Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð dugleg, ákveðin og
sannfærandi. Það er
mikilvægt að þið ljúkið
ákveðnum málum á þessu
ári. Þið verðið að sleppa tök-
unum á því gamla til að
rýma til fyrir nýjungum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Talaðu við vini þína um ferða-
áætlanir og framandi lönd. Það
er hægt að gera breytingar
sem koma sér vel fyrir alla.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Treystið á skapandi hæfileika
ykkar. Auður annarra getur
komið börnum til góða og einn-
ig bætt ástarlíf ykkar og starfs-
umhverfi. Verið óhrædd við að
þiggja það sem ykkur er boðið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ykkur langar til að gera breyt-
ingar á heimilislífinu. Þessar
breytingar varða hugsanlega
samskipti ykkar við maka ykk-
ar eða aðra fjölskyldumeðlimi.
Breytingar geta orðið til góðs.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gætið þess að láta ekki áhuga
ykkar á einhverri hugmynd
verða að þráhyggju. Reynið að
taka hlutunum létt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn hentar vel til að tala
um fjármál við maka ykkar eða
nána vini. Það eru líkur á já-
kvæðum breytingum varðandi
börn, menningu, listir eða
skemmtanir og íþróttir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reynið að nýta ykkur þörf ykk-
ar til að koma skipulagi á hlut-
ina. Þið getið stuðlað að breyt-
ingum í heimilinu með því að
þrífa og taka til.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þið kannið eitthvað gaum-
gæfilega og spyrjið réttu
spurninganna getið þið leyst
ráðgátu í dag. Rannsóknir
munu skila góðum árangri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhver gæti gefið þér góð ráð
varðandi útlitið í dag, eða þú
fengið góða hugmynd. Mundu
að útlit þitt sendir ákveðin
skilaboð út í umhverfið.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er líklegt að þú eigir tilfinn-
ingaríkar samræður í dag. Þú
ert að komast í tengsl við til-
finningar sem hafa verið svo
bældar að þú vissir ekki af
þeim.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjármunir sem þú verð til
ferðalaga og menntunar eða
tengjast fjölmiðlum eða kirkj-
unni munu skila þér góðum ár-
angri. Við uppskerum eins og
við sáum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Leggðu þig fram um að nota
fjármuni þína og vina þinna og
skipulagshæfileika þína í þágu
fólksins í kring um þig. Gættu
þess að vera ekki of eigingjarn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ráðgátur vekja áhuga þinn í
dag. Þú vilt heyra um eitthvað
dularfullt og spennandi, eða
kannski bara kjaftasögur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VETUR
Hvar eru fuglar þeir á sumri sungu?
Þeir suður flugu brimótt yfir höf.
Hvar eru blómin sæl frá sumri ungu?
Und snjónum hvíla þau í vetrar gröf.
Hvað er nú söngva? vindgnýr hærri og hærri
um fölnað land, en þung með drunuhljóð.
Þar þögull sjófugl þyrpist brimströnd nærri,
hinn þrúðgi gýmir kveður stirðan óð.
Hvað er nú blóma? helblóm hörku viður,
sem hrímhvít skarta frosnum rúðum,
og geislablóm, sem glitar máni niður
á glerskyggð blásvell vetrarheiði frá.
Nei! sönglíf blómlíf finnst nú aðeins inni,
þar andinn góður býr sér sumar til,
með söng og sögu, kærleik, vinakynni,
á kuldatíð við arinblossans yl.
Svo dvelji söngfugl hver einn fyrir handan
og hylji fönnin blómið hvert sem dó.
Vér eigum sumar innra fyrir andann,
þá ytra herðir frost og kyngir snjó.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Bf4
Rh5 4. Bg5 h6 5. Bh4
g5 6. Bg3 f5 7. e3 Rf6
8. h4 Bg7 9. hxg5
hxg5 10. Hxh8+ Bxh8
11. Rc3 g4 12. Bd3
Rh5 13. Rge2 e5 14.
Dd2 Dg5 15. dxe5
dxe5 16. 0–0–0 Be6 17.
Hh1 c6 18. Bh4 Dg6
Staðan kom upp á
Meistaramóti Tafl-
félagsins Hellis sem
stendur nú yfir þessa
dagana. Fremsti
skákfrömuður
Garðbæinga Jóhann
H. Ragnarsson (1980) hafði
hvítt gegn Valdimari Leifs-
syni (1405). 19. Bxf5! Bxf5
20. Dd8+ Kf7 21. De7+
Kg8 22. Dxb7 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
SUÐUR spilar tvo spaða í
tvímenningi eftir opnun vest-
urs á 15–17 punkta grandi:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ D76
♥ K652
♦ G4
♣KG76
Suður
♠ ÁG10842
♥ Á73
♦ D5
♣94
Vestur Norður Austur Suður
1 grand Pass Pass 2 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er hjarta-
drottning og austur lætur
tíuna í slaginn. Hvernig er
best að spila?
Átta slagir ættu varla að
vera vandamál, en í tvímenn-
ingi verður að berjast fyrir
hverjum yfirslag. Þetta er
spurning um að velja leið. Á
að svína fyrir spaðakóng og
gefa vörninni færi á að brjóta
hjartað ef svíningin mis-
heppnast, eða ráðast strax á
laufið? Og hvernig á að fara í
laufið?
Grandopnun vesturs gerir
sagnhafa kleift að reikna út
að austur er með 2–4 punkta
af þeim 19 sem úti eru. Sem
eru gagnlegar upplýsingar,
en ekki fullnægjandi, því
þessir fáu punktar austurs
gætu legið víða. Eða hvað?
Nei, ekki ef útspil vesturs
er tekið inn í reiknings-
dæmið. Hann valdi að koma
út frá DGx(x) í hjarta og það
hefði hann varla gert með
ÁK í tígli. Austur virðist því
eiga annað tígulháspilið, sem
þýðir að hann getur ekki átt
punkt til hliðar:
Norður
♠ D76
♥ K652
♦ G4
♣KG7
Vestur Austur
♠ K5 ♠ 93
♥ DG4 ♥ 1098
♦ Á1096 ♦ K8732
♣ÁD85 ♣103
Suður
♠ ÁG10842
♥ Á73
♦ D5
♣94
Að þessu athuguðu er
spilamennskan einföld:
Sagnhafi tekur með hjartaás
og spilar strax laufi á gos-
ann. Fer svo heim á spaðaás
og spilar aftur laufi. Þannig
fríast slagur á laufkóng áður
en vörnin nær að brjóta
hjartað.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
NÝLEGA tóku
krakkarnir í 7.
bekk SB í Voga-
skóla þátt í verk-
efninu Dagblöð í
skólum. Að lok-
inni vinnuviku
með dagblöð í skólanum komu þau í
heimsókn á Morgunblaðið til að
kynna sér nánar
hvernig hlutirnir
ganga fyrir sig
þegar dagblað
verður til. Morg-
unblaðið vonar að
heimsóknin hafi
orðið þessum fróðleiksfúsu krökk-
um að gagni bæði og gamni.
Morgunblaðið/RAX
ÞAÐ voru hress-
ir krakkar úr
Rimaskóla sem
litu við á Morg-
unblaðinu fyrir
stuttu í þeim til-
gangi að kynna
sér ferlið við vinnslu á dagblöðum.
Þegar höfðu þau
unnið með dag-
blöð í tímum og
því upplagt að fá
kynnisferð um
alvöru dagblað.
Bestu þakkir fyr-
ir komuna, krakkar.
Morgunblaðið/Golli
… og hvert er nú vanda-
málið þitt, Knútur …?
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
HRAFNKATLA, sem er 10
ára og býr í Edinborg, óskar
eftir íslenskri pennavinkonu
á Íslandi með svipuð áhuga-
mál. Hún hefur gaman af
fótbolta, dansi, tónlist og
tölvuleikjum.
Hrafnkatla Arnarsdóttir,
25 Polwarth
Cressent 2F3,
Edinburgh EH11 1HR,
Scotland.
SUNNA, sem er 13 ára og
býr í Frakklandi, óskar eftir
íslenskum pennavinum.
Gott væri ef pennavinurinn
væri að læra frönsku en það
er þó ekki skilyrði og gæti
þá Sunna skrifað á frönsku
en hinn á íslensku.
Sunna Lind Simar,
Le Mont Voisin,
14430 Beuvron En Auge,
France.
JOYCE, sem er 8 ára stúlka
í New York, óskar eftir ís-
lenskum pennavinum. Joyce
er að vinna að verkefni um
Ísland.
Joyce
c/o Beth Raines,
P.O. Box 301,
Somers,
N.Y. 10589,
U.S.A.
KATIE, sem er 11 ára og
býr í Bandaríkjunum, óskar
eftir íslenskum pennavinum.
Hefur hún áhuga á að kynn-
ast landinu eftir að hafa séð
efni á Netinu.
Katie Morgen Fieth,
Miss Tennessee
Pre-teen, State Hostess
of Brentwood,
Tennessee,
U.S.A.
PENNAVINIR
Hef ég séð ykkur ein-
hvers staðar á ferju áður?
MEÐ MORGUNKAFFINU