Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 19
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf.
verður haldinn að Laugalandi í Holtum
föstudaginn 4. apríl 2003 og hefst kl. 14:00
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt
24. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga til breytinga á samþykktum vegna
stækkunar á félagssvæði félagsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá félagsaðilum, sem bera á fram á aðalfundi, þurfa að vera komnar
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Reykjavík, 17. mars 2003.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
NÆSTU fjóra daga mun Garðabær iða af lífi og list
því á morgun hefjast Listadagar barna og ungmenna í
sveitarfélaginu. Allir grunnskólar og leikskólar bæj-
arins, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ auk Tónlistarskól-
ans og annarra stofnana taka þátt í hátíðinni.
Að sögn Huldu Hauksdóttur, upplýsingafulltrúa
Garðabæjar, kom hugmyndin að listahátíðinni fram í
fyrravor og var vel í hana tekið í menningar-
málanefnd bæjarins. „Íþróttunum hefur verið nokkuð
vel sinnt og ég held að fólki hafi einfaldlega fundist
tími til kominn að sinna listinni líka. Með svona stórri
hátíð fyrir börn og ungmenni gefst tækifæri til að
sýna það sem er þegar fyrir hendi í Garðabæ í list-
námi auk þess að gefa börnum og ungmennum tæki-
færi til að troða upp og sömuleiðis að njóta list-
arinnar.“
Rokkað í FG
Hátíðin stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags
þó að þegar sé búið að taka forskot á sæluna sums
staðar auk þess sem ýmsar sýningar munu standa
lengur yfir að sögn Huldu. Setningarathöfn hátíð-
arinnar verður á Garðatorgi á morgun og hefst kl. 15.
„Þar verður brot af því besta og söngur og skemmtun
í um klukkutíma. Að lokinni setningunni verða opn-
aðar sýningar á borð við fatahönnunarsýningu, mynd-
listarsýningu og margt í þeim dúr,“ segir hún.
Á fimmtudagskvöldið verður svo rokkveisla í FG en
á föstudeginum verður opið hús í leikskólum bæjarins
auk þess sem listasýning barna í Hofsstaðaskóla verð-
ur opnuð þann dag.
Þá verður opið hús í grunnskólum bæjarins á laug-
ardaginn og smiðjudagur verður í Garðaskóla þar
sem gestum og gangandi verður boðið að taka þátt í
flugdrekasmíði, hatta- og húfugerð.
Lokadagur hátíðarinnar verður svo á sunnudaginn
en þá verður stór danssýning í íþróttahúsinu sem
hefst kl. 16 en lokaatriði hátíðarinnar verða klassískir
tónleikar í Kirkjuhvoli um kvöldið þar sem ungir og
efnilegir tónlistarmenn koma fram.
„Svo má taka fram að það verður rekið sérstakt út-
varp, Útvarp listadagar, á tíðninni FM 99,4 á meðan á
hátíðinni stendur. Fjölmiðladeildin í Fjölbrautaskól-
anum mun hafa umsjón með því og við gerum ráð fyr-
ir að tekin verði viðtöl við flytjendur og aðra og sagt
frá dagskránni,“ segir Hulda.
Ítarlegri dagskrá listahátíðarinnar er að finna á
heimasíðu bæjarins sem hefur slóðina www.garda-
baer.is auk þess sem bæklingi með dagskránni hefur
verið dreift í öll hús í bænum.
Morgunblaðið/RAX
Krakkar í Flataskóla voru í gær að æfa götudans, svokallaðan Stomp-dans, fyrir setningarhátíðina á morgun.
Fatahönnun og flugdrekar
Garðabær
Listadagar barna og ung-
linga settir á morgun
SKÓGRÆKTARFÉLÖG á höfuð-
borgarsvæðinu hafa tekið höndum
saman um að auka og efla samstarf
sín á milli um Græna trefilinn.
Fulltrúar félaganna undirrituðu yf-
irlýsingu þar að lútandi á laugardag.
Græni trefillinn svokallaði er úti-
vistarsvæði ofan byggðar á höfuð-
borgarsvæðinu sem meiningin er að
nái frá Esjuhlíðum í norðri og suður
fyrir Hafnarfjörð samkvæmt tillög-
um sem fyrst komu fram fyrir um 10
árum, að því er fram kemur í frétt
frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.
Það voru skógræktarfélög þeirra
sveitarfélaga sem trefillinn liggur
um sem mótuðu tillögurnar en þau
eru Skógræktarfélag Garðabæjar,
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar,
Skógræktarfélag Kjalarness, Skóg-
ræktarfélag Kópavogs, Skógræktar-
félag Mosfellsbæjar og Skógræktar-
félag Reykjavíkur.
Í yfirlýsingunni segir meðal ann-
ars að samstarfinu sé ætlað að ann-
ast samskipti við hagsmunaaðila,
vinna með almenningi og sveitar-
félögum að ræktun, rekstri og nýt-
ingu svæðanna, halda saman gögn-
um og upplýsingum um svæðin í
heild, hvetja til sameiginlegrar eða
samræmdrar útgáfu korta o.fl. og að
samræma skógræktar- og upp-
græðsluáætlanir.
Undirritunin fór fram á fulltrúa-
fundi Skógræktarfélags Íslands en á
myndinni eru frá hægri Lilja Guð-
mundsdóttir, Guðrún Hafsteins-
dóttir, Hólmfríður Finnbogadóttir,
Stefán P. Eggertsson, Erla Bil
Bjarnadóttir og Sigríður Jóhanns-
dóttir.
Aukið samstarf um
Græna trefilinn
Höfuðborgarsvæðið
HAFNARFJARÐARBÆR hefur
fengið úthlutað Staðardagskrárverð-
launum 2003 frá umhverfisráðuneyt-
inu og Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga, fyrir þrautseigju og vönduð
vinnubrögð í Staðardagskrárstarfi
1998–2003.
Hafnarfjarðarbær hefur tekið
þátt í Staðardagskrárverkefninu frá
upphafi og var annað sveitarfélagið
sem samþykkti Staðardagskrá, í
september árið 2000. Starfsmaður
var ráðinn til verkefnisins árið 1999,
fyrst tímabundið, en síðan fastráð-
inn.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ
segir að góð þátttaka hafi verið í
verkefninu meðal bæjarbúa frá upp-
hafi og Hafnfirðingar einna dugleg-
astir við að taka þátt í hinum ýmsu
verkefnum sem miða að sjálfbærri
þróun.
Staðardagskrár-
verðlaun 2003 fyrir
vönduð vinnubrögð
Hafnarfjörður
ATVINNU- og ferðamálanefnd
Mosfellsbæjar veitti á dögunum ár-
leg hvatningarverðlaun bæjarins.
Fjórtán fyrirtæki voru tilnefnd til
þessara verðlauna en þau voru af-
hent við hátíðlega athöfn í Hlégarði.
Í ár var það Mosfellsbakarí sem
hlaut hvatningarverðlaunin. Mos-
fellsbakarí var stofnað árið 1982 af
hjónunum Ragnari Hafliðasyni og
Áslaugu Sveinbjörnsdóttur.
Einnig var veitt viðurkenning til
fyrirtækis sem talist getur sprota-
fyrirtæki ársins og þau hlaut Secret-
snyrtivörulína. Secret-snyrtivörulín-
an er hönnuð af hárgreiðslumeistar-
anum og förðunarfræðingnum Önnu
Silfu Þorsteinsdóttur sem rekur hár-
greiðslustofuna Hárhús Önnu Silfu
við Háholt í Mosfellsbæ.
Mosfellsbakarí fær
hvatningarverðlaun
Mosfellsbær
NÍTJÁN tilboð bárust í stækkun
leikskólans Krakkakots í Bessa-
staðahreppi en tilboðin voru opn-
uð í síðustu viku. Það var fyrir-
tækið Eiríkur og Einar Valur ehf.
sem átti lægsta tilboðið.
Upphæð tilboðs Eiríks og Ein-
ars Vals var tæpar 43 milljónir en
hæsta tilboðið hljóðaði upp á tæp-
ar 70,5 milljónir. Kostnaðaráætl-
un var hins vegar tæpar 47 millj-
ónir. Alls er áætlað að stækka
leikskólann um 360 fermetra en á
þeim verður m.a. stækkaður mat-
salur, bætt aðstaða fyrir sér-
kennslu, garðskáli og tvær nýjar
deildir.
Hönnuður byggingarinnar er
Ferdinand Alfreðsson arkitekt en
gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist í sumar og verði lokið í júlí
2004.
Nítján tilboð
bárust í Krakkakot
Bessastaðahreppur