Morgunblaðið - 10.04.2003, Qupperneq 28
LISTIR
28 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna
10. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum og hreppstjórum
um land allt, sendiráðum og mörgum ræðismönnum erlendis.
Í Reykjavík er kosið í Skógarhlíð 6, virka daga frá kl. 9-15.30
og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-14.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýs-
ingavef dómsmálaráðuneytisins www.kosningar2003.is.
Sjálfstæðisfólk! Látið okkur vita um
stuðningsmenn sem ekki verða heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð,
105 Reykjavík – Símar 515 1735 og 515 1736
Bréfasími 515 1739 – Farsími 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
SUMARÆVINTÝRI verðurfrumsýnt á Nýja sviðiBorgarleikhússins í kvöld,en sýningin er byggð á
Vetrarævintýri Shakespeares. Upp-
færslan er nýjasta afkvæmi leik-
hópsins á Nýja sviðinu og er leik-
stjórn í höndum Benedikts
Erlingssonar. „Þetta verk er mikið
ævintýri. Í því orði felst ákveðið
samkomulag milli leikarans og
áhorfandans, rétt eins og barnið sem
biður pabba sinn að segja sér æv-
intýri, og mig langaði til þess að
setja áhorfendur í þær stellingar, að
horfa á ævintýri og komast að þessu
samkomulagi sem til þarf,“ segir
leikstjórinn þegar hann sest niður
með blaðamanni.
Hugmyndin að því að taka Vetr-
arævintýri Shakespeares fyrir kem-
ur frá Benedikt í samvinnu við leik-
hópinn á Nýja sviðinu, en þetta er
þriðja verkefnið sem hann vinnur
með hópnum. „Reyndar fór ég öfuga
leið – ég gekk með ákveðið konsept í
maganum og leitaði svo að leikriti
sem gæti átt við það,“ segir hann, og
segir að konseptið skýri sig sjálft
fyrir þeim sem sjá sýninguna.
Eitt heljarinnar sápuþrugl
Vetrarævintýri hefur breyst í
Sumarævintýri í uppfærslunni í
Borgarleikhúsinu. Hver er ástæðan
fyrir þessari breytingu? „Þó að
Shakespeare sé höfundur leiktext-
ans, erum við höfundar leiksýning-
arinnar, og veljum að kalla hana
Sumarævintýri. Leikrit Shakepea-
res er saga sem hefst um vetur og
endar um sumar, og niðurstaðan
gerist um sumar. Þess vegna finnst
okkur þetta heiti viðeigandi,“ svarar
Benedikt. „Það er auðvitað líka gert
í þeim tilgangi að gefa okkur ákveðið
frelsi. Við erum að setja upp sýningu
sem heitir Sumarævintýri, þó að inni
í henni sé Vetrarævintýri Shake-
speares.“
Vetrarævintýri, A Winter’s Tale,
var frumsýnt árið 1611 í Globe-
leikhúsinu. Þar segir frá konungum
af Bæheimi og Sikiley og fjöl-
skyldum þeirra, meintu framhjá-
haldi, fangelsun, svikum, dauða, ást
og afbrýðisemi á léttum og róm-
antískum nótum – allt sem þarf í
góða sápuóperu jafnt fyrr á tímum
sem nú til dags. „Gamanleikir
Shakespeares eru oft á tíðum eitt
heljarinnar sápuþrugl, þar sem flétt-
an er flókin og ótrúleg, og Vetraræv-
intýri er slíkur gamanleikur, þótt
hann hefjist sem alger harmleikur.
Á Shakespearetímanum fólst skiln-
ingur áhorfenda á þessu tvennu ein-
ungis í endinum, ef hann var já-
kvæður var það gamanleikur, ef
hann var sorglegur var það harm-
leikur. Stíll eða viðfangsefni gátu
verið alveg eins, og fyrir vikið höfðu
höfundar bæði harmleikja og gam-
anleikja leyfi fyrir alls konar trúð-
leikjum, „comic relief“ og drama. Þá
var formið frjálsara – seinna meir
var svo farið að útvatna og einlita í
leikhúsinu.“
Í verkinu koma fjörutíu persónur
við sögu, en leikararnir á sýningunni
í Borgarleikhúsinu eru einungis sjö.
Hvernig leysir leikstjórinn þetta
mál? „Á tímum Shakespeares voru
yfirleitt átta eða tólf leikarar í leik-
hópnum og það þarf ekki fleiri til –
það er hægt að leika öll verk hans
með þessum leikarafjölda. Það er
vitað að Shakespeare lék sjálfur í þó
nokkrum verkum sínum, yfirleitt
persónur sem dóu fyrir hlé svo hann
gæti gert upp kassann í lok sýning-
arinnar. Við leysum þetta mál því
auðveldlega,“ svarar hann.
Umgjörð sýningarinnar er afar
einföld og segist Benedikt hafa orðið
fyrir áhrifum af leikhúsi á tímum
Shakespeares við uppsetninguna.
„Ég er heillaður af leikhúsinu eins
og það var á þeim tíma – þá þurfti
bara eitt vínglas til að gefa til kynna
að senan gerðist innan dyra, eða
ákveðið hljóð til að fara útí skóg. Það
eina sem við höfum úr að spila
hérna, líkt og á tímum Shake-
speares, er leikpallurinn, eða búðin,
og nokkrir leikmunir auk leik-
aranna. Það sem við höfum svo um-
fram eru ljósin.“
Benedikt segir að í Sumaræv-
intýri sé leitast við að fjalla um leik-
húsið sjálft að vissu leyti og vera til-
raun til innsýnar inn í það fyrirbæri,
sem leiklist er. „Það hvernig við
manneskjur höfum búið til þetta
tæki, leikhúsið, til að spegla okkur
sjálf er eitt viðfangsefnanna í sýn-
ingunni. Í þessari sýningu er á ferð-
inni eins konar leikhúsverksmiðja
sem segir sögur og framleiðir æv-
intýri. Í heildina er Sumarævintýri
svo saga um fyrirgefningu, sem er
saga sem allir hafa gott af að láta
segja sér aftur og aftur.“
Heillaður af leikhúsinu
á tímum Shakespeares
Leikhópurinn á Nýja
sviðinu frumsýnir í
kvöld Vetrarævintýri
Shakespeares undir
heitinu Sumarævintýri.
Inga María Leifsdóttir
hitti leikstjórann, Bene-
dikt Erlingsson, að máli.
Morgunblaðið/Jim SmartUmgjörð sýningarinnar er afar einföld og túlka sjö leikarar fjörutíu persónur.
„Það hvernig við manneskjur höfum búið til þetta tæki, leikhúsið, til að
spegla okkur sjálf er eitt viðfangsefnanna í sýningunni,“ segir leikstjóri
Sumarævintýrisins, Benedikt Erlingsson.
EYGLÓ Harðardóttir opnar inn-
setningu í Kúlunni í Ásmundar-
safni kl. 17 í dag og er það jafn-
framt lokasýning
sýningarþrennunnar sem hófst þar
um miðjan janúar. Hinir lista-
mennirnir sem sýnt hafa í Kúlunni
eru Tumi Magnússon og Finnbogi
Pétursson.
Listamennirnir hafa nálgast við-
fangsefni sitt út frá ólíkum for-
sendum en um upplifun sína af
Kúlunni segir Eygló m.a. í sýning-
arskrá: „Bygging Ásmundar er
tenging við annan heim en þann
sem við höfum oftast fyrir aug-
unum í íslenskri byggingarlist.
Þegar staðið er inni í kúlunni er
lítið jarðsamband; þegar horft er
út um gluggana þarf að hafa
meira fyrir því að sjá niðurávið en
uppávið. Þannig er skynjun áhorf-
andans háð aðstæðum hans. Það
er eins og að vera staddur inni í
risaauga að vera inni í kúlunni og
horfa út um gluggana. Sjónrænt
býr kúlan yfir mikilli mýkt. Mér
fannst verkið þurfa að búa yfir
einhverri óreiðu, stjórnleysi sem
mótvægi við mýktina.“
Sýning Eyglóar í Kúlunni stend-
ur til 11. maí. Opið alla daga kl.
13-16.
Stjórnleysi
til mótvægis
mýktinni
Morgunblaðið/Golli
Eygló Harðardóttir opnar innsetningu í Kúlunni í dag kl. 17.
byggt á Vetrarævintýri eftir
William Shakespeare
Leikstjóri: Benedikt Erlings-
son.
Leikendur: Gunnar Hansson,
Halldór Gylfason, Halldóra
Geirharðsdóttir, Harpa Arnar-
dóttir, Sóley Elíasdóttir,
Sveinn Þórir Geirsson og Þór
Tulinius.
Tónlist: Leikhópurinn.
Lýsing: Kalle Olav Ropponen.
Leikmynd: Snorri Freyr Hilm-
arsson.
Búningar: Guðrún Lárusdótt-
ir.
Sumarævintýri
ingamaria@mbl.is
Skáld mánaðarins í Þjóðmenning-
arhúsi er Vilborg Dagbjartsdóttir.
Kl. 13 verður opnuð sýning á verkum
Vilborgar og um-
fjöllun um Vil-
borgu hefst á
Skólavefnum,
www.skolavef-
urinn.is. Við opn-
unina les Vilborg
úr verkum sínum
og sýningin og
efnið á Skólavefn-
um verður kynnt.
Skáld mánaðarins
er samvinnuverkefni Þjóðmenning-
arhúss, Skólavefjarins ehf. og Lands-
bókasafns Íslands – Háskóla-
bókasafns sem setur upp sýninguna í
bókasal Þjóðmenningarhúss. Á sýn-
ingunni gefur að líta bækur höfundar,
eiginhandrit og myndskreytingar. Á
Skólavefnum er kynning á verkum
Vilborgar og viðtal við hana auk þess
sem hún mun svara spurningum á
vefnum.
Málþing um þjóðerni verður kl. 20 í
fundarsal ReykjavíkurAkademíunn-
ar í JL-húsinu við Hringbraut. Það er
Stofnun Sigurðar Nordals og rit-
stjórn greinasafnsins Þjóðerni í þús-
und ár? sem stendur að málþinginu.
Þar verða flutt þrjú erindi sem byggj-
ast á greinum sem birtust í bókinni
auk þess sem einn ritstjóra, Sverrir
Jakobsson, kynnir efni bókarinnar og
hugmyndina að baki henni. Gottskálk
Þór Jensson flytur erindið „Um sögu-
leysi íslenskrar sagnfræði. Íslenskt
þjóðerni og evrópsk latínumenning.“
Jón Yngvi Jóhannsson nefnir erindi
sitt „Af reiðum Íslendingum. Deilur
um Nýlendusýninguna 1905“ og
Katrín Jakobsdóttir nefnir sitt erindi
„Ísland í aðalhlutverki. Þjóðern-
isstefna Morgunblaðsins.“
Jónas Ingólfur heldur málverkasýn-
ingu í K-byggingu LSH í dag og á
morgun. Jónas greindist með krabba-
mein árið 2002 og byrjaði í endurhæf-
ingu á göngudeildinni í Kópavogi í
nóvember sama ár. Hann varði mikl-
um tíma í Listasmiðju iðjuþjálfunar
við að mála myndir og svo heima við
eftir þjálfun. Sjá má afraksturinn eft-
ir tímabilið á sýningunni.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Borgarleikhúsið – Kvetch
Sýningum á leikritinu Kvetch,
eftir Steven Berkoff, sem Leikhóp-
urinn Á senunni sýnir í Borgar-
leikhúsinu, fer fækkandi og verða
síðustu sýningar á sunnudag 24.
apríl og 3. maí.
Tjarnarbíó – Undir hamrinum
Sýningum Hugleiks á leikritinu
Undir Hamrinum fer senn að ljúka
og eru þrjár sýningar eftir: í
kvöld, annað kvöld og miðviku-
dagskvöld.
Sýningum lýkur
♦ ♦ ♦