Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 23
DEILISKIPULAG nyrsta hluta
Landssímalóðarinnar svokallaðrar
við Sóleyjarrima í Grafarvogi verður
auglýst á morgun, föstudag, sam-
kvæmt samþykkt borgaryfirvalda.
Þá eru hugmyndir um að smábarna-
skóli, sem áformað var að byggja
sunnar á reitnum, verði ekki starf-
ræktur í sérhúsnæði, eins og sam-
þykkt deiliskipulag gerir ráð fyrir,
heldur í viðbyggingu við Rimaskóla.
Sem kunnugt er hefur skipulag
Landssímalóðarinnar verið í deigl-
unni í nokkurn tíma og hugmyndir
um uppbyggingu á svæðinu mætt
talsverðri andstöðu íbúa í hverfun-
um í kring. Tveir opnir kynning-
arfundir hafa verið haldnir um málið
og í kjölfar þess síðari og auglýsingu
á tillögum síðastliðið haust var nýtt
deiliskipulag reitsins samþykkt, að
því undanskildu að samþykkt nyrsta
hluta hans, þar sem m.a. er áformað
að reisa fjölbýlishúsaíbúðir fyrir
eldri borgara, var frestað.
Sami fjöldi íbúða og áður og
möguleiki á hjúkrunarheimili
Sá hluti reitsins er nú til með-
ferðar skipulagsyfirvalda og að sögn
Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur,
formanns skipulags- og bygginga-
nefndar Reykjavíkur hafa nokkrar
breytingar orðið á honum frá þeim
tillögum sem kynntar voru í haust.
„Við höfum núna tekið tillit til at-
hugasemda sem þá komu fram og
lækkað hæð húsanna og m.a. fellt út
eitt fjölbýlishús þannig að nú eru
þau fjögur í stað fimm áður. Eins
höfum við fært til byggingareiti,
m.a. til að minnka skuggavarp að
nærliggjandi byggð auk þess sem
umferðaraðkoman hefur verið lög-
uð.“
Hún segir fjölda íbúða á þessum
nyrsta reit vera þann sama og áður
en alls er ráðgert að byggja 221 íbúð
í fjölbýlishúsunum og 9 í raðhúsum.
Þá er gert ráð fyrir þjónustumiðstöð
á reitnum og þeim möguleika haldið
opnum að í stað syðsta fjölbýlishúss-
ins komi hjúkrunarheimili.
Samþykkt deiliskipulag frá í
haust gerði m.a. ráð fyrir að reistur
yrði svokallaður smábarnaskóli í
miðju hverfisins, þ.e. nýr skóli fyrir
7–9 ára börn og í tengslum við hann
yrði rekinn leikskóli. Kom fram í
frétt Morgunblaðsins af málinu að
þetta var talin forsenda fyrir því að
fjölga íbúum á svæðinu enda væri
Rimaskóli einn stærsti skóli borg-
arinnar.
Að sögn Steinunnar er nú til at-
hugunar að í stað þess að byggður
verði smábarnaskóli í sérhúsnæði
verði honum komið fyrir í viðbygg-
ingu við Rimaskóla. „Miðað við íbúa-
samsetningu hverfisins er nú talið
heppilegra að byggja einfaldlega
smábarnadeild við skólann en með
því skapast möguleiki á að stækka
græn svæði í hverfinu. Þetta er
núna til skoðunar hjá fræðsluyfir-
völdum.“ Hún bætir því við að verði
þessi hugmynd ofan á yrði að breyta
því skipulagi sem samþykkt var í
haust en með því væri verið að koma
til móts við óskir íbúa um græn
svæði.
Hún segist telja að í skipulags-
ferlinu hafi verið komið verulega til
móts við íbúana. „Það er einmitt út
af því sem tillagan var auglýst aftur
því menn töldu að það hefðu orðið
svo miklar breytingar á henni,“ seg-
ir hún.
Við afgreiðslu málsins í skipulags-
nefnd og borgarráði greiddu sjálf-
stæðismenn atkvæði gegn því að til-
lagan yrði auglýst. Að sögn Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins, hefur
minnihlutinn alla tíð verið á móti
málinu. „Við teljum að enn hafi ekki
verið tekið tillit til sjónarmiða íbúa.
Mótmæli þeirra lutu að því hversu
þétt byggðin verður miðað við aðra
byggð í kring og á móts við það hef-
ur ekki verið komið. Byggðin er enn
jafnþétt þótt hún hafi verið lækkuð
og við teljum að skipulagið gangi
einfaldlega ekki inn í þetta hverfi.“
Vildu bæta við grænum
svæðum og draga úr þéttleika
Hún bendir á að í janúar síðast-
liðnum hafi sjálfstæðismenn lagt til
að skipulaginu yrði breytt á þann
veg að bætt yrði við grænum svæð-
um og þar með dregið úr þéttleika
byggðarinnar. „Þannig hefði verið
hægt að koma til móts við íbúa og ná
einhverri sátt. Þeirri tillögu var hins
vegar frestað en síðan tók R-listinn
málið upp núna og lagði fram tillögu
sem gengur út á að hugsanlega sé
hægt að færa skólann og skapa
þannig græn svæði. Hins vegar hef-
ur sú tillaga hvorki verið rædd í
leikskólaráði né í fræðsluráði þannig
að það er ekkert fast í hendi með
hana og þess vegna sátum við hjá
við afgreiðslu á því máli.“
Síðasti hluti deiliskipulags Landssímalóðarinnar auglýstur
Fjölbýlishúsum fækkað
en fjöldi íbúða sá sami
Hönnun/Zeppelin arkitektar
Búið er að samþykkja deiliskipulag Landssímalóðarinnar að undanskildum
nyrsta hluta hennar þar sem gert er ráð fyrir fjölbýlishúsum en tillögur um
þau hafa mætt andstöðu. Sá hluti lóðarinnar sést hér efst til vinstri.
Grafarvogur
Hugmyndir
um viðbygg-
ingu við Rima-
skóla í stað sér
smábarnaskóla
KÓPAVOGSBÆ hefur verið gert að
fresta því að rífa 50 fermetra báta-
skýli við Vatnsendablett sem flutt
var þangað án leyfis bæjaryfirvalda.
Málið er nú til umfjöllunar úrskurð-
arnefndar skipulags- og byggingar-
mála.
Í bréfi byggingarfulltrúa Kópa-
vogs um málið kemur fram að eig-
anda skýlisins hafði verið gert að
fjarlægja það fyrir 27. mars síðastlið-
inn ella yrði það fjarlægt, enda hafi
það verið sett upp í óleyfi. Var búið
að ráða verktaka til niðurrifsins sem
var tilbúinn til aðgerða umræddan
dag. Eigandinn kærði málið hins
vegar til úrskurðarnefndar skipu-
lags- og byggingarmála og þann 26.
mars, eða daginn áður en rífa átti
húsið, úrskurðaði hún að réttaráhrif-
um ákvörðunar Kópavogsbæjar
skyldi frestað á meðan málið væri til
umfjöllunar hjá nefndinni.
Felur niðurstaðan í sér að eiganda
hússins er ekki skylt að fjarlægja
það eða Kópavogsbæ heimilt að rífa
það meðan á málsmeðferðinni stend-
ur. Er þó undirstrikað í bréfi bygg-
ingarfulltrúa að ekki sé um efnisleg-
an úrskurð að ræða varðandi
lögmæti þess að setja skúrinn á lóð-
ina.
Bænum gert
að fresta niður-
rifi bátaskýlis
Verktaki var tilbúinn til aðgerða
Kópavogur
KRAKKAR í 6. bekk
SVÁ Háteigsskóla hafa
að undanförnu brugðið
sér í alls kyns furðulíki
en þar hefur leikrit um
„verksmiðjuna líkam-
ann“ gengið á fjölunum
síðustu daga.
Leikverkið, sem
krakkarnir sömdu sjálf-
ir, fjallar öðrum þræði
um hringrás blóðsins og
hafa nemendur troðið
upp sem ýmis líffæri
henni tengd, s.s. hjarta,
lifur, lungu og hvít og
rauð blóðkorn. Stað-
reyndir um þetta furðu-
verk líkamans eru sótt-
ar í námsefni
bekkjarins í nátt-
úrufræði og hafa bæði
aðrir nemendur skólans
og foreldrar fengið
tækifæri til að sjá sýn-
inguna og þar með læra svolítið
um það hvernig blóðrásarkerfi
líkamans starfar.
Hér til hægri er það forstjórinn
í verksmiðjunni, hjartað sjálft,
sem er að taka nýtt rautt blóð-
korn í atvinnuviðtal en kornið at-
arna er ósköp fegið að fá vinnu
þrátt fyrir að fá aldrei frí í
vinnunni enda atvinnuleysi víst
mikið meðal blóðkorna þessa dag-
ana.
Hjartað ræðir við
rauða blóðkornið
Háteigshverfi
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Opið lau. 10-16
www.oo.is
BARNAVÖRUVERSLUN
Ungbarnafötin
fást hjá okkur
0-3ja ára