Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 23
FYRIRHUGUÐ sýning á
Rómeó og Júlíu í Borgarleik-
húsinu á föstudagskvöldið fell-
ur niður. Nína Dögg Filippus-
dóttir tognaði illa á handlegg
þegar hún féll niður af sviðinu á
sýningu sl. laugardagskvöld.
Næsta sýning verður skv. áætl-
un miðvikudaginn 26. mars.
Þeir sem eiga miða á föstudags-
kvöldið eru beðnir að snúa sér
til miðasölu Borgarleikhússins.
Rómeó og
Júlíu frestað
Súfistinn, Laugavegi kl. 20.30
Sjónhverfingakvöld verður í tilefni
af útkomu bókar Hermanns Stef-
ánssonar, Sjónhverfingar. Úlfhildur
Dagsdóttir mun fjalla um sjónhverf-
ingafræði Hermanns, Jón Hallur
Stefánsson les upp úr Sjónhverf-
ingum, auk þess mun töframaðurinn
Birgir sýna sjónhverfingar.
Goethe-Zentrum, Laugavegi 18
kl. 20.30 Þýska kvikmyndin „Verg-
iss Amerika“/Forget America verð-
ur sýnd í kvöld. Myndin er frá árinu
2000 og er textuð á ensku. Leikstjóri
er Vanessa Joop.
Vinirnir Benno og David, sem búa í
austurþýskri smáborg, verða báðir
ástfangnir af stúlkunni Önnu.
Í DAG
HÆFNISPRÓF fyrir dansara fer
fram í Iðnó á laugardag kl.14.30 á
vegum Ferðaleikhússins sem sýna
mun Light Nights í Iðnó í sumar.
Ráðgert er að fjórir dansarar (tvö
pör) ekki yngri en 16 ára komi
fram í nokkrum dansatriðum og
einnig í leikatriðum sem leikrænir
túlkendur án orða.
Í hæfnisprófinu eru dansarar
beðnir um að sýna stutt dansatriði,
að eigin vali, sem þeir hafa und-
irbúið og æft áður. Jafnframt eru
umsækjendum gefin verkefni á
staðnum þar sem þeir eru prófaðir
í leikrænni tjáningu.
Einnig getur Ferðaleikhúsið
bætt við einum atvinnuleikara sem
hefur ensku á valdi sínu.
Skráning og nánari upplýsingar
gefur Kristín G. Magnús.
Hæfnispróf
fyrir dansara
RITHÖFUNDAR úr Grafarvogi,
Grafarvogsskáldin svokölluðu, eru í
forgrunni í nýjasta tölublaði vef-
tímaritsins Transcript. Tímaritið er
gefið út af Literature Across Front-
iers (LAF), sem er evrópskt verk-
efni tileinkað bókmenntaumræðu,
og er einkum helgað bókmenntum
smærri evrópskra tungumála. Eitt
meginmarkmiða Transcript er að
kynna bókmenntir sem að öðru leyti
hljóta takmarkaðri kynningu á hin-
um almenna alþjóðlega vettvangi.
Bókmenntakynningarsjóður, sem er
í samstarfi við LAF, styrkti vinnuna
við íslenska hluta þessa tölublaðs.
Íslensku rithöfundarnir eru hluti
af umfjöllun um „Eyjarnar í
norðri“, en auk hinna íslensku
rithöfunda er grænlenskum,
orkneyskum og hjaltlenskum rithöf-
undum gerð skil í þessum hluta tölu-
blaðsins. Grafarvogsskáldin er fé-
lagsskapur rithöfunda sem búsettir
eru í hverfinu og hittast þeir öðru
hverju til þess að ræða skáldskap og
undirbúa menningaruppákomur í
hverfi sínu. Má þar nefna upplestur
á hinum árlega Grafarvogsdegi,
sem haldinn er í september, og
Stjörnumessu, sem haldin er í des-
ember. Til Grafarvogsskáldanna
teljast Aðalsteinn Ingólfsson, Ari
Trausti Guðmundsson, Einar Már
Guðmundsson, Gyrðir Elíasson,
Kristín Marja Baldursdóttir, Ragn-
ar Ingi Aðalsteinsson, Sigmundur
Ernir Rúnarsson og Sigurbjörg
Þrastardóttir.
Pistilinn „Life in a Reykjavík Sub-
urb“ eða „Lífið í úthverfi Reykjavík-
ur“ eftir Eystein Þorvaldsson er að
finna á Transcript, auk stuttrar um-
fjöllunar um starfsferil hvers höf-
undar. Lesa má sýnishorn úr verki
eftir hvern rithöfund, ljóð, smásögu
eða kaflabrot úr skáldsögu í enskri
þýðingu, og sum verkanna má jafn-
framt lesa í þýskri eða franskri þýð-
ingu, en Transcript kemur út á
þessum þremur tungumálum. Einn-
ig birtir tímaritið smásöguna
„Streaker Disrupts Iceland versus
Albania“ eftir Einar Má. Um hópinn
segir í pistli Eysteins: „Grafarvogs-
skáldin eru þó ekki einsleitur hóp-
ur. Umfjöllunarefni þeirra og að-
ferðir eru ólíkar, bækur þeirra bera
ólíkum starfsstéttum vitni og verk
þeirra flokkast á breiðum skala. Að-
eins tvö skáldanna hafa helgað sig
skrifum eingöngu, en hinir lagt
stund á margs konar störf meðfram
ritstörfum. Aðspurð hvað sameini
þau, svara rithöfundarnir: „Hverfið
og áhugi okkar á bókmenntum.““
Slóð veftímaritsins Transcript er:
www.transcript-review.org.
Grafarvogs-
skáldin á Netið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einar Már Guðmundsson, eitt Grafarvogsskáldanna, les úr verkum sínum á
hinni árlegu Stjörnumessu í Grafarvogi fyrir síðustu jól.
Sjónhverfingar
eftir Hermann
Stefánsson er
fyrsta bókin í
Svörtu línunni frá
Bjarti.
„Eitthvað birtist
og virðist svo gufa
upp; ef að er gáð
kemur í ljós að
það hefur aldrei verið til.“ Þetta er ein
af grundvallarhugmyndum Hermanns
Stefánssonar um sjálft eðli íslensks
veruleika. Hugmyndir þessar setur
Hermann fram í nýrri bók þar sem
hann sviptir hulunni af ýmsum hliðum
samtímans, ekki síst þeirri tegund
menningar sem venjulega er skil-
greind sem lágmenning eða fjölda-
menning.
Meðal viðfangsefna hans er hval-
urinn Keikó, sjómannadagurinn,
dauði Díönu prinsessu, auglýsingar
fyrir smjörlíki, dömubindi og hársápu,
glötuð skáldsaga eftir Halldór Lax-
ness, skyndibitastaðir, ríkjandi við-
horf, ljósmyndir, fatafellur, falsanir og
auðkennahryðjuverk.
Bókin er jafnframt önnur bókin í vor-
bókaflóði.
Útgefandi er Bókaforlagið Bjartur.
Verð: 1.480 kr.
Skáldsaga
BIRGIR Andrésson myndlistarmaður er að vinna að
því verkefni þessa dagana að búa til myndverk fyrir
ferjuna Norrænu. Verkinu er ætlað að prýða bar ferj-
unnar.
„Ég hef ekki myndskreytt bar áður, en hef gert
myndskreytingar fyrir stofnanir eins og Enskilda Bank-
en í Danmörku, félagsmálamiðstöð í Bern í Sviss, og hef
gert svipað verkefni fyrir Menntaskólann í Kópavogi,“
segir listamaðurinn spurður um hvort ekki sé sérstakt
að skapa myndlist fyrir bar. „Ég hef málað talsvert upp
úr gamalli frímerkjaseríu, – Alþingishátíðarseríu, sem
er að mínu mati fyrsta serían í íslenskri frímerkjaflóru
þar sem reynt er að skapa ímynd þjóðar. Þarna eru vík-
ingaskip og lögsögumenn á Alþingi, Þingvellir, menn að
bera rekavið, og þar fram eftir götunum. Ég vinn verk-
in upp úr þessari seríu. Þetta eru frekar stórar myndir
og það er þessi þjóðararfur sem ég er að leika mér með,
en þó í frímerkjaformi. Frímerki eru einmitt notuð í
ferðalögum. Ef þú færð bréf frá skattinum eða sýslu-
manni, þá er yfirleitt aldrei frímerki á því, bara stimpill.
En þegar þú ferð í ferðalög, þá notarðu frímerki. Þetta
er einfalt, – ég er bara að búa til hlýlegar myndir.“
Myndskreytir bar Norrænu
Morgunblaðið/Kristinn
Birgir Andrésson, fyrir miðri mynd, ásamt aðstoðarmönnum sínum, Þuríði Sigurðardóttur og Arnfinni Amazeen.
HARMÓNÍKAN hefur löngum ver-
ið eitt ástsælasta hljóðfærið hér á
landi og skipað veigamikinn sess í
skemmtana- og tónlistarlífi hérlend-
is. Þrátt fyrir þessar útbreiddu vin-
sældir hljóðfærisins er hinn blæ-
brigðaríki tjáningarmáttur hennar
ekki öllum ljós, en úr því rætist í
kvöld, þegar finnski harmóníkuleik-
arinn Tatu Kantomaa heldur ein-
leikstónleika í Salnum. „Já, það má
kannski segja að það sé hin hliðin á
harmóníkunni sem kemur fram á
tónleikunum, ekki sú sem flestum
dettur í hug þegar þeir heyra orðið
harmóníka,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið. „Ég mun leika tón-
list sem skrifuð er sérstaklega fyrir
hljóðfærið, aðallega klassík en létt-
ari tónlist líka. Tónskáldin eru frá
Rússlandi, Finnlandi, Noregi,
Frakklandi og Danmörku.“
Sögu harmóníkunnar má rekja
aftur til fyrri hluta 19. aldar, og
spannar efnisskrá tónleikanna allt
frá seinni hluta aldarinnar til ný-
legra verka. Tatu segir tónleikana
gefa áheyrendum tækifæri til að
kynnast harmóníkunni og margvís-
legum verkum sem samin eru fyrir
hana. Hún sé fjölbreytilegra hljóð-
færi en margan grunar, en lítið sé
leikið hér af slíkri tónlist. „Ýmsir
tæknilegir hlutir í verkunum sem ég
leik krefjast mikillar þjálfunar. Í
mörgum nýrri verkanna sem skrif-
uð eru fyrir harmóníku eru mögu-
leikar hljóðfærisins nýttir til fulls,
sem eldri tónlist gerði ekki í sama
mæli. Vinstri hönd og hægri hönd
leika til dæmis stundum þannig, að
það líkist einna helst tveimur hljóð-
færum sem spilað er á í einu, og
vinstri höndin er farin að skipta
jafnmiklu máli í nýrri tónlist og sú
hægri,“ útskýrir hann.
Tatu Kantomaa er íslenskum tón-
listarunnendum að góðu kunnur
sem harmóníkuleikari, en hann hef-
ur haldið fjöldamarga einleikstón-
leika hérlendis og meðal annars
komið fram hérlendis með tónlist-
arhópunum Rússíbönunum og
Caput. Hann hefur verið búsettur á
Íslandi með hléum frá árinu 1996 og
kennt og spilað á harmóníku. Enn-
fremur hefur hann komið fram á
tónleikum víða um heim og gefið út
nokkra geisladiska.
Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.
Hin hliðin
á harmón-
íkunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tatu Kantomaa leikur á harmóníku
á tónleikum í Salnum í kvöld.
SÆNSKIR listamenn frá borginni
Umeå bjóða upp á fjölbreytta
menningardagskrá í Norræna hús-
inu í dag kl. 17–19 og á Akureyri á
morgun. Það eru danshópurinn
Nomo Daco, skáldkonan Katarina
Mazetti og tónlistarmaðurinn Tor-
björn Näsbom.
Nomo Daco – northern move-
ment dance company – er hópur
ungra atvinnudansara sem var
stofnaður vorið 2002 í Umeå. Hann
samanstendur af fimm ungum
dönsurum með ólíkan feril að baki
á hinum ýmsu sviðum danslist-
arinnar, s.s. nútímadansi, ballett,
breakdansi, djassballet og kung fu.
Þau hófu samstarf sitt við uppsetn-
inguna á „lycksalighetens ö“ við
Norrlandsóperuna í Umeå 2002.
Markmið þeirra er að sameina ólík-
an bakgrunn sinn á danssviðinu til
skapa eitthvað einstakt. Hópurinn
hefur fengið góða gagnrýni og
komið fram á ýmsum hátíðum í Sví-
þjóð.
Katarina Mazetti (f. 1944) er ein
af vinsælustu rithöfundum Svía í
dag. Hún varð fyrst þekkt sem
barnabókahöfundur en sló í gegn
fyrir alvöru með skáldsögunni
Grabben i graven bredvid. Á dag-
skránni mun Katarina lesa upp úr
bókinni og kynna höfundarverk
sitt.
Fiðla með snertlum
Torbjörn Näsbom nam klass-
ískan fiðluleik við sænska útvarps-
skólann og Konunglegu tónlistar-
akademíuna í Brussel. Á síðari ár-
um hefur hann einbeitt sér að því
að leika tónlist á fiðlu með snertlum
(nyckelharp) sem er aldagamalt
sænskt alþýðuhljóðfæri. Hljóðfærið
hentar barokk-tónlistinni vel en eft-
irlætistónskáld Torbjörns eru J.S.
Bach og Marin Marais. Torbjörn
Näsbom hefur m.a. leikið með Út-
varpssinfóníunni í Stokkhólmi og
öðrum sinfóníum í Svíþjóð, Finn-
landi og Rússlandi. Hann hefur m.a.
farið í tónleikaferð um Evrópu með
söngkonunni Ann-Sofi von Otter og
tekið þátt í ýmsum hátíðum.
Sænskur
dans, lestur
og fiðlu-
leikur
Torbjörn Näsbom fiðluleikari.