Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16
Óskarsverðlaunaleikarnir
Nicolas Cage og Meryl Streep
fara á kostum í myndinni. Frá höfundum
og leikstjóra „Being John Malkovich“.
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV
RadíóX
1/2 Kvikmyndir.com
1/2 Kvikmyndir.is
Aukasýningar vegn
a fjölda áskoranna
SV MBL HK DV
HJ MBL
SG Rás 2
Radio X
Kvikmyndir.com
HK DV
ÞÞ Frétta-
blaðið
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
2Tilnefningar til Óskarsverðlaunabesti leikari í aukahlutverki: Christopher WalkenBesta Tónlist - John Williams
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12.
7 Bestamyndársins BestileikstjóriRoman Planski Besti leikari íaðalhlutverki:Adrian Brody
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
1/2 SK Radíó X
Kvikmyndir.com
Lækkað verð!
Miðaverð kr. 750.
Tilnefnd til Óskarsverðlauna sem BESTA ERLENDA MYNDIN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
1/2 H.L. Mbl.
1/2 H.K. DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.15 OG 8. B. I. 16.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Ögrandi mynd sem hefur fengið lof gagnrýnenda um
allan heim með þeim Edward Norton (Fight Club,
American HistoryX), BarryPepper (Saving Private R-
yan, GreenMile) og Philip Seymour Hoffman (Red
Dragon, Boogie Nights)
Ef þú ættir 1 dag eftir sem frjáls maður..
gætir þú gjörbreytt lífi þínu?
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.
1/2 H.L. Mbl.
1/2
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
ÓKIND vakti fyrst á sér athygli síðasta vor
er þeir höfnuðu í öðru sæti Músíktilrauna.
Piltar hafa viðhaldið spilamennsku og æfing-
um reglulega síðan og gáfu út fyrir stuttu
sinn fyrsta disk, prýðisgripinn Heimsenda
18. Þetta eru ungir menn um tvítugt, gal-
gopalegir nokk en það fyrsta sem blaðamað-
ur rekur augun í er ósamstæður klæðaburð-
urinn og greinilegt að það er enginn
stílfræðingur á mála hjá þeim. Hvurslags er
þetta eiginlega!? Þeir félagar glotta í kamp-
inn er þetta er borið undir þá.
„Ég er oftast í íþróttatreyju á tónleikum,“
segir Ingi gítarleikari. „En bandið tónar
mjög vel þegar við erum komnir upp á svið,“
bætir hann við.
Ólafur trymbill segir þá hafa reynt að
hafa þessa fyrstu plötu sína eins heimilislega
og kostur er og því hafi þeir t.d. sett þennan
kúrulega kofa á umslagið. Sveitin hefur ann-
ars reynt að halda uppi reglulegu spiliríi frá
stofnun og segir Steingrímur söngvari og
hljómborðsleikari að þeir séu orðnir að hálf-
gerðum mubblum, bæði í Hinu húsinu og
M.H. Steingrímur syngur og leikur á hljóm-
borð.
„Fyrst fannst okkur það koma hallær-
islega út á sviði en núna gæti það ekki verið
öðruvísi,“ segja þeir, aðspurðir um hvort
framvörður sveitarinnar minni nokkuð á
Billy Joel á sviðinu.
Steingrímur lýsir því að ákvörðun um
gerð Heimsenda 18 hafi verið tekin vegna
þess að hljómsveitin vann sér inn nokkra
hljóðverstíma í Músíktilraunum. Þeir hafi
svo ætlað að drífa í plötugerð síðastliðið
haust en þá hafi þeir lent í því óhappi að
hljóðfærunum þeirra var stolið af eitur-
lyfjasjúklingi sem seldi allt dótið fyrir slikk.
Ókindarliðar voru samt fljótir að sleikja sár-
in og fljótlega komust þeir í kynni við
Frakkann Nicolas Liebing, í gegnum Heiðu
og Heiðingjanna sem æfðu í sama húsnæði
og þeir.
Utanaðkomandi eyru
„Hann hjálpaði okkur mikið við hljóm
plötunnar og upptökur og lét okkur hlusta á
hljómsveitir sem við höfðum aldrei heyrt í
eins og t.d. Add N to X,“ segir Steingrímur.
„Hann gaf sig í raun meira í þetta en hann
þurfti. Hellti upp á fínt kaffi handa okkur og
setti sig af öllu hjarta inn í þetta. Það er líka
jákvætt að fá utanaðkomandi eyru að þessu
því að þegar menn eru búnir að vera lengi
saman í hljómsveit eru þeir kannski farnir
að taka minna mark á hver öðrum en í upp-
hafi. Nicolas hlustaði hins vegar á alla og
kom algerlega opin að þessu. Við kýldum svo
á plötuna yfir eina helgi og lifðum á Kókó-
pöppsi á meðan. Platan var svo hljóðblönduð
í Veðurstofu þeirra Stjörnukisamanna og
hljómjöfnuð í Írak.“
Ókind stendur í öllu sjálf hvað útgáfuna
snertir og hefur blendnar tilfinningar hvað
það varðar. Steingrímur segir að einn diskur
hafi selst í Japis og fimm í 12 Tónum til
þessa. „Svo reynum við bara að koma þessu
út sjálfir – erum t.a.m. búnir að selja tíu
stykki í sjoppunni í MH. Eina reynslan sem
við höfum af útgáfufyrirtækjum er að við
höfum hringt í mörg þeirra. Kosturinn við að
gefa út hjá fyrirtæki – þó við könnumst ekk-
ert við það – er sá að það myndi spara okkur
pening. En það er líka búið að vera gaman
að harka í þessu einir. Við höfum ekkert
vont af fyrirtækjunum að segja og þau tóku
okkur blíðlega. Við bara gátum ekki beðið
með þetta lengur.“
Ólafur segir svo að lokum að stundum
velti hann því fyrir sér af hverju hann sé að
þessu harki. „Er ég athyglissjúkur spyr ég
mig? Er þetta þess virði? Og svo framvegis.
Ég hef komist að því að maður sé að þessu í
von um eitthvað sem maður veit ekki alveg
hvað er.“
Svo mörg voru þau orð.
Útgáfutónleikar Ókindar vegna plötunnar Heimsenda 18
Morgunblaðið/Sverrir
Ókind: Ingi Einar Jóhannesson (gítar), Steingrímur Karl Trague (söngur og hljómborð),
Ólafur Freyr Frímannsson (trommur) og Birgir Örn Árnason (bassi).
Lifað á Kókópöppsi
Rokksveitin Ókind gaf út fyrsta hljómdisk sinn á
dögunum. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við
þessa frísku og fjörugu sjálfsþurftarsveit.
TENGLAR
................................................................
www.e-r-o-n.com/okind
arnart@mbl.is
Útgáfutónleikar Ókindar verða í kvöld á
Grandrokk. Húsið verður opnað kl. 21.30 en
raftónlistarmaðurinn Stafrænt megabæt hit-
ar upp. Aðgangseyrir er 500 kr. og verður
Heimsendi 18 seldur á staðnum á frábærum
kjörum.
ROKKSVEITIN Nirvana
vekur sterkar tilfinningar með
aðdáendum sínum þótt nokk-
uð sé liðið síðan hún leystist
upp í kjölfar þess að leiðtogi
hennar, Curt Kobain, fyrirfór
sér. Það sýna viðbrögð við
grein, sem birtist á sunnudag
á listasíðum Morgunblaðsins
um Nirvana í greinaflokki sem
kallast „Af listum“. Þar leggur
höfundurinn, Arnar Eggert
Thoroddsen, út frá því að
sveitin standi ekki undir lofinu sem á hana hefur verið ausið í
gegnum tíðina, en jafnan er hún talin ein áhrifamesta rokksveit
sögunnar.
Greinin hefur dregið nokkurn dilk á eftir sér og hrundið af stað
umræðu hjá tónlistaráhugamönnum enda segir stafrétt í grein-
inni: „Nirvana er ofmetnasta rokksveit sögunnar og lagasmiður
hennar, Kurt Cobain, er ofmetnasti lagasmiður sem dægurmenn-
ingin hefur getið af sér.“
Sýnilegust er umræðan á hinum fjölsótta vef www.hugi.is.
Skoðanaskiptin vegna umræddrar greinar eru vistuð undir sama
nafni og upprunalega greinarheitið, „Nirvana skiptir ekki máli“
og er nú í þriðja sæti sem „Heit umræða“ á síðunni.
Póstar eða álit sem hafa verið send inn eru komin yfir hundrað
og sitt sýnist hverjum. Flestir taka þó afstöðu gegn greininni, og
draga margir ekkert undan og eru með stóryrtar yfirlýsingar.
Sumir nálgast efnið þó með mýkri leiðum, og skrifa settlegar
greinar og lengri. En aðrir bakka þá greinarhöfund upp og taka
undir það að Nirvana sé ofmetin sveit. Þessi háværa umræða sýn-
ir öðrum fremur að rokktónlist er ekki bara hávaði heldur mörg-
um hverjum hjartans mál og fúlasta alvara ef út í það er farið.
Hér á eftir má sjá sýnishorn af umræðunni á huga.is, sem og
álit tveggja af virtustu rokkspekúlönt-
um landsins á Nirvana og skrifum Arn-
ars Eggerts.
Morgunblaðsgrein veldur skurki
Nirvana: Ofmetnasta sveit
rokksögunnar?
„ARNAR Eggert er bara
rugludallur. Eitthvað hlýt-
ur það að vera sem veldur
því að annað hvert Músík-
tilraunaband er að spila
einhverskonar Nirvana-
rokk. Nirvana hafði áhrif
og þetta var flott band. Það
er engin spurning.
Ég er reyndar nokkuð
viss um að ef söngvarinn
Kurt Cobain hefði ekki fyr-
irfarið sér þá væri hann
ekki þetta átrún-
aðargoð sem hann
er í dag. Það hefur
mjög mikið að
segja.
Ég hafði og hef
gaman af Nirvana.
Ég veit ekki hvort hún er
ofmetin hljómsveit sem slík,
en hún hefur haft mikil
áhrif, eins og Arnar bendir
á. Ég er sammála honum
að því leyti að áhrifin eru
að mestum hluta
slæm. Mér finnst
gruggið hafa fætt af
sér einhverja leið-
inlegustu músík sem
rokkið hefur alið af
sér. Amerískt rokk í
dag, rokkböndin sem hafa
slegið í gegn í kjölfarið,
þykja mér yfirleitt ekki
mjög skemmtileg, bönd
eins og Creed, Linkin Park
og Limp Bizkit.“
„MÉR finnst Nirvana ágæt
hljómsveit. Á sínum tíma,
þegar Nevermind kom út þá
seldist hún mikið, það var dá-
lítið tvíeggjað. En það er
bara fínt að þessi músík komi
upp á yfirborðið og allir hálf-
vitarnir byrji að fíla þetta.
„Stöff“ missir ákveðin „kúl-
heit“ þegar múgurinn er far-
inn að fíla þetta.
Hún kom „altern-
atívu“ rokki upp á
yfirborðið og síðan
hafa menn verið að
lemja hausinum við
sama steininn í rokk-
inu. Allt sem er kallað „alt
rokk“ í dag er í beinum
karllegg af þessu plús rapp
og þungarokk.
Mér finnst þetta
ágæt hljómsveit þó ég
hlusti ekki mikið á mús-
íkina þeirra í dag. Ég
gerði það á sínum tíma,
keypti þessa fyrstu
plötu með þeim áður en þeir
urðu vinsælir þó mér þætti
hún reyndar ekkert sérstök.“
Ágæt hljómsveit
Ó
la
fu
r
P
ál
l G
u
nn
ar
ss
o
n Ekki ofmetin en leiðinleg áhrif
G
u
nn
ar
L
ár
u
s
H
já
lm
ar
ss
o
n
Hart barist
um Nirvana
TENGLAR
..................................
www.hugi.is
Á MÓTI
„Með þessari grein var botnin-
um náð í íslenskri tónlistarblaða-
mennsku. Ég skil ekki hvað vakir
fyrir Arnari.“
„Ég verð nú að segja það að
Arnar Eggert Thoroddsen hefur
greinilega ekki mikið vit á Nirv-
ana eða tónlist almennt.“
„Maður getur nú ekki sagt að
Cobain sé lélegur lagasmiður ...
Cobain var snillingur í að búa til
lög úr fjórum gripum. Stundum
tveimur...“
„Nevermind er ein mesta
breakthrough plata ever, og því
verður ekki neitað. Að halda öðru
fram er einfaldlega fáfræði og
asnaskapur!“
„Hvernig getur fólk sagt að tón-
list sé ofmetin? ... Það er eins og að
segja „pizzur eru ofmetnar“.“
MEÐ
„Arnar er jafn „right on“ hér og
þegar hann fjallaði um „Svona er
sumarið“-ruslið sem kom út í
fyrra.“
„Þessi grein er ótrúlega góð, vel
skrifuð og rétt. Nirvana eru of-
metnir.“
„Þeir eru nú ekki besta rokk-
sveit allra tíma, né sú versta ...
Hins vegar finnst mér rétt að Nirv-
ana séu frekar ofmetnir ... góð
grein, og gott að vekja athygli á
þessu...“
„Nirvana er ekki popp en þeir
voru nú samt pop-ular en því mið-
ur voru þeir ekkert í því að þróa
tónlist betur en hún er í dag, þess-
vegna eru Nirvana svo MIKLU of-
metnari en Bítlarnir.“
„Nirvana eru nú oft dýrkaðir
full mikið eins sjá má ofangreind-
um svörum.“