Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STRÍÐ Í ÍRAK
„Fyrst núna er líf mitt að hefjast“
YUSSUF ABED KAZIM, MÚHAMEÐSKUR BÆNAPRESTUR
AP
Íraskir borgarar hópast að fallinni styttu Saddams Husseins í miðborg Bagdad í gær. Var höfuð styttunnar brotið af og dregið um göturnar.
SKRIÐDREKAR Bandaríkjahers
óku inn í miðborg Bagdad síðdegis í
gær að íröskum tíma, um hádegisbil-
ið að íslenskum tíma, og mátti ljóst
vera af viðbrögðum borgarbúa að
þeir töldu fullvíst að stjórnardögum
Saddams Husseins væri lokið í Írak.
Fjöldi borgarbúa fagnaði hermönn-
unum en stjórnleysi einkenndi einn-
ig atburði gærdagsins, fólk fór um
rænandi og ruplandi.
„Góður, góður, Bush,“ hrópaði
hópur íbúa í miðborg Bagdad þegar
Bandaríkjaher mætti á staðinn.
„Okkur er vel við Bush. Okkur er illa
við Saddam,“ sagði ungur drengur.
„Og við erum svöng.“ Víða tók fólk til
við að rífa niður veggmyndir af
Saddam og eyðileggja styttur af for-
setanum, m.a. þá frægustu við Para-
dísar-torg [al-Fardos-torg] í mið-
bænum.
„Ég er 49 ára gamall, en ég hef
ekki lifað einn einasta dag. Fyrst
núna er líf mitt að hefjast,“ sagði
Yussuf Abed Kazim, múhameðskur
bænaprestur. Fólk sparaði ekki
ókvæðisorðin um Saddam: „Svikari!
Pyntari! Einræðisherra!“
Enn barist á nokkrum
stöðum í borginni
Hersveitir bandamanna réðu að
mestu yfir Bagdad í gær en á nokkr-
um stöðum var þó enn barist. Var
þar oftast um að ræða einangraðar
herdeildir sérsveita Írakshers eða
einstaka leyniskyttur. Enginn vissi
hvar Saddam sjálfan var að finna,
orðrómur var á kreiki um að hann
hefði leitað hælis í rússneska sendi-
ráðinu, en jafnframt töldu menn
koma til greina að hann væri hrein-
lega dauður.
Mohammad Saaed Sahhaf, upp-
lýsingaráðherra Íraks, var ekki
heldur sjáanlegur, en hann hefur
verið andlit stjórnarinnar út á við
undanfarna daga.
Bandaríkjamenn óku á skriðdrek-
um sínum upp að Palestínuhótelinu,
þar sem erlendir fréttamenn hafa
hafst við á meðan á stríðinu hefur
staðið. Ræddu hermenn þar við
fréttamenn í rólegheitum í vissunni
um að ekki væri von á árásum frá
Írökum.
„Þetta er eins og ef íraskir skrið-
drekar kæmu akandi upp fimmta
stræti í New York eða inn á Picca-
dilly Circus í London,“ sagði frétta-
maður Reuters-fréttastofunnar er
hann lýsti andrúmsloftinu á Palest-
ínu-hótelinu. „Bagdad er fallin.“
Í Saddam-borg, einu úthverfa
Bagdad, en þar eru íbúar flestir shía-
múslimar, mátti sjá fólk brjótast inn
í verslanir og aðrar byggingar til að
stela húsgögnum, mat, raftækjum og
teppum.
Í norðurhluta borgarinnar réðst
múgur manns til inngöngu í innan-
ríkis- og áveituráðuneytið. Sögðu
fréttamenn að fólkið hefði hreinsað
allar skrifstofur af munum og eyði-
lagt allt það sem minnti á Saddam og
stjórn hans.
Annars staðar sást hvar hvíthærð-
ur maður hló tryllingslega og barði
ítrekað í veggmynd af Saddam með
sandalanum sínum.
Nokkrir stuðningsmenn forsetans
voru þó á ferli: „Saddam Hussein
góður,“ sagði einn þeirra í sífellu.
„Bagdad er ekki fallin og mun aldrei
falla,“ sagði Mohammed al-Dahruj,
24 ára gamall Sýrlendingur, sem
kom til Íraks til að berjast gegn
sveitum bandamanna.
Hópur fólks réðst til inngöngu í hí-
býli írösku Ólympíunefndarinnar,
sem Uday Hussein, sonur Saddams,
stýrði. Kveikti fólkið í byggingunni.
Þá létu menn greipar sópa í höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í
Bagdad. Rauði krossinn hætti enn-
fremur hjálparstarfi í borginni um
tíma í gær eftir að tvær bifreiðar
samtakanna höfðu lent í skothríð.
Var kanadísks starfsmanns Rauða
krossins saknað.
„Því miður verðum við að hætta
starfi okkar tímabundið í borginni
vegna hinnar hættulegu stöðu og
þess öngþveitis sem nú ríkir,“ sagði
Moin Kassis, talsmaður Alþjóða
Rauða krossins í Genf.
„Fylgdarmenn“ frétta-
manna á bak og burt
Bandarískir landgönguliðar höfðu
tekið öll völd í austurhluta Bagdad,
þó að enn hefði ekki verið unnið á öll-
um leyniskyttunum, sem þar voru í
felum. Skýrðist hröð sókn Banda-
ríkjamanna inn í miðbæ Bagdad
fyrst og fremst af því að flestir liðs-
menn Írakshers virtust hafa lagt á
flótta.
Erlendir fréttamenn gengu enn-
fremur frjálsir um götur borgarinn-
ar, en hafa ekki mátt sig hreyfa til
þessa án „fylgdarmanna“ Saddam-
stjórnarinnar. Sögðu fréttamenn lík-
legt að þessir menn – sem væru
óbreyttir opinberir starfsmenn –
hefðu einfaldlega tekið ákvörðun um
að huga að sér og sínum við ótryggar
aðstæður, huga að öryggi sinna nán-
ustu.
„Bagdad er fallin“
Fjöldi Íraka fagnaði hersveitum
Bandaríkjamanna í miðborg Bagd-
ad Gripdeildir og stjórnleysi í
Bagdad Hjálparstarfi frestað
Bagdad. AFP.
BANDARÍSKIR landgönguliðar
toguðu risastóra bronsstyttu af
Saddam Hussein Íraksforseta til
jarðar við Paradísar-torg [al-
Fardus-torg] í miðbæ Bagdad í gær
við mikinn fögnuð viðstaddra
Íraka.
Hópur íraskra borgara hafði
reynt árangurslaust í nokkrar
klukkustundir að fella styttuna af
Saddam, sem stóð á 7,5 metra háum
stalli. Slengdu þeir fyrst reipi um
háls styttunnar og hugðust draga
hana niður en síðan beittu menn
sleggju á stall hennar, til að reyna
að fella hana. Skjótt varð ljóst að
verkið myndi taka drjúgan tíma
með þessum verkfærum og það var
ekki fyrr en Bandaríkjamenn feng-
ust til að nota einn bryndreka
sinna, sem hægt var að ljúka því.
Setti bandarískur hermaður keðju
frá bryndrekanum um háls stytt-
unnar og síðan var skipt í bakkgír,
þannig að styttan féll til jarðar.
Reyndar hékk Saddam um stund
í láréttri stöðu, eftir að hann hafði
verið felldur af stalli sínum, en síð-
an tókst að ljúka verkinu alveg.
Hrúguðust heimamenn að til að
sparka í styttuna og hún var síðan
dregin um göturnar um nokkurt
skeið af Írökum, sem lýstu andúð
sinni á forsetanum fallna með hróp-
um og köllum.
Saddam
fallinn af
stalli