilega útfærslu á nýtingu jarðhita í borginni. Þá hafa margir, þar með taldir borg- arstjórinn, forsætisráðherrann og forsetinn, sýnt hug- búnaði íslenska fyrirtækisins GoPro mikinn áhuga, en hann á að greiða fyrir upplýsingastreymi í stjórnsýslu. Andri Már Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, sagði að ungverskum fulltrúa ferðamála, sem rætt var við í ferð- inni, hefði komið áhugi Íslendinga á Búdapest á óvart en mörg hundruð Íslendingar fóru til Búdapest með Heims- ferðum á síðasta ári. Andri sagði nú standa til að opna Ísland fyrir Ungverjum og eru fyrstu ferðir Heimsferða með Ungverja til Íslands áætlaðar í haust. Þá sagði hann fyrirtækið stöðugt í leit að nýjum mörkuðum þar sem Ís- lendingar væru nýjungagjarnir og aðrar borgir í Aust- ur-Evrópu kæmu þar sterklega til greina. Áhrifarík heimsókn á safn í höfuðstöðvum nasista Ólafur Ragnar heimsótti ásamt íslensku sendinefnd- inni safnið „The House of Terror“ sem er nokkurs konar minnisvarði í máli og myndum um áhrif ógnarstjórnar kommúnista og nasista á ungversku þjóðina á árunum eftir seinna stríð og fram yfir byltinguna árið 1956. Hús- ið sem hýsir safnið var á síðustu öld höfuðstöðvar nas- ista og leyniþjónustu kommúnista í Búdapest. Fanga- geymslur og pyntingaklefar hafa nú verið endurgerðir eftir lýsingum vitna sem þar dvöldu en hundruð Ung- verja voru pyntuð til dauða í húsinu. Ólafur sagði ferð- ina um safnið hafa verið einkar áhrifamikla. Saga Ung- verja og Íslendinga hvað þennan tíma varðar væri að hluta tengd, því fyrstu flóttamennirnir sem komu til Ís- lands voru einmitt Ungverjar sem flúðu ógnarstjórnina eftir byltinguna 1956. Sumir þeirra fengu íslenskan rík- isborgararétt og eru enn búsettir á Íslandi. Heimsókn Ólafs til Ungverjalands er nú lokið en í dag hefst opinber heimsókn hans til Slóveníu. Morgunblaðið/Sunna Ósk Logadóttir Ólafur Ragnar, Dorrit og Páll Pétursson ræða við borgarstjórahjónin í Búdapest, Gábor Demszky og Anikó Németh. Árangursrík ferð í viðskiptalegu tilliti Morgunblaðið/Sunna Ósk Logadóttir Í húsi ógnarinnar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kveikti á kerti í húsi ógnarinnar, sem er safn í höfuðstöðvum nasista í Búdapest, til minningar um fórnarlömb ógn- arstjórnarinnar í Ungverjalandi. Heimsókn forseta Íslands til Ungverjalands lokið Búdapest. Morgunblaðið. LENGING skólaársins hefur leitt til þess að þátttaka skólafólks í sumarafleysingastörfum hjá fyrir- tækjum hefur minni þýðingu en áður var, samkvæmt upplýsingum Ara Edwald, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann bendir einnig á að auk þessa verji eldri skólanemar meiri hluta sum- arsins en áður var í nám og eigin frí. „Ýmsar reglur vinna einnig á móti því að hafa yngra skólafólk við vinnu, til dæmis reglur um tób- aksafgreiðslu, svo eitthvað sé nefnt,“ segir hann. Um 36.000 nemendur stunda nám í framhaldsskólum og háskól- um hér á landi skv. bráðabirgðatöl- um Hagstofunnar. Þá eru nemend- ur í efstu bekkjum grunnskóla, þ.e. unglingar á sextánda og sautjánda aldursári, nálægt átta þúsund tals- ins. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, lýsti áhyggj- um af sumarstörfum skólafólks í Morgunblaðinu í gær og sagði fregnir hafa borist af því að færri yrðu ráðnir til sumarstarfa en áð- ur. Missa fólk í nám áður en ferðamannatíma lýkur Eins og fram hefur komið í blaðinu hafa forsvarsmenn At- vinnumiðstöðvar stúdenta og Vinnumiðlunar skólafólks lýst þeirri skoðun að samdráttur verði í framboði á sumarstörfum í ár. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segist ekki hafa heyrt að neinar breytingar yrðu á sumar- störfum fyrir skólafólk í fyrirtækj- um innan ferðaþjónustunnar í sumar en hún tók fram að þetta hefði ekki verið kannað sérstak- lega. Aðspurð segir Erna að lenging skólaársins hafi komið fyrirtækj- um innan ferðaþjónustunnar illa. Mest hafi borið á kvörtunum vegna þessa úti á landi þar sem ferða- þjónustufyrirtæki hafa misst sum- arstarfsmenn í skóla áður en ferðatímabilinu er lokið. „Það hef- ur víða verið mjög bagalegt,“ segir hún. Færri vinna vegna lengingar skólaárs Um 36 þúsund nemendur í framhalds- og háskólum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.