Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 11
skráning þingvíxla í Kauphöll Íslands
Nafnverð útgáfu og lánstími:
Gefnir verða út allt að 12 flokkar, þar sem hver flokkur er til 6
mánaða í senn, í fyrsta sinn 9. janúar 2003. Heildarnafnverð
útgefinna flokka ræðst af markaðsaðstæðum. Stærð flokkanna
verður að hámarki 1 milljarður króna.
Útgefandi:
Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH), kt. 610269-5599,
Strandgötu 8-10, 220 Hafnarfirði.
Skráningardagur í Kauphöll Íslands:
Kauphöll Íslands hefur samþykkt að skrá þegar útgefna og selda
víxla 14. apríl 2003, enda verði öll skilyrði skráningar uppfyllt.
Útgáfa hvers flokks verður tilkynnt til Kauphallar Íslands hverju
sinni.
Ávöxtunarkrafa á söludegi:
Ávöxtunarkrafa ræðst af markaðsaðstæðum hverju sinni.
Upplýsingar um ávöxtunarkröfu og gengi er hægt að fá hjá
Sparisjóði Hafnarfjarðar, Kringlunni 6, 103 Reykjavík.
Skilmálar:
Víxlarnir eru seldir gegn staðgreiðslu í 5.000.000 og
10.000.000 kr. einingum. Víxlarnir verða afhentir í síðasta lagi
daginn eftir sölu.
Umsjón með skráningu:
Sparisjóður Hafnarfjarðar, kt. 610269-5599, Kringlunni 6,
103 Reykjavík.
Skráningarlýsing og önnur gögn varðandi ofangreinda þingvíxla liggja
frammi hjá: Sparisjóði Hafnarfjarðar, Kringlunni 6, 103 Reykjavík,
„AÐALÁVINNINGURINN er sá að
okkur skuli takast að framlengja
samninginn um Evrópska efnahags-
svæðið og gera hann betur virkan en
hann var orðinn vegna stækkunar
Evrópusambandsins,“ segir Guðjón
A. Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, um samkomulag
EFTA-ríkjanna og ESB.
Guðjón segir einnig mjög þýðing-
armikið að samkomulagið kveði á um
tollfrelsi fyrir síldarflök og að opna
eigi tollflokka fyrir fleiri sjávarafurð-
ir. Einnig séu sameiginleg verkefni á
sviði jarðvarma-
nýtingar, sjávar-
útvegs og fleiri
verkefna mikil-
vægir þættir sam-
komulagsins.
„Það skiptir
sköpum að okkur
skuli hafa tekist
að framlengja
EES-samninginn
og gera hann okk-
ur hugsanlega hagstæðari en ella
hefði orðið, jafnvel þó að við séum að
greiða þetta 500 milljóna króna fram-
lag. Mér vex það ekki mikið í augum
miðað við þá hagsmuni sem þarna um
ræðir,“ segir hann.
„Ég tel að það sé einnig komin upp
sú staða að ekki liggi mikið á að fara
að skoða inngöngu í Evrópusamband-
ið, miðað við þennan samning. Það er
ýmislegt jákvætt við þetta samkomu-
lag. Það gefur okkur tækifæri til að
sjá hvernig Evrópusambandið mun
þróast með inngöngu þessara nýju
ríkja og það held ég að sé mjög gott
fyrir Ísland,“ segir Guðjón.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður FF
Aðalávinningurinn er fólg-
inn í framlengingu EES
Guðjón A.
Kristjánsson
„AUÐVITAÐ er
þetta talsvert há
upphæð sem
þarna á að fara að
greiða og í raun og
veru í engu sam-
ræmi við þá við-
skiptahagsmuni
sem við áttum í
húfi, um að halda
þessum fríversl-
unarkjörum aust-
ur á bóginn. En vissulega er nokkurs
um vert að tryggja framtíðarmögu-
leika okkar á þessum mörkuðum,“
segir Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG um samkomulag EFTA-
ríkjanna og ESB. Hann kveðst ekki
vera í aðstöðu til að halda öðru fram
en að það hafi verið illskásti kosturinn
að ljúka málinu á þessum nótum.
„Mér er þó í raun miklu verr við að
þurfa að gangast inn á að semja sam-
kvæmt þessari aðferðafræði Evrópu-
sambandsins, sem mér hugnast lítt,
að þvinga fram greiðslur langt um-
fram það sem efni standa til.
Í raun og veru í krafti hrossakaupa
og neitunarvaldsaðferðar, sem er ær
og kýr Evrópusambandsins.“
Honum líst einnig illa á endurskoð-
unarákvæði samkomulagsins. „Það er
allt sem bendir til að útgjaldavandi
Evrópusambandsins verði gríðarleg-
ur, þegar kostnaðurinn af stækkun-
inni fer að tikka á árunum eftir
2005–6. Má þá ekki búast við, í sam-
ræmi við fyrri reynslu okkar af sam-
skiptum við Evrópusambandið, að þá
verði komið fram með nýjar kröfur?
Ég minni á hvað gerðist þegar tíma-
bundnum greiðslum okkar í þróunar-
sjóðina átti að ljúka samkvæmt upp-
haflega EES-samningnum. Þá gerði
Evrópusambandið ekkert með það og
heimtaði áframhaldandi greiðslur og
beitti þvingunaraðferðum til að ná því
fram.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG
Illskásti kosturinn en
hugnast lítt aðferðir ESB
Steingrímur J.
Sigfússon
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111