Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR stjórnmálaflokka
sem bjóða fram til Alþingis í vor
ræddu möguleg áhrif aðildar Íslands
að Evrópusambandinu á íslenskan
landbúnað og verkafólk við matvæla-
framleiðslu á fundi sem matvælasvið
Starfsgreinasambands Íslands boð-
aði til í Kiwanishúsinu í hádeginu í
gær.
Aðalsteinn Baldursson, formaður
matvælasviðs sambandsins, lagði
m.a. áherslu á í upphafi fundarins að
landbúnaður, þjónustan við landbún-
að og úrvinnsla landbúnaðarafurða,
hefðu verið mikilvægir þættir í at-
vinnulífi landsmanna. Ársverkum í
þessum starfsgreinum hefði þó farið
fækkandi síðustu áratugi. Sagði
hann sambandið hafa áhyggjur af
þeirri þróun. Hana þyrfti að stöðva.
Hugsanlega yrði það gert með aðild
Íslands að ESB. En hugsanlega
kæmi aðild að ESB til með að veikja
enn frekar stöðu landbúnaðar og úr-
vinnslugreina á Íslandi. Sagðist
hann reyndar vera á síðarnefndu
skoðuninni, þ.e. að aðild að ESB yrði
til að veikja stöðu landbúnaðarins.
Mæti versnandi
samkeppnisstöðu
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna
gerðu grein fyrir afstöðu sinna
flokka til þessara mála. Rannveig
Guðmundsdóttir, Samfylkingu, lagði
m.a. áherslu á að aðild að ESB fæli
ekki aðeins í sér innflutning erlendra
vara hingað til lands heldur einnig
útflutning íslenskra vara á erlenda
markaði. Drífa Hjartardóttir, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn vildi ekki ganga í ESB
m.a. vegna þess að hann vildi tryggja
stöðu íslenskra bænda og þeirra sem
ynnu í úrvinnslugreinunum.
Árni Magnússon, Framsóknar-
flokki, sagði að ýmsar greinar land-
búnaðarins myndu mæta versnandi
samkeppnisstöðu gengi Ísland í
ESB. Til dæmis kjúklinga- og svína-
kjötsframleiðsla, grænmetisfram-
leiðsla og ákveðnar greinar innan
mjólkuriðnaðar. Hins vegar myndi
sauðfjárrækt og ýmiss konar land-
rækt njóta góðs af inngöngu í ESB.
Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri-
hreyfingunni – grænu framboði,
benti m.a. á að þótt matvælaverð í
Svíþjóð og Finnlandi hefði lækkað
eitthvað við inngöngu landanna í
ESB, hefði verðið lækkað mun
minna en spáð hefði verið. Hann
benti einnig á að ef Íslendingar vildu
lækka matvælaverð þá væri það
hægt strax á morgun með því t.d. að
ákveða að fella niður alla tolla af
unnum vörum. Ekki þyrfti að ganga í
ESB til að ná því marki.
Að lokum sagði Guðjón A. Krist-
jánsson, Frjálslynda flokknum, að
sinn flokkur vildi efla byggðir lands-
ins og þar með þau störf sem þar
væru til staðar. „Við sem neytendur
megum ekki ganga svo hart fram í
kröfunni um lágt matvöruverð að
bóndinn fái ekki séð sér og sínum
farborða,“ sagði hann m.a. Hann
sagði einnig að varlega skyldi farið
þegar skoðuð yrði aðild að ESB.
Kostir og gallar skyldu metnir.
Fulltrúar flokkanna ræddu áhrif ESB á landbúnað og verkafólk
Áhyggjur af fækkun ársverka
FRAMBOÐ óháðra í suðurkjör-
dæmi er með tillögur um að hækka
skattleysismörk í 90.000 krónur og
segir Kristján Pálsson, oddviti
listans, að kostnaðurinn við það sé
um fjórir milljarðar.
Kristján segir að auk þess sé
nauðsynlegt að skoða ýmis jaðará-
hrif sem tengist skattinum, það er
hvenær ýmsar bætur ríkisins byrji
að skerðast og samræmi sé í því, en
eðlilegt væri að jaðaráhrif byrjuðu
við skattleysismörkin.
Framboðið vill endurskoða og
endurreikna frítekjumörk námslána
og taka inn í eðlilega þætti sem snúa
að framfærslu námsmanna eins og
til dæmis netnotkun og fartölvur.
Þá vill framboðið skoða hækkun á
frítekjumarki tekjuskatts í hátekju-
skatti, þannig að hann miðist við há-
ar tekjur en ekki við lægri kantinn í
millitekjum eins og nú tíðkist.
„Mikilvægast er að lækka skatta
þeirra lægst launuðu og það gerist
best með því að hækka skattleysis-
mörkin,“ segir Kristján. Hann bend-
ir á að það gagnist mest þeim sem
minnstar hafi tekjurnar.
Framboð óháðra
í Suðurkjördæmi
Vill skatt-
leysismörk í
90.000 krónur
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra situr nú fund í Stokkhólmi
þar sem hún stjórnar m.a. umræðum
á sameiginlegum fundi dómsmála-
og jafnréttismálaráðherra Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna en
fulltrúi félagsmálaráðherra er einnig
á fundinum.
Sameiginlegt átak landanna um
aðgerðir gegn verslun með konur
hófst árið 2001 og verður árangur
átaksins kynntur á fundinum. Í átak-
inu fólst m.a. að haldnar voru þrjár
sameiginlegar ráðstefnur í Eystra-
saltsríkjunum þar sem viðfangsefnið
verslun með konur var rætt út frá
mismunandi sjónarhornum. Tilgang-
ur ráðstefnanna var að vekja al-
menning til vitundar um vandamálið.
Átakið á Íslandi, sem félagsmála-
ráðherra og dómsmálaráðherra
stóðu að í lok febrúar, verður jafn-
framt kynnt af verkefnisstjórum á
fundinum. Þá koma ráðherrar til
með að ræða næstu skref í sameig-
inlegri baráttu landanna gegn versl-
un með konur.
Ræða átak
gegn verslun
með konur
TAFLFÉLAGIÐ Hrókurinn heiðr-
aði í gær drengja- og stúlkna-
sveitir Rimaskóla en báðar sveitir
hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum
á grunnskólamótinu í skák.
Drengjasveitin braut á bak aftur
margra áratuga langa sig-
urgöngu Melaskóla og hampaði
Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta
sinn. Sigurliðið verður fulltrúi Ís-
lands á Norðurlandaskákmóti
grunnskóla í Finnlandi í haust.
Rimaskóli tefldi fram stúlkna-
sveit í fyrsta sinn og gerði sér lít-
ið fyrir og sigraði. Stúlkurnar
hafa allar sótt skáknámskeið
Hróksins sem farið hefur fram
alla laugardaga í vetur. „Þetta
hefur geysilega þýðingu fyrir
okkur,“ sagði Helgi Árnason
skólastjóri. „Það var ákveðið
strax í upphafi skólastarfs að
byggja upp skákina og það hefur
tekist. Við höfum lagt áherslu á
að teflt sé vegna ánægjunnar og
þannig finnst mér starfið hafa
mótast hjá okkur. Ánægjan ýtir
undir það að krakkarnir æfi
meira. Þau hafa mjög gaman af
vera markvisst með. Hrókurinn
hleypti öllum að og það jók áhug-
ann,“ sagði Helgi sem lagði einn-
ig áherslu á að sterkur for-
eldrahópur stæði á bakvið starfið,
en þrjú systkini voru í sigursveit-
unum tveimur.
því að taka þátt í mótum.“
Tafl má finna í hverri skóla-
stofu Rimaskóla enda mikill áhugi
á skák í skólanum.
„Hrókurinn var með námskeið
hjá okkur og þá fengum við tæki-
færi til að bjóða stelpunum að
Morgunblaðið/RAX
Sigursveitir Rimaskóla í stúlkna- og drengjaflokki ásamt Hrafni Jökulssyni, formanni Hróksins,og Helga Árna-
syni, skólastjóra Rimaskóla. Stúlknasveitina skipa: Ingibjörg Ásbjörnsdóttir, Júlía Guðmundsdóttir, Júlía Rós Haf-
þórsdóttir og Elísabet Ragnarsdóttir. Drengjasveitina skipa: Hjörvar Steinn Grétarsson, Egill Gautur Stein-
grímsson, Sverrir og Ingvar Ásbjörnssynir.
Rima-
skóli
heiðrað-
ur fyrir
skák-
snilli
„ÉG var frekar sorgmædd og leið
yfir þessu en skil ákvörðunina,“
segir Ásthildur Teitsdóttir, sem
var skiptinemi í Hong Kong en
var kölluð heim eins og aðrir
skiptinemar vegna ástandsins þar
í kjölfar bráðrar lungnabólgu.
„Þetta var eins og brotlending,“
segir Vilhjálmur Ásmundsson.
Ásthildur og Vilhjálmur voru
skiptinemar á vegum samtakanna
AFS í Hong Kong, en þau eru
bæði 18 ára. Ungmennin fóru út í
lok ágúst og áttu að koma heim í
lok júní, en þau segjast lítið hafa
orðið vör við lungnabólguna. „Ég
sá fólk ganga um með grímur og
vissi af þessu en ég þekkti engan
sem var veikur,“ segir Ásthildur
og bætir við að hún hafi mest
heyrt af lungnabólgunni í fjöl-
miðlum. Auk þess hafi skólunum
verið lokað í vikunni áður en hún
fór í burtu. „Fólk var beðið um að
vera ekki á fjölmennum stöðum,
en þar sem ég var að fara var ég
nokkuð mikið úti,“ segir Ásthild-
ur. „Til að byrja með hugsaði ég
ekki út í veikina, en það breyttist
með fréttum af veiku fólki á
sjúkrahúsum,“ segir Vilhjálmur.
„Fjölskylda mín
keypti grímur fyrir
heimilið og ég gekk
með grímu ef ég var
innan um margmenni.
Það var öryggisatriði
því það er lítið rými
og mjög troðið í lest-
um og vögnum. Hins
vegar var ég ekki
með hjartað í bux-
unum því ég fékk orð
frá föður mínum á Ís-
landi sem hafði talað
við landlækni og sótt-
varnardeild og fengið
þau skilaboð að ég
væri ekki í lífshættu.“
Skammur tími
Vilhjálmur segir að hann hafi
haft þrjá daga til að koma sér í
burtu og það hafi ekki verið gam-
an enda besti tíminn framundan.
„Það er allt öðru vísi að vera
þarna þegar þú ert farinn að geta
talað málið. Þá er gullni tíminn.“
Þau segjast hafa valið að fara
til Hong Kong vegna fjarlægð-
arinnar og menningarinnar. „Það
var mjög gaman fram að þessu,“
segir Ásthildur og finnst of mikið
gert úr veikinni, þótt allur sé var-
inn góður. „Þetta er ekki eins
banvænt og fólk virðist halda,“
segir hún og bætir við að næst á
dagskrá sé að finna vinnu, en hún
haldi síðan áfram í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti í haust.
Vilhjálmur er einnig að leita að
vinnu en hann heldur áfram námi
við Menntaskólann við Hamrahlíð
í haust. Hann segist halda að að-
eins sé gert of mikið úr lungna-
bólgunni. „Ég var ekkert hræddur
en maður kærir sig ekkert um að
smitast. Ég var hræddastur um að
smita aðra, en fór í læknisskoðun
áður en ég fór og reyndist ein-
kennalaus.“
Tveir skiptinemar heim frá Hong Kong vegna bráðrar lungnabólgu
„Eins og brotlending“
Vilhjálmur
Ásmundsson
Ásthildur
Teitsdóttir
♦ ♦ ♦
VARÐSKIPIÐ Ægir er nú á leið til
lands með norska selveiðiskipið Pol-
arsyssel í togi, en skipið varð vél-
arvana um 160 sjómílur vestnorð-
vestur af Ísafjarðardjúpi í fyrradag
og var auk þess fast í ís. Mikill leki
var kominn að skipinu, en dælur
höfðu undan og þá settu varðskips-
menn aukadælur um borð í skipið í
gær. Áætlað er að skipið verði komið
hingað til lands seint í kvöld eða und-
ir föstudagsmorgun.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar var varðskipið
komið með norska skipið í tog um
klukkan fimm síðdegis. Þokkaleg-
asta veður var þar sem skipin voru
stödd í gærkvöldi.
Um borð í Polarsyssel er 15
manna áhöfn og amar ekkert að
henni. Aftanverður skrokkur skips-
ins er talsvert skemmdur eftir veru
þess í ísnum. Polarsyssel er um 50
metrar að lengd og um 1.000 brúttó-
tonn.
Varðskip
dregur norskt
hvalveiðiskip
til hafnar