Morgunblaðið - 19.03.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STUÐNINGUR VIÐ BLAIR
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, fékk afgerandi stuðning neðri
deildar breska þingsins í gærkvöldi
við að öllum ráðum yrði beitt til að
afvopna Saddam Hussein. Írakar
hafa hafnað lokafresti Bandaríkja-
manna.
Í uppbyggingu í Írak
Ísland er meðal þeirra 30 landa
sem hafa lýst því yfir að þau taki
þátt í tafarlausri afvopnun Íraka og
mun að sögn Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra einnig taka þátt í upp-
byggingu í Írak að ófriði loknum.
Meirihluti sprunginn?
Framtíð meirihluta sjálfstæð-
ismanna og framsóknarmanna og
óháðra í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja gæti ráðist á fundi á
morgun.
ESB dregur úr kröfum
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra hefur Evrópu-
sambandið lækkað kröfur sínar á
hendur EFTA-ríkjunum um framlög
í uppbyggingar- og þróunarsjóði.
Veikindi í skólum
Fjarvistir í skólum vegna flensu af
B-stofni hafa verið algengar að und-
anförnu. Þannig lá þriðjungur nem-
enda Hagaskóla rúmfastur sl. mánu-
dag, eða 175 af 550 nemendum.
Árangur í Ungverjalandi
Ólafur Ragnar Grímsson segir að í
opinberri heimsókn sinni til Ung-
verjalands hafi náðst meiri árangur
en hann reiknaði með í því að skapa
viðskipti landanna í milli.
DRAUMABÍLLINN
SIGURJÓN BÓLSTRARI
NÝR BMW 3
FORMÚLAN
MEÐALALDUR BÍLA
GALAXY REYNSLUEKIÐ
VCC-HUGMYNDABÍLLINN
FRAMTÍÐIN HJÁ VOLVO
Glæsileg hljómtækjalína frá Alpine.
Réttu græjurnar!
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Suðurlandsbraut 22 540 1500
www.lysing. is
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 32/36
Viðskipti 13/15 Kirkjustarf 36/37
Erlent 15/18 Hestar 39
Höfuðborgin 19 Bréf 40
Akureyri 20 Staksteinar 42
Suðurnes 21 Dagbók 42/43
Landið 22 Íþróttir 44/49
Listir 23/24 Fólk 48/53
Umræðan 25/27 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Viðhorf 32 Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir kynningarblað frá Alþýðu-
sambandinu. Blaðinu er dreift um
allt land.
LANDSVIRKJUN og ítalska verktakafyrirtækið
Impregilo SpA undirrituðu í gær samninga um
byggingu Kárahnjúkastíflu og aðrennslisganga
virkjunarinnar.
Samningarnir hljóða samtals upp á um 38 millj-
arða króna auk virðisaukaskatts.
Fyrirtækið Impregilo átti lægsta tilboð í bæði
stíflu og aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar.
Samkvæmt upplýsingum Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, er áætlað að
vinna á grundvelli samningsins, sem undirritaður
var í gær, hefjist á Austurlandi í byrjun næsta
mánaðar. Hyggst ítalska fyrirtækið reisa miklar
vinnubúðir uppi á hálendinu.
Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunar
undirritaði samninginn fyrir hönd fyrirtækisins
og Gianni Porta undirritaði hann fyrir hönd
Impregilo.
Landsvirkjun og Impregilo undirrita samning um virkjunarframkvæmdir
Morgunblaðið/Kristinn
38 milljarða framkvæmdir hefjast í apríl
MEIRIHLUTASAMSTARF Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks í
bæjarstjórn Vestmannaeyja er í
óvissu eftir að formaður bæjarráðs,
Andrés Sigmundsson frá Framsókn-
arflokki og óháðum, og fulltrúi Vest-
mannaeyjalistans sameinuðust um
það í bæjarráði sl. mánudag að hafna
tillögum starfshóps samgönguráð-
herra um samgöngur milli lands og
Eyja. Í starfshópnum sátu m.a. for-
ystumenn sjálfstæðismanna í bæjar-
stjórn, þeir Guðjón Hjörleifsson og
Arnar Sigurmundsson.
Á fundi bæjarráðs lagði Arnar til, í
samræmi við samþykkt fundar bæj-
armálaflokks meirihlutans, sem
Andrés sat ekki, að vísa málinu til af-
greiðslu næsta fundar bæjarstjórnar
Vestmannaeyja, sem er á morgun, en
þá mun væntanlega liggja fyrir svar
samgönguráðherra vegna tillagna
starfshópsins.
Í bæjarstjórninni sitja þrír fulltrú-
ar Sjálfstæðisflokks, einn frá Fram-
sóknarflokki og óháðum og þrír frá
Vestmannaeyjalista eru í minnihlut-
anum.
Framsóknarmenn og óháðir fund-
uðu um málið í gærkvöldi og sagði
bæjarfulltrúi þeirra, Andrés Sig-
mundsson, að stuðningur hefði komið
þar fram við hans tillögu í bæjarráði.
Hann sagðist vonast til þess að sættir
næðust en útlitið væri ekki bjart.
Meirihlutinn hefði verið ósammála í
fleiri málum og nefndi Andrés t.d.
deilurnar sem verið hefðu um starf-
semi Þróunarfélags Vestmannaeyja.
„Við verðum að sjá hvernig þetta
þróast. Við höfum oft lent í kröppum
sjó. Ég er maður sátta en það er óvið-
unandi að ekki verði gerðar neinar
úrbætur í samgöngumálum nú þeg-
ar, eins og krafa Eyjamanna hefur
verið um,“ sagði Andrés en í tillög-
unni sem hann lagði fram, og fulltrúi
V-listans, Stefán Óskar Jónasson,
gerðist meðflutningsmaður að, kem-
ur m.a. fram að bæjarráð skori á
samgönguyfirvöld að hafna tillögum
starfshópsins og setja á laggirnar
nýjan hóp.
Aðspurður hvort meirihlutinn væri
ekki fallinn ef tillaga hans og fulltrúa
Eyjalistans yrði samþykkt í bæjar-
stjórn sagði Andrés að það yrði að
koma í ljós. Ef einhver svör kæmu
frá samgönguyfirvöldum yrðu þau
skoðuð vandlega.
Tillagan kom á óvart
Arnar Sigurmundsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að
tillaga Andrésar í bæjarráði hafi
komið sér á óvart. Hann hafi átt von á
bókun en ekki tillögu í nafni bæjar-
ráðs. Samstarfið með framsóknar-
mönnum og óháðum hafi gengið vel
fram að þessu og þetta sé í raun
fyrsti ágreiningurinn.
Spurður hvort meirihlutinn sé í
hættu segir Arnar að óvissa sé um
framtíð hans. Eðlilegt sé að einstakir
bæjarfulltrúar hafi misjafnar skoð-
anir á jafn stóru máli og samgöngur
við Eyjar séu. Sumir vilji ráðast í
framkvæmdir strax; að byggja eða
kaupa notað skip, aðrir vilji nota
Herjólf og nota tímann til ársloka
2005 til að kanna til hlítar möguleika
á að koma upp ferjuhöfn í Bakka-
fjöru. Bæjarstjórn eigi eftir að leggja
mat á þetta í heild sinni og ekki sé
fyrirséð hvernig ráðherra muni
bregðast við tillögum starfshópsins,
sem unnið hafi mikla vinnu og skilað
samhljóða tillögum.
Óvissa um
framtíð meiri-
hlutans í Eyjum HLÝINDIN þennan vetur, sem eru
með þeim mestu frá því að veðurmæl-
ingar hófust, hafa orðið til þess að
bændur á nokkrum bæjum á Suður-
landi, aðallega undir Eyjafjöllum, eru
komnir í vorverkin. Að sögn Jóhann-
esar Hr. Símonarsonar, ráðunautar
hjá Búnaðarsambandi Suðurlands,
eru sumir bændur farnir að plægja og
herfa og er það um mánuði fyrr en í
venjulegu árferði. Þá er búið að sá
korni á hektara lands á bænum Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum.
Lítill sem enginn klaki er í jörðu
víðast hvar og sum tún alveg orðin
þurr. Jóhannes segir að brátt geti
bændur farið að huga að áburðar-
dreifingu, sem alla jafna hefur farið
fram í lok apríl. Þó að eitthvað eigi
eftir að frysta geti verið gott að grípa
tækifærið og dreifa „smá skarni á hól-
inn“, eins og hann orðaði það.
Ekki skaði af snjóakafla
Jóhannes segir hlýindin einnig hafa
haft þau áhrif að minna sé gefið úti en
oftast áður á þessum árstíma. Því
megi búast við að bændur eigi fyrn-
ingar í vor og þurfi af þeim sökum að
heyja minna í sumar. Þó að eitthvað
muni snjóa og frysta telur Jóhannes
það ekki geta skemmt fyrir bændum
að neinu ráði, þar sem sólin sé stöðugt
lengur á lofti. Eftir sem áður verði allt
fyrr á ferðinni en menn séu vanir.
Kristján Jónsson, jarðræktarráðu-
nautur á Suðurlandi, segir að sín störf
við mælingar hafi runnið saman, hann
hafi verið byrjaður á vormælingum
áður en haustverkin voru búin.
Vorverkin á Suð-
urlandi mánuði
fyrr á ferðinni
FORELDRAFÉLAG geðsjúkra
barna vill koma á fót hvíldarheimili á
höfuðborgarsvæðinu fyrir börn með
alvarlegar geðraskanir. Hafa for-
svarsmenn félagsins óskað eftir fundi
með heilbrigðisráðherra, Jóni Krist-
jánssyni, til að ræða efni skýrslu þar
sem þessi lausn er lögð til.
Nýsir hf. vann skýrsluna fyrir
Hjálparstarf kirkjunnar. Í henni
kemur fram að 80 til 90 einstaklingar í
hverjum árgangi barna á Íslandi þjást
af alvarlegum geðröskunum. Talið er
að 60 til 100 börn hafi brýna þörf fyrir
hvíldarvistun, þar af séu um 20 börn
mjög alvarlega veik.
Jón Kristjánsson sagðist hafa
heyrt af málinu fyrst í gær og því ekki
gefist tækifæri til að kynna sér efni
skýrslunnar. Hann geti því ekki tjáð
sig efnislega um niðurstöður hennar.
„Ég hlusta á öll góð ráð í þessu og
mun auðvitað tala við forsvarsmenn
félagsins,“ sagði heilbrigðisráðherra
og fagnaði aðkomu kirkjunnar að
þessu máli.
Foreldrar barna með geðraskanir
Ræða úrræði
við ráðherra
Segja börnum/10