Morgunblaðið - 19.03.2003, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 19.03.2003, Qupperneq 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 41 LÍF hf., áður Lyfjaverslun Íslands, hefur í gegnum árin stutt við ýmis góð málefni sem tengjast heil- brigðisþjónustu. Líf er fyrirtæki sem þjónar heil- brigðisgeiranum með vörum, þjónustu og þekkingu. Hjá Lífi starfa um 200 manns og fyrirtækið hefur aðsetur á Lynghálsi 13 í Reykjavík. Föstudaginn 14. mars færðu forsvarsmenn Lífs kvennadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss að- gerðastól að gjöf. Um 6.000 konur koma á kvenna- deildina á hverju ári til skoðunar. Stóllinn, sem er frá Midmark, er rafdrifinn. Hann er sérhannaður með þarfir sjúklings og læknis í huga. Við fyrstu sýn lítur stóllinn út eins og venju- legur hægindastóll, en með einfaldri fótstýringu breytist hann í aðgerðaborð. Auðvelt er fyrir sjúk- linginn að koma sér fyrir, jafnvel fyrir þá sem hafa takmarkaða hreyfigetu, og án nokkurrar fyrir- hafnar getur læknirinn stillt stólinn til að auðvelda aðgengi að sjúklingnum við skoðun og aðgerðir, segir í fréttatilkynningu. Frá vinstri talið: Jón Hilmar Alfreðsson, sviðsstjóri og yfirlæknir, Reynir T. Geirsson yfirlæknir, Elísabet Ólafsdóttir deildarstjóri, Margrét J. Hallgrímsson, sviðsstjóri og yfirljósmóðir, Stefán Bjarnason, framkvæmdastjóri Thorar- ensen-Lyfja, Sturla Geirsson, forstjóri Lífs hf., og Kristín Sigtryggsdóttir, sölufulltrúi hjá Thorarensen-Lyfjum. Gefa kvennadeild Landspítalans aðgerðastól Sjálfstyrkingarnámskeið hefst á morgun, fimmtudaginn 20. mars, á vegum Sálfræðistöðvarinnar, Þórsgötu 24. Námskeiðið er haldið á Hótel Loftleiðum og er kl. 20– 22.30 á fimmtudags og föstudags- kvöld, á laugardaginn er það kl. 9– 16. Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstyrk einstaklinga bæði í einkalífi og starfi. M.a. verður tek- ið fyrir persónuleg framkoma, greining á eigin jákvæðum og nei- kvæðum hliðum, hvernig byggja megi upp góð samskipti o.fl. Höf- undar námskeiðs og leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Ey- dal. Fundur Vinafélags Blindra- bókasafns Íslands um dyslexíu verður haldinn á morgun, fimmtu- daginn 20. mars kl. 20, að Hall- veigarstöðum, Túngötu 14 (kjall- ara). Bjargey Una Hinriksdóttir og Elfa Björk Benediktsdóttir lýsa reynslu sinni af dyslexíu. Hafþór Ragnarsson kynnir þjón- ustu Blindrabókasafns Íslands við framhaldsskólanemendur með dyslexíu og Þórunn Halla Guð- laugsdóttir, sérkennari við Iðn- skólann í Reykjavík, fjallar um dyslexíu. Almennar umræður um fundarefnið. Kaffiveitingar og allir velkomnir. Ársfundur Orkustofnunar verður haldinn í Gullteigi á Grand Hóteli á morgun, fimmtudaginn 20. mars kl. 13.30. Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra orkumála, mun ávarpa fundinn. Erindi halda: Þorkell Helgason orkumálastjóri, Helga P. Finnsdóttir landfræðingur og Guðmundur Ómar Friðleifsson jarðfræðingur. Neytendasamtökin efna til ráð- stefnu um Ísland og Evrópu- sambandið með tilliti til hags- muna neytenda á morgun, fimmtudaginn 20. mars, kl. 13– 16.30 á Grand Hóteli Reykjavík við Sigtún. Auk innlendra fyrirles- ara halda þeir Felix Cohen, for- stjóri hollensku neytendasamtak- anna, og Sinikka Turunen, forstjóri finnsku neytendasamtak- anna, erindi á ráðstefnunni. Ráð- stefnan er liður í því að fylgja eft- ir samþykkt sem gerð var á þingi Neytendasamtakanna síðastliðið haust þar sem stjórn var falið að gangast fyrir ítarlegri athugun og umræðu um gildi aðildar að Evr- ópusambandinu fyrir íslenska neytendur. Ráðstefnan er jafn- framt haldin á merkum tímamót- um í starfi Neytendasamtakanna, því sunnudaginn 23. mars verða liðin 50 ár frá stofnun þeirra. Ráð- stefnan er öllum opin án endur- gjalds og verður send út á heima- síðu Neytendasamtakanna, www.ns.is. Fræðsla í Alþjóðahúsi verður á morgun, fimmtudaginn 20. mars kl. 20.15, í Alþjóðahúsi á Hverf- isgötu 18, um almannatrygg- ingakerfið. Sérfræðingur frá Tryggingastofnun ríkisins fjallar um réttindi fólks og þá þjónustu sem stendur til boða. Fræðslan fer fram á íslensku og er túlkuð á rússnesku. Á MORGUN Páll Magnússon, aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem skipar 2. sæti á lista Framsókn- arflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur opnað nýja heimasíðu á www.palli.is. Á heimasíðunni verða m.a. birtar ræður og greinar sem birtast eftir Pál í blöðum og tímaritum, fjallað verður um mál sem eru meðal hans áherslna eða kosningamála Fram- sóknarflokksins. Einnig mun Páll setja fram skoðanir á hinum ýmsu hlutum og reyna að svara spurn- ingum sem berast á síðuna og upp- færa hana reglulega, segir í frétta- tilkynningu. VG á Suðurnesjum funda um af- leiðingar stríðs á morgun, fimmtu- daginn 20. mars kl. 20, í kosninga- miðstöð vinstri-grænna á Suðurnesjum, Hafnargötu 54 í Keflavík. Erindi halda: Kristín Ást- geirsdóttir sagnfræðingur og Jó- hann Þórsson háskólanemi og fram- bjóðandi VG. Fundarstjóri: Kolbeinn Óttarsson Proppé. STJÓRNMÁL Fundaherferð Samfylkingarinnar, „Vorið framundan“, verður með fund í Hlégarði Mosfellsbæ á morg- un, fimmtudaginn 20. mars kl. 20. Ávörp flytja Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, Össur Skarphéðinsson og Rannveig Guðmundsdóttir. Fund- arstjóri Valdimar Leó Friðriksson. BÆJARSTJÓRI Seltjarnarnesbæj- ar, Jónmundur Guðmarsson, hefur sent frá sér athugasemd vegna fréttar um íbúðakaup einstaklinga í Vogum. Í frétt Fréttablaðsins, mánudaginn 17. mars, er fjallað um að bæjarfélög og þar með talinn Seltjarnarnesbær flytji tekjulágt fólk í félagslegt húsnæði í Vogum á Vatnsleysuströnd. „Samkvæmt reglum Seltjarnar- nesbæjar um úthlutun viðbótarlána hefur umsækjendum um viðbótar- lán ekki verið meinað að kaupa hús- næði í öðrum bæjarfélögum ef vilji þeirra stendur til þess. Allir sem eiga lögheimili í bæjarfélaginu geta því sótt um lán ef þeir uppfylla skil- yrði um tekju- og eignarmörk skv. reglugerð um viðbótarlán. Félags- málaráð fer með úthlutanir viðbót- arlána og eru úthlutanir trúnaðar- mál. Seltjarnarnesbær hefur því ekki sett búsetuskilyrði við veitingu viðbótarlána en engu að síður staðið straum af kostnaði við lántökuna með 5% framlagi í Varasjóð hús- næðismála á vegum félagsmála- ráðuneytisins. Á síðasta ári nam heildarframlagið um 3 milljónum króna. Í langflestum tilfellum kaupa um- sækjendur þó húsnæði á Seltjarn- arnesi, enda er það með eftirsótt- ustu stöðum á höfuðborgarsvæðinu til búsetu. Fjármögnun íbúðakaupa með viðbótarláni er algengt fyrir- komulag bæði á Seltjarnarnesi og í öðrum sveitarfélögum. Seltjarnar- nesbær hefur ekki talið eðlilegt að hneppa umsækjendur í átthaga- fjötra með ströngum búsetuskilyrð- um enda er það sjálfsagður réttur einstaklinga að hafa sjálfdæmi um hvar þeir telja hag sínum best borg- ið með tilliti til búsetu. Með sama hætti hefur Seltjarnarnesbær ekki haft athugasemdir við – og raunar fagnað – eignakaupum fólks úr öðr- um bæjarfélögum á Seltjarnarnesi, hvort sem slík kaup eru fjármögnuð með viðbótarlánum eða öðrum hætti og talið persónulega hagi kaupenda sér óviðkomandi. Rétt er að undirstrika að starfs- menn Seltjarnarnesbæjar sem ann- ast móttöku umsókna og afgreiðslu munu ekki, frekar en áður, beina nokkrum umsækjanda um viðbótar- lán til Voga, frekar en í önnur sveit- arfélög eða gera það að skilyrði lán- veitingar. Ummæli sveitarstjórans í Vogum eru því illskiljanleg, ekki síst með tilliti til einstaklinga og fjölskyldna er kynnu að eiga hlut að máli. Seltjarnarnesbær harmar að umfjöllun um málefni einstaklinga skuli stillt upp með þessum hætti.“ Athugasemd frá Seltjarnarnesbæ Í FASTEIGNABLAÐI Morg- unblaðsins í gær var grein eftir Freyju Jónsdóttur um húsið Hrísateig 7 í Reykjavík. Sá misskilningur virðist hafa kom- ist á kreik að húsið væri til sölu og hafði fjöldi fólks samband við eigendurna í gær og vildu fá að skoða húsið. Það skal áréttað hér að húsið er ekki til sölu. Hrísateig- ur 7 ekki til sölu OPNAÐUR hefur verið kosningavef- ur á heimasíðu Ríkisútvarpsins. Á vefnum er að finna kosninga- reikni þar sem reikna má út fjölda þingmanna. Slegnar eru inn tölur, eða notast við tölur frá Gallup, og reiknar þá forritið fjölda þingmanna, hvort tveggja kjördæmakjörinna þing- manna og fjölda þeirra sem hafna í jöfnunarsætum. Kosningareiknirinn gefur einnig kost á að flytja atkvæði milli flokka eða kjördæma til að sjá hvað fylgisbreytingar geta haft í för með. Einnig er að finna á kosningavef Ríkisútvarpsins alla framboðslista sem búið er að birta, tengingar eru við stjórnmálaflokkana auk annarra áhugaverðra tenginga. Á vefnum er að finna allar fréttir Ríkisútvarpsins sem snerta komandi kosningar. Fyrst um sinn á texta- formi en fljótlega verður hægt að hlusta á og horfa á allar fréttir frétta- stofa Ríkisútvarpsins af kosningabar- áttunni, og stjórnmálunum almennt. Að auki verða þættir RÚV í hljóð- varpi og sjónvarpi settir út á vefinn eftir útsendingu. Þar verða meðal annars umfjöllun Kastljóssins um kosningabaráttuna, leiðtogaumræð- ur, kjördæmaþætti auk fleiri kosn- ingatengdra þátta. Slóðin á kosningasíðu Ríkisút- varpsins er www.ruv.is/kosningar. Ríkisútvarpið opnar kosn- ingavef FORMENN og trúnaðarmenn verkalýðsfélaga innan ASÍ með fé- lagsmenn sem starfs hjá ríkinu sam- þykktu ályktun á fundi í gær þar sem mótmælt er harðlega að ríkið beiti starfsmenn sína misrétti í lífeyris-, veikinda- og orlofsrétti eftir því í hvaða stéttarfélagi þeir eru. Bent er á að ASÍ hafi í tvívegis fengið yfirlýsingu frá ríkisstjórninni í tengslum við gerð kjarasamninga, með fyrirheitum um að jafna þennan mun en við þær hafi ekki verið stað- ið. Forsætisráðherra hafi lýst yfir í tengslum við gerð kjarasamninga 1997 að í kjarasamningum ASÍ-fé- laga við ríkið verði sérstaklega hug- að að því að samræma lífeyrisrétt- indi þeirra hópa við lífeyrisréttindi annarra starfsmanna ríkisins. Við gerð samkomulags aðila vinnumark- aðarins 13. desember 2001 hafi fjár- málaráðherra lýst yfir að unnið yrði að því að jafna réttindi félagsmanna ASÍ í starfi hjá ríkinu við réttindi annarra starfsmanna ríkisins. Enginn pólitískur áhugi „Eftir fjölda funda með ráðherr- um ríkisstjórnarinnar og embættis- mönnum er ljóst að enginn pólitískur áhugi er hjá núverandi ríkisstjórn á að finna viðunandi lausn á þessu máli. Félagsmenn ASÍ sem eru í starfi hjá ríkinu búa við gróft mis- rétti. Fundurinn telur það brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnar- skrárinnar og krefst þess að ríkis- stjórnin standi við fyrri yfirlýsing- ar,“ segir í ályktuninni. Fundur formanna og trúnaðarmanna innan Alþýðusambands Íslands Segja félags- menn búa við gróft misrétti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.