Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 7
arstofum í Svíþjóð og Englandi við sótt- hreinsaðar aðstæður. Þegar þær eru orðnar um þriggja til fjögurra milli- metra langar eru þær fluttar til landsins í ræktunarflöskum með hraðpósti. Lirf- urnar eru fluttar inn sem lyf þar sem þær eru sótthreinsaðar. Síðan er þeim skolað innan úr flöskunum og í sárið. „Þær sprikla ansi hressilega þegar verið er að koma þeim í sárið en alls eru um 300 lirfur settar í sárið og búið um það á sérstakan hátt þannig að þær séu í sárinu en hvergi annars staðar. Sárið er einangrað með umbúðum, en um leið þarf að sjá til þess að loft komist að sárinu því annars kafna lirfurnar. Það er svolítil handavinna. Síðan reynum við að sjá til þess að það haldist hæfilegt rakastig í sárinu. Loks fá lirfurnar að vinna í þrjá til fjóra daga og á meðan verður sjúklingurinn að liggja. Síðan eru þær teknar burtu og sárið skolað og látið jafna sig áður en byrjað er á næstu aðgerð.“ Meðferðin er endurtekin nokkrum sinnum og tekur nokkrar vikur alls. Baldur segir lirfur hafa verið settar í fyrsta sinn í sjúkling í síðustu viku og teknar burt í fyrradag. Kvaðst hann eiga von á að setja annan skammt í sárið í dag eða morgun. Baldur sagði viðbrögð sjúklingsins góð. „Þessi sár eru ógnun við útliminn og geta endað í aflimun ef illa fer, þann- ig að svo framarlega sem maður út- skýrir hlutina er þetta allt í lagi. Auðvit- að finnst fólki þetta ekkert skemmtilegt.“ Í lok meðferðar er lirfunum fargað. Þær eru settar í plastpoka og þeim hent. Ef þeim væri sleppt yrðu þær að al- gengri tegund af meinlausum flugum. Umbúðir teknar af sári á hæl. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 7 VIÐ aðalmeðferð stóra málverka- fölsunarmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær var tekin skýrsla af forverði sem skýrði frá rannsókn- um sínum á tugum meintra falsmál- verka. Við rannsóknirnar var m.a. stuðst við smásjárskoðun og út- fjólubláa skimun málverkanna sem leiddi í ljós að notuð hafði verið málning með svokölluðu alkýði, sem ekki var komin á markað á dögum málara á borð við Kjarval og Þórarin B. Þorláksson. Af þessum sökum stóðust málverkin ekki rannsókn að mati vitnisins, en alkýð fannst m.a. í höfundarmerkingum. Fram kom að alkýð var fundið upp 1927 og barst til Evrópu um 1950. Árið 1968 kom það á markað sem íblöndunarefni og 1976 sem listmálaraefni. Að auki leiddu rannsóknir í ljós að alkýð- málning hafði verið notuð í mörg verkanna sjálf að meira eða minna leyti, gjarnan til yfirmálunar yfir eldri málningu. Sem dæmi um þetta var málverk eignað Þórarni B. Þor- lákssyni frá 1910 sem vitnið sagði að hefðu áritun listamannsins með alk- ýðmálningu. Þar sem alkýð hefði ekki verið fundið upp fyrr en mörg- um árum seinna stæðist málverkið ekki skoðun. Í mörgum tilvikum var komist að þeirri niðurstöðu að slípað hefði verið yfir verkin á þeim stað þar sem áritanir listamannanna voru settar. Þá þóttu mörg málverk eign- uð Svavari Guðnasyni með ártalinu 1942 bera furðulítil öldrunarein- kenni miðað við að vera 60 ára göm- ul, enda leiddi rannsókn í ljós að þau hefðu verið máluð með nýlegri alkýð- málningu. Missagt var í frásögn af málinu á þriðjudag að dóminum hefði þótt skorta upp á kurteisi sak- sóknara í garð verjanda. Hið rétta er að dómurinn kom umkvörtunum verjanda í þessa veru áleiðis til sókn- ara. Dóttir Nínu Tryggvadóttur list- málara kom þá fyrir dóm í gær til að bera vitni um nokkur málverk sem eignuð eru móður hennar. Verkin voru í eigu dótturinnar en eru nú rannsóknatilvik í málinu. Vitnið sagðist þekkja mjög vel til vinnuaðferða móður sinnar, s.s. lita- og efnisnotkunar svo og listræns stíls og sagðist hafa uppgötvað strax hvers kyns var þegar hún fékk myndirnar í hendur á sínum tíma. Útfjólublá skimum leiðir í ljós alkýð í meintum falsmálverkum Málningin talin grunsamlega ný HUGSANLEGT er að Landa- kotsskóla í Reykjavík verði lok- að á næsta ári ef ekki tekst að tryggja rekstrargrundvöll hans, að því er fram kemur í viðtali við séra Hjalta Þorkels- son skólastjóra í Vesturbæjar- blaðinu í dag. Hjalti segir að ef ekki tækist að tryggja rekstr- argrundvöllinn myndi hann persónulega leggja til að skól- anum yrði lokað vorið 2004. Í viðtalinu kemur fram að fjárhagsstaða skólans sé slæm, hann safni skuldum þar sem ekkert fé sé aflögu til reksturs þegar búið sé að greiða laun og launatengd gjöld. Reykjavíkur- borg greiði 200 þúsund kr. með hverju barni í skólanum á ári en í grunnskólum borgarinnar sé þessi kostnaður talinn vera a.m.k. 400 þúsund kr. Skóla- stjórinn segir í viðtalinu að ekki sé unnt að hækka skólagjöldin til að mæta vandanum. Kaþ- ólska kirkjan og fræðsluyfir- völd séu með málið í athugun. Í könnun sem ráðgjafafyrir- tækið Nýsir hefur gert á rekstri skólans, sem starfað hefur í 106 ár, kemur fram að hann sé afar hagkvæmur borið saman við aðra skóla af svipaðri stærð. Blikur á lofti um rekstur Landa- kotsskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.