Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 49 og Phil Mickelson sem sóttu hart að honum á lokadeginum á Augusta- vellinum. Jack Nicklaus býst ekki við öðru en að Woods verði fremstur í flokki þetta árið. „Það er erfiðast að vinna Masters-mótið einu sinni, í annað skiptið er það ekki eins erfitt og Woods getur skráð nafn sitt vandræðalaust í sögubækurnar ef hann heldur vel á sínum spilum,“ segir Nicklaus. Aðeins einn kylfing- ur á lista yfir þá 30 bestu á Mast- ersmótinu hefur klætt sig í græna jakkann, en það er Vijay Sing sem sigraði árið 2000. Á sl. ári var Aug- usta-völlurinn afar erfiður viður- eignar þar sem hann hefur verið lengdur til muna auk þess sem mikil riging var á meðan keppninni stóð. Það gerði það að verkum að þeir högglengstu nutu góðs af því og áttu betri möguleika. Verði völlur- inn hins vegar harður og þurr ætti það að gefa fleiri kylfingum tæki- færi á að blanda sér í baráttuna. Woods segir að honum líði vel þegar mikið liggi við á golfvellinum og að kastljós fjölmiðla hafi engin áhrif á hann á meðan leik stendur. Hann hefur unnið þrjú af þeim fimm mótum sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári og segir sjálfur að hann sé tilbúinn í slaginn á Augusta-vellin- um. Eins og áður segir er Ernie Els nefndur til sögunnar sem líklegasti keppinautur Woods og Davis Love III hefur leikið vel að undanförnu. Phil Mickelson er enn og aftur lík- legur til afreka sem og Colin Montgomerie. Þeir tveir síðast- nefndu hafa aldrei unnið á stórmót- unum fjórum þrátt fyrir að hafa verið í fremstu röð atvinnukylfinga um margra ára skeið. Hinn danski Thomas Björn ætlar ekki að taka þátt í keppninni að þessu sinni vegna veikinda í fjölskyldu hans. Reuters Tiger Woods, sem getur skráð nafn sitt í sögubækurnar, slær upp úr glompu. JÓHANNES Eðvaldsson, fyrrver- andi fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður með Cel- tic í Skotlandi, segir í viðtali við enska netmiðilinn Sportinglife að hann leggi traust sitt á walesverj- ann John Hartson í leikjum Celtic á móti portúgalska liðinu Boavista en liðin mætast í fyrri undanúrslita- leik liðanna í UEFA-keppninni á Parkhead, heimavelli Celtic í kvöld. Síðast þegar þessi lið mættust á knattspyrnuvellinum var Jóhannes í liði Celtic. Jóhannes eða „Big Shuggy“ eins og hann var nefndur, Kenny Dalglish og Dexie Dean skoruðu mörk Celtic sigur á Boa- vista í Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1974-75 – 3:1, en jafnt var í Portúgal, 0:0. „Hartson hefur verið í miklum ham á leiktíðinni og ég vona svo sannarlega að hann verði á skot- skónum. Ég er mjög hrifinn af Hartson – hann er harðjaxl, eitr- aður framherji og þolir ekki að tapa. Hann er leikmaður að mínu skapi. Það yrði frábært fyrir Celtic að komast í úrslit í UEFA- keppninni en mér finnst samt aðal- málið að liðið hafi betur á móti Rangers og vinni deildina. Það yrði skelfilegt ef Rangers næði þrennu,“ sagði Jóhannes. „Big Shuggy“ setur traust sitt á Hartson  GUÐMUNDUR Steinarsson skor- aði eitt marka Brönshöj sem sigraði B1913 örugglega, 5:1, í dönsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Guð- mundur, sem gekk til liðs við Bröns- höj frá Keflavík í síðasta mánuði, hefur þá skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjum sínum og lið hans hefur nú lyft sér úr mestu fallhætt- unni og upp í 9. sætið í deildinni.  ASTON Villa hefur hætt við fyr- irhugaða æfinga- og keppnisferð til Kína og Hong Kong í sumar vegna lungnabólgufaraldursins sem geisað hefur á þessu svæði. Áður hafði Everton hætt við æfingaferð sína til Kína sem liðið ætlaði að fara í maí- mánuði.  ALEX Ferguson, stjóri Manchest- er United, segir að Raúl framherji Real Madrid og spænska landsliðs- ins sé besti knattspyrnumaður heimsins að sínu mati en Raúl skor- aði tvö af mörkum Madridarliðsins í 3:1 sigrinum á United í fyrrakvöld.  GLENN Hoddle knattspyrnustjóri Tottenham getur farið að svipast um eftir leikmönnum því stjórnarfor- maður félagsins hefur ritað bréf til dyggra stuðningsmanna Tottenham og þar kemur fram að Hoddle fái fé í sumar til að styrkja leikmannahóp félagsins fyrir átökin á næstu leiktíð.  CLARENCE Seedorf hollenski miðjumaðurinn í liði AC Milan getur ekki leikið meira með Mílanóliðinu á þessu tímabili. Seedorf meiddist á hné í leik AC Milan og Ajax í Meist- aradeildinni í fyrrakvöld og við læknisskoðun í gær kom í ljós að meiðslin eru það alvarleg að hann verður frá næstu tvo mánuðina í það minnsta.  FORRÁÐAMENN knattspyrnu- mála í Austurríki og Sviss hafa reif- að þá hugmynd að steypa deildar- keppnunum í þessum löndum sama í eina deild og með því telja þeir að lið- in styrkist og hafi meiri möguleika á að láta að sér kveða í Meistaradeild- inni.  MICHAEL Jordan hélt upptekn- um hætti er hann lék í síðasta sinn gegn Cleveland á útivelli í Gund Arena í fyrradag í NBA-deildinni í körfuknattleik en Jordan skoraði 26 stig í 100:91 sigri Washington Wiz- ards.  STUÐNINGSMENN Cleveland fylltu keppnishöll liðsins í aðeins annað sinn á leiktíðinni en liðið er með versta árangur allra liða deild- arinnar á þessu keppnistímabili. Jor- dan hefur átt góða leiki í gegnum tíð- ina gegn Cleveland og skoraði m.a. 69 stig 28. mars árið 1990 og hefur Jordan aldrei leikið það eftir síðan þá.  AÐ auki sá Jordan til þess að Cleveland féll úr úrslitakeppninni fjórum sinnum í röð er hann lék með Chicago Bulls og margir muna eftir sigurkörfu hans í oddaleik liðanna árið 1988. FÓLK ÞAÐ verða KR og Fylkir sem mæt- ast í úrslitaleik Canela-bikarsins í knattspyrnu á Spáni á morgun. KR vann Grindavík, 1:0, í hörkuspenn- andi úrslitaleik A-riðils í gær þar sem Veigar Páll Gunnarsson skor- aði sigurmarkið, og Fylkir lagði Skagamenn, 2:0, með tveimur mörkum Theódórs Óskarssonar. Lee Sharpe lék allan tímann á miðjunni hjá Grindvíkingum gegn KR, stjórnaði þar spilinu og átti margar frábærar sendingar. ÍBV vann Aftureldingu örugg- lega, 3:0, og mætir FH í leik um 5. sætið. FH-ingar lentu í basli með Úrvalslið Úrvals-Útsýnar, sem er skipað varamönnum hinna liðanna, en sigruðu í vítaspyrnukeppni eftir jafntefli, 1:1. Leikirnir í gær fóru fram í sól og 27 stiga hita en mikil veðurblíða hefur verið á Suður-Spáni frá því íslensku liðin komu þangað um síð- ustu helgi. KR og Fylkir í úrslitum á Spáni Petersons á tvö ár eftir af samn-ingi sínum við Gróttu/KR en forráðamenn vesturbæjarliðsins bú- ast fastlega við því að missa hann úr sínum röðum. „Við ætlum ekki að gefa hann frá okkur en ég held að það sé næsta öruggt að hann fer frá okkur og aðeins spurning hvar hann endar,“ sagði Kristján Guðlaugsson, formaður handknattleiksdeildar Gróttu/KR, við Morgunblaðið. HSG Düsseldorf er í öðru sæti í suðurhluta þýsku 2. deildarinnar með jafnmörg stig og toppliðið Kronau/Östringen. Liðið sem verð- ur efst fer beint upp í Bundesliguna en liðið í öðru sæti fer í umspil um sæti í deild þeirra bestu. Nokkrir íslenskir handknattleiks- menn hafa leikið með Düsseldorf. Fyrstur til þess var Páll Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmaður, sem var í meistarabaráttu með liðinu, og síðan fetaði annar landsliðsmaður, Héðinn Gilsson, í fótspor hans. Alfreð sýndi áhuga Petersons er einn þeirra örv- hentu leikmanna sem Alfreð Gísla- son, þjálfari Magdeburg, hafði sýnt áhuga á að fá til liðs við sig til að fylla skarð Ólafs Stefánssonar en hann yfirgefur sem kunnugt er Magdeburg í sumar og gengur til liðs við Ciudad Real á Spáni. Lett- inn fyrrverandi æfði með Magde- burg fyrir skömmu og voru viðræð- ur í gangi á milli Magdeburg og Gróttu/KR um félagaskiptin en Al- freð sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær að ekkert yrði úr félaga- skiptunum. „Það má segja að þetta mál sé komið í geymslu. Petersons er ung- ur og efnilegur leikmaður sem mér leist mjög vel á en við erum með marga unga stráka í okkar röðum sem ég held að geti orðið mjög góð- ir. Eftir að hafa skoðað málið frá öll- um hliðum höfum við komist að þeirri niðurstöðu að betra sé að fá eldri og reyndari leikmann til að leysa Ólaf af hólmi og er það í vinnslu,“ sagði Alfreð við Morgun- blaðið. Kristján Guðlaugssonsagði við Morgunblaðið að Magdeburg hefði gert Petersons tilboð en eftir að hafa skoðað það hefði hann tekið ákvörðun um að hafna því. Düsseldorf vill skoða Petersons ALEXANDERS Petersons heldur til Þýskalands í næstu viku en þýska 1. deildarliðið HSG Düsseldorf hefur boðið Lettanum að kynna sér aðstæður hjá félaginu og æfa með því í nokkra daga. Ekkert verður úr því að hann fari til Magdeburg, þar sem hann var til reynslu á dögunum. Rigning á Augusta- vellinum hefur áhrif MIKLAR rigningar hafa ver- ið á Augusta-vellinum í Bandaríkjunum undanfarna daga og er völlurinn mjög mjúkur og blautur á vissum stöðum. Golfspekingar vestanhafs leiða að því líkum að með hverjum dropa sem falli á Augusta-völlinn aukist lík- urnar á því að Tiger Woods sigri á Mastersmótinu þriðja árið í röð. Woods er einn högglengsti kylfingur ver- aldar og þar sem boltinn á ekki eftir að rúlla mikið eftir brautunum hafa þeir högg- lengstu ákveðið forskot á þá sem slá styttra. „Ef ég á að eiga nokkra möguleika á þessum velli verður hann að vera þurr og harður. Ef það rignir meira mun ég eiga í vandræðum,“ segir Bandaríkjamaðurinn Scott Hoch sem reiðir sig á stutta spilið og púttin í leik sínum. Woods segir að vissulega hagnist hann á því ef hann nái að slá langt og beint á blautum vellinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.