Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT að 300 andstæðingar stríðs gegn Írak
tóku þátt í mótmælum við Stjórnarráðshúsið í
Lækjargötu í gærmorgun þegar ríkisstjórn-
arfundur fór þar fram innandyra.
Á fundinum ræddu ráðherrar ríkisstjórnar-
innar m.a. um ófriðarhorfur í Mið-Austur-
löndum. Mótmælendur voru óánægðir með fram-
göngu íslenskra stjórnvalda en mótmælin fóru
friðsamlega fram og létu þá skoðun í ljósi með
hrópum og kröfuspjöldum. Ekki hafði verið sótt
um leyfi fyrir mótmælunum að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrirhuguðu stríði gegn Írak mótmælt
UM sextíu starfsmenn, þar af
30 Íslendingar, voru enn á
vegum Air Atlanta Icelandic í
Sádi-Arabíu í gær. Starfsfólk
Atlanta sendi frá sér tilkynn-
ingu í gærmorgun vegna
fréttaflutnings í ríkissjón-
varpinu á mánudagskvöld en
þar var sagt að allir starfs-
menn Air Atlanta hefðu yf-
irgefið Mið-Austurlönd þá um
kvöldið. „Eins og staðan er
núna [í gærdag] eru hér (í
Sádi-Arabíu ) staddir á veg-
um Atlanta á bilinu 60 manns,
þar af um 30 Íslendingar,“
sagði í tilkynningu starfs-
mannanna.
Flestir þessara 30 starfs-
manna Atlanta áttu að fara
með flugvél Atlanta til Evr-
ópu í gærkvöld en um tíu Ís-
lendingar verða þó eftir til að
ganga frá eftir pílagrímaflug-
ið og verða þeir í Sádi-Arabíu
fram á föstudag.
Komast burt
þótt stríð brjótist út
Hafþór Hafsteinsson, for-
stjóri Atlanta, segist ekki
hafa áhyggjur af því að koma
starfsmönnunum úr landi þó
svo að stríð brjótist út í Írak.
„Við erum búnir að hugsa
leiðir til að koma starfsmönn-
unum, sem eftir eru, frá Sádi-
Arabíu þó svo að stríð brjótist
út í Írak,“ sagði Hafþór án
þess að vilja fara nánar út í
þessar leiðir.
Síðasta áætlunarflug Atl-
anta í pílagrímafluginu í Sádi-
Arabíu var á mánudaginn en
þá var flogið frá Jeddah til
Jakarta í Indónesíu. Að sögn
Hafþórs verða 10–15 starfs-
menn Atlanta, flugumsjónar-
menn og flugvirkjar, eftir í
Jeddah þar sem þeir eru að
vinna við að loka starfsað-
stöðu flugfélagsins fram til
fimmtudags eða föstudags.
Tíu starfs-
menn
Atlanta í
Sádi-Arab-
íu fram á
föstudag
„Það eru vopnaðir hermenn og
óeinkennisklæddir lögreglumenn
á öllum neðanjarðarlestastöðum.
Við vorum stoppaðar af óeinkenn-
isklæddum lögreglumanni þegar
við reyndum að troða okkur í lest-
ina,“ sagði Bergþóra.
Allir hlustuðu á Bush
Hún sagði að allir hefðu hlustað
af miklum áhuga þegar George W.
Bush hélt ræðu sína í fyrrinótt.
„Hér telja allir niður klukkutím-
ana, án þess að vita almennilega á
hverju er von. Göturnar eru
óvenju þöglar.“
Bergþóra vinnur á ísraelskum
veitingastað þar sem tveir írskir barir eru í ná-
grenninu. Í fyrradag var haldið upp á þjóðhá-
„ÉG vaknaði í morgun við hljóðið í
þyrlunum en það var fullt af þeim
sveimandi yfir borginni,“ sagði
Bergþóra Laxdal sem er búsett í
New York-borg í Bandaríkjunum.
Hún sagði ástandið í borginni und-
arlegt vegna yfirvofandi stríðs við
Írak. „Hér eru allir að bíða, það er
bara talið niður þar til stríðið
hefst.“
Bergþóra hefur nýlokið há-
skólanámi og er með eins árs land-
vistar- og atvinnuleyfi til starfs-
þjálfunar. Henni hefur reynst erfitt
að fá vinnu og segir fjölda manns
berjast um hverja stöðu. Hún býr á
Manhattan ásamt unnusta sínum, í
sömu götu og Sameinuðu þjóðirnar eru með
höfuðstöðvar sínar.
tíðardag Íra. „Yfirleitt er spiluð tónlist á göt-
unum úti og mikið fjör og mikið um drykkju.
Núna var enginn úti og þegar ég talaði við
kunningja minn sem vinnur á öðrum írska
staðnum sagði hann að fáir hefðu verið þar yfir
daginn og um leið og kvöldið skall á tæmdist
staðurinn.“
Bergþóra sagði að fréttaflutningur af yfirvof-
andi stríði færi varfærnislega fram.
Fréttir fjölmiðlanna snúast
um að fólk missi ekki vitið
„Hér snýst allt um að halda almenningi róleg-
um. Allar fréttir snúast um að láta fólk ekki
missa vitið. Þetta er alveg eins og þegar Tví-
buraturnarnir hrundu, þá voru fréttirnar sem
við fengum hérna og fréttirnar á evrópsku sjón-
varpsstöðvunum tvennt ólíkt. Það var miklu
meira sýnt á evrópsku stöðvunum.“
Bergþóra Laxdal segir göturnar í New York-borg þöglar um þessar mundir
Bergþóra Laxdal
Vaknaði við hljóðið í þyrlunum
FJÓRIR Íslendingar geta farið
með stuttum fyrirvara til hjálpar-
starfa á vegum Rauða kross Íslands
á hugsanlegu átakasvæði í Írak,
komi til stríðs og er einn sendi-
fulltrúi, Þorkell Þorkelsson ljós-
myndari, þegar kominn til Amman í
Jórdaníu á vegum Rauða krossins.
Alþjóða Rauði krossinn miðar und-
irbúning sinn við að geta aðstoðað
allt að milljón flóttamenn frá Írak
og hefur birgðastöðvum verið kom-
ið fyrir í borgum í grennd við land-
ið.
„Reynslan sýnir að það sé líklegt
að það komi fólk yfir landamærin.
Við höfum bæði fólk og hjálpargögn
til þess að bregðast við þegar
flóttamenn byrja að streyma út úr
landinu. Núna bíðum við eftir því að
eitthvað gerist sem kalli á að það
þurfi að setja þetta í gang,“ segir
Þórir Guðmundsson, upplýsinga-
fulltrúi Rauða krossins.
Hann segir að samráðsfundir hafi
verið haldnir með öðrum Rauða
kross félögum um allan heim sem
og Alþjóða Rauða krossinum.
„Þetta gengur þannig fyrir sig að
við erum spurð hvað við getum boð-
ið fram og við erum með sendifull-
trúa í viðbragðsstöðu. Við bíðum
eftir því að kallið komi. Alþjóða
Rauða krossinn er reiðubúinn að
aðstoða allt að milljón manns sem
kynni að fara út úr Írak. Þá erum
við ekki að spá því að það verði svo
mikill flóttamannastraumur en við
getum hjálpað allt að milljón
manns,“ segir Þórir.
Sinna særðum, flóttamönnum
og útvega vatn
Hann segir að fyrst um sinn
muni starfsmenn Rauða krossins
líklega einbeita sér að því að sinna
særðum, hvort sem það séu her-
menn eða óbreyttir borgarar. „Þá
þarf einnig að huga að flóttamönn-
um og sjá til þess að fólk fái hreint
vatn. Ef stríð hefst er líklegt að
vatn spillist mjög fljótt þannig að
þörfin fyrir hreint vatn verður mjög
brýn, bæði í flóttamannabúðum sem
verður komið upp og inni í Írak.“
Þórir segir að þó flestir alþjóð-
legir starfsmenn í Írak hafi yfirgef-
ið landið starfi Alþjóða Rauði kross-
inn þar enn. Alls séu þar nú tíu
starfsmenn til viðbótar við um 400
íraska starfsmenn Rauða krossins
og þúsundir sjálfboðaliða Rauða
hálfmánans sem hafi hlotið þjálfun
undanfarið í fjöldahjálp og öðru
sem búast megi við að þurfi að
beita. „Þessir tíu alþjóðlegu starfs-
menn í Írak eru aðallega að bíða.
Þeir þurfa að koma sér fyrir á
öruggum stöðum þegar og ef
sprengjur byrja að falla,“ segir Þór-
ir.
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari
á Morgunblaðinu, fór nýlega til
Jórdaníu á vegum Rauða krossins
þar sem hann mun taka myndir af
flóttamönnum sem koma yfir landa-
mærin fyrir Alþjóða rauða krossinn
og fjölmiðla. Þórir segir að tilgang-
urinn sé að aðstoða Rauða krossinn
við fjáröflun. Aðspurður segir hann
líklegt að söfnunarsími Rauða
krossins, 907-2020 verði opnaður
komi til stríðs í Írak sem allt útlit
er nú fyrir að verði.
Þórir segir að Rauði krossinn
beini nú tilmælum til aðila að deil-
unni um að halda Genfarsamn-
ingana sem takmarki hvaða skot-
mörk menn geta valið. Það sé t.d.
takmörkum háð hvort það megi
varpa sprengjum á mannvirki á
borð við vatnsveitur og sjúkrahús,
sem eru nauðsynleg til að viðhalda
lífi óbreyttra borgara.
Rauði krossinn miðar undirbúning við að taka við allt að milljón flóttamönnum
Íslendingar geta farið ut-
an með stuttum fyrirvara
Einn sendifulltrúi er þegar
kominn til Amman í Jórdaníu
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ ræður
fólki frá ferðum til Írak, Kúveit, Gaza-
svæðisins og Vesturbakkans eins og
sakir standa í kjölfar þess óvissu-
ástands sem skapast hefur á tiltekn-
um svæðum í Mið-Austurlöndum. Þá
er íslenskum ríkisborgurum sem
staddir eru í Írak ráðlagt að yfirgefa
landið og Íslendingum í Kúveit ráð-
lagt að fylgjast vel með fréttaflutningi
af gangi mála og íhuga jafnframt að
yfirgefa landið.
Segir á vef ráðuneytisins að
ástandið á þessu landsvæði geti
versnað skjótt, vegna spennu sem
skapast hafi í næstu nágrannaríkjum
Íraks. Í öryggisskyni eru aðstand-
endur íslenskra ríkisborgara í Mið-
Austurlöndum beðnir um að upplýsa
utanríkisráðuneytið um dvalarstað,
síma og fjölskylduhagi viðkomandi.
Eru aðstandendur beðnir um að
senda þessar upplýsingar á netfangið:
postur@utn.stjr.is eða hringja í síma
545-9900. Á vef utanríkisráðuneytis-
ins, www.utanrikisraduneytid.is, er
að finna frekari upplýsingar, meðal
annars um þá aðila sem Íslendingar
geta snúið sér til á svæðinu.
Íslending-
um ráðlagt
að yfir-
gefa Írak