Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 37 ✝ GuðmundurSteinsson fædd- ist í Reykjavík 27. júlí 1935. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 31. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Steinn Er- lendsson netagerð- armaður í Reykja- vík, f. 24. apríl 1895 á Ketilvöllum í Laugardal, d. 26. júlí 1982, og Sigríð- ur Guðmundsdóttir kennari, f. 7. mars 1893 í Höfn í Dýrafirði, d. 26. október 1975. Bræður Guðmund- MR og cand.med. frá HÍ 5. feb. 1966. Hann var kandidat og seinna aðstoðarlæknir á sjúkrahúsum í Rvík, héraðslæknir í Þingeyrar- og Flateyrarhéraði frá september 1967 til september 1968, Hólma- víkur- og Djúpavíkurhéraði frá október 1969 til desember 1971 og janúar til apríl 1973. Frá janúar 1972 til október 1980 var hann við nám og störf í Sví- þjóð. Sérfræðingsleyfi í kvensjúk- dómum og fæðingarhjálp hlaut hann bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Frá 1981 var hann sérfræðingur á Landspítalanum á fæðingar- og kvensjúkdómadeild. Jafnframt störfum á Landspítalanum rak hann stofu í Domus Medica. Um tíma var hann stundakennari við námsbraut í hjúkrunarfræði við HÍ. Útför Guðmundar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ar eru Erlingur Kon- ráð, f. 20. júlí 1932, og Gunnar Hlöðver, f. 15. október 1933. Guðmundur kvænt- ist 16. júní 1962 Þor- björgu Ingunni Ing- ólfsdóttur frá Húsavík, f. 15. júlí 1935. Sonur þeirra er Snorri Hrafn Guð- mundsson, f. 20. október 1968. Dóttir Snorra og fv. sam- býliskonu hans, Theresu Lindu Árna- dóttur, er Þorbjörg Erna, f. 10. desember 1988. Guðmundur varð stúdent frá Það var þung frétt að heyra að Guðmundur Steinsson vinnufélagi og vinur hefði greinst með alvarleg- an sjúkdóm í desember sl. Fyrir dyrum stóð þá ferð þeirra hjóna til Kanaríeyja sem hann hafði hlakkað svo tilað fara, en sem því miður gat ekki orðið af. Hann tókst svo á við baráttuna við sinn erfiða sjúkdóm, æðrulaus og fullur af von um að koma aftur til starfa, en örlögin vildu annað og gekk sjúkdómsferlið hratt fyrir sig og ótímabært andlát hans varð svo ekki umflúið. Kynni okkar Guðmundar hófust 1980 er við unnum saman í stuttan tíma á kvennadeild Landspítalans og svo aftur frá árinu 1991 er við urðum herbergisfélagar á deildinni og einnig samstarfsaðilar um læknastofu. Guðmundur var gull af manni, heilsteyptur, hæglátur en vinnu- þjarkur og var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Ósérhlífinn var hann og var alltaf reiðubúinn að hlaupa undir bagga og taka vaktir og hélt hann áfram að taka sinn skerf af vaktabyrðinni þótt hann hefði mátt draga sig undan því ald- urs vegna. Guðmundur gat virst alvörugef- inn á köflum en alltaf var stutt í brosið og glettnina. Það var mjög ánægjulegt að vinna með Guðmundi sem var alltaf tilbúinn að gefa af sér og miðla af reynslu sinni. Hann reyndist yngri læknum og lækna- nemum vel og sinnti þeim af alúð og kostgæfni. Það er sárt að hafa misst Guð- mund og það var lærdómsríkt og gefandi að hafa haft hann sem fé- laga, vin og samstarfsmann og er ég þakklátur að hafa fengið að kynnast honum. Þorbjörgu eiginkonu Guðmundar, syninum Snorra Hrafni og sonar- dótturinni Þorbjörgu vottum við Ás- rún okkar innilegustu samúð. Guðjón Vilbergsson. Kveðja frá Félagi íslenskra fæðinga- og kven- sjúkdómalækna Skömmu fyrir sl. jól barst okkur sú hörmulega frétt að Guðmundur Steinsson starfsbróðir okkar og vin- ur hefði greinst með illvígan sjúk- dóm. Eftir að meðferð var hafin fengum við von um að mega sjá hann aftur í okkar hópi, glaðlegan og ljúfan eins og alltaf. Sú von rætt- ist ekki, sjúkdómslegan varð stutt og hann kvaddi alltof snemma. Í ritinu Um vináttuna segir Cic- ero á einum stað: „Enn ber að nefna ljúfmennsku til orðs og æðis sem er alls ekki svo lítið krydd í vináttuna. Sífelld alvara og drungi geta vissu- lega verið áhrifarík en vináttuþelið ætti að vera óheftara, blíðara og þekkilegra og þar ætti að ríkja alúð og ljúfmennska.“ (Þýð.: Margrét Oddsdóttir, 1993.) Við sem unnum með Guðmundi Steinssyni fengum að kynnast því hvað hann átti þessa kosti í ríkum mæli. Alúð og sérstök umhyggja fyrir velferð skjólstæðinga sinna voru einkenni hans í læknisstarfi. Hann var öðrum fyrirmynd í fram- komu sinni við sjúklinga. Lækna- nemar í starfsnámi á meðgöngu- okkur hjálparhönd þegar við þurft- um á þér að halda. Við þökkum fyrir að hafa fengið að starfa með þér og kynnast þér og munum ávallt hugsa til þín með virðingu og hlýhug. Kæra fjölskylda, við sendum ykk- ur innilegar samúðarkveðjur. Megi góður guð styrkja ykkur í sorg ykk- ar. Starfsfólk meðgöngudeildar. Kveðja frá kvennadeild Landspítalans Góður og virtur samstarfsmaður er horfinn alltof snöggt eftir aðeins fárra mánaða baráttu við illvígan sjúkdóm. Farið var að líða að lokum farsæls starfsferils og byrjað að leggja plön um hvernig árunum þar á eftir yrði varið. Á kvennadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss sjáum við á bak traustum og ágæt- um lækni. Guðmundur Steinsson hafði unnið hér á deildinni í 22 ár, frá árinu 1981, eftir níu ára nám og störf í Svíþjóð við sérgrein sína, fæðingar- og kvensjúkdómafræði. Hann var góður og nærgætinn fag- maður, vel að sér og vel liðinn af skjólstæðingum jafnt og samstarfs- fólki. Í mínum huga óx vegur hans ár frá ári, ekki síst fyrir það hve lið- legur og hjálpsamur hann gat verið í erli dagsins og mjög fjölbreyttum störfum. Það var auðvelt að leita til Guðmundar. Við gátum treyst á þennan stæðilega, hægláta og prúða mann. Það var ákveðin kjölfesta í að hafa hann nálægan, einkum síðari árin þegar umönnun veikra þung- aðra kvenna varð stærsti hluti starfs hans. Að hitta hann utan vinnu var ánægjulegt og þá naut sín ekki síst hans ágæta kímni og glað- lega viðmót. Kennslustörf hans voru einnig mikils verð. Við höfðum vænst þess að njóta starfskrafta hans enn um stund. Af því verður nú ekki. Við leiðarlokin kveður allt samstarfsfólk Guðmund- ar Steinssonar, hér á kvennadeild LSH, í leitarstöð Krabbameins- félagsins og í Miðstöð mæðravernd- ar hann með virðingu og þökk. Við sendum Þorbjörgu, eiginkonu hans, Snorra Hrafni, syni hans, Þorbjörgu Ernu sonardóttur hans og öðrum aðstandendum hugheilar samúðar- kveðjur og biðjum þeim styrks á erfiðum tíma. Reynir Tómas Geirsson. GUÐMUNDUR STEINSSON deild lýstu jafnan yfir ánægju sinni með tilsögn og kennslu Guðmundar, þar sem þessir sterku eðlisþættir hans nutu sín. Í mörg ár hafði hann á hendi það vanþakkláta verk að sjá um vaktaskipulag lækna kvenna- deildar. Í því starfi reyndi á hæfi- leika hans til þess að hlusta á kvabb og kvartanir okkar hinna og leysa öll mál á besta veg. Sjálfur hlífði hann sér ekki við að taka sinn hluta af vaktabyrðinni þótt hann væri löngu kominn yfir þann aldur sem leysir lækna undan slíku. Þannig minnumst við Guðmundar, ósérhlíf- ins með hlýlegt bros og kímni- glampa í augum. Ótímabært fráfall Guðmundar heggur stórt skarð í lítinn hóp, þar sem vinarþel og glaðlegt viðmót hans gerði allar samverustundir ánægjulegar. Við vottum eiginkonu hans, Þor- björgu, syni hans, Snorra Hrafni, og sonardótturinni, Þorbjörgu, okkar innilegustu samúð. F.h. Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, Jens A. Guðmundsson. Hinn 1. desember síðastliðinn kvaddi Guðmundur okkur sam- starfsfólk hér á Miðstöð mæðra- verndar glaður í bragði. Hann var að fara í síðbúið sumarfrí og var á leið til útlanda. Við áttum svo von á honum aftur í vinnu eftir áramótin en því miður brugðust öll plön. Í dag kveðjum við Guðmund hinstu kveðju með sorg í hjarta. Hann var einn af læknum Kvennadeildar LSH sem starfaði einnig hjá okkur á Mið- stöð mæðraverndar. Guðmundur var bæði traustur læknir og góður vinnufélagi. Hann var einnig bón- góður og lipur. Hann hafði t.d. frest- að sumarfríinu sínu síðastliðið sum- ar til að létta álaginu á kollegum og hann var auðfús til að bæta á sig vinnu til að létta undir þegar illa stóð á. Við vottum eiginkonu hans og fjölskyldu innilegustu samúð okkar. Starfsfólk Miðstöðvar mæðraverndar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér sinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kæri starfsfélagi, okkur langar að minnast þín með örfáum orðum. Það er komið að kveðjustund. Þín er sárt saknað á meðgöngudeildinni þar sem þú varst okkar stoð og stytta og ávallt reiðubúinn að rétta Fallegar, sérmerktar GESTABÆKUR Í Mjódd sími 557-1960www.merkt.is merkt www.solsteinar.is sími 564 4566 Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, JÓN PÉTURSSON, Eyrarhrauni, Hafnarfirði, sem lést miðvikudaginn 2. apríl sl., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstu- daginn 11. apríl kl. 13.30. Tryggvi Þór Jónsson, Þorbjörg Ólafsdóttir, Grétar Ólafur Jónsson, Helga Hannesdóttir, Margrét Jónsdóttir, Hreinn Jónasson, Auðbjörg Jónsdóttir, Unnar Jónsson, Björn Hafsteinn Jónsson, Reydun Urkki og afabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓHANN ÞÓRÐARSON lögfræðingur frá Laugalandi, Bugðulæk 6, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum Fossvogi þriðju- daginn 1. apríl, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. apríl og hefst athöfnin kl. 15.00. Guðrún Halldórsdóttir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Jón Friðrik Bjartmarz, Þórður Jóhannsson, Olga Oussik, Halldór Búi Jónsson, Guðrún Bjartmarz, Arnar Bjartmarz, Ylfa Lárusdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILJA JÓNSDÓTTIR, Kálfsstöðum, Vestur-Landeyjum, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 8. apríl. Guðmundur Þorsteinn Gíslason, Anek Walter, Þórunn Anna Gísladóttir, Kristrún Hrönn Gísladóttir, Hrafn Óskarsson, Jónína Gróa Gísladóttir, Gerður Þóra Gísladóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, UNNUR INGIMUNDARDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 6. apríl. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstu- daginn 11. apríl kl. 14.00. Sigurður Halldórsson, Halldór Sigurðsson, Jóna Þorkelsdóttir, Guðmunda Sigurðardóttir, Haraldur Haraldsson, Ásta Sigurðardóttir, Kristján Gunnarsson, Ómar Sigurðsson, Sigríður Þorgilsdóttir, Svanur Sigurðsson, Matthildur Níelsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jóhann Ágústsson, Ingþór Sigurðsson, Svala Benediktsdóttir, Jenný Sigurðardóttir, Búi Vífilsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR, lést á heimili sínu, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, þriðjudaginn 8. apríl sl. Ólöf Gunnarsdóttir, Viðar Einarsson, Reynir Gunnarsson, Sigríður V. Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.