Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 35 „ÞAÐ þarf að efla heilsugæzl- una.“ Á þessu er klifað, samt er stöðugt verið að efla hana. Starfs- fólki og stjórnendum hefur fjölgað mikið. Á liðnu kjörtímabili var tug- um milljóna króna eytt í stefnumót- un heilsugæzlunnar í Reykjavík. Sú stefnumótun gagnaðist vel einkafyr- irtækjunum sem seldu hana, Del- oitte-Touche og Háskólanum í Reykjavík. Þá óskaði heilsugæzlan í Reykjavík eftir stjórnsýsluathugun ríkisendurskoðunar á sjálfri sér. Þar staðfestist það sem allir vissu: það vantar tíma hjá heimilislækn- um! Annað virtist í góðu lagi að mati ríkisendurskoðunar. Hvers vegna hafa nokkrir tugir reynslu- mikilla sérmenntaðra heimilislækna yfirgefið heilsugæzlustöðvarnar í Reykjavík á liðnum árum og farið í aðrar sérgreinar? Hvers vegna flýja læknar heilsugæzlustöðvarnar með- an sjálfstætt starfandi heimilis- læknar hætta einungis vegna ald- urs? Það vantar ekki „heilsugæzlu“ í Reykjavík og nágrenni. Það vantar heimilislækna. Þótt byggð sé heilsu- gæzlustöð í tilteknu hverfi sýnir reynslan að fólk í hverfinu heldur tryggð við gamla lækninn sinn. Það flytur sig ekki vegna heilsugæzlu- stöðva heldur vegna lækna. Helm- ingur íbúa í neðra Breiðholti hefur heimilislækna utan hverfisins en ekki á heilsugæzlustöðinni í Mjódd. Ástandið í heimilislækningum í Reykjavík og nágrenni er óviðun- andi. Á læknavaktina í Smáranum streymir fólk sem ýmist er lækn- islaust eða fær ekki tíma hjá heim- ilislækni sínum fyrr en eftir langa bið. Slíkt eru engar heimilislækn- ingar. Hraðinn í nútímasamfélagi hefur að sjálfsögðu smitað heil- brigðiskerfið. Fólk er afgreitt með hraði á skyndimóttökum og veit oft ekki sitt rjúkandi ráð. Hafi ein- hvern tíma verið nauðsynlegt að hafa traustan lækni í þessu flókna og öfluga heilbrigðiskerfi er það nú. Sambands- og þekkingarleysi eykur hættu á mistökum, óþörfum rann- sóknum og lyfjagjöfum, misnotkun lyfja og vottorða svo ekki sé minnzt á illa meðferð fjár og tíma. Núver- andi ástand í heilsugæzlunni í Reykjavík og nágrannabyggðum einkennist æ meir af öryggisleysi fólksins og ábyrgðarleysi kerfisins. Svokölluð hverfisábyrgð heilsu- gæzlustöðvar er sjúklingi gagnslítil, ef hann hefur ekki fastan lækni. Hver sjúklingur hafi ákveðinn heimilislækni Í heilbrigðisþjónustu sem byggist á heimilislækningum er það grund- vallaratriði að hver sjúklingur hafi sinn ákveðna heimilislækni. Hver læknir ber þá skilgreinda ábyrgð og sinnir ákveðnum hópi skjólstæð- inga. Einungis þannig myndast gagnkvæmt traust læknis og sjúk- lings sem báðum er svo nauðsyn- legt. Heimilislæknirinn öðlast þá smám saman sérþekkingu á sjúk- dómum og aðstæðum sjúklinga sinna, en því aðeins að hann hafi af- markaðan hóp. Á gagnkvæmri þekkingu og trausti byggist einmitt hagkvæmni heimilislækninganna, en ekki á hverfaskiptum heilsu- gæzlusvæðum. Það er mikil eftir- spurn eftir þessu persónulega fyr- irkomulagi. Það er hagkvæmt fyrir þjóðfélagið og beinlínis grundvöllur heimilislækninga. Hin leiðin er auð- vitað að leggja af heimilislækningar og láta fólk leita beint á stofur sér- greinalækna með hvaðeina. Heilsugæzlustöðvar án heimilis- lækna eru lamaðar. Það sást í upp- sögnunum 1995 og sést nú átak- anlega á Suðurnesjum. Stefnu- breytinga er þörf. Sennilega er átakaminnst að gefa sérmenntuðum heimilislæknum strax heimild til að reka eigin læknastofur líkt og aðrir sérfræðingar hafa gert um langa hríð. Heimilislæknar með heilbrigð- an metnað una ekki aðstæðum á heilsugæzlustöðvunum eins og rækilega hefur komið í ljós. Þarf að efla heilsugæzluna? Eftir Jóhann Tómasson „Það vantar ekki „heilsu- gæzlu“ í Reykjavík og nágrenni. Það vantar heimilis- lækna.“ Höfundur er læknir. VIÐ sem höfum kynnst og starfað tugi ára að íþrótta- og æskulýðsmál- um vitum hvers virði það starf er fyrir æsku þessa lands. Við vitum einnig að stjórnarflokk- arnir lofuðu miklum fjárveitingum til þessara málaflokka fyrir fjórum ár- um, en efndirnar hafa látið standa á sér. Við sem störfum innan Samfylking- arinnar vitum og leggjum ríka áherslu á að skipulegt íþrótta- og æskulýðsstarfs er besta forvörn fyrir ungt fólk, sem ekki vill glepjast af eit- urlyfjum og öllu því böli er þeirri neyslu fylgir. Samfylkingin vill efla íþrótta- og æskulýðsstarf eftir því sem mögulegt er og gera jafnframt öllum sem áhuga hafa að stunda íþróttir og æskulýðs- starf án tillits til efnahags og búsetu fólks. Undirritaður vill benda á það bæjarfélag landsins, Hafnarfjörð, er styrkir alla til þátttöku í heilbrigðu starfi sér og sínum nánustu til heilla og blessunar. Hafnarfjörður tók upp þá stefnu eftir sveitarstjórnarkosn- ingar síðastliðið vor að greiða tvöþús- und krónur á mánuði til barna er skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf stunda. Á þann veg munu jafnaðar- menn starfa á landsvísu ef þeir fá til þess afl í komandi alþingiskosningum 10. maí nk. Atkvæði greitt Samfylk- ingunni er ávísun á heilbrigðara líf fyrir æsku þessa lands. Íþróttir og æskulýðsmál Eftir Jón Kr. Óskarsson Höfundur skipar 7. sæti á lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi. „Samfylk- ingin vill efla íþrótta- og æskulýðs- starf eftir því sem mögulegt er...“ HALLDÓR Blöndal þingmaður ritar um flugvöll í Vatnsmýri í Morg- unblaðið 6. apríl sl. Af því tilefni er rifjað upp að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, fyrrum borgarstjóra í Reykjavík, afréð 1991 að festa þing- mannaflugvöll í sessi í hjarta Reykja- víkur, gegn vilja Reykvíkinga. Í skjóli illræmds misvægis atkvæða byggist ákvörðunin á brengluðu gildismati og misbeitingu valds, sem ásamt leið- togadýrkun og þaulsetu ráðamanna er megineinkenni vítahringsins sem grefur undan lýðræðinu. Halldór Blöndal var samgönguráð- herra 1991–99 og ber því, ásamt eft- irmanni sínum, ábyrgð á að 1.600 milljónum var sökkt í Vatnsmýri skv. rangri þarfagreiningu fyrir nýjan flugvöll í stað þess að lagfæra þann gamla fyrir 160 milljónir. Höfuðborg- arsamtökin og Samtök um betri byggð hafa ítrekað óskað stjórn- sýsluúttektar á óráðsíu ráðherranna og starfsháttum flugmálayfirvalda. Eins og alkunna er veldur flugvöll- ur í hjarta Reykjavíkur ólýsanlegu tjóni í höfuðborgarsamfélaginu. Mið- borgin er komin að fótum fram og kjölfestubyggð vestan Kringlumýr- arbrautar er í uppnámi. En þegar völlurinn fer má bæta skipulag og byggð stórkostlega. Árlegur sparn- aður íbúanna vegna einkabílaaksturs gæti þá orðið 33 milljarðar króna og 26.000 mannár að meðaltali næstu 20 ár, miðað við að völlurinn fari 2010. Til samanburðar er óhagræði flugfar- þega af flutningi innanlandsflugs til Keflavíkur 180 mannár á ári að með- altali á sama tíma. Um árabil var mikil umræða um skipulag höfuðborgarinnar og flug- starfsemi í Vatnsmýri og því liggur fyrir gnótt upplýsinga. Með tilliti til fyrri starfa þingmannsins er erfitt að skýra skilningsleysi hans og fyrirlitn- ingu á grundvallarhagsmunum 180.000 höfuðborgarbúa. Undirritað- ur vill hvorki gera honum upp van- þekkingu né illan vilja. En lýst er eft- ir skýringu. Efnislega er grein þingmannsins ekki svara verð enda beinist hún að fyrrum borgarstjóra, sem fórnaði mikilsverðum meginhagsmunum borgarbúa fyrir einkahagsmuni um áframhaldandi valdasetu og góða inn- komu í landsmálin með því að fram- lengja flugstarfsemi í Vatnsmýri til 2024. Að missa höfuðborg Eftir Örn Sigurðsson Höfundur er arkitekt. „Eins og alkunna er veldur flugvöllur í hjarta Reykjavíkur ólýsanlegu tjóni í höfuðborgar- samfélaginu.“ VIRÐING er lykilatriði í starfi nuddara, stéttar sem er í líkam- legri nálægð við viðskiptavini og verður að fara eftir ákveðnum siðareglum. Sem fagfólk hljóta menntaðir nuddarar að virða sína kunnáttu og verja hana. Það er til hagsbóta fyrir okkur í Félagi ís- lenskra nuddara og ekki síður til góðs fyrir viðskiptavini okkar. Þeir vita að hverju þeir ganga og geta treyst okkar þjónustu. Síðustu ár hefur mjög fjölgað fólki sem kallar sig nuddara og selur „nudd“ með mismikla, oft litla, menntun til þess arna. Sumir hafa sótt nokk- urra mánaða, jafnvel missera nuddnámskeið, en ekki stundað viðurkennt bóknám. Aðrir flýta sér meira. Svokallaðir helgarnuddarar hafa til dæmis sótt stutt námskeið og tekið svo til við að nudda. Þetta er dæmi um misnotkun starfsheit- isins og grófara dæmi er það sem nefnt er erótískt nudd. Það er algjör vanvirðing við lærða og ábyrga nuddara, þessi starfsemi á ekkert skylt við nudd. Hún gengur út á eitthvað allt ann- að og maður getur ímyndað sér hvað kann að fylgja kynferðislegri örvun sem lofað er. Þótt fyrirtæk- in sem auglýsa þessa þjónustu þykist ekki leyfa mök við þá sem hana kaupa, er engin trygging fyr- ir því, þetta fer væntanlega fram í lokuðum klefum. Og vændi er bannað á Íslandi, 206. grein hegn- ingarlega leggur refsingu við því að hagnast á líkama annarra og því að selja eigin líkama. Það sem ekki virðist bannað eru kaupin, merkilegt nokk. En nuddarar FÍN vilja ekki með nokkru móti láta bendla sig við þetta – við teljum alvarlegt mál að slík þjónusta sé látin viðgangast. Nudd er rétt stundað ein elsta lækningaraðferð heims, getið er um það í 4000 ár gömlum heim- ildum, og æ síðan hefur það þróast sem heilsuefling; til að auka vellíð- an, lina þjáningar og styðja aðrar lækningaleiðir, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Forvarnargildi nudds er ótvírætt. En til þess að rækja þessi hlutverk með sóma þarf nuddari staðgóða menntun í vöðva- og lífeðlisfræði og verulega starfsþjálfun hjá reyndum kenn- urum og meistara í faginu. Allt þetta hafa um 200 nuddarar FÍN. Þeir stunda fjögurra ára nám hið minnsta; fyrst tveggja ára bóklegt í Heilbrigðisskóla Íslands í Fjölbraut við Ármúla eða sam- bærilegt nám við aðra viðurkennda menntastofnun. Til að mynda eru allnokkur dæmi um að hjúkrunar- fræðingar, sjúkraliðar og íþrótta- kennarar bæti við sig nuddnámi í einkaskóla FÍN, sem er annar áfangi nuddnámsins og felur í sér eins árs verkþjálfun. Lokaþáttur- inn er framhald slíkrar þjálfunar hjá viðurkenndum meistara og hann tekur einnig eitt ár að minnsta kosti. Síðan bæta margir við sig sérnámi eða meistararétt- indum. Það skyldi því engan undra að við viljum ekki sjá það að minna eða alls ólært fólk kalli sig nudd- ara og selji misgóða þjónustu jafn- vel á uppsprengdu verði. Nudd- nám FÍN er viðurkennt af menntamálaráðuneyti en nú höfum við farið þess á leit við heilbrigð- isráðherra að starfsheiti okkar, sem höfum þessa menntun, hljóti löggildingu.. Við höfum kosið starfsheitið „heilsunuddari“ til að- greiningar frá öðrum. Sjúkranuddarar hafa slíka lög- verndun, en þeir eru hér um 30 talsins og hafa lært sitt fag erlend- is. Þeir þurfa ekki að standa skil á virðisaukaskatti en þar er annað baráttumál FÍN. Nuddarar félags- ins þurfa enn sem komið er að greiða skattinn, en niðurfelling hans væri vitaskuld hagstæð bæði fyrir þá og viðskiptavinina. Nefnd heilbrigðisyfirvalda um óhefð- bundnar lækningar mun skila áliti í haust, ráðuneytið hefur óskina um löggildingu. FÍN vill út úr frumskógi misgóðra tilboða, nudd- arar félagsins vilja viðskiptavinum sínum vel og æskja þess því að lit- ið sé til þekkingar þeirra. Heilsunudd – ekki fúsk Eftir Guðbrand Einarsson „Við höfum kosið starfsheitið „heilsunudd- ari“ til að- greiningar frá öðrum.“ Höfundur er formaður Félags íslenskra nuddara. Fæst í apótekum og lyfjaverslunum ER NEFIÐ STÍFLAÐ? STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.