Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 14

Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ FULLTRÚAR S-hópsins skiluðu í gær til Búnaðarbankans tillögu að nýju bankaráði. Ólafur Ólafsson, talsmaður kaupendanna og stjórn- arformaður Eglu hf., segist gera ráð fyrir að tillagan nái fram að ganga á aðalfundinum á laugardag- inn, enda sé hún lögð fram í sátt við alla helstu hluthafa eins og gangi og gerist í hlutafélögum. Samkvæmt tillögunni verða fulltrúar ríkisins leystir af hólmi. Í stað þeirra koma Finnur Ingólfs- son, forstjóri VÍS, Hjörleifur Jak- obsson, forstjóri Olíufélagsins ehf. og dr. Michael Sautter, fram- kvæmdastjóri hjá Société Générale í Þýskalandi og Austurríki. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins er gert ráð fyrir að Hjörleifur verði formaður banka- ráðs. „Styrkir bankann“ Þá er gert ráð fyrir að tveir fulltrúar haldi áfram störfum sínum í ráðinu. Það eru Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Búnaðarbankans og Jón Helgi Guð- mundsson, forstjóri og stjórnarfor- maður BYKO. Elín hefur átt sæti í bankaráðinu síðustu fjögur ár. Ólafur segist telja að hið nýja bankaráð muni styrkja bankann mjög. „Þarna held ég að fari feiki- lega góðir og hæfir einstaklingar. Þarna er fulltrúi sem þekkir mjög vel innviði bankans; erlendur sér- fræðingur um alþjóðabankakerfið, fyrrverandi seðlabankastjóri og tveir menn sem eru vel tengdir við- skiptalífinu,“ segir hann. Ólafur segir að þeir tveir síðastnefndu fáist þó við sérhæfðan geira viðskiptalífs- ins og því sé takmörkuð hætta á hagsmunaárekstrum. S-hópur með 45,8% á aðalfundi Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hyggjast kaupendur reiða fram þrjá fimmtu kaupverðs, fyrir 27,48% hlutafjár, í vikunni. Þeir ráða því yfir 27,48% atkvæða á fundinum. Að auki munu þeir í sam- ráði við ríkið fara með atkvæði rík- isins, þannig að atkvæði S-hópsins svara til 45,8% heildaratkvæða á laugardaginn. Gerð er tillaga um að Guðmundur Kristjánsson, Margeir Daníelsson, Jón Þór Hjaltason, Þórður Magn- ússon og Guðmundur Hjaltason verði varamenn í bankaráðinu. Tillaga að nýju bankaráði BÍ TILLAGA S-hópsins gerir ráð fyrir þremur nýjum bankaráðs- mönnum í stað fulltrúa ríkisins. Finnur Ingólfs- son kemur nýr inn. Hann er fæddur 8. ágúst 1954. Hann var iðnaðar- og við- skiptaráðherra frá apríl 1995 til árs- loka 1999, er hann tók við stöðu Seðlabankastjóra. 1. nóvember 2002 tók hann við starfi forstjóra VÍS. Hjörleifur Jakobsson er einnig nýr bankaráðsfulltrúi. Hann er fæddur 7. apríl 1957. Hann starfaði hjá Eimskipi 1981 til 1999, er hann varð forstjóri Hampiðjunnar. Hann gegndi því starfi allt þar til hann tók við stöðu forstjóra Olíufélagsins í ársbyrjun 2002. Dr. Michael Sautter er þriðji nýi fulltrúinn. Hann starfaði hjá McKinsey & Company í Frankfurt frá 1986 til 2000, þar af sem fram- kvæmdastjóri 1996 til 2000. Þá varð hann framkvæmdastjóri hjá Deutsche Bank, en á síðasta ári hóf hann störf sem framkvæmdastjóri hjá Société Générale í Þýskalandi og Austurríki. Elín Sigfúsdóttir hefur verið í bankaráði í fjögur ár. Hún er fædd 24. ágúst 1955. Elín hefur unnið hjá bankanum síðan 1979; m.a. sem for- stöðumaður hagdeildar, for- stöðumaður á fyrirtækjasviði og að- stoðarframkvæmdastjóri þess. Hún var ráðin framkvæmdastjóri fyr- irtækjasviðs í febrúar síðastliðnum. Jón Helgi Guðmundsson hefur verið bankaráðsmaður frá aðalfundi 2002, eftir að Gilding sameinaðist bankanum. Hann er fæddur 20. maí 1947. Hann hefur starfað hjá BYKO síðan 1972. Jón hefur verið fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins síðan 1984. Þrír nýir í bankaráði Búnaðarbankans Dr. Michael Sautter Jón Helgi Guðmundsson Hjörleifur Jakobsson Elín Sigfúsdóttir Finnur Ingólfsson HAGNAÐUR Pharmaco hf. á árinu 2002 nam 3.166 milljónum króna eftir skatta. Hagnaðurinn tvöfaldaðist milli ára því á árinu 2001 var hann 1.562 milljónir. Róbert Wessman, annar for- stjóri Pharmaco, sagði á kynning- arfundi fyrir fjárfesta í gær, þar sem greint var frá rekstrarniður- stöðum félagsins, að árið 2002 hafi verið besta árið í sögu Pharmaco til þessa. Pharmaco eignaðist meirihluta í lyfjafyrirtækinu Delta í júlímánuði síðasta árs og í framhaldinu voru félögin sameinuð undir nafni Pharmaco. Rekstur Delta er inni- falinn í rekstri samstæðunnar frá 1. júlí 2002. Sindri Sindrason, hinn forstjóri Pharmaco, greindi frá því á kynn- ingarfundinum í gær að stjórn fé- lagsins hefði samþykkt í fyrradag að auka við hlut sinn í lyfjaþróun- arfyrirtækinu Colotech í Dan- mörku. Eignarhlutur Pharmaco í Colotech mun aukast úr 33% í 90%. Kaupverðið er um 5 milljónir evra fyrir 57% hlut í félaginu og þar af fara 4 milljónir evra inn sem nýtt hlutafé á næstu fjórum árum. Hjá Colotech er unnið að rann- sóknum og þróun lyfja gegn krabbameini. Heildareignir 39 milljarðar Hagnaður Pharmaco fyrir vexti, afskriftir og skatta nam 3.921 milljón í fyrra en 3.232 milljónum árið áður. Rekstrartekjur jukust úr 15.177 milljónum króna árið 2001 í 18.574 milljónir í fyrra og jukust tekjur því um 3.397 millj- ónir milli ára. Rekstrargjöld voru 15.925 milljónir í fyrra en 12.457 milljónir árið áður og jukust því um 3.468 milljónir. Heildareignir Pharmaco í árslok 2002 voru 39,1 milljarður króna og höfðu aukist um 24,1 milljarð milli ára. Heildarskuldir voru 18,8 millj- arðar og eigið fé 20,3 milljarðar. Eiginfjárhlutfall er 52%. Velta í samræmi við áætlun Í tilkynningu frá Pharmaco seg- ir að velta félagsins á árinu 2002 hafi verið í samræmi við útgefna áætlun félagsins. Sala inn á mark- aði í Vestur-Evrópu hafi gengið betur en áætlanir hafi gert ráð fyrir á seinni hluta ársins, en sala inn á Mið- og Austur-Evrópu hafi hins vegar verið undir áætlun á síðari hluta ársins. Pharmaco sé um þessar mundir að skrá um 30 ný lyf inn á markaði Mið- og Aust- ur-Evrópu og áætlað sé að þau muni skila sér í sölu á árinu 2004. Róbert sagði á kynningarfund- inum í gær að Pharmaco hefði ákveðið að birta ekki nákvæmar rekstraráætlanir fyrir félagið vegna rekstrarársins 2003. Þess í stað verði gefin upp langtíma- markmið í rekstri. Samkvæmt þeim sé gert ráð fyrir að árleg framlegð verði um 30%. Þá sé stefnt að 15–20% innri vexti á ári næstu þrjú árin, sem geti verið nokkuð mismunandi milli ára. Pharmaco stefni einnig að 15–20% ytri vexti með fjárfestingum í er- lendum félögum sem falli verr að aðalstarfsemi félagsins. Pharmaco hagnast um rúma 3 milljarða                                   !      " #$   ! %   &  #$#  '#$# (   # " # # &  # # )%! ) !*%+ *+ %*       !!        )    )*%+ *+ *       !  )       "#  $      KYNNINGARFUNDUR Pharma- co í gær með fjárfestum vegna uppgjörs félagsins fyrir árið 2002 var haldinn í Listasafni Íslands. Sindri Sindrason, forstjóri Pharmaco, vék í ræðu sinni að þeirri samsvörun sem hann sagði vera milli samheitalyfjafram- leiðslu Pharmaco og þeirrar list- sýningar sem er í þeim sal lista- safnsins sem fundurinn var haldinn í. Þar eru á veggjum verk banda- ríska myndlistarmannsins Mike Bidlos, sem sýnir eftirlíkingar af sögufrægum listaverkum. Heiti sýningarinnar er: „Mike Bidlo: Ekki Picasso. Ekki Pollock. Ekki Warhol.“ Nafnið skírskotar til þess að sýndar eru eftirlíkingar Bidlos af verkum eftir þessa þrjá listamenn. Sindri sagði að fæstir gerðu sér eflaust grein fyrir því að um eftirlíkingar af listaverkum þess- ara listamanna væri að ræða. Verkin væru þó viðurkennd. Það sama ætti við um samheitalyf. Þau væru ekki frumlyf, en væru engu að síður að fullu viður- kennd. Listin og lyfjafram- leiðslan Í GÆR skrifaði samstarfshópur um fjölmiðlarannsóknir, skipaður fulltrúum helstu fjölmiðla, Samtaka auglýsenda, SAU, og Samtaka ís- lenskra auglýsingastofa, SÍA, undir nýjan fimm ára samning við Gallup um framkvæmd fjölmiðlarann- sókna á Íslandi. Samningurinn er mun umfangsmeiri en fyrri sam- ingur sömu aðila og kostar 26 millj- ónir á ári, sem er tvöföldun frá því sem áður var. Að sögn Halls A. Baldurssonar formanns fjölmiðlarannsókn- arnefndar SÍA er um mikið fram- faraspor að ræða. „Þetta er mikið framfaraspor varðandi það að geta beitt faglegri vinnubrögðum við gerð birtingaáætlana,“ sagði Hall- ur í samtali við Morgunblaðið. Meðal þess sem samningurinn hljóðar upp á er að dagbókarkönn- unum verður fjölgað úr tveimur á ári í sex og símakannanir fyrir út- varp verða gerðar sex sinnum á ári. Í samningnum er einnig gert ráð fyrir að byggður verði upp miðlæg- ur gagnagrunnur þar sem upplýs- ingum verður safnað saman og þær gerðar aðgengilegar aðstandend- um samningsins. Hallur segir að í nýju könn- ununum muni fást mjög góðar upp- lýsingar um skörun á milli miðla sem auðveldi gerð faglegra birt- ingaáætlana sem skili sér í betri nýtingu þess fjármagns sem notað er til auglýsinga- og markaðsmála. Morgunblaðið/Árni Sæberg Samstarfshópur um fjölmiðlarannsóknir skrifaði undir samninginn í gær. Á myndinni eru fulltrúar fjölmiðla, Samtaka auglýsenda, Samtaka ís- lenskra auglýsingastofa og Gallup. Samningur um fjölmiðlarannsóknir Meiri upplýsingar og fagmennska

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.